Jana skrifaði:
Guten Tag. Ich bin kurz vor dem Fertigstellen und stricke Diagramm A.3a und A.3b. Die 10. Reihe von oben gezählt zeigt an, dass unter A.3a von rechts gezählt ab der 17. Masche 7 Maschen rechts zu stricken sind. Jedoch in A.3b ab der 40. Masche nur 6 Maschen rechts gestrickt werden sollen. Zudem sind zum Anfang dieser Reihe 2 Maschen rechts zu stricken und im Diagramm A.3b am Ende der Reihe 3 Maschen. Handelt es sich um einen Fehler? Viele Grüße Jana
13.09.2016 - 05:53DROPS Design svaraði:
Liebe Jana, ein neues Diagram wird bald hochgeladen. Vielen Dank für den Nachricht!
17.10.2016 - 14:25
Pashmina skrifaði:
Sikke et smukt sjal. Dejligt mønster i flotte farer
29.07.2016 - 10:31
Kat skrifaði:
Would love to see something like this in crochet :)
22.06.2016 - 16:26Cherie skrifaði:
I love the earth/clay colours and wave effect.. Classy classic piece.
12.06.2016 - 15:47
Blizzard#blizzardscarf |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Puna með öldumynstri og röndum, prjónað ofan frá og niður.
DROPS 173-23 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. RENDUR: RÖND 1: natur RÖND 2: grábrúnn RÖND 3: ljós grár RÖND 4: grár RÖND 5: natur RÖND 6: grábrúnn RÖND 7: ljós grár STUTTAR UMFERÐIR: Prjónaðar eru stuttar umferðir yfir síðustu mynstureininguna + 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á sjali. Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir allar l í 1. mynstureiningu A.1 (= 3 l í 1. umf í mynstri), snúið við, herðið á þræði svo ekki myndist gat og prjónið sléttprjón til baka yfir l í A.1, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Snúið við og prjónið mynstur yfir allar l á prjóni, snúið við, prjónið 2 l garðaprjón, sléttprjón yfir allar l í 1. mynstureiningu A.1, snúið við, herðið á þræði og prjónið til baka. Endurtakið stuttar umf eins og útskýrt er í mynstri = í 6. hverri umf. ATH: Vegna útaukningar í mynstri er prjónað yfir fleiri og fleiri l þegar stuttar umferðir eru prjónaðar. Þegar mynstur A.3a og A.3b hafa verið prjónaðar, prjónið stuttar umferðir yfir báðar mynstureiningarnar + 2 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur þá er fellt af með ½ nr grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Sjalið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Prjónið fyrst eina mynstureiningu í garðaprjóni þar til auknar hafa verið út nægilega margar l til að hægt sé að prjóna mynstur. SJAL: Fitjið upp 7 l með litnum natur á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl = 11 l. UMFERÐ 2: Prjónið sl til baka. ATH: Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónið 2 l sl, setjið 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, setjið 2. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 3. prjónamerki, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki, 2 l sl = 15 l. UMFERÐ 4: Prjónið sl til baka. Haldið nú áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út þannig: Aukið út eftir 1. og 2. prjónamerki og á undan 3. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út í hverri umf frá réttu (þ.e.a.s. í annarri hverri umf) alls 3 sinnum = 27 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l = 28 l. Prjónið 1 umf til baka. Haldið áfram með RENDUR – sjá útskýringu að ofan (þ.e.a.s. haldið áfram með litinn natur = rönd 1) og MYNSTUR þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 (= 3 l í 1. umf í mynstri) 8 sinnum á breidd, 2 kantlykkjur í garðaprjóni, JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. ATH: Endurtakið stuttar umf eins og útskýrt er í mynsturteikningu, þ.e.a.s. í 6. hverri umf. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 236 l í umf. Haldið áfram með A.2 yfir hverja mynstureiningu með A.1. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 380 l í umf. Prjónið nú þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * A.3a (= 23 l), A.3b (= 24 l) *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir (= 8 sinnum), 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.3a og A.3b hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 556 l í umf. Prjónið 2 umf garðaprjón og fellið af – LESIÐ AFFELLING! FORMUN: Leggið stykkið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið vatnið varlega úr sjalinu – ekki vinda. Rúllið síðan sjalið inn í handklæði og pressið til að fá en meira vatn úr – stykkið á nú að vera aðeins rakt. Leggið stykkið á mottu eða á dýnu – dragið varlega út í rétt mál eins og skýrt er fá efst í uppskrift. Látið þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem stykkið er þvegið. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blizzardscarf eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.