Donna skrifaði:
What is the bust size for this pattern?
26.06.2020 - 20:18DROPS Design svaraði:
Dear Donna, you will find all finished measurements in cm in the measurement chart - read more about chart here and convert into cm here. Happy knitting!
29.06.2020 - 07:28
Oregonborn skrifaði:
What are the bust size for this patten
26.06.2020 - 20:16DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Oregonborn, you will find all finished measurements in cm in the measurement chart - read more about chart here and convert into cm here. Happy knitting!
29.06.2020 - 07:34
Kitty skrifaði:
Me again, I just watched your video and now understand that it's all the RAGLAN increase - makes perfect sense, although I guess I'm starting on the next Purl row to start the increases? Thanks
24.05.2019 - 21:10DROPS Design svaraði:
Dear Kitty, right, you will start raglan increases on first row from RS = first row worked purl from WS. Happy knitting!
27.05.2019 - 13:23
Kitty skrifaði:
Hi there, I'm just about to start this project but already getting a little confused? In the 'READ ALL' section it says...... on the next row begin incr for RAGLAN - this would be the WS? A few rows down it talks about BODY then SLEEVES - is this bit actually the RAGLAN instructions and you use the RAGLAN increase for all of this even though it says SLEEVES and BODY? I'm new to knitting and am finding this a bit confusing. Thanks
24.05.2019 - 19:41DROPS Design svaraði:
Dear Kitty, this sweater is a top down cardigan, knitted in one piece, so when youincrease for raglan, you knit the body and the sleeves at the same time., however the rate you are increasing is different, that is why body and sleeves are mentioned. I hope this helps. Happy Knitting!
25.05.2019 - 10:13
Stonehenge Cardigan |
||||
|
||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino með klauf, laskalínu og berustykki með rönguna út, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-1311 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LASKALÍNA: ATH! Öll útaukning er gerð frá réttu! Þegar prjónað er brugðið, prjónið uppsláttinn slétt í næstu umf (= frá réttu) svo það myndist gat. Þegar prjónað er sléttprjón, prjónið uppsláttinn br í næstu umf (= frá röngu), svo það myndist gat. Aukið út um 1 l á eftir/á undan prjónamerki þannig: Á eftir prjónamerki: 1 l br, sláið uppá prjóninn (= 1 l fleiri). Á undan prjónamerki: Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l br. Aukið út um 2 l á eftir/á undan prjónamerki þannig: Á eftir prjónamerki: 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 2 l br í næstu l (= 1 l fleiri). Á undan prjónamerki: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, 2 l br í næstu l (= 1 l fleiri), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l br. Þegar aukið er út í annarri hverri umf frá réttu eru áfram prjónuð göt í hverri umf frá réttu, en götin eru prjónuð án þess að auka út, þ.e.a.s. prjónið þannig. Á eftir prjónamerki: 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir. Á undan prjónamerki: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l br. ÚTAUKNING (á við um útaukningu í hliðum á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð frá réttu! Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerkið er staðset mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið l mitt undir ermi þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). Fellið af frá réttu þegar 3 l eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu l slétt saman og prjónið síðustu l slétt. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Fellt er af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir næstu 6-6-7-7-7-7 með ca 9-9-8-8-9-9 cm á milli hverra. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka ofan frá og niður. Fyrst er prjónað sléttprjón með röngu út, síðan er prjónað sléttprjón með réttu út. BERUSTYKKI: Fitjið upp 114-118-122-128-132-138 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum milligrár. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka. Skiptið yfir í litinn ljós grár og hringprjóna nr 4,5 og prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20-20-24-22-22-24 l jafnt yfir = 134-138-146-150-154-162 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu þar sem sett eru 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 30-31-33-32-33-35 l (= framstykki), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 12-12-12-16-16-16 l (= ermi), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 50-52-56-54-56-60 l (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 12-12-12-16-16-16 l (= ermi), setjið eitt prjónamerki, prjónið næstu 30-31-33-32-33-35 l (= framstykki). LESIÐ KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið síðan áfram í sléttprjóni með röngu út (1. umf = br frá réttu) með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH: Aukið er mismunandi út á ermum og fram- og bakstykki – LESIÐ LASKALÍNA! MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Aukið út þannig: FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út um 1 l á eftir/á undan prjónamerki í hverri umf frá réttu alls 8-12-12-23-28-32 sinnum, síðan er aukið út um 1 l á eftir/á undan prjónamerki í annarri hverri umf frá réttu alls 7-6-7-2-1-0 sinnum. ERMAR: Aukið út um 2 l á eftir/á undan prjónamerki í hverri umf frá réttu alls 2-4-5-4-2-1 sinnum, aukið síðan út um 1 l á eftir/á undan prjónamerki í hverri umf frá réttu alls 16-16-17-19-24-27 sinnum og að lokum 1 l á eftir/á undan prjónamerki í annarri hverri umf frá réttu alls 2 sinnum í öllum stærðum. JAFNFRAMT – þegar stykkið mælist 19-21-21-22-23-23 cm (frá uppfitjunarkanti), skiptið yfir í milligrár og prjónið síðan í sléttprjóni – ATH: Þær 2 l (þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki) halda áfram með br (séð frá réttu), hinar l (og uppslátturinn) eru prjónaðar slétt (séð frá réttu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir alla útaukningu eru 282-314-338-366-390-414 l í umf. Stykkið mælist nú ca 22-24-25-27-29-31 cm frá öxl (19-21-22-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti og niður meðfram kanti að framan). Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 45-49-52-57-62-67 l (= framstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-78 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið næstu 80-88-94-104-114-124 l (= bakstykki), setjið næstu 56-64-70-74-76-78 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið þær 45-49-52-57-62-67 l sem eftir eru (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-202-218-238-262-286 l. Prjónið sléttprjón fram og til baka með kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm í öllum stærðum er aukið út hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Aukið svona út með 2½-2½-3-3-3-3½ cm millibili alls 7 sinnum í öllum stærðum = 214-230-246-266-290-314 l. Þegar stykkið mælist 32-32-33-34-34-34 cm prjónið þannig (frá réttu): Prjónið fyrstu 56-60-64-69-75-81 l (= vinstra framstykki) og setjið þær á þráð, prjónið næstu 102-110-118-128-140-152 l (= bakstykki) og setjið á þráð, prjónið þær 56-60-64-69-75-81 l sem eftir eru (= hægra framstykki). HÆGRA FRAMSTYKKI: = 56-60-64-69-75-81 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 5 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sléttprjón þar til 5 l eru eftir, prjónið 5 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 43-43-44-45-45-45 cm. Skiptið yfir í ljósgrár og hringprjóna nr 3,5, prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af. Stykkið mælist alls 67-69-71-73-75-77 cm frá öxl. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki. BAKSTYKKI: = 102-110-118-128-140-152 l. Prjónið síðan fram og til baka á hringprjóna. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 5 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sléttprjón þar til 5 l eru eftir, prjónið 5 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 43-43-44-45-45-45 cm. Skiptið yfir í ljós grár og hringprjóna nr 3,5, prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af. Stykkið mælist alls 67-69-71-73-75-77 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er prjónað í hring. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4,5 og fitjið að auki upp 8-8-10-10-12-14 nýjar l undir ermi = 64-72-80-84-88-92 l. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l undir ermi – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2½-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 13-16-19-20-21-22 sinnum = 38-40-42-44-46-48 l. Þegar stykkið mælist 39-38-37-36-35-33 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir í litinn ljós grár og sokkaprjóna nr 3,5, prjónið 6 umf garðaprjón og fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra kantstykki. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1311
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.