Mariona skrifaði:
Hola! Las indicaciones dicen que el resorte del cuello y el de la cintura/puños es 1d/2r, sin embargo, en la foto me parecen distintos. ¿Cintura y puños no son en 2d/1r?
16.11.2021 - 08:56
Patricia Fuchs skrifaði:
Ja, es bleibt mir nichts anderes übrig, als es einfach zu kalkulieren und zu probieren, bis ich zufrieden bin :-) Leider habt Ihr mit dieser Maschenprobe nicht sehr viel Auswahl. Es wäre im Allgemeinen super, wenn Ihr mehr Anleitungen für Männerpullover hättet. Ansonsten seid Ihr meistens die besten!!!!! Und Kompliment zu Drops Sky! Tolles Garn!
14.12.2018 - 13:08
Patricia Fuchs skrifaði:
Ich stricke mit Nadeln 6, nehme Drops Sky zweifädig und komme dabei auf eine (gewaschene) Maschenprobe von 14x22. Für das Halsbündchen habe ich nun 76 M angeschlagen. Für einen Tipp, wieviele Maschen ich nun hinten als Erhöhung (Herrenpullover) stricken muss, wäre ich dankbar. Aber ich verstehe natürlich, dass Sie nicht für jede Anfrage Zeit haben.
14.12.2018 - 12:17DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Fuchs, leider können wir Ihnen nicht hier weiterhelfen - vielleicht können Sie die Breite jede verkürzte/verlängerte Reihe in diesem Modell kalkulieren und dann mit Ihrer Maschenprobe anpassen? Die Maschenprobe sollen Sie auch sicher in der Höhe mit kalkulieren. Viel Spaß beim stricken!
14.12.2018 - 12:50
Patricia Fuchs skrifaði:
Wie berechnet man im Allgemeinen die Erhöhung im Nacken (ich stricke mit Drops Sky doppelfädig, also eine komplett andere Maschenprobe). Gibt es dafür eine Formel? Wie kommen Sie von 102 Maschen auf 12-24-36-48 usw.?? Wie berechnet man das, ganz allgemein? Ich habe mir schon sehr viele Drops-Anleitungen angesehen und egal, was ich dividiere, ich komme nicht dahinter.
14.12.2018 - 01:06DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Fuchs, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder individuellen Anfrage anpasse, am besten suchen Sie ein Modell mit Ihrer Maschenprobe und eine Erhöhung - Ihr DROPS Laden kann Ihnen in solchen Fällen weiterhelfen - auch telefonisch oder per E-Mail. Viel Spaß beim stricken!
14.12.2018 - 08:47
Tamsin Growden skrifaði:
I've now finished the jumper but I've a lot of wool left over. I knitted the medium and it came out the correct size but I've got 2 full balls of dark rose and 1 full ball of light beige left. I'm used to having some wool remaining but this seems excessive!
11.04.2018 - 01:46
Tamsin Growden skrifaði:
I'm just starting the sleeves on the jumper. Re the body there's no instruction to change to 3.5 mm needles for the rib even though the stitiches have been increased to allow for this. I used 3.5mm and cast off with 4mm needle and this looks right. I see that there's been an amendment to use chart A3 instead of A5 but 2 plain rows in rose need to be worked (to give a total of 3 rows between patt rows) before starting A3 to keep the pattern the same as the body.
22.03.2018 - 16:47
Angela Bachels skrifaði:
Fehler: 1. Nackenerhöhung unvollständig beschrieben. 2. 7te Zunahme in A.1 zu stark, muss auf Reihen 23 und 28 aufgeteilt werden 3. Rumpfteil, letzte Zunahme vor dem Abschlussbund viel zu stark, selbst die Hälfte ist zuviel
13.01.2018 - 08:41
Henriëtte skrifaði:
Moet de boordsteek van het lijf ook niet met naalden 3,5? Moet je de mouw niet beginnen met A3 (bovenaan mouw), i.p.v. met A5 zoals beschreven?
19.11.2017 - 12:46DROPS Design svaraði:
Hallo Henriëtte, Dit patroon is zo ontworpen dat je de boordsteek van het lijf in dezelfde naadl breit als de rest van het lijf. Als je de boord wat meer wilt laten aansluiten kun je er natuurlijk voor kiezen om een kleinere naald te gebruiken. Wat de mouw betreft denk ik dat je gelijk hebt om met A3 te beginnen. Ik geef het even door aan de ontwerpafdeling om te controleren.
06.02.2018 - 17:26
Jana Hermann skrifaði:
Dobrý deň. Zdá sa mi, že v návode tak anglickom ako aj českom je chyba v časti rukáv. Podľa fotiek modelu by tam mal byť vzor A3 (korešponduje s trupom) a nie, ako je uvedené, A5. A5 je viditeľný len v spodnej časti trupu. Prosím, je môj postreh správny? Vopred ďakujem za odpoveď. Jana
02.11.2017 - 21:26
Antje Heinzmann skrifaði:
Warum gibt es diese Anleitung nicht mehr in einem Heft zu kaufen, sondern nur noch im Internet?
10.09.2017 - 17:13DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Heinzmann, die Nachfrage nach Hefte war zu gering, weil die Kundinnen sich die Anleitung lieber direkt selber ausdrücken. Viel Spaß beim stricken!
11.09.2017 - 09:02
Rosendal Jumper#rosendaljumper |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Peysa með hringlaga berustykki og marglitu mynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S-XXXL.
DROPS 181-2 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 87 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 15) = 5,8. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 6. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka): Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-14-15-15 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 24-26-28-28-30-30 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 36-39-42-42-45-45 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-52-56-56-60-60 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-65-70-70-75-75 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 72-78-84-84-90-90 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum aftan á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það strekkist á því. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna ofan frá og niður, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 87-90-93-99-102-105 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum dökk bleikur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 15-15-17-16-18-15 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 102-105-110-115-120-120 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð slétt. Til að flíkin passi betur er nú hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka er prjónað A.1 hringinn (= 17-21-22-23-24-24 mynstureiningar 6-5-5-5-5-5 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Lesið LEIÐBEININGAR-1! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 238-294-308-322-336-384 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-14-14-16-16-18 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan. Prjónið síðan A.2 hringinn, en í fyrstu umferð (merktri með ör-1 í A.2) er aukið út um 28-14-14-28-42-22 lykkjur jafnt yfir = 266-308-322-350-378-406 lykkjur. Haldið áfram með A.2 (= 19-22-23-25-27-29 mynstureiningar 14 lykkjur). Í umferð merktri með ör-2 í A.2 er aukið út um 16-2-20-28-24-16 lykkjur jafnt yfir = 282-310-342-378-402-422 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 24-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mælt við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð með dökk bleikur þannig: 42-46-49-55-61-65 lykkjur slétt (= ½ bakstykki), setjið næstu 58-64-74-80-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 83-91-97-109-121-129 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 58-64-74-80-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-10-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 41-45-48-54-60-64 lykkjur sem eftir eru slétt (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 182-198-214-238-262-286 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt með litnum dökk bleikur og aukið jafnframt út um 10-6-14-2-2-2 lykkjur jafnt yfir = 192-204-228-240-264-288 lykkjur. Prjónið síðan A.3 (= 16-17-19-20-22-24 mynstureiningar 12 lykkjur). Í umferð merktri með ör-3 í A.3 er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 204-216-240-252-276-300 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.4 prjónað hringinn (= 34-36-40-42-46-50 mynstureiningar 6 lykkjur). Haldið áfram með A.4 þar til stykkið mælist ca 22-23-24-24-24-24 cm frá skiptingum fyrir ermar – stillið af að prjónaðar séu 2 til 4 umferðir með litnum dökk bleikur á eftir umferð með "doppum" – JAFNFRAMT er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum í síðustu umferð = 216-228-252-264-288-312 lykkjur. Prjónið nú A.5 hringinn (= 18-19-21-22-24-26 mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt með litnum dökk bleikur þar sem aukið er út um 42-42-48-48-54-60 lykkjur jafnt yfir = 258-270-300-312-342-372 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 5 cm. Þá er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur þá er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 58-64-74-80-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-10-14 lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum dökk bleikur = 66-72-84-90-90-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-10-14 lykkjur undir ermi. Byrjið umferðina við prjónamerki og prjónið A.3 hringinn (= 5½-6-7-7½-7½-8 mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með A.4 alveg eins, nema passið að doppurnar verði á sama stað yfir A.3 eins og á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-1. Fækkið svona alls 9-12-18-18-18-21 sinnum í S: Í 11. hverri umferð, í M: Í 8. hverri umferð, í L + XL: Í 5. hverri umferð, í XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð og í XXXL: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð = 48-48-48-54-54-54 lykkjur. Prjónið síðan A.4 þar til stykkið mælist ca 36-36-35-34-32-31 cm frá skiptingu – passið uppá að prjónaðar verði 2-4 umferðir með litnum dökk bleikur á eftir umferð með "doppum". Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að affellingarkanturinn verði ekki stífur þá er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 41-41-40-39-37-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosendaljumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.