Susanna skrifaði:
Mängden garn kan inte stämma. Räcker verkligen 150 gram till storlek L?
08.11.2017 - 21:53
Jana skrifaði:
Dobrý deň, skutočne je spotreba len 175 g priadze?
29.09.2017 - 10:53DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Jano, ano - příze DROPS Kid-Silk je lehoučká jako pírko a proto se na klubíčko vejde hodně metrů. Je navinuta v klubíčkách o váze 25 gramů a každé toto klubíčko tvoří cca 200 metrů příze, takže 7 klubíček na svetr postačí. Hodně zdaru! Hana
29.09.2017 - 20:43
Niamh skrifaði:
What is the gauge for this pattern please?
04.09.2017 - 13:04DROPS Design svaraði:
Dear Niamh, you'll find gauge under tab "Materials", ie: 23 stitches and 45 rows garter stitch on 10 cm in width and 10 cm in height. Happy knitting!
04.09.2017 - 13:43
Griet skrifaði:
Ik zie het telpatroon niet.
30.08.2017 - 18:19DROPS Design svaraði:
Hallo Griet, Het staat telpatroon er bij, ondertussen!
13.09.2017 - 16:23Vajkai Kati skrifaði:
Kedves Garnstudio! A magyar leírásnál a kötőtű méretét 4 mm-ről - az eredeti leírás szerinti - 3,5 mm-re szíveskedjenek javítani. Nagy rajongójuk, Vajkai Kati
04.08.2017 - 10:16DROPS Design svaraði:
Kedves Kati! Köszönöm, hogy jelezte a hibát, ami így javításra került. Szeretném felhívni a figyelmét a Facebook "Magyar DROPS csoport"-jára, ahol megmutathatja munkáit, és közvetlenül is jelezheti a hibákat. Örömteli kézimunkázást!
06.08.2017 - 10:31
Malin skrifaði:
I am going to knit this!!! So nice!
17.07.2017 - 13:34
Sylvie skrifaði:
Une version du cardigan modernisée.Design très réussi.
28.06.2017 - 20:45
Света skrifaði:
Очень красиво и нежно!
05.06.2017 - 06:06
Anna skrifaði:
Finally a really sweet cardigan in this wonderful yarn!
02.06.2017 - 08:53
Song of the Sea Cardigan#songoftheseacardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Peysa með laskalínu, gatamynstri, garðaprjóni og klauf í hlið, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-21 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning A.1 og A.5 á bara við um stærð S-XL-XXL. ÚTAUKNING-1 (á við um berustykki) Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 17 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 3,4. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis á eftir 3. og 4. hverri lykkju. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við öll 4 prjónamerkin (= alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við bæði prjónamerkin. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Öll úrtaka er gerð frá réttu (þ.e.a.s. með sléttum lykkjum). Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), endið með 2 lykkjum slétt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir í lok umferðar, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman, prjónið síðan síðustu lykkju brugðið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í garðaprjóni í hálsmáli. Fellið síðan af 5-5-5-6-6-6 næstu með 8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður, á hringprjón frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 109-114-114-126-126-137 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið), á hringprjóna 2,5 með 2 þráðum Kid-Silk. Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið sem prjónaðar eru brugðið í hverri umferð til loka. Prjónið, aukið út og setjið 4 prjónamerki frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan brugðið, 17-18-18-21-21-24 lykkjur slétt, jafnframt er aukið út um 5-8-8-9-9-10 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1, setjið 1 prjónamerki (= vinstra framstykki), prjónið 16 lykkjur slétt jafnframt er aukið út um 11 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki (= vinstri ermi), 33-36-36-42-42-47 lykkjur slétt jafnframt því sem aukið er út um 10-15-15-17-17-20 lykkjur jafnt yfir (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, 16 lykkjur slétt jafnframt er aukið út um 11 lykkjur jafnt yfir (= hægri ermi), setjið 1 prjónamerki, 17-18-18-21-21-24 lykkjur slétt jafnframt er aukið út um 5-8-8-9-9-10 lykkjur jafnt yfir (= hægra framstykki), endið með 5 kantlykkjum að framan brugðið – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan = 151-167-167-183-183-199 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu með 5 kantlykkjum að framan brugðið í hvorri hlið á stykki. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Vinstra framstykki: Prjónið 5 kantlykkjur brugðið, prjónið A.1 yfir næstu 4-0-0-4-4-0 lykkjur, A.2 yfir næstu 0-8-8-0-0-8 lykkjur, A.3 yfir næstu 8-8-8-16-16-16 lykkjur, A.4 yfir næstu 9 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja). Vinstri ermi: Prjónið A.2 yfir næstu 8 lykkjur, A.3 yfir næstu 8 lykkjur, A.4 yfir næstu 9 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja). Bakstykki: Prjónið A.2 yfir næstu 8 lykkjur, prjónið A.3 yfir næstu 24-32-32-40-40-48 lykkjur, A.4 yfir næstu 9 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja). Hægri ermi: Prjónið eins og vinstri ermi. Hægra framstykki: Prjónið A.2 yfir næstu 8 lykkjur, A.3 yfir næstu 8-8-8-16-16-16 lykkjur, A.4 yfir næstu 0-9-9-0-0-9 lykkjur, A.5 yfir næstu 5-0-0-5-5-0 lykkjur og endið með 5 kantlykkjum að framan brugðið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur þ.e.a.s. prjónið lykkjur slétt þar til pláss er fyrir hálfa eða heila nýja mynstureiningu í hvorri hlið. Aukið svona út í annarri hverri umferð 1-2-6-6-7-7 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 21-23-22-24-26-28 sinnum (= alls 22-25-28-30-33-35 sinnum). Á eftir öllum útaukningum eru 327-367-391-423-447-479 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-23-24-26-28-30 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan brugðið, haldið áfram með mynstur yfir næstu 46-52-54-60-63-71 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið næstu 66-74-82-86-92-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa lykkja, haldið áfram með mynstur yfir næstu 93-105-109-121-127-143 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 66-74-82-86-92-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa lykkja, haldið áfram með mynstur yfir næstu 46-52-54-60-63-71 lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan brugðið (= hægra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 211-235-251-275-295-327 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: Passið uppá að mynstrið passi við mynstur á berustykki. Vinstra framstykki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan brugðið, A.1 yfir næstu 4-0-0-4-4-0 lykkjur eins og áður, A.2 yfir næstu 0-8-8-0-0-8 lykkjur eins og áður, A.3 yfir næstu 32-32-40-48-56-56 lykkjur, A.4 yfir næstu 9 lykkjur, 5-7-3-5-2-6 lykkjur garðaprjón. Bakstykki: Prjónið 6-8-8-6-7-7 lykkjur garðaprjón, A.2 yfir næstu 8 lykkjur, A.3 yfir næstu 72-80-88-104-112-128 lykkjur, A.4 yfir næstu 9 lykkjur, 6-8-8-6-7-7 lykkjur garðaprjón. Hægra framstykki: Prjónið 5-7-3-5-2-6 lykkjur garðaprjón, A.2 yfir næstu 8 lykkjur, A.3 yfir næstu 32-32-40-48-56-56 lykkjur, A.4 yfir næstu 0-9-9-0-0-9 lykkjur, A.5 yfir næstu 5-0-0-5-5-0 lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan brugðið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING-2. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Aukið svona út með 4-5-5-5-3-4 cm millibili alls 5-4-4-4-6-5 sinnum = 231-251-267-291-319-347 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-22-23-23-23-23 cm frá skiptingu er fram- og bakstykki prjónað til loka hvort fyrir sig, passið uppá að síðasta umferðin sé prjónuð frá röngu (= 12 cm klauf). VINSTRA FRAMSTYKKI: = 60-65-69-75-82-89 fyrstu lykkjur frá réttu. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan brugðið, mynstur eins og áður yfir næstu 45-49-57-61-69-73 lykkjur, 10-11-7-9-8-11 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu (stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá öxl), endið mynstur eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina. Prjónið 10 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan laust af með tvöföldum þræði. BAKSTYKKI: = 111-121-129-141-155-169 lykkjur. Prjónið 11-12-12-10-13-12 lykkjur garðaprjón, mynstur eins og áður yfir næstu 89-97-105-121-129-145 lykkjur, 11-12-12-10-13-12 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu, stillið af við vinstra framstykki. Prjónið 10 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan laust af með tvöföldum þræði. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 60-65-69-75-82-89 lykkjur. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 10-11-7-9-8-11 lykkjur garðaprjón, mynstur eins og áður yfir næstu 45-49-57-61-69-73 lykkjur, endið með 5 kantlykkur að framan brugðið. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu, stillið af við vinstra framstykki. Prjónið 10 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan laust af með tvöföldum þræði. ERMI: Setjið 66-74-82-86-92-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 3,5 og fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umferða = 74-82-94-98-108-108 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka, en rangan á að vísa út (brugðið frá réttu, slétt frá röngu). Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 13-16-21-21-25-24 sinnum = 48-50-52-56-58-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-38-38-36-35-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur í 4 cm. Fellið síðan laust af með tvöföldum þræði. Ermin mælist 43-42-42-40-39-37 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum – saumið innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið tölur í. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #songoftheseacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.