DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11616.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 171-7
DROPS Design: Mynstur nr pu-003
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PUNA frá Garnstudio
600-700-750-800-900-1000 g nr 04, grábrúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l x 26 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) nr 540: 2 st í öllum stærðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11616.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning A.1a hefur 12 umf kaðla- og gatamynstur og 10 umf sléttprjón með útaukningu sem er endurtekin á hæðina.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l í hverri br mynstureiningu þannig: Prjónið 3 l sl, aukið út um 1 l með því að taka upp þráðinn á milli 2 l og prjónið snúið brugðið (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) þetta er gert til að koma í veg fyrir göt.
Í næsta skipti sem aukið er út í hverri br mynstureiningu þá er það gert nákvæmlega á undan 3 l sl til að útaukningin sé gerð til skiptis hægra og vinstra megin við hverra brugðna mynstureiningu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í næst síðustu br mynstureiningu í hvorri hlið á stykki í kanti á framstykki þegar kanturinn mælist ca 3 cm. Prjónið br mynstureininguna frá réttu þannig: Prjónið 1 l br, 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring í hring frá miðju að aftan.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 6 l með Puna og skiptið lykkjunum niður á 4 sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtaakið frá *-* umf hringinn = 12 l. Prjónið A.1 (= 2 l) alls 6 sinnum á breiddina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Þegar A.1 (meðtalið A.1a) hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 300 l í umf. Endurtakið mynstrið og útaukningu í A.1a. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 56-60-64-66-68-70 cm að þvermáli (= ca 420-444-468-480-492-504 l í umf). Passið að næsta umf sé 1 umf með uppslætti. Klippið frá. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

Prjónið nú stykkið áfram fram og til baka með byrjun frá réttu þannig: Færið umf til þannig að byrjað er á milli 2 kaðla (= þ.e.a.s. á eftir 1. kaðli og 2 l br), prjónið mynstur, sléttprjón og aukið út eins og áður yfir alls 6 kaðla = 3 einingar í sléttprjóni (= ca 208-220-232-238-244-250 l), snúið við og prjónið til baka þegar prjónað er yfir síðasta kaðalinn (þ.e.a.s. umf byrjar með 1 kaðli og endar á 1 kaðli, það er engin kantlykkja).

Setjið þær l sem eftir eru á þráð (= ca 212-224-236-242-248-254 l = kantur neðan á peysu), það á síðar að prjóna stroff yfir þessar l. Haldið áfram yfir 6 kaðlana og 3 einingarnar í sléttprjóni þannig: Setjið 1 prjónamerki mitt í 2. sléttprjónuðu eininguna (þ.e.a.s. það eru 3 kaðlar hvoru megin við prjónamerki = miðja í umf). Haldið áfram með mynstur og aukið út eins og áður (þ.e.a.s. aukið er út um 6 l í hverri útaukningsumferð).

Þegar stykkið mælist 11-11-12-12-13-13 cm frá prjónamerki, passið að næsta umf sé frá réttu, fellið af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig þannig:

Prjónið eins og áður þar til eftir eru 17-17-18-18-19-19 l á undan prjónamerki (miðja í 2. sléttprjónuðu einingunni), setjið næstu 34-34-36-36-38-38 l (prjónamerkið er staðsett í miðju á þessum l) á þráð fyrir hálsmáli, snúið við og prjónið til baka. Nú eru eftir 10 umf til loka. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og útaukningu. Þegar 10 umf eru prjónaðar mælist stykkið ca 15-15-16-16-17-17 cm frá prjónamerki. Setjið næstu l á þráð.
Prjónið hina öxlina á sama hátt, nema spegilmynd.
Stykkið mælist ca 86-90-96-98-102-104 cm að þvermáli þar sem stykkið er lengst, frá hlið að hlið (= alls 36-36-38-38-40-40 l settar á þráð/felldar af fyrir hálsmáli).

KANTUR:
Prjónið stroff yfir l sem settar eru á þráð neðst niðri á stykki. Setjið l á hringprjóna nr 3,5 (= ca 212-224-236-242-248-254 l). Kanturinn er prjónaður fram og til baka. Prjónið 1 umf br frá röngu og aukið út um ca 91 l (jafnið lykkjufjöldann út þannig að hann verði deilanlegur með 6 l + 3 l) = ca 303-315-327-333-339-345 l. Prjónið stroff (= 3 l sl, 3 l br), með byrjun frá réttu, þar til 3 l eru eftir, endið með 3 l sl.

Þegar stroffið mælist ca 1½ cm er aukið út um 1 l br í hverri br mynstureiningu séð frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING - (= ca 50-52-54-55-56-57 l fleiri) = ca 353-367-381-388-395-402 l. Stoffið er þá prjónað 2 l sl, 4 l br séð frá réttu. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 3½.cm (= ca 50-52-54-55-56-57 l fleiri) = ca 403-419-435-443-451-459 l. Stroffið er þá prjónað 3 l sl, 5 l br séð frá réttu. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 5 cm. Stykkið mælist ca 76-80-85-88-91-93 cm að þvermáli á hæðina.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til eftir eru 22-22-24-24-26-26 umf (= ca 8-8-9-9-10-10 cm) þar sem axlalykkjurnar eru settar á þráð. (Þetta er mikilvægt svo að það verði jafn margar axlalykkjur á fram- og bakstykki = jafn margar útaukningar). Næsta umf frá réttu á stykkinu. Nú er fellt af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.

Prjónið eins og áður þar til 8 l eru eftir á undan prjónamerki (miðja í 2. sléttprjónuðu einingunni), setjið næstu 16 l (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l) á þráð fyrir hálsmáli, snúið við og prjónið til baka. Í næstu umf frá hálsmáli er fækkað um 1 l. Fækkið lykkjum svona í hverri umf frá hálsmáli alls 10-10-11-11-12-12 sinnum (= alls 26-26-27-27-28-28 l settar á þráð/felldar af fyrir hálsmáli). Prjónið síðan yfir axlalykkjurnar jafn langt og á bakstykki. Setjið l á þráð.
Prjónið hina öxlina á sama hátt (= alls 36-36-38-38-40-40 l settar á þráð/felldar af fyrir hálsmáli).

KANTUR:
Prjónið á sama hátt og á bakstykki, nema fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið tölur í kant á bakstykki.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað í hring, byrjið við miðju að aftan. Prjónið upp 119-119-126-126-133-133 l á sokkaprjóna nr 3,5 (meðtaldar l af þráðum). Prjónið stroff (= 4 l br, 3 l sl). Þegar kanturinn í hálsmáli mælist 2 cm er fækkað um 1 l í hverri br einingu með því að prjóna fyrstu 2 l br saman = 102-102-108-108-114-114 l. Stroffið er þá prjónað 3 l br, 3 l sl. Þegar kanturinn í hálsmáli mælist 5 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er EKKI prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = engin l, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = Kaðall: Setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni
symbols = Kaðall: Setjið 3 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af kaðlaprjóni
symbols = hér er A.1 prjónað
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Elfrieda Schouwenburg wrote:

Hoe maak ik het voorpand? Ik snap de eerste paragraaf van de omschrijving niet

08.11.2023 - 22:24

DROPS Design answered:

Het voorpand brei je eerst hetzelfde als het achterpand en als het op 22-22-24-24-26-26 naalden ten opzichte van het achterpand klaar is, volg je de instructies voor het voorpand.

13.11.2023 - 06:28

country flag Elfrieda Schouwenburg wrote:

Ik snap niet hoe ik het voorpand moet maken. In het achterpand wordt gewerkt met centimeters niet met aantallen naalden

08.11.2023 - 21:44

country flag Francine Ouellet wrote:

Bonjour, J’aimerais m’assurer que j’ai bien compris : lorsque je répète À.1a, il y a un endroit où il y a 4 rangs consécutifs sans jeté d’augmentation, soit les 4 rangs du haut du croquis. C’est bien ça? Merci à l’avance

20.03.2022 - 20:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ouellet, pas exactement, lorsque vous répétez A.1a, continuez à augmenter de part et d'autre des torsades, mais continuez vos torsades en hauteur au même rythme qu'avant, autrement dit répétez les torsade ajourées comme avant et croisez les mailles des torsades tous les 6 mailles comme avant, elles ne se feront pas aux mêmes rangs que les augmentations. Bon tricot!

21.03.2022 - 08:50

country flag Yrsa Nielsen wrote:

Jeg er kørte fast i den, jeg er kommet til hvor jeg ca. 468m og 64cm. Nu forstår jeg ikke lige hvad jeg så skal, for at komme videre i den.

19.01.2022 - 16:10

DROPS Design answered:

Hej Yrsa, nu klipper du tråden, sætter et mærke og går ned til næste afsnit. Nu strikker du frem og tilbage over det øverste stykke, du ser på billedet at du starter og slutter imellem de 2 snoninger i hver side. God fornøjelse!

21.01.2022 - 09:07

country flag Natalia wrote:

Hi , please help , What happens to stockinette stitches on the last 2 rows of diagram A 1a? Do I go back to the beginning of A 1a for them ? Thank you .

14.11.2020 - 18:28

DROPS Design answered:

Dear Natalia, when you have worked to the last row in stocking stitch in A.1a, the cable pattern is not down in height, repeat the stocking stitch from the row shown with the frame A.1a and continue the cable pattern in the middle as next row in diagram, and so on, ie the middle repeat will be worked over a different number of rows as the stocking section on each side. Make sure to work the lace cables as before and that there are always the same number of rows between the cables in the middle. Happy knitting!

16.11.2020 - 08:34

country flag Liliana wrote:

Hallo, dar Pulli ist wunderschön und würde den so gerne stricken, habe aber noch nie in Kreis gestrickt und weiß nicht wie ich anfangen soll. Haben Sie vielleicht ein Video wo man sehen kann wie es geht? Ich bedanke mich herzlich für Ihre Antwort.

02.11.2019 - 19:34

DROPS Design answered:

Liebe Liliana! 6 M mit Puna anschlagen und auf 4 Nadeln des Nadelspiels Nr. 4,5 verteilen. Wie folgt in Rd str: * 1 M re, 1 Umschlag *, von *-* bis Rd-Ende wdh = 12 M. A.1 (= 2 M) insgesamt 6 x in der Breite str. Viel Spaß beim stricken!

02.11.2019 - 21:56

country flag Annette Kirchner wrote:

Guten Tag. Ich habe noch eine Frage. Wie soll ich den Zopf machen, wenn ich aus der Vorreihe noch einen Umschlag auf der Nadel habe ? A1 Rd. 19. Vielen Dank und schöne Grüße.

04.06.2017 - 10:54

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kirchner, der Umschlag wird dann mit dem Zopf rechts verschränkt gestrickt (= kein Loch muss entstehen), zB: 3 M auf die Zopfnadel hinter die Arb legen (= der Umschlag verschränkt stricken + 2 M). Viel Spaß beim stricken!

06.06.2017 - 08:52

country flag Annette Kirchner wrote:

Guten Tag, sind bei A1/a die Zwischenrunden mit eingezeichnet, oder muss ich die zusätzlich machen ?

26.05.2017 - 18:41

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kirchner, alle Runden sind im Diagram eingezeichnet, 1 Kästchen im Diagram = 1 M x 1 Runde. Viel Spaß beim stricken!

29.05.2017 - 08:45

Nina wrote:

Dear Garnstudio team, have a question about section A1a (diagram A.1a has 12 rows cable and lace pattern and 10 rows stocking st with inc that are repeated vertically).Which method do you use when knitting 11,12th cable/lace pattern (as I understand right, you don't knit stocking stitch these 2 rounds)? Thank you for you answer and worm regards up to Norway;), Nina

14.09.2016 - 10:18

DROPS Design answered:

Dear Nina, when working A.1, repeat cable every 6th round (= cross sts every 6th round, ie after 5 rounds stocking st) and repeat lace pattern every 4th round (= lace pattern is 4 rounds). Happy knitting!

14.09.2016 - 12:28

country flag Rosy wrote:

Modèle très original, il me tarde de pouvoir le tricoter !

18.06.2016 - 18:01