DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Autumn Vines Cardigan

Peysa með blaðamynstri og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Alpaca.

DROPS 179-29
DROPS Design: Mynstur z-798
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400-450-500-550 g litur 2925, appelsínugulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni (24 lykkjur og 48 umferðir með garðaprjóni) verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA Bogalaga (hvít), NR 521: 6-6-6-7-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsi í garðaprjóni, síðan er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu með ca 8 cm millibili.
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið saman og 1 lykkju brugðið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, frá miðju að framan, ofan frá og niður.

PEYSA.
Fitjið upp 106-110-116-122-128-134 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-24-22-24-22-12 lykkjur jafnt yfir (5 ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar brugðið í hverri umferð = kantur að framan) = 118-134-138-146-150-146 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt til baka.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu – þannig: Prjónið 5 lykkjur brugðið (= kantlykkjur að framan) A.1 (= 13-15-17-13-15-17 lykkjur) og 7-7-5-12-13-13 lykkjur í garðaprjóni (= vinstra framstykki), A.2 (= 1 lykkja), prjónið 12-16-18-16-12-6 lykkjur í garðaprjóni (= ermi), A.2, prjónið 40-44-44-50-56-60 lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki), A.2, prjónið 12-16-18-16-12-6 lykkjur í garðaprjóni (= ermi), A.2, prjónið 7-7-5-12-13-13 lykkjur í garðaprjóni, A.1 (= hægra framstykki) og endið með 5 lykkjur brugðið (= kantlykkjur að framan).

Haldið áfram með A.1, A.2 og 5 lykkjur brugðið fyrir kant að framan í hvorri hlið. Þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.1 og A.2 alls 3-3-3-4-4-4 sinnum á hæðina, passið uppá að fyrsta lykkjan í A.2 verði beint yfir miðju lykkju frá fyrri mynstureiningu = 334-374-402-434-470-498 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-23-25-27-30-33 cm frá uppfitjunarkanti.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 53-58-61-67-74-80 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 66-76-84-88-92-94 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið 96-106-112-124-138-150 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 66-76-84-88-92-94 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið þær 53-58-61-67-74-80 lykkjur sem eftir eru (= hægra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 222-242-258-282-314-342 lykkjur. Stykkið er nú mælt héðan. Haldið áfram í garðaprjóni, A.1 og brugðnar kantlykkjur að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Þegar stykkið mælist ca 26-25-25-25-24-23 cm, stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.1 á hæðina, prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur. Prjónið 10 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur (kantur að framan heldur áfram eins og áður), fellið síðan laust af – lesið AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið 66-76-84-88-92-94 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjón 3 og fitjið að auki upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 76-86-96-100-106-110 lykkjur. Stykkið er nú mælt héðan! Ermin er síðan prjónuð í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi. Fækkið lykkjum með 2½-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 13-17-20-21-23-24 sinnum = 50-52-56-58-60-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-36-34-33-30-28 cm prjónið GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist 42-40-38-37-34-32 cm fellið LAUST af. Sjá AFFELLING!
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið (eins og útskýrt er í mynstri), það eiga að myndast göt
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Robin Ryan wrote:

Hi, is the diagram worked from the bottom up. (Right to left), Even though the sweater is knit from the top down? That’s what it appears looking at the cardigan, but wanted to confirm. Thank you.

25.08.2023 - 10:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ryan, yes that's right, diagrams are worked bottom up working the right side rows from the right towards the left and the wrong side rows from the left towards the right. Happy knitting!

25.08.2023 - 12:12

country flag Hanna Pedersen wrote:

Ska det inte vsra en avig maska över de tre ihopstickade maskorna på diagram a1, stl s-xl?

18.12.2022 - 12:19

country flag Tania wrote:

Buongiorno, non capisco se il bordo delle asole e dei bottoni che sono di 5 maglie, è a punto legaccio o tutto rovescio. Grazie

07.12.2022 - 11:10

DROPS Design answered:

Buonasera Tania, il bordo è lavorato a rovescio. Buon lavoro!

11.12.2022 - 22:04

country flag Lucila Constanza wrote:

Hola, en el diagrama A2 tallaM los aumentos (bastas) son dos seguidos o tengo que hacer un punto entre ellos?

09.07.2022 - 07:39

DROPS Design answered:

Hola Lucila, los aumentos se encuentran siempre entre dos puntos, así que nunca vas a tener 2 aumentos seguidos. En este caso, trabajarías hebra, punto, hebra.

15.07.2022 - 12:52

country flag Angie wrote:

Regarding the increases, I think I understand it now. I have knitted a test piece and it seems ok. I think I will be placing markers to help find the start of the sleeves, and the centre back. I'm about to order my yarn and hope to get this finished by the end of lockdown!

07.03.2021 - 17:50

DROPS Design answered:

Dear Angie, it is always a good idea to use marker, to help you remember where to increase and / or to help you remember exaxtly where certain points of your knitting are. happy Knitting!

08.03.2021 - 03:23

country flag Angie wrote:

Hi I love the design of this cardigan but before I buy the yarn I want to ask about the shaping. I can see that there are increases and decreases in the chart, but I can't see from the pattern how the shaping happens (e.g. the sleeve grows from 12 to 66 stitches). How we get from 118 stitches on the needle to 334 (small size)? I just can't visualise it and don't understand the instructions 'continue with A1, A2 and purl 5 for the band for each side'. Please help!

06.03.2021 - 01:04

DROPS Design answered:

Dear Angie, If you knit a lace pattern for a straight piece (where the number of stitches stay the same) in general, you have to watch that within the pattern you will have to have an increase for each decreaase. If you look carefull, the the first 8-12 rows (depending on the size), of the A.2 pattern have yarnovers (increases) without corresponding decreases, thus after each row /round the number of stitches will increase there. Happy Knitting!

07.03.2021 - 21:44

country flag Margaret wrote:

179-29 Working the S-L A2 pattern. Rows 1 and 3 are yarn overs. These are increases on the sleeves. Both these’ yarn overs’ are done on the same side, which leaves one front being 2 stitches more than the other front. Should the yo over alternate over the middle stitch which is a knit stitch, which would then even up the increases. Hope this is clear.

10.05.2020 - 17:28

DROPS Design answered:

Dear Margaret, you should work the yarn overs as shown in the diagram, ie on row 1 work (knit1, YO) in A.2, on row 3 work (K1, YO, K1). And continue working the increases as shown in A.2 (do not increase more sts than the one shown in diagram). Happy knitting!

11.05.2020 - 10:09

country flag Emmanuelle wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas cette phrase dans le patron: "Tricoter 3-3-3-4-4-4 fois A.1 et A.2 au total en hauteur, bien veiller à ce que la 1ère maille de A.2 soit bien juste au-dessus de la maille au milieu du motif précédent". Est-ce que cela implique de faire 3 fois (pour ma taille) A.1 de bas en haut PUIS 3 fois A.2 de bas en haut? C'est mon premier modèle drops et je ne suis pas sûre de moi. Merci de m'éclairer. Bonne journée, Emmanuelle

15.11.2019 - 16:41

DROPS Design answered:

Bonjour Emmanuelle, quand vous répétez les diagrammes en hauteur, la maille du 1er rang de A.2 doit être la maille du milieu de A.2 du motif précédent en hauteur. Vous pouvez placer un marqueur dans cette maille, vous saurez ainsi où tricoter le A.2 suivant en hauteur. En répétant A.1 en hauteur, il va s'aligner automatiquement. Répétez A.1 après/avant les 5 m de bordure devant de chaque côté et répétez A.2 à chaque raglan. Bon tricot!

18.11.2019 - 08:10

country flag Michaela wrote:

Hej Drops. Jeg har nu fået monteret min autumn vines cardigan. Jeg vil gerne presse den, da bladmønstret er meget udstående i forhold til retstrikket. Kan det lade sig gøre at presse den forsigtigt, når det er retstrik eller vil retstrikken så blive trykket ud? Har I evt. andre muligheder for at få den mere jævn.

15.04.2019 - 13:35

DROPS Design answered:

Hei Michaela. Svarer deg her også jeg: Du kan forsøke å dampe plagget lett, men det er litt ulikt hvor kraftig strykejern er så vi anbefaler at du strikker en prøvelapp og damper den først. God fornøyelse

26.04.2019 - 14:54

country flag Solrun Hyldmo wrote:

Det er 146 m på str. XL. Etter dette mønsteret mangler 4 masker, jeg får 142 m. Jeg var innom Jens Hoff i Trondheim for å få hjelp med mønsteret, de gruer seg når kunder kommer med spørsmål på Drops mønster. De er så vanskelige og forstå. Damen i butikken brukte en time på dette, og finner ikke ut hvor det står hvor vi skal øke m. på mønsteret. Hun hadde jobbet med garn/mønster i 30 år, Er det riller på hele jakken unntatt på armene, er det glattstrikk der?

03.02.2019 - 11:25

DROPS Design answered:

Hei Solrun. Se svar nedenfor angående hvordan du strikker første omgang med diagrammer. Alle økninger til raglan er tegnet inn i diagram A.2 (Du strikker A.2 totalt 4 ganger i høyden), de er tegnet inn som ovaler (enten sorte eller hvite avhengig av om det er hullmønster eller ikke). Første økning skjer allerede på første omgang. Du strikker altså masken i A.2 og lager et kast om pinnen. Når det ikke strikkes etter diagram strikkes resten av bærestykket i riller. God fornøyelse

07.02.2019 - 10:56