Monica skrifaði:
Buongiorno nelle istituzioni per il davanti è indicato di ripetere A2 per 2 volte in totale nella parte fra il 1 e 2 marker, e poi continuare a legaccio, dalla foto sembrerebbe che A2 venga invece ripetuto una volta soltanto nella parte destinata allo scollo, vorrei un chiarimento, grazie
22.12.2017 - 04:58DROPS Design svaraði:
Buongiorno Monica. Dalla fotografia sembra corretto come dice lei. Chiederemo una verifica alla casa madre. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
24.12.2017 - 11:25
Federica skrifaði:
OK però la mia domanda è: se lavoro in tondo non ho un ferro di ritorno. Perciò devo lavorare a legaccio? Grazie della disponibilità che avete sempre. Saluti Federica
06.12.2017 - 21:11DROPS Design svaraði:
Buonasera Federica. Sì deve lavorare a legaccio. Buon lavoro!
06.12.2017 - 22:40
Federica skrifaði:
Buongiorno. Il diagramma mostra un giro al diritto e uno al rovescio? In parole povere dove trovo il segno - devo fare il rovescio e dove trovo il quadratino devo fare il diritto? Grazie e cordiali saluti
06.12.2017 - 00:31DROPS Design svaraði:
Buongiorno Federica. Abbiamo corretto il testo del secondo simbolo. Il diagramma mostra tutti i ferri, sia quelli di andata che quelli di ritorno. Si lavora avanti e indietro, quindi: quando trova il quadratino lavora a diritto sui ferri di andata (diritto del lavoro) e a rovescio sui ferri di ritorno (rovescio del lavoro). Quando trova il segno -, lavora a rovescio sui ferri di andata e a diritto sui ferri di ritorno. Buon lavoro!
06.12.2017 - 08:49Karin Madsen skrifaði:
Hej. Jeg har prøvet at starte denne model flere gange, men kan ikke komme lændere end, at slå op. De 4 strømpepinde, bliver ved med at falde at, har i en nemmere ide med at få startet. Jeg har prøvet med mindre pinde, sikkershedsnåle, osv. På forhånd tak, Karin
15.11.2017 - 02:53DROPS Design svaraði:
Hej Karin, denne model er du nødt til at starte på strømpepinde. Men du skal nok stramme maskerne lidt så de ikke falder af. God fornøjelse!
17.11.2017 - 14:57
Roswitha skrifaði:
Hallo. Toller Pulli. Allerdings finde ich kraus rechts nicht so schön. Spricht etwas dagegen, den Pulli in glatt rechts zu stricken? Ggfs. müsste ich vielleicht das Quadrat etwas kleiner (weniger Reihen) machen, aber ansonsten dürfte das doch gehen, oder? Noch eine Frage: In der Anleitung steht: "Das Vorderteil und das Rückenteil werden einzeln in Hin- und Rück-Reihen als Viereck gestrickt." Aber das müsste doch lauten "in Runden" oder nicht? Vorab vielen Dank. :-)
03.07.2017 - 20:39DROPS Design svaraði:
Liebe Roswitha, Anleitung wurder korrigiert, es wird in Runden gestrickt. Es würde etwas kompliziert glatt anstatt kraus rechts zu stricken, die Maßen würden nicht mehr zu den Runden bzw zu der Maschenanzahl passen. Viel Spaß beim stricken!
04.07.2017 - 09:58
Glenis skrifaði:
Could you please tell me what the clock sign means on some of the pattern pictures? Regards Glenis
16.05.2017 - 13:29DROPS Design svaraði:
Dear Glenis, the clock is added on the newest patterns added online :) Happy knitting!
16.05.2017 - 13:33
Center of my Heart#centerofmyheartsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Peysa með gatamynstri, prjónuð frá miðju og út í ferning úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 178-56 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugði'*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GATAUMFERÐ: Ný gataumferð byrjar í miðju á A.2 í 2. umferð og fer á ská að hornlykkjum með prjónamerki í. Öll gataumferðin í A.1 og A.2 heldur áfram út þar til allt stykkið hefur verið prjónað til loka. Mynsturteikning A.2 (= 14 umferðir) er endurtekið á hæðina þar til stykkið hefur verið prjónað til loka (nema frá hlið á háls). Passið uppá að lykkjur með ör komi beint yfir hverja aðra. GÖT (ermi): Á ermum er prjónuð gataumferð að saum mitt undir ermi, í umferð með útaukningu eru prjónaðar sléttar lykkjur og aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn = gat. Í þeim umferðum sem eftir eru er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 4 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. Endurtakið þessar 2 umferðir. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur slétt, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað hvort fyrir sig, eins og ferningur. Byrjið í miðju. Fitjið upp og prjónið með sokkaprjónum, skiptið yfir á hringprjón eftir þörf. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 8-8-8-8-8 lykkjur með Brushed Alpaca Silk og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6 (= 2 lykkjur á hverjum prjóni). Setjið 1 prjónamerki í fyrstu, þriðju, fimmtu og sjöundu lykkju (= 4 hornlykkjur með prjónamerki í), látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Hinar fjórar lykkjurnar eru miðjulykkjur. Prjónið þannig: A.1 alls 4 sinnum hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 er lokið á hæðina eru 29-29-29-29-29 lykkjur á milli hverra lykkja með prjónamerki í = 120-120-120-120-120 lykkjur í umferð. Prjónið nú A.2 á hæðina – LESIÐ GATAUMFERÐ að ofan. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hornlykkju eins og áður (= alls 8 útauknar lykkjur í annarri hverri umferð) – ATH: Á milli fyrsta og annars prjónamerkis (= hlið á hálsi) endurtakið A.2, 1-1-2-2-3 sinum til viðbótar (prjónið síðan áfram þessa hlið í garðaprjóni), en í hinum 3 hliðunum er A.2 endurtekið áfram á hæðina til loka. Haldið svona áfram þar til 240-264-288-304-336 lykkjur eru eftir í umferð (= 29-32-35-37-41 útaukningar og 59-65-71-75-83 lykkjur á milli hverra lykkju með prjónamerki) og stykkið mælist ca 40-44-48-51-56 cm. Endið eftir 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð slétt með mynstur og útaukningar eins og áður og setjið miðju 15-15-15-17-17 lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis á þráð fyrir hálsmáli eftir að þær eru prjónaðar. Klippið frá. Prjónið síðan stykkið fram og til baka. Byrjið við háls og prjónið næstu umferð frá röngu. Haldið áfram með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, útaukning og nýjar gataumferðir. JAFNFRAMT er fellt af við háls í annarri hverri umferð þannig: Fellið af í byrjun hverrar umferðar, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Haldið áfram með útaukningar þar til 309-333-357-387-419 lykkjur eru eftir í umferð (= 41-44-47-51-55 útaukningar). Nú eru 83-89-95-103-111 lykkjur á milli hverra lykkja með prjónamerki, 28-31-34-37-41 lykkjur í hverri umferð). Nú er prjónað áfram á milli 3. og 4. prjónamerkis og þær lykkjur sem eftir eru, eru felldar af. Byrjið frá röngu, fellið af allar lykkjur fram að og með lykkju með 4. prjónamerki, fellið af og prjónið fram að 3. prjónamerki og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Byrjið frá réttu, prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 83-89-95-103-111 lykkjur, fellið af. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, 17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Þau sýna hvar ermarnar eru saumaðar í. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og framstykki þar til það eru 240-264-288-304-336 lykkjur í umferð (= 29-32-35-37-41 útaukningar og 59-65-71-75-83 lykkjur á milli hverra prjónamerkja). Á bakstykki er haldið áfram alveg eins þar til 288-312-336-368-392 lykkjur eru eftir í umferð (= 35-38-41-45-48 útaukningar og 71-77-83-91-97 lykkjur á milli hverra prjónamerkja). Endið eftir 1 umferð brugðið. Prjónið nú 1 umferð slétt með mynstri og útaukningar eins og áður og fellið af miðju 27-27-27-29-29 lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis fyrir hálsmáli. Prjónið út umferðina og klippið frá. Prjónið síðan stykkið fram og til baka. Byrjið við háls og prjónið næstu umferð frá röngu. Haldið áfram með garðaprjón, útaukningar og nýja gataumferð eins og áður. Haldið áfram með útaukningar þar til 309-333-357-387-419 lykkjur eru í umferð (= 41-44-47-51-55 útaukningar). Nú eru 83-89-95-103-111 lykkjur á milli hverra lykkja með prjónamerki, 28-31-34-35-41 lykkjur á hvorri öxl). Nú er prjónað áfram á milli 3. og 4. prjónamerki og þær lykkjur sem eftir eru, eru felldar af. Byrjið frá röngu, fellið af allar lykkjur fram að og með lykkju með 4. prjónamerki, fellið af, prjónið fram að 3. prjónamerki og fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Klippið frá. Byrjið frá réttu, prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir 83-89-95-103-111 lykkjur, fellið af. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, 17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Þau sýna hvar ermarnar eru saumaðar í. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 33-34-35-36-39 lykkjur á hringprjón 6 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Haldið svona áfram upp með garðaprjóni og GATAUMFERÐ – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3-4-4-2-4 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 3-2½-2-2-1½ cm millibili 9-10-11-12-12 sinnum til viðbótar = 53-56-59-62-65 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 32-31-30-28-26 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í niður að prjónamerki á framstykki/bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju, skiljið eftir neðstu 9 cm fyrir klauf. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 66 til 74 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) með stutta hringprjóna í kringum háls. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn og fellið af. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #centerofmyheartsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-56
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.