DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Song of the Sea

Prjónuð peysa með laskalínu, gatamynstri, garðaprjóni og klauf í hliðum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 181-22
DROPS Design: Mynstur ks-128
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-175 g litur 24, bensín

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 45 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 2,5 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Endurtakið við öll 4 prjónamerkin (= alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu.
Aukið út um lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki þannig: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur garðaprjón. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-1 (á við um berustykki):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 16 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 1,4. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis á eftir ca 1. og 2. lykkju.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Öll úrtaka er gerð frá röngu (þ.e.a.s. með sléttum lykkjum).
Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), endið með 2 lykkjur slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykkið er prjónað í hring ofan frá og niður, á hringprjón, áður en það skiptist í fram- og bakstykki sem prjónað er fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 98-104-104-116-116-126 lykkjur á hringprjón 2,5 með 2 þráðum Kid-Silk. Takið frá annan þráðinn og prjónið síðan með 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið, aukið út og setjið 4 prjónamerki þannig: Prjónið 16 lykkjur slétt jafnframt því sem aukið er út um 11 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1, setjið 1 prjónamerki (= vinstri ermi), 33-36-36-42-42-47 lykkjur slétt jafnframt því sem aukið er út um 10-15-15-17-17-20 lykkjur jafnt yfir (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, 16 lykkjur jafnframt er aukið út um 11 lykkjur jafnt yfir (= hægri ermi), setjið 1 prjónamerki, 32-35-35-41-41-46 lykkjur slétt jafnframt er aukið út um 10-15-15-17-17-20 lykkjur jafnt yfir, setjið 1 prjónamerki og endið með 1 lykkju garðaprjóni (= bakstykki) = 140-156-156-172-172-188 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðna. Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Prjónið síðan þannig:
Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 8 lykkjur, A.2 yfir næstu 8 lykkjur, A.3 næstu 9 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja = vinstri ermi), prjónið A.1 yfir næstu 8 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 24-32-32-40-40-48 lykkjur, A.3 yfir næstu 9 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja = framstykki). A.1 yfir næstu 8 lykkjur, prjónið A.2 yfir næstu 8 lykkjur, A.3 yfir næstu 9 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja = hægri ermi), prjónið A.1 yfir næstu 9 lykkjur, 1 lykkja garðaprjón (= bakstykki).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Aukið svona út í annarri hverri umferð 1-2-6-6-7-7 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 21-23-22-24-26-28 sinnum (= alls 22-25-28-30-33-35 sinnum).
Eftir allar útaukningar eru 316-356-380-412-436-468 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 21-23-24-26-28-30 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 66-74-82-86-92-92 lykkjurnar á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur yfir næstu 92-104-108-120-126-142 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 66-74-82-86-92-92 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur yfir næstu 92-104-108-120-126-142 lykkjur (= bakstykki). Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermum, í báðum hliðum. Þessi prjónamerki merkja skiptingu á milli fram- og bakstykkis. Framstykki, bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

BAKSTYKKI:
= 100-112-120-132-142-158 lykkjur. Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Stillið mynstrið af þannig að það passi við mynstur á berustykki. Prjónið 5-7-7-5-6-6 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 8 lykkjur, A.2 yfir næstu 72-80-88-104-112-128 lykkjur, A.3 yfir næstu 9 lykkjur, 6-8-8-6-7-7 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING-2! Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Aukið svona út með 4-5-5-5-3-4 cm millibili alls 5-4-4-4-6-5 sinnum = 110-120-128-140-154-168 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu (stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá öxl), endið mynstur eftir heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina. Prjónið 10 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur, fellið síðan laust af með tvöföldum þræði.

FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og bakstykki.

ERMI:
Setjið 66-74-82-86-92-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 3,5 og fitjið upp 4-4-6-6-8-8 lykkjur í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umferða = 74-82-94-98-108-108 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka, en rangan á að vísa út (brugðið frá réttu, slétt frá röngu). Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 13-16-21-21-25-24 sinnum = 48-50-52-56-58-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-38-38-36-35-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur í 4 cm. Fellið síðan laust af með tvöföldum þræði. Ermin mælist 43-42-42-40-39-37 cm frá skiptingu og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum frá skiptingu og niður – saumið innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Saumið hliðarsauma frá skiptingu og niður – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur en endið þegar ca 12 cm eru eftir í hvorri hlið (= klauf). Saumið hinn hliðarsauminn alveg eins.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.10.2017
FRAM- OG BAKSTYKKI:..Prjónið 1 lykkju með garðaprjóni, A.1 yfir næstu 8 lykkjurnar, A.2 yfir næstu 8 lykkjurnar, A.3 næstu 9 lykkjurnar, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja = vinstri ermi), prjónið A.1 yfir næstu 8 lykkjurnar, prjónið A.2 yfir næstu 24-32-32-40-40-48 lykkjurnar, A.3 yfir næstu 9 lykkjurnar, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja = framstykki). A.1 yfir næstu 8 lykkjurnar, prjónið A.2 yfir næstu 8 lykkjurnar, A.3 yfir næstu 9 lykkjurnar, 2 lykkjur garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja = hægri ermi), prjónið A.1 yfir næstu 9 lykkjurnar, 1 lykkja garðaprjón (= bakstykki).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Mynstur

symbols = slétt frá réttu
symbols = slétt frá röngu, brugðið frá réttu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman.
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Maria wrote:

Can the body also be knit in the round? I don't understand why it needs to be split. Thank you

04.04.2022 - 12:28

DROPS Design answered:

Dear Maria, you can adapt the pattern to work the body in the round, but just note that there should be 12 cm vents on each side, ie you should divide piece and end front and back piece separately on the last 12 cm to keep vents. Happy knitting!

04.04.2022 - 15:06

country flag Rita wrote:

Hej! Mönstret lämnar mycket utrymme för tolkning på flera ställen tyvärr. Trots upprepade kontroller och omstart 6ggr går inte mönstret ihop efter första raglanökningen. Instruktioner varv för varv skulle göra det lättare att förstå. För svårtolkad för en rätt erfaren stickare vilket är synd då mönstret är så vackert.

13.08.2021 - 18:12

country flag Petra Wisiak wrote:

Hallo! Ich verstehe nicht, wie ich die Maschen der Raglanzunahme in das Muster einarbeiten soll. Bitte um Hilfe, danke!☺

05.12.2020 - 14:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wisiak, die neuen Maschen nach den Raglanlinien werden wie in A.1 gestrickt (= lesen Sie das Diagram links nach recht) - und vor den Raglanlinien werden die neuen Maschen wie in A.3 gestrickt (Diagram rechts nach links lesen). Stricken Sie krausrechts die Maschen, die nicht im Lochmuster gestrickt werden können (wenn Sie nicht genügend Maschen haben, um 1 Abnahme + den dazugehörigenden Umschlag zu stricken). Viel Spaß beim stricken!

07.12.2020 - 07:44

country flag Amy wrote:

Prachtig patroon! Ik wil deze maken, maar dan de hele mouw ook in kantpatroon. Mijn vraag is: heb ik dan meer garen nodig? Ik heb nu 125g in huis. Volgens de beschrijving is dat genoeg voor de maat die ik wil maken, maar misschien moet ik dan nog een bol bijbestellen?

21.01.2020 - 15:35

DROPS Design answered:

Dag Amy,

Nee hoor, je hoeft dan geen extra garen te bestellen. Je hebt genoeg aan dezelfde hoeveelheid (en misschien heb je zelfs minder nodig.)

26.01.2020 - 14:37

country flag Katja wrote:

Es steht: Die Zunahmen in jeder 2. Runde 6x (Grösse L) arbeiten. Bedeutet das, dass ich in der 2. runde 6 mal zunehmen soll? Normalerweise nimmt man doch nur an den markierten Maschen/Raglanmaschen zu, aber das sind nur 4?

03.02.2019 - 09:45

DROPS Design answered:

Liebe Katja, Sie sollen insgesamt 6 Zunahmenrunde (in jede 2. Runde) stricken, aber Siei werden jeweils 8 Maschen (= 2 für jeden Ärmel + 2 am Vorder bzw Rückenteil) zunehmen, nach diesen 6 Zunahmenrunde haben Sie 8 Maschen x 6 zugenommen. Dann in jede 4. Runde 22-24 x zunehmen (auch 8 Maschen wie zuvor). Viel Spaß beim stricken!

04.02.2019 - 12:06

country flag Vibeke wrote:

Str. Xl

28.09.2018 - 15:09

country flag Vibeke wrote:

Hej Jeg kan simpelthen ikke gennemskue hvori den rettelse I har beskrevet består. Jeg ender med at få 2 masker for meget når jeg er igennem første mønster pind Mvh. Vibeke

26.09.2018 - 17:01

DROPS Design answered:

Hej Vibeke, hvilken størrelse strikker du, så skal vi prøve at guide dig igennem første mønsterpind :)

28.09.2018 - 14:47

country flag Agnès wrote:

Merci 😊

10.03.2018 - 08:16

country flag Agnès wrote:

Bonjour, après plusieurs digressions vers d'autres ouvrages , j'ai repris celui-ci et je me heurte au rabattement des mailles avec le fil en double! Pouvez-vous m'indiquer un lien, une vidéo expliquant cette " technique ". Merci de votre aide.

03.03.2018 - 20:11

DROPS Design answered:

Bonjour Agnès, pour rabattre avec le fil en double, prenez simplement le fil d'une autre pelote (ou bien l'autre extrémité de la même pelote) et rabattez les mailles comme d'habitude, mais en utilisant les 2 fils. Bon tricot!

05.03.2018 - 08:43

Ksana wrote:

In Yoke - 104 sts - deviding is described (for M) like this: 16-36-16-35... which doent make 104. where was 1 st gone? Thank you for explaining

13.01.2018 - 15:42

DROPS Design answered:

Dear Ksana, when doing the first row, after the last marker (after the 35 stitch) the pattern tells you to knit one stitch with garter stitch, that makes up the 104th stitch. Happy Knitting!

13.01.2018 - 21:35