Jenny Smith skrifaði:
Hi. Knitting the 3/4 size . Am picking up neck stitches. I know it’s 82 but this is far fewer stitches than remain . Can you advise how to split the 82 ie how many to pick up for the front and how many for the back . ? Thanks
24.12.2024 - 02:46DROPS Design svaraði:
Dear Jenny, you should have an even neck, so the number of stitches picked up in total in the back piece and the front piece should be the same. Excluding the stitches in the needle, you will pick up stitches evenly around the neck, by skipping every 4th stitch for example, (or as necessary for your desired neck shape) while picking up stitches all around the neck. Skipping stitches will help you make the neckline slightly tighter and keep its shaping. Happy knitting!
29.12.2024 - 20:12
Corina skrifaði:
Guten Tag Ich habe zwei Fragen zum Rückenteil. Was ist mit "Vorderseite" gemeint? Die Vorderseite der Arbeit oder des Oberteils? Und wo genau müssen die 2 M angeschlagen werden? Vor dem Kraus-Rechts-Rand? Ich finde, ab dieser Stelle ist die Anleitung leider nicht mehr ohne Weiteres zu verstehen. Ich komme nicht weiter :( Danke für Ihre Hilfe!
02.03.2023 - 14:50DROPS Design svaraði:
Liebe Corina, hier ist es "Hinreihe" gemeint, also die Seite, die von der Vorderseite gestrickt wird. Die 2 Maschen am ende eine Hin-Reihe beim rechten Vorderteil anschlagen (Knopfleiste in der hinteren Mitte). Viel Spaß beim stricken!
02.03.2023 - 15:03
Pia Poulsen skrifaði:
Kan jeg mon strikke denne uden knapper bagpå? Og i så fald kan barnet så få vesten over hovedet? venligst Pia
23.02.2023 - 23:12DROPS Design svaraði:
Hej Pia, så skal du nok lave halsen lidt større... :)
24.02.2023 - 15:21
Anette skrifaði:
Hei! Har dere forslag til hvordan jeg kan strikke bakstykket hvis jeg ikke ønsker å strikke stolper/knapphull? Vennlig hilsen Anette
02.02.2022 - 17:18DROPS Design svaraði:
Hej Anette, så kan du strikke det som forstykket :)
04.02.2022 - 13:50
Annika Schygge skrifaði:
Stickar st 2 år, står att det ska vara 29 m på hö bakstycke men efter avmaskningar för ärmhål är det bara 25 m som återstår på vardera bakstycke när det delas?
07.06.2021 - 18:51DROPS Design svaraði:
Hej Annika. Du har rätt, det var fel tal som stod där och dessa har nu tagits bort. Du ska ha samma antal maskor som på framstycket efter avmaskningar precis som du skriver. Mvh DROPS Design
11.06.2021 - 10:20
Marianne Pagh skrifaði:
Hvorfor ruller den underste kant op?
24.05.2021 - 14:24DROPS Design svaraði:
Hei Marianne. Du kan evnt strikke 1 ekstra rille (2 pinner retstrikk) eller dampe kanten lett når vesten er ferdig. mvh DROPS design
26.05.2021 - 09:47
Nanna Hansen skrifaði:
Jeg har strikket det meste af vesten i str. 3/4 år. Jeg er nået til bagstykket og er kommet i problemer. Jeg har 64 masker og arbejdet måler 24 cm. Hvis jeg tager ind til ærmegab på hver 4 pind, så har jeg ikke 32 masker tilbage når jeg når et punket om højre bagstykke. Jeg skal blot strikke videre 2cm med indtagninger og så se bort fra de 32 masker?
15.11.2020 - 17:32DROPS Design svaraði:
Hej Nanna, du har 32 masker når du starter med bagstykket og efterhånden som du tager ind til ærmegab (som forstykket) så vil du få et færre antal masker. Du fortsætter på samme måde i den anden side. God fornøjelse!
24.11.2020 - 14:55
Benthe Pretorius skrifaði:
Jeg har et garn med strikkefasthet 15-23 på pinne nr 5. hvilken oppskrift bør jeg velge? det er til barn.
25.03.2019 - 16:05DROPS Design svaraði:
Hei Bente. Det kan høres ut som det tilsvarer en garngruppe D eller E, du kan filtrere etter det når du søker. Når det er sagt så er det DIN strikekfasthet som avgjør hvilke oppskrifter du kan velge, det er viktig at du har den samme strikkefastheten som angitt i oppskriften. Selvom det står pinne 5 på garnet betyr ikke det at du ikke kan bruke oppskrifter med andre pinnestørrelser, det er individuelt hvilke pinnenummer hver av oss må bruke for å oppnå en angitt strikkefasthet. Vi råder alltid kunder til å strikke en prøvelapp å se. God fornøyelse
02.04.2019 - 09:19
Christine Giordano skrifaði:
Bonjour, J'aime bien ce petit modèle mais pour l'été j'aimerai le faire en coton plutôt qu'en laine qui me parait chaude, que me conseillez vous? Je vous remercie de votre réponse.
09.06.2017 - 21:49
Little Mate#littlematevest |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaður bolur / slipover með röndum úr DROPS BabyMerino eða DROPS Safran. Stærð fyrir börn 0 - 6 ára.
DROPS Children 28-3 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. RENDUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Rendur eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um handveg): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju innan við 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Fækkið lykkjum á eftir 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 4 kantlykkjur í garðaprjóni (= 1 lykkja færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að aftan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá réttu, prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið síðasta hnappagatið slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: 1/3 mánaða: 20, 22 og 24 cm. 6/9 mánaða: 22, 24 og 26 cm. 12/18 mánaða: 24, 26 og 28 cm. 2 ára: 25, 28 og 31 cm. 3/4 ára: 28, 31 og 34 cm. 5/6 ára: 32, 35 og 38 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLUR / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig til loka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið aðeins laust upp 100-108-120 (128-140-148) lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum ljós sægrænn Baby Merino eða litnum mynta DROPS Safran. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-8-9 (10-12-14) cm prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið A.1 á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 15- 16-17 (19-21-24) cm prjónið nú með natur til loka. JAFNFRAMT í fyrstu umferð eftir rendur er sett 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 50-54-60 (64-70-74) lykkjur (= í hliðar – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu). Þegar stykkið mælist 16-17-18 (20-22-25) cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir 14 lykkjur i hvorri hlið (þ.e.a.s. 7 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin – aðrar lykkjur halda áfram í sléttprjón). Eftir 4 umferð í garðaprjóni í hvorri hlið er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 44-48-54 (58-64-68) lykkjur slétt (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 44-48-54 (58-64-68) lykkjur slétt (= bakstykki) og fellið af síðustu 3 lykkjur fyrir handveg. Klippið frá. Fram- og bakstykki er síðan prjónað hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 44-48-54 (58-64-68) lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Þegar prjónaðar hafa verið 3 umferðir fram og til baka (þ.e.a.s. síðasta umferðin er prjónuð frá röngu) fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 4 sinnum í hvorri hlið = 36-40-46 (50-56-60) lykkju. Haldið áfram í sléttprjóni og 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 23-24-26 (28-30-33) cm. Setjið nú miðju 14-16-16 (16-18-20) lykkjur á þráð fyrir háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: 2 lykkjur 1 sinni í öllum stærðum og síðan 1 lykkja 2-2-2 (3-3-4) sinnum = 7-8-11 (12-14-14) lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 26-28-30 (33-36-40) cm (stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: = 44-48-54 (58-64-68) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 22-24-27 (29-32-34) lykkjur (= miðja að aftan). Prjónið síðan á sama hátt og framstykki og fækkið lykkjum í hvorri hlið í 4. hverri umferð. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-20-22 (23-26-30) cm setjið lykkjur í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) fram að prjónamerki á þráð. VINSTRA BAKSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Prjónið sléttprjón fram og til baka eins og áður með 4 kantlykkjur í garðaprjóni að handveg og fitjið að auki upp 2 nýjar lykkjur í lok fyrstu umferðar frá röngu að miðju að aftan. Haldið áfram í sléttprjóni, 4 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að aftan og 4 kantlykkjur í garðaprjóni að handveg – munið eftir úrtaka/affelling fyrir handveg og HNAPPAGAT í kanti – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir síðasta hnappagati, fellið af fyrstu 11-12-12 (13-14-16) lykkjur frá miðju að aftan fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 7-8-11 (12-14-14) lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 26-28-30 (33-36-40) cm – stillið af eftir framstykki. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRA BAKSTYKKI: Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjón 3, fitjið að auki upp 2 nýjar lykkjur í lok fyrstu umferðar frá réttu að miðju að aftan. Prjónið síðan á sama hátt og vinstra bakstykki, en með úrtöku í gagnstæðri hlið (ekki er fellt af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan). FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkant. HÁLSMÁL: Byrjið við miðju að aftan og prjónið upp frá réttu ca 60-66-66 (74-82-90) lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í hægri kant að aftan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlematevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 28-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.