DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1914.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lucky Ducky

Peysa með stuttum ermum, laskalínu og vasa prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð fyrir börn 0 til 6 ára.

DROPS Children 28-6
DROPS Design: Mynstur vs-004-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4 - 5/6 ára)
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104 - 110/116)
Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-150 (200-200-200) g litur 04, fífill

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3 – fyrir kanta með garðaprjóni.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 4 st í allar stærðir.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1914.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 62 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 3,9. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kant að framan. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Allar útaukningar eru gerðar frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 2 lykkjur fleiri í hverri laskalínu). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat – útauknu lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægir kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat= Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru efir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir kant með garðaprjóni í hálsi. Síðan er fellt af fyrir 3 næstu hnappagötum með ca 2-2-2-3-3-3 cm millibili.

ÚRTAKA (á við miðju undir ermi):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri).
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Prjónið fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan þar til kantur fyrir tölur hefur verið prjónaður til loka, síðan er restin af fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-66 (66-70-70) lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Belle. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 14 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – LESIÐ ÚTAUKNING og munið eftir HNAPPAGAT á kant að framan – sjá útskýringu a ofan = 76-80-80 (80-84-84) lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 5-6-6 (6-7-7) lykkjur brugðið (= hægra framstykki), A.1 (= 8 lykkjur), 6 lykkjur brugðið (= hægri ermi), A.1 (= 8 lykkjur), 14-16-16 (16-18-18) lykkjur brugðið (= bakstykki), A.1 (= 8 lykkjur), 6 lykkjur brugðið (= vinstri ermi), A.1 (= 8 lykkjur), 5-6-6 (6-7-7) lykkjur brugðið og 4 kantlykkjur í garðaprjóni (= vinstra framstykki). Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri).
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 12-14-16 (18-18-20) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-9-10 (11-12-13) cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (stykkið mælist ca 12-13-14 (15-16-17) cm frá öxl og niður), endar kantur að framan. Setjið 1 prjónamerki mitt í A.1 í skiptinguna á milli vinstra framstykkis og vinstri ermi (séð frá réttu í prjónstefnu) og prjónið frá réttu þannig: Fellið af 4 fyrstu lykkjur í byrjun umferðar. Prjónið síðan í hring yfir allar lykkjur í sléttprjóni og A.1 í hverja laskalínu eins og áður (útaukningar fyrir laskalínu heldur áfram í annarri hverri umferð eins og áður og 4 lykkjur sem felldar voru af eiga að liggja undir kanti fyrir hnappagötum að framan).
Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 168-188-204 (220-224-240) lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 9-10-11 (13-13-14) cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fram að prjónamerki, setjið næstu 38-42-46 (50-50-54) lykkjur á þráð (= vinstri ermi), fitjið upp 6-6-6 (6-8-8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 46-52-56 (60-62-66) lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 38-42-46 (50-50-54) lykkjur á þráð (= hægri ermi), fitjið upp 6-6-6 (6-8-8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 46-52-56 (60-62-66) lykkjur sléttprjón (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar eru nú prjónuð hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 104-116-124 (132-140-148) lykkjur. Prjónið sléttprjón í hring þar til stykkið mælist 12-13-14 (15-18-21) cm frá skiptingu, þ.e.a.s. ca 24-26-28 (31-34-38) cm frá öxl og niður. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjón 3,5 og fellið laust af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca 26-28-30 (33-36-40) cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 38-42-46 (50-50-54) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6 (6-8-8) lykkjunum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-48-52 (56-58-62) lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6 (6-8-8) nýjar lykkjur (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 1-1-2 (2-2-2) cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4.-4.-4. (6.-4.-5.) hverri umferð alls 2-2-2 (2-3-3) sinnum = 40-44-48 (52-52-56) lykkjur. Þegar stykkið mælist 3-3-4 (5-6-7) cm skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-2-2 (4-4-4) lykkjur jafnt yfir = 38-42-46 (48-48-52) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 3,5 og fellið af með sléttum lykkju. Prjónið hina ermina alveg eins.

FRÁGANGUR:
Leggið vinstri kant að framan fyrir tölur undir hægri og saumið niður fallega í botninn á kanti. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

VASI:
Fitjið upp 14-16-16 (16-18-18) lykkjur á prjón 3,5 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist 6-7-7 (7-8-8) cm skiptið yfir á prjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fellið af með sléttum lykkjum.
Vasinn mælist ca 7-8-8 (8-9-9) cm.
Staðsetjið vasann í vinstri hlið á framstykki (sjá ljósmynd). Saumið vasann niður með smáu spori innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 28-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (6)

country flag Ana Lucia Oliveira wrote:

Os nomes dos pontos, linguagem difícil

01.09.2020 - 22:30

DROPS Design answered:

Relembramos que as receitas são escritas em português de Portugal. Confira as equivalências aqui: -------------------------------------------------------- NOTA: Existem termos diferentes de tricô e croché em português de Portugal e do Brasil. TRICÔ : Malha = Ponto Canelado = Barra Ponto Jarreteira = Cordões de Tricô Ponto Liga = Ponto Tricô CROCHÉ : mpa – meio ponto alto pa – ponto alto pad – ponto alto duplo pat – ponto alto triplo pb – ponto baixo pbx – ponto baixíssimo pc – ponto corrente Bons tricôs!

02.09.2020 - 12:11

country flag Hanny wrote:

Voor maat 80/86 heb ik het lijf 5 cm. langer gebreid. Dat was echt nodig!

29.03.2020 - 20:24

country flag Hanny wrote:

Echt een heel leuk patroon!

29.03.2020 - 14:02

country flag Kaia wrote:

Jeg kan ikke få oppskriften til å stemme. Hvordan kan jeg få 46 masker til bakstykket? Oppskrift Lucky Du ky modell vs-004-bn Hilsen Kaia

27.02.2020 - 22:49

DROPS Design answered:

Hei Kaia. Litt usikker på hva du mener og hvor det går galt hos deg. Om du strikker str. 1/3 mnd skal du ha 168 masker etter alle raglans økningene og så skal det strikkes frem til merketråden, sett 38 masker på 1 tråd (venstre erme), legg opp 6 nye masker og strikk 46 masker glattstrikk til BAKSTYKKET, sett de neste 38 maskene på 1 tråd (høyre erme), legg opp 6 nye masker og strikk 46 masker glattstrikk til forstykket. Om du fremdeles ikke får 46 masker til bakstykket, skrive en bedre beskrivelse på hva du mener er feil eller hvor det blir feil for deg, så skal vi prøve å hjelpe deg så godt vi kan. God Fornøyelse!

02.03.2020 - 10:35

country flag Françoise wrote:

Bonjour je ne comprends pas comment on obtient une différence entre le devant et le dos en nombre de centimètres : "quand l'ouvrage mesure 8-9-10 (11-12-13) cm au milieu devant depuis le rang de montage (l'ouvrage mesure environ 12-13-14 (15-16-17) cm de hauteur totale depuis l'épaule), les bordures de boutonnage sont terminées. " ? Merci

14.03.2019 - 21:13

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, quand on tricote de haut en bas, le rang de montage correspond aussi bien à l'encolure devant/dos qu'aux épaules, l'ouvrage sera plié ensuite en double au niveau des épaules, et on aura donc une différence entre la hauteur tricotée et celle depuis l'épaule. Bon tricot!

15.03.2019 - 08:47

country flag Deborah wrote:

Salve! Per quanto riguarda le diminuzioni, ogni 4 giri significa che devo farle tra la fine del quarto e l’inizio del quinto, o tra il quinto e il sesto, visto che sono a cavallo del segnapunti di inizio giro?

21.04.2018 - 00:49

DROPS Design answered:

Buongiorno Deborah. Aumenta all'inizio e alla fine del primo giro, lavora tre giri senza aumentare (secondo, terzo e quarto giro), aumenta all'inizio e alla fine del quinto giro. Buon lavoro!

21.04.2018 - 09:28