DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Time for Tea

Tunika með gatamynstri, laskalínu og ¾ ermum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.

DROPS 178-15
DROPS Design: Mynstur w-639
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-700-750-800-900 g litur 29, ljós ísblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verða 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 fyrir kant með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verða 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin. ATH: Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og ermum! Útaukningar á ermum eru teiknaðar inn í mynsturteikningu A.2.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 86 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 21,5. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 21. hverja lykkju.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 4 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í hring á hringprjóna/sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 86-88-92-96-100-106 lykkjur á hringprjóna 4,5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-18-14-30-24 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 90-90-110-110-130-130 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 – veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 10 mynstureiningar 9-9-11-11-13-13 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 180-180-200-200-220-220 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 15-15-16-16-17-17 cm frá uppfitjunarkanti.

Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, þannig: Hvert prjónamerki er sett í miðju lykkjuna í mynstureiningu A.1 (sjá stjörnu í mynsturteikningu) þannig: 1. prjónamerki er sett í miðju lykkjuna í 1. mynstureiningu með A.1, 2. prjónamerki er sett í 3. mynstureiningu með A.1, 3. prjónamerki er sett í 6. mynstureiningu með A.1 og 4. prjónamerki er sett í 8. mynstureiningu með A.1.
Lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis = hægri ermi.
Lykkjur á milli 2. og 3. prjónamerkis = framstykki.
Lykkjur á milli 3. og 4. prjónamerkis = vinstri ermi.
Lykkjur á milli 4. og 1. prjónamerkis = bakstykki.
LESIÐ ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM:
Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan og mynstur er prjónað þannig:
Prjónið síðan mynstur A.2 (= 35-35-39-39-43-43 lykkjur) á ermum (= á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis) og prjónið sléttprjón á framstykki (= milli 2. og 3. prjónamerkis), á bakstykki (= milli 4. og 1. prjónamerkis) og 4 lykkjur með prjónamerki eru prjónaðar með sléttprjóni!

LASKALÍNA Á ERMUM:
Útaukningar á ermum eru teiknaðar inn í mynsturteikningu A.2. Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og 1 lykkju á undan 2. og 4. prjónamerki.
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 7-8-9-10-11-11 sinnum, þ.e.a.s. þar til eftir eru 5-3-3-1-1-1 umferðir í A.2.
LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út um 1 lykkju í hverri umferð 0-0-0-3-5-6 sinnum og 1 lykkja í annarri hverri umferð 6-8-9-8-8-8 sinnum.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð og 5-3-3-1-1-1 umferðir eru eftir í mynsturteikningu A.2 eru 232-244-272-284-316-320 lykkjur á prjóni.
Í næstu umferð er prjónað þannig: Prjónið fram að 1. prjónamerki, setjið lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis á þráð (= 49-51-57-59-65-65 lykkjur fyrir ermi), fitjið upp 6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 67-71-79-83-93-95 lykkjur, setjið lykkjur á milli 3. og 4. prjónamerkis á þráð (= 49-51-57-59-65-65 lykkjur fyrir ermi), fitjið upp 6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
Stykkið mælist ca 20-22-24-25-27-27 cm frá uppfitjunarkanti.

Takið í burtu 4 prjónamerkin í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkist og erma og setjið 2 ný prjónamerki í stykkið mitt á milli nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 146-158-178-190-210-218 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 8.-8.-5.-4.-5.-4. hverri umferð alls 9-7-15-18-14-19 sinnum = 182-186-238-262-266-294 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-40-40-41-41-43 cm er aukið út um 7-3-5-8-4-3 lykkjur jafnt yfir = 189-189-243-270-270-297 lykkjur. Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3 (= 7-7-9-10-10-11 mynstureiningar 27 lykkjur). Þegar öll mynsturteikning A.3 hefur verið prjónuð til loka á hæðina er skipt yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið aftur til baka yfir á hringprjón 5 og fellið af – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur!

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið 49-51-57-59-65-65 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja og eina af 6-8-10-12-12-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-59-67-71-77-79 lykkjur á prjóni. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi (þ.e.a.s. mitt á milli 6-8-10-12-12-14 nýrra lykkja).
Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 3-5-5-7-7-8 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með mynstur A.2/A.4 yfir næstu 49-49-57-57-63-63 lykkjur – þ.e.a.s. í stærð S, M og L eru prjónaðar umferðir sem eftir eru í A.2 (án útaukninga í hvorri hlið á mynsturteikningu) áður en haldið er áfram með A.4 yfir A.2, prjónið sléttprjón yfir þær 3-5-5-7-7-8 lykkjur sem eftir eru í umferð. Þegar ermin mælist 3 cm frá nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 9.-7.-5.-4.-4.-4. hverri umferð alls 6-7-10-11-11-11 sinnum = 43-45-47-49-55-57 lykkjur (lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar með sléttprjóni). Þegar ermin mælist 24 cm er skipt yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 5 og fellið laust af – passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur!
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.07.2017
FRAM- OG BAKSTYKKI:… Í næstu umferð er prjónað þannig: Prjónið fram að 1. prjónamerki, setjið lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis á band (= 49-51-57-59-65-65 lykkjur fyrir ermi), fitjið upp 6-8-10-12-12-14 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 67-71-79-83-93-95 lykkjur,
ERMI:…LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-2-2-2 cm millibili alls 6-7-10-11-11-11 sinnum = 43-45-47-49-55-57 lykkjur (lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar með sléttprjóni).
Yfirfarið á vefsvæði: 25.08.2017
ERMI:..LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 9.-7.-5.-4.-4.-4. hverri umferð alls 6-7-10-11-11-11 sinnum = 43-45-47-49-55-57 lykkjur
Yfirfarið á vefsvæði: 09.04.2019
Leiðrétting: FRAM- OG BAKSTYKKI:..Þegar stykkið mælist 40-40-40-41-41-43 cm er aukið út um 7-3-5-8-4-3 lykkjur jafnt yfir = 189-189-243-270-270-297 lykkjur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = prjónstefna
symbols = prjónamerki er sett í miðju lykkju í mynsturteikningu – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Cynthia Blanckaert wrote:

Ik twijfel bij de 4 markeringen plaatsen voor een M De eerste is vanaf de 1ste herhaling Bedoel je daarmee de 2de keer je het patroon breit of vanaf de start van het telpatroon Mvg

15.03.2023 - 02:49

DROPS Design answered:

Dag Cynthia,

Je plaatst de markeerdraden of markeerders ter hoogte van waar je op dat moment bent (je hebt dan dus al een herhaling in de hoogte gemaakt) en je plaatst ze in de middelste steek van A.1 (dus waar je A.1 hebt gebreid en daar de middelste steek van.)

16.03.2023 - 20:42

country flag Marian wrote:

Kan ik het patroon ook breien met 2 draden Drops Fabel?

07.11.2022 - 19:31

DROPS Design answered:

Dag Marian,

Ja, dat kan! Fabel valt in garencategorie A en 2 draden van categorie A komt overeen met de dikte van categorie C.

08.11.2022 - 19:40

country flag Alexandra wrote:

Hallo, liebes Drops-Team, ich habe eine Frage zum Diagramm. Ich habe noch nie ein richtiges Lochmuster gestrickt, deshalb kenne ich mich noch nicht aus. Laut Diagramm müssten alle Umschläge in der nächsten Reihe verschränkt gestrickt werden damit kein Loch entsteht (das Symbol mit dem hohlen Kreis) - aber dann entsteht doch auch kein Lochmuster, glaube ich. Oder müssten einige dieser Kreise doch normal rechts gestrickt werden - wenn ja, welche?

01.08.2022 - 01:54

DROPS Design answered:

Liebe Alexandra, bei diesem Modell und den Diagrammen sind es 2 Sorten Umschläge: die für das Lochmuster sind mit 2., 3. und 4. Symbol erklärt und sollen Löcher bilden und die für die Zunahmen sind wie beim 5. Symbol gestrickt -diese sollen keine Löcher bilden. Viel Spaß beim stricken!

01.08.2022 - 12:05

country flag Emanuela wrote:

Vorrei lavorare il maglione dal basso verso l'alto, è possibile? Devo fare le diminuzioni al posto degli aumenti sullo sprone? Come posso fare le diminuzioni dei raglan Grazie per la risposta

16.05.2022 - 15:24

DROPS Design answered:

Buonasera Emanuela, questo modello è stato progettato per essere lavorato dall'alto in basso. Sul nostro sito può trovare tantissimi modelli lavorati dal basso verso l'alto. Buon lavoro!

17.05.2022 - 19:02

country flag Christine Almond wrote:

Can it be converted to straight needles

25.04.2022 - 10:27

DROPS Design answered:

Dear Mrs Amond, this lesson might help you to adapt the pattern into straight needles - it might be sometimes easier to have a try on circular needle, look at our videos, they might help you to understand how to do; happy knitting!

25.04.2022 - 12:12

country flag Agnes wrote:

Pleased, can i get this pattern time for tea in German?

24.02.2022 - 19:30

DROPS Design answered:

Dear Agnes, sure you can, click on the scroll down menu below the picture to select language and then choose "deutsch". Happy knitting!

25.02.2022 - 09:00

country flag Carmen-Gabriela wrote:

Danke für ihre Antwort:) Ich möchte "M" stricken. Start S+M ist gleich. Meine Passe ehe ich Raglan und glatt VT/RT stricke ist mit 13cm nach A.1 zu kurz. Verfahre ich nach Anleitung + 7cm (M) komme ich auf S. Daher meine Überlegung, ob ich gegen Ende A.2 nur in jed. 4.Rd. Raglan zunehme und später teile. A.4 müsste wiederholt werden? Soo ein hübsches Design:)!

26.01.2022 - 18:20

DROPS Design answered:

Liebe Carmen-Gabriela, wenn Ihre Maschenprobe in der Höhe nicht gerade stimmt, dann können Sie z.B. mehr Reihen zwischen den Raglan-Zunahmen stricken, oder nach den Raglan-Zunahmen einfach im Muster (ohne weitere Zunahmen) stricken, dann je nach Ihrer Maschenprobe in der Höhe beginnen Sie A.4 früher als in der Anleitung, und vielleicht haben Sie dann mehr A.4 in der Höhe aber am besten die Höhe der Passe so anpasse, damit die Verteilung richtig nach ca 22 cm verteilt wird. Viel Spaß beim stricken!

27.01.2022 - 08:28

country flag Carmen-Gabriela wrote:

Hallo, wird A.4 für den Ärmel wiederholt bis zur gewünschten Länge? Leider misst meine Passe nach A.1 gedehnt nur 13 cm lang (S/M). Nun weiß ich noch nicht, ob ich gleich mit glatt re. VT/RT + Raglan weiterstricke od. ob ich die Lochmusterpasse verlängere (mit Zunahmen) und ggf. dementsprechend die Raglanzunahmen reduziere. Haben Sie einen Tipp? Maschenprobe hatte gestimmt.

21.01.2022 - 18:32

DROPS Design answered:

Liebe Carmen-Gabriela, welche Größe stricken Sie? S oder M? Nach alle Raglanzunahmen soll die Passe ca 20-22 cm sein (15 cm nach A.1 + ca 6-7 cm Raglan). Kann das Ihnen helfen?

26.01.2022 - 10:00

country flag Hannelore Meier wrote:

Guten Tag. Kann ich mir auch dieses tolle Muster auch ausdrucken?

14.10.2021 - 16:59

DROPS Design answered:

Liebe Frau Meier, ganz gerne, klicken Sie auf "Drucken", dann wählen Sie "Anleitung", ein neues Fenster öffnet sich dann, klicken Sie auf "Die Anleitung ausdrucken →" um das Dialogfenster von Ihrem Drucker wird angezeigt. Viel Spaß beim stricken!

15.10.2021 - 13:38

country flag IRENE CAMBUS wrote:

J'ai commencé à tricoter le modèle 178-15 avec des aiguilles normales en commençant par le bas en prenant le diagramme à l'envers et c'est correct. Comment faire le raglan de cette façon? Merci pour vos conseils. Cordialement

24.05.2021 - 18:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cambus, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; si vous tricotez ici la robe de bas en haut, il va vous falloir diminuer au lieu d'augmenter pour le raglan et diminuer au lieu d'augmenter dans les diagrammes après le raglan. Votre magasin saura vous aider, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

25.05.2021 - 08:52