Marianne Holm Jensen skrifaði:
Finnes det opplysninger om plaggets mål i de forskjellige størrelsene?
18.03.2017 - 11:52DROPS Design svaraði:
Hej Marianne. Ja, der er en maalskitse nederst paa opskriften. Her staar alle maal i cm per str
20.03.2017 - 13:17Lacko Aranka skrifaði:
Szép napot kívánok! Azt hiszem a magyar nyelvű verzióban van egy hiba a kardigán kötését leírú részben. Az eredeti szövegben a kezdés 110 szemre van írva, utána 4 sor lustakötés és az utolsó sorban 20szemet kell fogyasztani, ami után 130 szemünk lesz. Szerintem nem fogyasztani, hanem szaporítni kell. Gondolom a fordításba kis hiba csúszott. Aranka
16.03.2017 - 13:01
Anna Riboldi skrifaði:
Il modello è bellissimo ( come al solito tutti i vostri)! Grazie della velocissima risposta. Attendo con ansia ulteriori informazioni per poter procedere col lavoro! Anna
31.01.2017 - 16:52
Anna Riboldi skrifaði:
Buongiorno, nella spiegazione non trovo né le indicazioni per le asole, né il tipo di bottone che dovrei usare. Potreste cortesemente darmi un suggerimento. Grazie in anticipo. Anna
31.01.2017 - 16:19DROPS Design svaraði:
Buongiorno Anna, chiederemo un chiarimento alla casa madre in merito alle asole e ai bottoni. Se ci fossero delle correzioni, il modello verrà aggiornato direttamente sul sito. Grazie per la segnalazione. Buon lavoro!
31.01.2017 - 16:37
Michaela Hochfeld skrifaði:
Wunderschön und so sommerlich! Einfach ein Traum! Kann es kaum erwarten, bis die Anleitung endlich frei geschaltet wird 😩
15.01.2017 - 08:21
Torhild Christensen skrifaði:
Nydelig jakke med så fine ermer
22.12.2016 - 21:48
Marcin skrifaði:
Ładny!
13.12.2016 - 12:04
Honey Blossom Cardigan#honeyblossomcardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og kanti að framan með götum, prjónuð ofan frá og niður með ¾ löngum ermum úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-9 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning A.1 er vinstri kantur að framan og mynsturteikning A.3 er hægri kantur að framan. LASKALÍNA: ERMI: Útaukningar á ermi er einn hluti af mynsturteikningu A.2, A.4 og A.6. Aukið er út um 2 lykkjur á hvorri ermi í annarri hverri umferð, uppslátturinn er prjónaður brugðið í næstu umferð, það eiga að myndast göt. FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út um 2 lykkjur á bakstykki og 1 lykkju á hvoru framstykki þannig: Í HVERRI UMFERÐ: Aukið svona út frá réttu: Byrjið 2 lykkjum á undan A.2: Sláið 1 sinnum uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.2, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið á undan og á eftir næsta A.2. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið það eiga að myndast göt. Aukið út frá röngu þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið A.2, prjónið 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið á undan og á eftir næsta A.2. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. Í ANNARRI HVERRI UMFERÐ: Aukið út frá réttu þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan A.2: sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur, prjónið A.2, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið á undan og á eftir næsta A.2. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það eiga að myndast göt. Í FJÓRÐU HVERRI UMFERÐ: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Byrjið 2 lykkjum á undan A.2: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.2, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið á undan og á eftir næsta A.2. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Uppslátturinn er prjónaður brugðið, það eiga að myndast göt. UMFERÐ 3 (= frá réttu): Byrjið 4 lykkjum á undan A.2: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið A.1, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð – ekki er aukið út, en gataumferð heldur áfram eins og áður. Endurtakið á undan og á eftir næsta A.2. UMFERÐ 4 (= frá röngu): Uppslátturinn er prjónaður brugðið, það eiga að myndast göt. ÚTAUKNING: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja) sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð. ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Þær lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri í hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. PEYSA: Fitjið upp 110-114-118-122-126-130 lykkjur (meðtaldar 11 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í síðustu umferð í garðaprjóni, er aukið út um 20 lykkjur jafnt yfir = 130-134-138-142-146-150 lykkjur. Prjónið síðan frá réttu – þannig: Prjónið A.1 (= 11 lykkjur ), 16-17-18-19-20-21 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón (= vinstra framstykki), A.2 (= 17 lykkjur) (= vinstri ermi), 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 38-40-42-44-46-48 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón (= bakstykki), A.2 (= hægri ermi), 1 lykkja sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16-17-18-19-20-21 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 11 lykkjur) (= hægra framstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA er nú lokið. Haldið áfram með þessa skiptingu með mynstri og sléttprjóni. Aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan. Á ermi er aukið út í annarri hverri umferð 22-26-29-31-32-33 sinnum, á fram- og bakstykki er aukið út í hverri umferð 0-0-0-0-0-6 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 14-16-17-25-32-30 sinnum, og endið í 4. hverri umferð 4-5-6-3-0-0 sinnum. ATH! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið áfram þannig (yfir lykkjur á ermi): A.4 (= 8 lykkjur), A.5 (= 12 lykkjur), A.6 (= 7 lykkjur). Þegar A.4 til A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað þannig: A.4, A.5 yfir næstu 36 lykkjur (= 3 mynstureiningar), A.6. í hvert skipti sem A.4, A.5 og A.6 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með 2 fleiri mynstureiningu af A.5 á milli A.4 og A.6. Endið með A.4, A.5 og A.6 þegar aukið hefur verið alls 22-26-29-31-32-33 sinnum á ermum og alls 18-21-23-28-32-36 sinnum á hvoru framstykki/bakstykki. Eftir allar útaukningar eru 61-69-75-79-81-83 lykkjur á hvorri ermi, 76-84-90-102-112-122 lykkjur á bakstykki og 46-50-53-59-64-69 lykkjur á hvoru framstykki= 290-322-346-378-402-426 lykkjur alls. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 46-50-53-59-64-69 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 61-69-75-79-81-83 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur, prjónið næstu 76-84-90-102-112-122 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 61-69-75-79-81-83 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur, prjónið síðustu 46-50-53-59-64-69 lykkjur (= vinstra framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 184-200-216-240-264-288 lykkjur á fram- og bakstykki. Haldið áfram með A.1, sléttprjón og A.3 eins og áður. Setjið eitt prjónamerki í hverja hlið, mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri), aukið út m eð 7 cm millibili alls 4 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING = 200-216-232-256-280-304 lykkjur. Þegar stykkið mælist 27-26-26-26-27-29 cm prjónið A.7 með A.1 og A.3 í hvorri hlið, fellið síðan af. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. ERMI: Setjið til baka lykkjur af þræði á sokkaprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar eru upp undir ermi = 69-77-85-89-93-97 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur = miðja undir ermi. Haldið áfram með A.5, þær lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 3-3-3-5-5-5 cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, fækkið um 3-2-1½-1½-1-1 cm millibili alls 9-12-15-16-17-18 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA = 51-53-55-57-59-61 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-30-29-28-28-28 cm prjónið A.7 yfir allar lykkjur. Fellið af þegar A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, ermin mælist ca 36-33-32-31-31-31 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. Staðsetjið 6-6-6-7-7-7 tölur jafnt yfir í vinstri kanti að framan og saumið þær niður. Það eru engin hnappagöt heldur er hneppti í gegnum göt í mynstri. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #honeyblossomcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.