DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lotus Jacket

Prjónuð peysa með gatamynstri og stroffi. Stærð S - XXXL. Peysan er prjónuð úr DROPS Air.

DROPS 179-18
DROPS Design: Mynstur ai-063
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-450-450-500-550 g litur 14, fjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 19 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít), NR 522: 6-6-6-7-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Sjá mynstur fyrir rétta stærð.

ÚRTAKA (á við um hlið):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki í hlið: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 16, 25, 34, 43, 52 og 61 cm
M: 16, 25, 34, 43, 53 og 63 cm
L: 16, 25, 35, 45, 55 og 65 cm
XL: 16, 24, 32, 40, 49, 58 og 67 cm
XXL: 16, 24, 33, 42, 51, 60 og 69 cm
XXXL: 16, 26, 35, 44, 53, 62 og 71 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp við handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 204-220-232-252-272-296 lykkjur á hringprjón 5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað stroff þannig – frá réttu: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð í garðaprjóni er fækkað um 34-38-38-42-46-50 lykkjur jafnt yfir = 170-182-194-210-226-246 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðið, A.1 (= 24-24-24-28-28-28 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, 25-31-37-37-45-55 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið, 25-31-37-37-45-55 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, A.1, 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 45-48-51-55-59-64 lykkjur inn frá miðju að framan (bakstykki = 80-86-92-100-108-118 lykkjur). Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum = 4 lykkjur færri, LESIÐ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum með 12-12-13-13-14-14 cm millibili alls 4 sinnum = 154-166-178-194-210-230 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16 cm byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm prjónið garðaprjón yfir 14 lykkjur í hvorri hlið = 7 lykkjur hvoru megin við prjónamerkjum í hlið). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir lykkjur í hlið er næsta umferð prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 37-40-43-47-51-56 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur fyrir handveg (= 4 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hlið), prjónið 64-70-76-84-92-102 lykkjur, fellið af næstu 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 37-40-43-47-51-56 lykkjur. Prjónið síðan hvert stykki til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 64-70-76-84-92-102 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, 3 síðustu lykkjur í hvorri hlið eru nú prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm fellið af miðju 26-26-28-28-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 18-21-23-27-30-35 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm (aðrar lykkjur í A.1 eru prjónaðar í sléttprjóni) og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 37-40-43-47-51-56 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, 3 síðustu lykkjur í hvorri hlið við handveg eru prjónaðar í garðaprjóni. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGÖTUM. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Setjið nú fyrstu 15-15-16-16-17-17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 18-21-23-27-30-35 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm (aðrar lykkjur í A.1 eru prjónaðar með sléttprjóni) og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og hægra, nema gagnstætt.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/hringprjón. Fitjið upp 40-40-44-48-52-52 lykkjur á sokkaprjón 5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroff í 5 cm, síðan er skipt yfir á sokkaprjón 6, prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN, sjá útskýringu að ofan, í fyrstu umferð í garðaprjóni er fækkað um 6-6-8-10-12-12 lykkjur jafnt yfir = 34-34-36-38-40-40 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-9 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 12-13-14-14-15-16 sinnum = 58-60-64-66-70-72 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-48-47-46-44-41 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af miðju 6 lykkjur undir ermi og ermakúpan er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna. Prjónið sléttprjón og fellið af í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 3 sinnum = 34-36-40-42-46-48 lykkjur. Ermin mælist ca 52-51-50-48-47-44 cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstra framstykki.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 80-100 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) á hringprjóna 5 með Air. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka, síðan er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 179-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Veronica Gustavsson wrote:

Hej, jag stickar denna tröja i Drops air färg 17 och blev besviken då jag märkte hur stor skillnad i färgen det var mellan två olika partier. Ena tillverkad i EU, andra i Peru! Båda köpta i samma nätbutik, Kärkkäinen i Finland. Tröjan blir randig. Är detta i enlighet med Drops kvalitetsstandarder? Hälsningar Veronica Gustavsson

10.02.2022 - 17:34

DROPS Design answered:

Hej Veronica, vi anbefaler altid at købe alt garn til en trøje fra samme parti. Der vil altid være en større eller mindre forskel på to partier. Håber du får fat i mere i et af partierne. God fornøjelse!

16.02.2022 - 15:26

country flag Annarita Michetti wrote:

Buongiorno, sono arrivata alle diminuzioni per il collo: ho messo in sospeso le prime 15 maglie, ora devo subito intrecciare le prime due maglie successive o lo devo fare nel ferro seguente? Grazie.

18.02.2021 - 11:45

DROPS Design answered:

Buonasera Annarita, può intrecciare le maglie. Buon lavoro!

18.02.2021 - 21:43

country flag Cahingt wrote:

Bonjour Je suis bloquée pour l'emmanchure. Si je tricote les 40 m, je tombe 1m après le fil marqueur, impossible donc de rabattre les 8m (4 de chaque côté des fils marqueurs). Je fais le modèle en taille M Je vous remercie beaucoup pour votre aide. Chloé

20.01.2020 - 17:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cahingt, aviez-vous bien placé votre marqueur pour les diminutions? Le marqueur du côté doit être à 48 m du bord et on diminue 4 fois = il doit rester 44 m avant le marqueur, soit 40 m pour le devant + 4 m à rabattre avant le marqueur. Bon tricot!

21.01.2020 - 09:19

country flag Phyllis wrote:

In het patroon wordt vermeld dat je een omslag moet maken,. Wordt deze omslag dan in de volgende naald als een steek gebreid? In de eerste twee naalden worden namelijk per patroon 2x2 steken samengebreid, dus dan is in de derde naald de omslag weer ter compensatie om het aantal steken gelijk te houden wellicht?

08.12.2019 - 19:16

DROPS Design answered:

Dag Phyllis,

De omslagen in het telpatroon worden op de volgende naald niet gedraaid gebreid, zodat er een gaatje ontstaat. Elke omslag wordt gecompenseerd met het minderen van steken (door samen te breien of 1 st afhalen, 1 st breien en de afgehaalde steek over te halen), waardoor het totaal aantal steken steeds gelijk blijft op de naald. (In de eerste naald staan de omslagen vlak naast de averechte steken aan de goede kant, dus naast de kruisjes.)

12.12.2019 - 13:01

country flag Cristina wrote:

Buenas tardes, he llegado hasta el momento de disminuir el cuello y no entiendo cuántos puntos hay que disminuir, he disminuido 2 + 1 + 1 punto y no queda igualado con la espalda, creo que no está bien explicado y que hay que seguir disminuyendo hasta tener 18 puntos en cada lado delantero igual que en los hombros de la espalda, porque si no no queda bien, podrían especificarlo por favor? Gracias.

24.03.2019 - 15:19

DROPS Design answered:

Hola Cristina. El escote de delantero derecho se trabaja como sigue ( por ejemplo, para la talla S): pasar los 15 puntos más externos hacia el centro del delantero a un gancho auxiliar, en la siguiente fila por el lado derecho disminuir 2 puntos, en la siguientes 2 filas por el lado derecho disminuir cada vez 1 punto = 37 - 15 - 2- 1 -1 =quedan 18 puntos para el hombro ( igual que en la espalda).

24.03.2019 - 19:50

country flag Barbara wrote:

Dziękuję za odpowiedzi. Pozdrawiam

08.02.2019 - 14:56

country flag Barbara wrote:

Dzien dobry, nie rozumiem po co mam przekladac 15 oczek na nitke i kiedy do nich wracam. Po przelozeniu oczek moja nitka jest na poczatku rzedu. Mam przerobic te 15 oczektak jak w schemacie i dopiero je zdjac na nitke, a potem ( na poczatku pozostalych 25 oczkek tego samego rzedu) zamknac 2 oczka, nastepnie w kolejnym rzedzie 1 oczko, tylko co z tymi 15 oczkami? Sa na nitce, opis nie wyjasnia co mam z nimi zrobic. Dziekuje zaodpowiedz.

07.02.2019 - 17:20

DROPS Design answered:

Witaj Basiu, tak najpierw przerób te 15 oczek, a dopiero później przełóż na nitkę. Dalej zamykasz na dekolt na początku każdego rzędu od strony dekoltu (czyli od tej nitki): 1 raz 2 oczka i 2 razy 1 oczko. Co później z tymi 15 oczkami wyjaśniłam już w poprzedniej odpowiedzi na twoje pytanie Pozdrawiamy!

08.02.2019 - 08:38

country flag Barbara wrote:

Dzien dobry , prosze wyjasnijcie co mam robic :"Umieścić teraz na drucie nitce 15-15-16-16-17-17 pierwszych oczek na dekolt." Czy to oznacza, ze przerabiam te oczka dzersejem a nastepne 25 oczek przerabiam wedlug opisu? Czy po prostu pozostawiam 15o. i zaczynam rzad po tych 15 o., wowczas oznaczaloby ze te 15o. przerabiam odzielnie az beda siegac do ramienia i doszywam je do dekoltu ( tylko ze 15 o =8cm? czy dobrze rozumiem? pozdrawiam.

07.02.2019 - 16:12

DROPS Design answered:

Witaj Barbaro, przekładasz 15 pierwszych oczek na drut pomocniczy/nitkę, a następnie przerabiasz do końca już tylko pozostałe oczka (ramię) wg schematu, zamykając oczka od strony dekoltu (od środka przodu swetra), i dalej przerabiasz wg schematu, aż dł. robótki wynosi 68-70-72-74-76-78 cm (pozostałe oczka schematu A.1 są przerabiane dżersejem) i zakończyć. Zobacz schematyczny rysunek na końcu opisu. A te pozostawione 15 oczek na każdym przodzie będą potrzebne dopiero na końcu, przy wykonywaniu wykończenia dekoltu. Powodzenia!

08.02.2019 - 08:33

country flag Cheryl Lyon wrote:

I have the same query as the lady HHK on12.03.2018 but I do not understand the answer you gave her. Are the stitches between the A1 patterns knitted in stocking stitch or garter stitch. I cannot tell by looking at the picture. Please give instructions for the second row of the body

10.12.2018 - 00:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lyon, the stitches between A.1 will be either K or P - you are working from RS: 5 stitches garter stitch, purl 2 (= K these 2 sts from WS), A.1 (= 24-24-24-28-28-28 stitches = work these sts as shown in diagram), purl 2 (= K these 2 sts from WS), knit 25-31-37-37-45-55 (= P these sts from WS), purl 2 (K these 2 sts from WS), A.1, purl 2 (= K these 2 sts from WS), A.1, purl 2 (= K these 2 sts from WS), knit 25-31-37-37-45-55 (= P these sts from WS), purl 2 (= K these 2 sts from WS), A.1, purl 2 (= K these 2 sts from WS) and 5 stitches garter stitch. Happy knitting!

10.12.2018 - 10:33

country flag MIchele wrote:

Question for shoulder/neck: I have placed the first 15 stitches on the thread. I am actually binding off 2 stitches from the needle, correct? The pattern says continue working the piece until it measures 68cm. AND it also says the remaining stitches in A1 are worked in stockinette stitch and bind off. Does this mean I no longer work the pattern from the time I bind off those first 2 stitches? Or exactly at what point do I stop working the A1 pattern on the shoulder and switch over to ss?

20.09.2018 - 15:51

DROPS Design answered:

Dear Michele, correct, after you have binding off stitches for neck, you continue working all stitches in stocking stitch. Happy knitting!

20.09.2018 - 16:00