Erendis#erendissweater |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 172-13 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 l innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Aukið út um 1 l með því að slá 1 sini uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni). ÚTAUKNING-2 (á við um miðju undir ermi): Aukið út um 2 l mitt undir ermi þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), sláið uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l innan við 2 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l á undan 2 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan 2 kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir 2 kantlykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram-og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stutta hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 103-111-121-133-147-163 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 3-7-12-18-19-21 l garðaprjón, prjónið mynstur eftir A.1 yfir næstu 96-96-96-96-108-120 l (= 8-8-8-8-9-10 mynstureiningar 12 l), prjónið fyrstu l í A.1 og endið með 3-7-12-18-19-21 l garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 87-95-105-117-129-143 l í umf. Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.2 alveg eins með 3-7-12-18-19-21 l garðaprjón í hvorri hlið (A.2 er endurtekið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 2 l fleiri). Aukið svona út með 5-5-5½-6-8-8 cm millibili alls 5-5-5-5-4-4 sinnum = 97-105-115-127-137-151 l. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af fyrstu 3-3-4-6-7-9 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg. Fellið síðan af fyrir handveg þannig – LESIÐ ÚRTAKA: Stærð S + M: Fækkið um 1 l í hvorri hlið í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 2-6 sinnum. Stærð L + XL + XXL + XXXL: Fækkið um 1 l í hvorri hlið í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 9-13-13-13 sinnum. Þegar úrtaka fyrir handveg líkur eru 87-87-89-89-97-107 l eftir á prjóni. Haldið áfram með A.2 eins og áður með 3-3-4-4-3-3 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af miðju 33-33-35-35-37-39 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 1 l 2 sinnum = 25-25-25-25-28-32 l eftir á öxl – ATH: Þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við hálsmál þegar fellt er af eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir úrtöku í hálsmáli er haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmál og 3-3-4-4-3-3 l með garðaprjóni við handveg þar til 2 umf eru eftir til að stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er laust af með sl frá réttu. Endurtakið á hinni öxlinni. FRAMSTYKKI: Fitjið upp eins og á bakstykki og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 50-52-53-55-56-58 cm. Setjið nú miðju 21-21-23-23-23-25 l á þráð fyrir hálsmál (til að sleppa við að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið l áður en þær eru settar á þráðinn). Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálmáli í byrjun á hverri umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 3 sinnum og 1 l 2-2-2-2-3-3 sinnum = 25-25-25-25-28-32 l eftir á öxl – ATH: Þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við hálsmál þegar fellt er af eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir úrtöku í hálsmáli er haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls og 3-3-4-4-3-3 l í garðaprjóni við handveg þar til 2 umf eru eftir til að stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm – stillið af eftir bakstykki. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er laust af með sl frá réttu. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir í stutta hringprjóna eftir þörf. Fitjið upp 43-45-47-51-53-55 l á sokkaprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið næstu umf þannig: 15-16-17-19-20-21 l sléttprjón, A.3 (= 13 l), 15-16-17-19-20-21 l sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.4 prjónað yfir miðju 3 l til loka (aðrar l halda áfram í sléttprjóni). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-10-9-9-9 cm setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi). Í næstu umf er aukið út um 2 l mitt undir ermi alls 16-19-21-22-24-25 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING-2 þannig: Í stærð S: Í 7. hverri umf, í stærð M: Í 6. hverri umf, í stærð L + XL: Í 5. hverri umf, í stærð XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umf og í stærð XXXL: Í 4. hverri umf = 75-83-89-95-101-105 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-46-46-45 cm fellið af miðju 6 l undir ermi og ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram í sléttprjóni og A.4 yfir miðju 3 l og fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-1-1-1-1-1 sinni, 2 l 3-3-3-4-4-5 sinnum og 1 l 3-3-3-5-6-6 sinnum í hvorri hlið, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-55-55-56-56-56 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, ermin mælist ca 55-56-56-57-57-57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn með lykkjuspori svo að það verða 4 umf garðaprjón ofan á öxl. Saumið hliðarsauma kant í kant í ystu lykkjubogana frá handveg og niður, en endið þegar ca 10-12 cm eru eftir í hvorri hlið (= klauf). Leggið inn ermar undir kantinn með garðaprjóni í hvorri hlið og saumið fallega niður með smáu spori (kantur í garðaprjóni í handveg á að liggja utan á ermi). HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 98 til 120 l (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Fellið laust af með sl. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #erendissweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.