DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Karisma yarn
DROPS Karisma
100% Ull
frá 610.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Winter Sea

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki og gatamynstri, prjónuð úr DROPS Karisma eða DROPS Sky. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 179-6

#winterseasweater

DROPS Design: Mynstur u-813
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-650-700-800-850-950 g litur 44, ljós grár

Eða notið:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-400-450-500 g litur 02, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 fyrir stroff - eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 610.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Sjá ör fyrir byrjun í þinni stærð.

ÚRTAKA:
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við prjónamerki + 1 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það á ekki að myndast gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Það er klauf neðst niðri á peysunni, þess vegna er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig, áður en þau eru sett saman á hringprjón og prjónað er áfram hringinn yfir allar lykkjur. Síðan eru ermarnar prjónaðar, öll stykkin eru sett saman og berustykkið er prjónað í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 120-132-140-152-168-184 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað frá réttu – þannig: 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 3 lykkjur garðaprjón. Prjónið stroff í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4, haldið áfram í sléttprjóni með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið, í fyrstu umferð er fækkað um 20-24-22-24-28-32 lykkjur jafnt yfir = 100-108-118-128-140-152 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 12 cm, geymið stykkið og prjónið framstykki.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið alveg eins og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið bæði stykkin á sama hringprjón = 200-216-236-256-280-304 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 1 í byrjun á umferð og 1 eftir 100-108-118-128-140-152 lykkjur. Þegar stykkið mælist 13 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki, sjá útskýringu að ofan (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 8 cm millibili alls 4 sinnum = 184-200-220-240-264-288 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 43-45-42-44-41-43 cm fellið af 8-8-10-10-12-14 lykkjur í hvorri hlið (= 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) = 168-184-200-220-240-260 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjón þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur.
Fitjið upp 52-52-56-60-60-64 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Karisma eða Sky. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á sokkaprjón 4. Haldið áfram í sléttprjóni, í fyrstu umferð er fækkað um 8-6-8-10-8-10 lykkjur jafnt yfir = 44-46-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 6-6-10-10-6-6 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 3-2½-1½-1½-1½-1½ cm millibili alls 12-15-18-19-20-21 sinnum = 68-76-84-88-92-96 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 45-46-41-42-37-38 cm. Fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin = 60-68-74-78-80-82 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið allar lykkjur á sama hringprjón 4 = 288-320-348-376-400-424 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-5-3-16-0-8 lykkjur jafnt yfir = 285-315-345-360-400-416 lykkjur. Prjónið síðan A.1 yfir allar lykkjur (= 19-21-23-24-25-26 mynstureiningar á breidd). Haldið áfram með þetta mynstur. Skiptið yfir á stutta hringprjóna eftir þörf. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 133-147-161-168-175-182 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í fyrstu umferð í garðaprjóni er fækkað um 41-51-61-62-65-68 lykkjur jafnt yfir = 92-96-100-106-110-114 lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
3 lykkjur slétt saman = 3 lykkjur slétt saman
Diagram for DROPS 179-6
Diagram for DROPS 179-6

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Martine Ligon skrifaði:

Bonjour. D'après le diagramme : 2 mailles ensembles = 1 diminution, 1 jeté = 1 augmentation. Donc j'arrive toujours au même nombre de mailles. Est-ce normal ? Ou peut-être ne pas tricoter le jeté ? Merci pour votre réponse.

26.02.2018 - 22:33

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Ligon, tout à fait, dans le diagramme, on va tricoter le point ajouré (donc compensation des augmentations et des jetés), mais en même temps, on va diminuer sur certains tours en tricotant uniquement 2 m ens à l'end, sans faire de jeté (voir les 1ères diminutions aux flèches et/puis à la fin de chaque motif ajouré en hauteur). Ainsi, chaque A.1 se commence par 15-16 m (cf taille) et se termine avec seulement 7 m. Bon tricot!

27.02.2018 - 08:52

country flag Becque skrifaði:

Bonjour Vos modèles sont ils tous tricotés avec des aiguilles rondes? merci

21.01.2018 - 20:57

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Becque, certains de nos modèles, comme celui-ci, se tricotent en rond sur aiguille circulaire, vous pouvez lire ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Il est parfois plus simple de bien suivre les explications, nos vidéos vous montrent comment apprendre à tricoter en rond sur aiguille circulaire. Bon tricot!

22.01.2018 - 10:23

country flag Françoise skrifaði:

Dans la légende du diagramme, on parle de "glisser une maille à l'endroit, tricoter 1m endroit et passer la maille glissée pardessus la m tricotée" or je ne vois pas le signe correspondant à cela dans le diagramme. Est-ce une erreur ou un oubli ou.... Merci pour votre réponse.

16.01.2018 - 14:24

DROPS Design svaraði:

Bonjour Françoise, il semble qu'effectivement cette diminution ne soit pas utilisée dans le diagramme, merci pour votre retour. Bon tricot!

16.01.2018 - 14:39

country flag PERNILLE skrifaði:

Kan det passe, der er en fejl i den danske opskrift, sidst i afsnittet med ryg og forstykke, så der skal lukkes masker af i stedet for at tages ind?

06.01.2018 - 10:19

DROPS Design svaraði:

Hej Pernille, det stemmer der skal lukkes af under hvert ärme. God fornöjelse!

11.01.2018 - 08:41

country flag Suzanne skrifaði:

Le dos diminuer 24m au 1er rang à intervalles réguliers est ce qu'on diminue toutes les 24m sur le même rang ouc'est à tous les 2 rang. J'attends votre réponse . Merci beaucoup bye Suzanne

18.12.2017 - 15:04

DROPS Design svaraði:

Bonjour Suzanne, on diminue 24 m sur un même rang (= le 1er rang jersey sur l'endroit). Cliquez ici pour calculer comment placer ces diminutions. Bon tricot!

18.12.2017 - 15:19

country flag Paula skrifaði:

Hallo Ik probeer nogmaals dit patroonte printen maar het lukt me niet

08.09.2017 - 21:08

DROPS Design svaraði:

Hallo Paula, Ik heb nogmaals geprobeerd om te printen en alle pagina's worden afgedrukt. Bij printopties moet pagina op 'alles' staan. Vannaf hier kan ik helaas niet kijken wat er precies aan de hand is waardoor het bij jou niet lukt. Misschien kun je iemand in de buurt om hulp vragen of iemand anders vragen om het af te drukken. Ik hoop dat het lukt!

13.09.2017 - 15:36

country flag Magali skrifaði:

I am thinking of knitting this sweater but in a longer version , more like a tunic , to wear over leggings .

29.08.2017 - 01:31

country flag Sandy Hostetter skrifaði:

There are no symbols for two of the instructions in the chart guide. Thank you.

23.07.2017 - 20:15

DROPS Design svaraði:

Dear Sandy, You can always check the explanation of the symbols on the other English (UK) site. However if you still cannot see them here they are line by line (there are six symbols in th e pattern, and six line below. I hope this helps.: knit from the right side, purl from the wrong side purl from the right side, knit from the wrong side knit 2 together slip 1 stitch knitwise, knit 1 and pass slipped stitch over between 2 stitches make 1 yarn over knit 3 together

23.07.2017 - 22:09

country flag Sandy Hostetter skrifaði:

My diagram chart is not complete. I have two blank squares showing nothing. How do I proceed?

21.07.2017 - 19:49

DROPS Design svaraði:

Dear Sandy, can you, please be more specific? You cannot see the whole diagram? or just part of it? it is missing something in specific rows? Since I do not see anything amiss in my screen, please give us more explanation, so we caould help you. Thank you.

23.07.2017 - 10:54

country flag Paula skrifaði:

Hallo ,Ik vind deze trui heel leuk en zou hem graag uit willen printen maar ik krijg alleen de eerste pagina en niet meer. zou u dat na willen kijken dank u. vriendelijke groeten Paula.

15.07.2017 - 13:30

DROPS Design svaraði:

Hoi Paula, Ik heb het nagekeken en alle pagina's zijn aanwezig, ook bij het printen. Kant het zijn dat je per ongeluk het aantal pagina's op '1' hebt staan bij de afdrukopties? Of bedoel je iets anders?

16.07.2017 - 16:48