Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja | |
= brugðin lykkja | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt eða brugðið (eins og útskýrt er í mynstri), það eiga að myndast göt | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt | |
= prjónið 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Autumn Vines |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Peysa með blaðamynstri og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Alpaca.
DROPS 179-30 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. PEYSA: Fitjið upp 96-100-106-112-118-124 lykkjur á hringprjón 3 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-24-22-24-22-12 lykkjur jafnt yfir = 108-124-128-136-140-136 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð þannig: 20-22-22-25-28-30 lykkjur garðaprjón (= hálft bakstykki), A.1 (= 1 lykkja), prjónið 12-16-18-16-12-6 lykkjur garðaprjón (= ermi), A.1, prjónið 40-44-44-50-56-60 lykkjur garðaprjón (= framstykki), A.1, prjónið 12-16-18-16-12-6 lykkjur garðaprjón (= ermi), A.1, prjónið 20-22-22-25-28-30 lykkjur garðaprjón (= hálft bakstykki). Haldið áfram með garðaprjón og A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.1 alls 3-3-3-4-4-4 sinnum á hæðina, passið uppá að fyrsta lykkjan í A.1 verði beint yfir miðju lykkju frá fyrri mynstureiningu = 324-364-392-424-460-488 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-23-25-27-30-33 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 48-53-56-62-69-75 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 66-76-84-88-92-94 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóni (= undir ermi), prjónið 96-106-112-124-138-150 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-76-84-88-92-94 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóni (= undir ermi) og prjónið þær 48-53-56-62-69-75 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-232-248-272-304-332 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp (= 106-116-124-136-152-166 lykkjur á framstykki og á bakstykki) – Stykkið er nú mælt héðan! Þegar stykkið mælist 10 og 20 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hliðum = 4 lykkjur fleiri í hverri skiptingu = 220-240-256-280-312-340 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-27-27-27-26-25 cm fellið laust af – lesið AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið 66-76-84-88-92-94 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjón 3 og fitjið að auki upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur mitt undir ermi = 76-86-96-100-106-110 lykkjur. Stykkið er nú mælt héðan! Ermin er síðan prjónuð í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi. Fækkið lykkjum með 2½-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 13-17-20-21-23-24 sinnum = 50-52-56-58-60-62 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-36-34-33-30-28 cm prjónið GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist 42-40-38-37-34-32 cm fellið LAUST af. Sjá AFFELLING! Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6921 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (12)
Jutta Pinnerød wrote:
Jeg forstår ikke hvor jeg skal øke masker?
23.01.2022 - 13:47DROPS Design answered:
Hej Jutta. Du ökar maskor enligt diagram A.1. Mvh DROPS Design
24.01.2022 - 07:27Anne wrote:
Bonjour, En effet, je remarque aussi tout comme Marion, que le motif est répété 3 fois dans l'explication, alors que sur la photo, il semble être répété 2 fois ; ou alors le 3e motif est sous le bras (ce qui semble étrange) ? Merci d'avance.
25.01.2021 - 14:31DROPS Design answered:
Bonjour Anne, la fin du 3ème motif en hauteur se trouve tout à la fin de l'emmanchure et légèrement sous la manche - on peut le deviner sur la 1ère photo. Bon tricot!
25.01.2021 - 16:11Marion wrote:
Deuxième question : quel type d'augmentation faut-il faire ? Simple jeté, maille tricotée deux fois où augmentation intercalaire ? Il n'y a pas de précision dans les explications. Merci par avance pour votre réponse.
20.12.2020 - 09:41Marion wrote:
Bonjour, je m'apprête à commencer ce modèle et plusieurs choses me paraissent bizarres entre le patron et la photo. Le col sur le patron me paraît plus serré que celui de la photo. J\'ai fait un produit en croix par rapport à l\'échantillon et j\'obtiens 41cm pour le col en taille M or ma tête ne passe pas dans ce cas. De plus sur la photo on voit le motif de dentelle répété deux fois alors que dans le patron on le répète 3 fois. Bref je suis perdue. A l\'aide !
19.12.2020 - 22:44DROPS Design answered:
Bonjour Marion, désolée pour le retard de la réponse. Montez vos mailles bien souplement pour que le montage ne soit pas trop serré. Le motif du raglan se tricote bien 3 fois en hauteur, on peut le deviner sur la 1ère photo où on voit le début de la feuille (l'emmanchure est ici un peu serrée car le modèle resserre le bras, mais c"'est bien juste ainsi). Bon tricot!
25.01.2021 - 16:14Marie wrote:
Danke für die rasche Antwort. Das macht die Sache klarer. Nach wie vor unklar ist, ob die geraden Reihen so gearbeitet werden müssen wie im Diagramm gezeichnet oder genau umgekehrt. In der Legende heißt es bei der Erklärung der kleinen schwarzen Ellipse\r\n\"= 1 Umschlag zwischen 2 Maschen, in der nächsten Runde den Umschlag rechts verschränkt stricken\". Im Diagramm eingezeichnet ist in der nächsten Runde an der Stelle aber eine linke Masche, keine rechte
16.08.2019 - 11:14DROPS Design answered:
Liebe Marie, also bei der 3. Reihe wird dieser Umschlag rechts verschränkt gestrickt, aber es sieht so aus, daß die anderen immer links verschränkt gestrickt werden, unser Design Team wird das noch mal prüfen, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!
16.08.2019 - 12:33Marie wrote:
Hallo! Zeigt das Diagramm alle Runden an, also auch die links gestrickten? Wieso sollen diese Runden dann von links nach rechts gelesen werden? Man kommt in der Runde doch immer von rechts. Oder ist das Diagramm so angelegt, dass man es mit Hin-Und Rückreisen Stricken muss und für die Runde muss man entsprechend verkehrt herum denken (und rechte Maschen wären dann in der Runde linke und andersherum)? Ich bin verwirrt.
15.08.2019 - 21:34DROPS Design answered:
Liebe Marie, die Diagramme zeigen alle Reihen, wenn Sie in der Runde gestrickt sind, sollen alle Reihen von rechts nach links gelesen werden. Deutsche Anleitung wird angepasst, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!
16.08.2019 - 09:02Michaela wrote:
Hej. Bladmønstret på min cardigan bølger en del eller stikker ud fra retstrikken. Kan jeg presse min cardigan på bladmønstret så det kommer mere i plan med den retstrikkede baggrund? Hvordan presser jeg bedst retstrik? På forhånd tak
24.04.2019 - 15:27DROPS Design answered:
Hei Michaela. Du kan forsøke å dampe plagget lett, men det er litt ulikt hvor kraftig strykejern er så vi anbefaler at du strikker en prøvelapp og damper den først. God fornøyelse
26.04.2019 - 14:10Angela wrote:
Nel punto in cui finisce il giro a diritto ed inizia il giro a rovescio per ottenere la maglia a legaccio, quindi nel mezzo dietro, si forma una riga evidente perpendicolarmente al lavoro. E' corretto o si può ovviare in qualche modo? grazie
16.09.2017 - 19:27DROPS Design answered:
Buongiorno Angela. Purtroppo nel punto a legaccio lo scalino rimane. Può provare a tringere un po' la seconda maglia del giro; può eventualmente provare a inizio giro, a sollevare il filo tra le maglie e lavorarla con la prima maglia del giro. Ma in entrambi i casi, un po' il passaggio continua a vedersi. Buon lavoro!
17.09.2017 - 12:26Marina Romano wrote:
Liebes Drops Team Habe den Pullover mit Blattmuster (Drops 179-30) angefangen zu stricken, in Größe L. Nun weiß ich nicht, welches Diagramm ich nehmen muss. Verstehe ich irgendwie nicht. Können sie mir weiterhelfen? Liebe Grüße und vielen Dank
09.08.2017 - 15:27DROPS Design answered:
Liebe Frau Romano, in der Größe L stricken Sie Diagram "A.1 L-XXXL", ganz unten (= 3. von oben). Viel Spaß beim stricken!
09.08.2017 - 17:07Renate wrote:
Tolles Modell in wunderschöner Farbe. Mein Favorit!!!
27.07.2017 - 08:18