Coraline skrifaði:
Bonjour pour l’étape : rabattre 4-4-5-5-6-7 mailles de chaque côté de chaque fil marqueur (= 8mailles de chaque côté) = 61 mailles pour le devant/le dos., Ou est positionnée la dernière maille tricotée ? Exemple je commence mon rang normal pour le devant ,au fil marqueur je rabat 8 mailles je continue pour le dos , au fil marqueur je rabat 4 maille et là je recommence un nouveau rang en rabattants 4 maille et le fil est à ce moment là en attente ?
13.06.2019 - 21:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Coraline, vous commencez les tours au 1er marqueur: rabattez 4 m au début du tour, tricotez le devant (= 61-67 m), rabattez les 4 m avant le marqueur et les 4 m après le marqueur (= 8 m au total), tricotez les mailles du dos (= 61-67 m) et rabattez les 4 dernières m du tour (soit 8 m pour chaque emmanchure), coupez le fil et passez-le dans la dernière maille, mettez l'ouvrage en attente et tricotez les manches, vous reprendrez ensuite tout ensemble (cf vidéo). Bon tricot!
14.06.2019 - 07:15
Coraline skrifaði:
Un grand merci !
29.04.2019 - 20:04
Coraline skrifaði:
Bonjour , pour l’étape Diminuer ainsi 7 fois au total tous les 4 cm: est ce qu’on fait DIMINUTION / 1 rang normal / 7 fois de suite ? Ou on fait 7 rang de suite DIMINUTION sans rang normal intermédiaire ?
25.04.2019 - 16:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Coraline, on espace les rangs de diminutions de 4 cm jusqu'à ce qu'il y ait 7 diminutions au total: *1 tour de diminutions, puis on continue sans diminuer jusqu'à 4 cm depuis les diminutions*, on répète 6 fois de *-* et on termine par 1 rang de diminutions = on a diminué 7 fois tous les 4 cm. Bon tricot!
26.04.2019 - 08:39
Pia skrifaði:
Ich bin bei den raglan Abnahmen nicht sicher. Muss ich in jeder Reihe abnehmen oder nur jede 4. Reihe und dann jede 2. Reihe? Wie oft muss ich das Zopfmuster wiederholen?
20.11.2018 - 21:13DROPS Design svaraði:
Liebe Pia, die Raglanabnahmen entstehen zuerst in jede 4. Reihe, dann in jede 2. Reihe - dh es sind insgesamt 14-16-17-19-20-22 Mal. Das Zopfmuster wird in der Höhe wiederholt bis alle Abnahmen und Erhöhung fertig sind. Viel Spaß beim stricken!
21.11.2018 - 08:32
Dufour skrifaði:
Bonjour, c\\\\\\\'est la première fois que je fais un de vos modèle, les diminutions se font presque sur le raglan ?\\\\r\\\\nCar il me reste des diminution et il me reste que 4 mailles avant le raglan et j\\\\\\\'ai encore 4 diminutions à faire se qui fait 8 m, 4 m de chaque côté.\\\\r\\\\nMerci de votre réponse.
05.11.2018 - 08:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Dufour, je ne suis pas bien sûre de bien comprendre votre question. Vous diminuez pour le raglan (= 8 mailles au total, soit 1 m avant A.2/A.3 et 1 m après A.2/A.3): 6-6-6-6-7-7 fois tous les 4 tours, puis 8-10-11-13-13-15 fois tous les 2 tours (= 14-16-17-19-20-22 fois au total) = 114-122-134-142-146-150 mailles quand toutes les diminutions du raglan sont faites. Bon tricot!
05.11.2018 - 10:11
Helle Jørgensen skrifaði:
Hej...jeg kan ikke få det til at passe med masker hvis der skal være 5 på bærestykket og 7 på ærmer...kan få til at passe med 4 på bærestykke og 8 på ærmer. Hvordan kan jeg få det til at passe...hvis jeg forstår opskrift rigtigt skal omgangen startes efter 4 masker, derefter strikkes 59 masker, tilbage på min pind er nu 4 masker?.. Håber i kan afhjælpe mit problem så jeg kan komme videre ...
26.07.2018 - 19:50DROPS Design svaraði:
Hei Helle. I følge oppskriften skal første omgang av mønster A.1 gå over 4 masker på for-og bakstykket, og 8 masker på ermene, i størrelse M og XXL, så det stemmer. God fornøyelse
14.08.2018 - 10:50
Claudia skrifaði:
Hallo Komme nicht so richtig weiter.Habe die zwei Ärmel fertig und mit der Passe nicht so.Können Sie mir dabei helfen.Komme bei der Passe nicht weiter.Danke an Sie
27.05.2018 - 09:27DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, die beide Ärmel mit dem Rumpfteil auf eine Nadel nehmen, und dann wie beschrieben Zopf und Raglanabnahmen stricken. Viel Spaß beim stricken!
28.05.2018 - 09:26
Claudia Wächtler skrifaði:
Hallo Wie nimmt man die Maschen nach 37 cm ab? Ist dann die Masche die ja der Makierungsfaden auch abgekettet?Danke für die Hilfe Claudia
08.04.2018 - 09:07DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Wächtler, die 8 Maschen auf beiden Seiten (= 4 M vor der Markierungsfaden + 4 M nach der Markierungsfaden) werden abgekettet = es sind jetzt 61-67 M je für Rücken- und Vorderteil. Viel Spaß beim stricken!
09.04.2018 - 10:16
Agnete Årikstad Eidet skrifaði:
Hei, når jeg skal strikke sammen arm og bol, skal det være seks masker fra arm og seks masker fra bol som skal bli de tolv maskene med mønster i overgangen? Jeg får ikke det til å gå opp... da blir det for mange masker på ermene og for få på bolen mellom mønster.
03.04.2018 - 22:49DROPS Design svaraði:
Hei Agnete. Mønsteret er ikke helt på midten av overgangen mellom bol og erme. De 12 maskene i A.1 er fordelt slik: Det er 5 masker fra bolen og 7 masker fra ermet. Om du ser nøye på bildet av gensern, kan du se at mønsteret er litt lenger ut på ermet. God fornøyelse
18.04.2018 - 13:50
Yvonne skrifaði:
Beste mensen, dit is mijn eerste trui die ik brei (na sjaals en mutsen) Kan je de mouwen ook op een rondbreinaald breien ipv naalden zonder knop? En als dat kan, is 40 cm dan een handige lengte? Daarbij vroeg ik me dan af of je een 40 cm rondbreinaald ook kan gebruiken voor de hals of beter andere lengtes voor mouwen en hals? Alvast bedankt voor uw antwoord. MVG, Yvonne
10.11.2017 - 12:32DROPS Design svaraði:
Hoi Yvonne, Jazeker, de mouwen kun je prima op een rondbreinaald breien, en 40 cm is daar wel geschikt voor. Mocht de draad iets te lang zijn voor het aantal steken, dan kun je de 'magic loop' techniek toepassen. Bekijk deze video.
15.11.2017 - 10:31
Solfest#solfestsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum og laskalínu. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Nepal.
DROPS 180-16 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Fækkið lykkjum við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (á við um miðu undir ermum): Aukið út mitt undir ermum þannig – byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. LASKALÍNA: Fækkið um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Byrjið 2 lykkjum á undan A.2/A.3, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.2/A.3, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. UPPHÆKKUN (á við aftan í hnakka): Klippið frá. Prjónið síðan þannig – byrjið umferðina eftir 11-13-16-18-19-20 lykkjur á bakstykki (= miðja að aftan). Prjónið sléttprjón, A.2 og A.3 eins og áður. Setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju í umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið þar til prjónaðar hafa verið 36-37-39-41-43-45 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 73-75-79-83-87-91 lykkjur. Snúið, herðið á þræði og prjónið 67-69-73-77-81-85 lykkjur, snúið, herðið á þræði og prjónið 61-63-67-71-75-79 lykkjur. Snúið, herðið á þræði og prjónið að miðju að aftan. Klippið frá. Umferðin byrjar nú á sama stað eins og áður, þ.e.a.s. 16-17-19-21-23-25 lykkjur til hægri (séð frá réttu) frá prjónamerki við miðju að aftan. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna og ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna áður en þær eru settar saman við og berustykki er prjónað í hring á hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 166-178-194-210-226-246 lykkjur á hringprjón 4,5 með Nepal. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 83-89-97-105-113-123 lykkjur (prjónamerki merkir hliðar á stykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 7 sinnum = 138-150-166-182-198-218 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-37-38-38-38-38 cm fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8-8-10-10-12-14 lykkjur í hvorri hlið) = 61-67-73-81-87-95 lykkjur á framstykki/bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 6 cm er skipt yfir á sokkaprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8-8-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 36-36-40-42-44-44 lykkjur. Prjónið sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 8-11-12-13-13-15 sinnum = 52-58-64-68-70-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-39-38-37-36-34 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi (= 4-4-5-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 44-50-54-58-58-60 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón 5,5 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 210-234-254-278-290-310 lykkjur. Prjónið síðan þannig – byrjið umferð eftir 5-4-3-3-4-5 lykkjur á bakstykki: Prjónið * 51-59-67-75-79-85 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 12 lykkjur), 30-34-36-40-42-46 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 12 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 226-250-270-294-306-326 lykkjur í umferð. Prjónið nú áfram þannig: Prjónið * 51-59-67-75-79-85 lykkjur sléttprjón, A.2 (= 16 lykkjur), 30-34-36-40-42-46 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 16 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 6-6-6-6-7-7 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 8-10-11-13-13-15 sinnum (= alls 14-16-17-19-20-22 sinnum). Eftir allar úrtökur eru 114-122-134-142-146-150 lykkjur í umferð. Til að peysan passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð er fækkað um 4 lykkjur yfir A.2 og A.3 = 98-106-118-126-130-134 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið * 33-35-39-43-47-51 lykkjur sléttprjón og fækkið um 3-4-7-9-10-11 lykkjur jafnt yfir, prjónið næstu 16-18-20-20-18-16 lykkjur 2 og 2 saman *, prjónið *-* alls 2 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Berustykkið mælist ca 21-23-24-26-28-30 cm. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm, fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #solfestsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.