Lia Tesselaar skrifaði:
Ik wil graag weten hoeveel bollen ik nodig hebt voor een hes met kabels
22.01.2025 - 17:36DROPS Design svaraði:
Dag Lia,
Bovenaan bij de materialenlijst staat per maat aangegeven hoeveel gram je nodig hebt. (Het eerste getal geldt voor maat S, het tweede getal voor maat M, enzovoort). 1 bol weegt meestal 50 gram, maar let erop dat dit per garensoort verschillend kan zijn. Dus als er bijvoorbeeld 400 gram staat dan zou je 8 bollen nodig hebben als 1 bol 50 gram weegt.
22.01.2025 - 21:31
Mary skrifaði:
Where are charts A.1 and A.2?
18.03.2023 - 16:01DROPS Design svaraði:
Dear Mary, charts A.1 and A.2 are both together, between charts A.3 and A.4. A.1 corresponds to the first 4 rows of the chart and A.2 to the last 2 rows. Happy knitting!
19.03.2023 - 18:20
Mary skrifaði:
Where are charts A1 and A2?
18.03.2023 - 15:53DROPS Design svaraði:
Dear Mary, charts A.1 and A.2 are both together, between charts A.3 and A.4. A.1 corresponds to the first 4 rows of the chart and A.2 to the last 2 rows. Happy knitting!
19.03.2023 - 18:20
Janny Verwoert skrifaði:
Kun je een trui van het patroon ook met gewone breinaalden breien. bij al de patronen staat een rondbreinaald.
17.12.2017 - 14:58DROPS Design svaraði:
Hallo Janny, Een aantal patronen zijn niet geschikt om op rechte naalden te breien, zoals truien met Scandinavische patronen in de pas, omdat deze patronen helemaal in de rondte doorlopen in de pas. (Vaak patronen met een PAS dus) Maar heel veel patronen zijn ook wel geschikt, zoals deze met mouwen die je apart breit en er later in naait. In deze instructie vind je informatie over hoe je een patroon aan kunt passen, zodat je het kunt breien met rechte naalden. Veel breiplezier!
17.12.2017 - 20:28
Charlotte skrifaði:
Kunne man bruge noget andet garn til denne trøje, måske to tråde, måske noget lidt langhåret, det må bare ikke kradse
31.10.2016 - 00:19DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte. Du kan erstatte med 3 traade Kid-Silk - se garnkortet her. Eller laes her hvordan du erstatter med et andet garn og beregner hvor meget du skal bruge
01.11.2016 - 10:21
Anne Maach Schrøder skrifaði:
Melody er et dejligt garn - og jeg kan godt lide de flotte snoninger på forstykket!
07.06.2016 - 15:37
Zwaan skrifaði:
Heel mooi
03.06.2016 - 16:52
Diamond Bliss#diamondblisssweater |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody með köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 173-17 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 l innan við 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hans sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stutta hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 86-96-96-106-116-126 l á hringprjóna nr 7 með Melody. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-6-7 sinnum, 2 l sl, prjónið stroff eftir mynstri A.1 (= 46 l), * 2 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-6-7 sinnum og endið með 2 l sl og 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-8-8 cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sl yfir næstu 17-22-22-27-32-37 l JAFNFRAMT er fækkað um 5-7-5-6-7-9 l jafnt yfir þessar l, prjónið og fækkið l eftir mynstri A.2 (= 46 l sem fækkar til 38 l), prjónið sl yfir næstu 17-22-22-27-32-37 l JAFNFRAMT er fækkað um 5-7-5-6-7-9 l jafnt yfir þessar l og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni = 68-74-78-86-94-100 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 12-15-17-21-25-28 l sléttprjón og prjónið og aukið út eftir mynstri A.3 (= 38 l sem verða 46 l), 12-15-17-21-25-28 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni = 76-82-86-94-102-108 l. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br, en l í A.2 eru prjónaðar eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 12-15-17-21-25-28 l sléttprjóni, A.4 (= 46 l), 12-15-17-21-25-28 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-10-10-11-11-11 cm fækkið um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona með 6-6-6-5-5-5 cm millibili alls 7-7-7-8-8-8 sinnum í hvorri hlið = 62-68-72-78-86-92 l. Þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm fellið af fyrir handveg í byrjun í hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 1-1-1-1-2-2 sinnum og 1 l 1-3-1-4-2-4 sinnum = 56-58-60-60-62-64 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til 1 umf er eftir þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm. Í næstu umf eru l prjónaðar í hverjum kaðli í A.4 slétt saman 2 og 2 (frá réttu = 12 l færri) = 44-46-48-48-50-52 l eftir á prjóni. Fellið síðan af miðju 18-18-18-18-20-20 l af fyrir háls og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af 1 l í næstu umf frá hálsi = 12-13-14-14-14-15 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón þar til stykkið mælist 80-82-84-86-88-90 cm og fellið af (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Endurtakið á hinni öxlinni. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki. Fellið af fyrir handveg eins og á bakstykki og prjónið síðan þar til 1 umf er eftir þar til stykkið mælist 74-76-77-79-80-82 cm. Í næstu umf eru l prjónaðar í hverjum kaðli í A.4 slétt saman 2 og 2 (frá réttu = 12 l færri) = 44-46-48-48-50-52 l eftir á prjóni. Prjónið síðan miðju 12-12-12-12-14-14 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsi þannig: Fellið af 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 12-13-14-14-14-15 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón þar til stykkið mælist 80-82-84-86-88-90 cm og fellið af (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Endurtakið á hinni öxlinni. ERMI: Fitjið upp 35-35-35-35-40-40 l á sokkaprjóna nr 7 með Melody. Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað stroff hringinn (= 2 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 10-10-10-12-12-12 cm er prjónuð 1 umf slétt þar sem fækkað er um 11-9-7-7-10-8 l jafnt yfir = 24-26-28-28-30-32 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 13 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 9-10-10-12-13-13 sinnum = 42-46-48-52-56-58 l. Þegar stykkið mælist 49-48-47-47-45-44 cm fellið af miðju 6 l mitt undir ermi og ermakúpan er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram í sléttprjóni og fellið af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 1-2-2-2-3-3 sinnum og 1 l 1 sinni, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55-55-55-56-56-56 cm áður en felldar eru af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 56-56-56-57-57-57 cm. Prjónið aðra ermi. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju á fram- og bakstykki. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 52 til 60 l í kringum háls (meðtaldar l á þræði að framan) á stutta hringprjóna nr 7 með Melody. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br áður en fellt er af með sl. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #diamondblisssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.