Maarit Hirvi wrote:
Hian ohjeessa sanotaan: Päätä lopuksi kummastakin reunasta 2 s, kunnes työn pituus on 56 cm(xl). Päätä lopuksi kummastakin reunasta 1x3 s. Eli kavennanko kerran tuon 2 s kummastakin reunasta vai niin kauan kuin pituus 56 cm? Monta silmukkaa silloin pitäisi olla? Entä lopussa?
06.04.2018 - 20:25DROPS Design answered:
Työstä päätetään kummastakin reunasta 2 silmukka siihen asti, että työn pituus on 56 cm. Silmukoiden määrä tässä kohtaa riippuu neuletiheydestä, eli se voi vaihdella.
18.04.2018 - 17:37Ingvild wrote:
Hei. Ang lengde på bakstykket når man skal felle til armhull, skal man måle på rillekanten eller mønsteret? Jeg strikker str xl som sier det skal være 40 cm, men rillekanten måler 38 cm og mønsteret måler 41....
14.03.2018 - 21:12DROPS Design answered:
Hej Ingvild, du ser at kanten buer ca 2 cm, du skal måle 40 cm på det længste stykke. God fornøjelse!
17.05.2018 - 15:18Mariolina wrote:
Buongiorno! Prima di iniziare il lavoro vorrei chiedervi un suggerimento: se volessi lavorare il golf in tondo, dopo gli spacchi laterali e fino agli scalfi, potrei farlo seguendo comunque la stessa spiegazione, oppure dovrei modificare qualcosa? Oppure è meglio che segua il lavoro così come è descritto, a pezzi separati e poi cuciti alla fine? Grazie mille per la vostra risposta !
15.02.2017 - 13:16DROPS Design answered:
Buongiorno Mariolina. In base alla sua esperienza, potrebbe lavorare il modello in un unico pezzo, senza apportare modifiche alle istruzioni. Inserire dei segnapunti ai lati potrebbe aiutarla. Per un aiuto più personalizzato si può rivolgere al suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!
15.02.2017 - 13:22Lena wrote:
Ich möchte gern diese Jacke stricken. Aufgrund meiner empfindlichen Haut muss ich auf die Wollqualität achten und möchte gern aus reiner Baumwolle stricken. Aus der gleichen Garngruppe spricht mich von den Farben dropslovesyou 6 am meisten an. Jetzt Bin ich unsicher bzgl der Garnmenge und möchte das gerne klären, bevor ich falsch bestelle. In Größe L bräuchte ich 400gramm babyalpaca silk, das wären 1336 m und 1336 m dropslovesyou 6 wären 11,1 bzw entsprechend 12 Knäuel, richtig? Danke!
21.11.2016 - 20:41DROPS Design answered:
Liebe Lena, es scheint richtig zu sein, wie hier beschrieben. Viel Spaß beim stricken!
22.11.2016 - 09:03Alessandra wrote:
Buona sera, Avrei una domanda, verrà pubblicata anche la versione senza bottoni di questo bellissimo maglioncino? E se si, quando? Grazie in anticipo
27.06.2016 - 22:27DROPS Design answered:
Buonasera Alessandra. Sì, verrà pubblicata anche la versione senza bottoni. La data esatta non la sappiamo, ma sarà nelle prossime settimane. Buon lavoro!
27.06.2016 - 23:02Rosanna wrote:
Wunderhübsches Design und sehr feminin.
20.06.2016 - 22:52Shannon Furnish wrote:
Great design. Love the sleeve detail. Beautiful model.
20.06.2016 - 07:08Gemma Gola wrote:
Molto fine è originale il disegno
13.06.2016 - 16:43Karin wrote:
Ein Hingucker!
07.06.2016 - 09:11
Erendis Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 172-12 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 l innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni). ÚTAUKNING-2 (á við um miðju undir ermi): Aukið út um 2 l mitt undir ermi þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l á undan 2 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan 2 kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir 2 kantlykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt (= gat). Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: Stærð S: 7, 14, 21, 28, 35, 42 og 49 cm. Stærð M: 7, 15, 23, 30, 37, 44 og 51 cm. Stærð L: 7, 15, 23, 31, 38, 45 og 52 cm. Stærð XL: 6, 14, 22, 30, 38, 46 og 54 cm. Stærð XXL: 6, 15, 23, 31, 39, 47 og 55 cm. Stærð XXXL: 9, 17, 25, 33, 41, 49 og 57 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna í stykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stutta hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 103-111-121-133-147-163 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 3-7-12-18-19-21 l garðaprjón, prjónið mynstur eftir A.1 yfir næstu 96-96-96-96-108-120 l (= 8-8-8-8-9-10 mynstureiningar 12 l), prjónið fyrstu l í A.1 og endið með 3-7-12-18-19-21 l garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 87-95-105-117-129-143 l á prjóni. Prjónið síðan mynstur eftir A.2 alveg eins með 3-7-12-18-19-21 l garðaprjón í hvorri hlið (A.2 er endurtekið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 2 l fleiri). Aukið svona út með 5-5-5½-6-8-8 cm millibili alls 5-5-5-5-4-4 sinnum = 97-105-115-127-137-151 l. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af fyrstu 3-3-4-6-7-9 l í byrjun 2 næstu umf fyrir handveg. Fellið síðan af fyrir handveg þannig – LESIÐ ÚRTAKA: Stærð S + M: Fellið af 1 l í hvorri hlið í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 2-6 sinnum. Stærð L + XL + XXL + XXXL: Fellið af 1 l í hvorri hlið í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 9-13-13-13 sinnum. Þegar úrtaku fyrir handveg er lokið eru 87-87-89-89-97-107 l eftir á prjóni. Haldið áfram með A.2 eins og áður með 3-3-4-4-3-3 l garðaprjón á hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af miðju 33-33-35-35-37-39 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan l fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fækkið um 1 l 2 sinnum = 25-25-25-25-28-32 l eftir á öxl – ATH: Þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við hálsmál þegar l er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir úrtöku við hálsmáli er haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls og 3-3-4-4-3-3 l með garðaprjóni við handveg þar til 2 umf eru eftir þar til stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er laust af með sl frá réttu. Endurtakið á hinni öxlinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 57-61-66-72-78-87 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 0-0-0-0-5-0 l garðaprjón, prjónið mynstur eftir A.1 yfir næstu 48-48-48-48-48-60 l (= 4-4-4-4-4-5 mynstureiningar 12 l), prjónið fyrstu l í A.1 og endið með 3-7-12-18-19-21 l garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 49-53-58-64-70-77 l eftir á prjóni. Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.2 alveg eins (A.2 er endurtekið eins og á bakstykki). Þegar stykkið mælist 12 cm byrjar útaukning í hlið og aukið er út eins og á bakstykki = 54-58-63-69-74-81 l. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af fyrstu 3-3-4-6-7-9 l í byrjun umf frá hlið fyrir handveg. Fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 49-49-50-50-54-59 l. Haldið áfram með A.2 eins og áður með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 3-3-4-4-3-3 l með garðaprjón í hlið. Þegar prjónuð hefur verið 1 umf á eftir síðasta hnappagati í kanti að framan eru settar síðustu 16-16-17-17-17-18 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið l áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsi þannig: Fellið af 2 l 3 sinnum og 1 l 2-2-2-2-3-3 sinnum = 25-25-25-25-28-32 l eftir á öxl – ATH: Þær l sem ekki ganga jafnt upp í mynstri við háls þegar fellt er af eru prjónaðar í sléttprjóni. Á eftir úrtöku fyrir hálsmáli er haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls og 3-3-4-4-3-3 l með garðaprjóni við handveg þar til 2 umf eru eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm – stillið af eftir bakstykki. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er laust af með sl frá réttu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ATH: Fellið ekki af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stutta hringprjóna eftir þörf. Fitjið upp 43-45-47-51-53-55 l á sokkaprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið næstu umf þannig: 15-16-17-19-20-21 l sléttprjón, A.3 (= 13 l), 15-16-17-19-20-21 l sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.4 yfir miðju 3 l til loka (aðrar l halda áfram í sléttprjóni). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-10-9-9-9 cm setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi). Í næstu umf er aukið út um 2 l mitt undir ermi alls 16-19-21-22-24-25 sinnum – LESIÐ ÚTAUKNING-2 þannig: Í stærð S: Í 7. hverri umf, í stærð M: Í 6. hverri umf, í stærð L + XL: Í 5. hverri umf, í stærð XXL: Til skiptis í 4. og 5. hverri umf og í stærð XXXL: Í 4. hverri umf = 75-83-89-95-101-105 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-46-46-45 cm eru felldar af 6 miðju l undir ermi og ermakúpan er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram í sléttprjóni og A.4 yfir miðju 3 l og fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-1-1-1-1-1 sinnum, 2 l 3-3-3-4-4-5 sinnum og 1 l 3-3-3-5-6-6 sinnum í hvorri hlið, fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-55-55-56-56-56 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinnum í hvorri hlið. Fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, ermin mælist ca 55-56-56-57-57-57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn með lykkjuspori þannig að það verða 4 umf garðaprjón ofan á öxl. Saumið hliðarsauma kant í kant í ystu lykkjubogana frá handveg og niður, en endið þegar eftir eru ca 10-12 cm í hvorri hlið (= klauf). Leggið ermar í handveg neðan við kant í garðaprjóni í hvorri hlið og saumið fallega niður með smáu spori (kantur í garðaprjóni í handveg á að liggja utan á ermi). HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 108 til 130 l (meðtaldar l frá þræði að framan) á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf sl frá röngu, 1 umf sl frá réttu og 1 umf sl frá röngu. Fellið laust af með sl frá réttu. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Soprano wrote:
Sehr schön, freue mich aufs nachstricken
23.06.2016 - 15:54