DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 172-4
DROPS Design: Mynstur nr ml-017
Garnflokkur D eða A + A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MELODY frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 g nr 03, perlugrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 12 l x 14 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 7 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 13 l x 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 l innan við 3 kantlykkjur í garðarpjóni.
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á eftir 3 kantlykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið l á undan 3 kantlykkjum þannig: Byrjið 2 l á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum.
Ermarr eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stutta hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 86-96-96-106-116-126 l á hringprjóna nr 7 með Melody. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-6-7 sinnum, 2 l sl, prjónið stroff eftir mynstri A.1 (= 46 l), * 2 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-6-7 sinnum og endið með 2 l sl og 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff.
Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-8-8 cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sl yfir næstu 17-22-22-27-32-37 l JAFNFRAMT er fækkað um 5-7-5-6-7-9 l jafnt yfir þessar l, prjónið og fækkið l eftir mynstri A.2 (= 46 l sem fækkar til 38 l), prjónið sl yfir næstu 17-22-22-27-32-37 l JAFNFRAMT er fækkað um 5-7-5-6-7-9 l jafnt yfir þessar l og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni = 68-74-78-86-94-100 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br, en l í A.2 eru prjónaðar eins og útskýrt er í mynstri A.2.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 12-15-17-21-25-28 l sléttprjón, prjónið og aukið út eftir mynstri A.3 (= 38 l sem eru auknar út til 46 l), 12-15-17-21-25-28 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni = 76-82-86-94-102-108 l. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br, en l í A.3 eru prjónaðar eins og útskýrt er í mynstri A.3.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 12-15-17-21-25-28 l sléttprjóni, A.4 (= 46 l), 12-15-17-21-25-28 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-10-10-11-11-11 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona með 6-6-6-5-5-5 cm millibili alls 7-7-7-8-8-8 sinnum í hvorri hlið = 62-68-72-78-86-92 l. Þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 1-1-1-1-2-2 sinnum og 1 l 1-3-1-4-2-4 sinnum = 56-58-60-60-62-64 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til 1 umf er eftir þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm. Í næstu umf eru prjónaðar l í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2 (frá réttu = 12 l færri) = 44-46-48-48-50-52 l eftir á prjóni. Fellið síðan af miðju 12-12-14-14-16-16 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af 1 l í næstu umf frá hálsi = 15-16-16-16-16-17 l eftir á öxl. Prjónið síða með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón þar til stykkið mælist 80-82-84-86-88-90 cm og fellið af (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). Endurtakið á hinni öxlinni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 72-77-77-82-87-92 l á hringprjóna nr 7 og prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið stroff eftir mynstri A.5 (= 32 l), * 2 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir í umf og endið með 2 l sl og 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-8-8 cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið og fækkið l eftir mynstri A.6 (= 32 l sem fækka til 30 l), prjónið br yfir næstu 20 l og fækkið JAFNFRAMT um 3 l jafnt yfir þessar l, prjónið sl yfir næstu 17-22-22-27-32-37 l og fækkið JAFNFRAMT um 5-7-5-6-7-9 l jafnt yfir þessar l og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni = 62-65-67-71-75-78 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið til baka frá röngu með garðaprjóni yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br, en l í A.6 eru prjónaðar eins og útskýrt er í mynstri A.6.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: prjónið A.7 (= 30 l), 17 l br, 12-15-17-21-25-28 l sl og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 10-10-10-11-11-11 cm byrjar úrtaka í hlið og fækkið l eins og á bakstykki = 55-58-60-63-67-70 l. Þegar stykkið mælist 60-61-62-63-64-65 cm byrjar affelling fyrir handveg og fellt er af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 52-53-54-54-55-56 l eftir á prjóni. Haldið áfram með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg þar til stykkið mælist 74-76-77-79-80-82 cm. Fellið nú af síðustu 32-32-33-33-34-34 l í byrjun umf frá miðju að framan fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá miðju að framan þannig: Fellið af 2 l 1 sinni og 1 l 3 sinnum = 15-16-16-16-16-17 l eftir á prjóni. Prjónið síðan með sl yfir sl og br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón þar til stykkið mælist 80-82-84-86-88-90 cm og fellið af (passið að affellingarkanturinn verði ekki of stífur).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og á hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. í byrjun á stykki er prjónuð 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 7-8-8-9-10-11 sinnum, prjónið 2 l sl og endið með stroff á eftir mynstri A.8 (= 32 l). Þegar stykkið mælist 6-6-6-8-8-8 cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sl yfir næstu 17-22-22-27-32-37 l og fækkið l JAFNFRAMT 5-7-5-6-7-9 l jafnt yfir þessar l, prjónið br yfir næstu 20 l og fækkið JAFNFRAMT 3 l jafnt yfir þessar l og prjónið og fækkið l eftir mynstri A.9 (= 32 l sem fækka til 30 l) = 62-65-67-71-75-78 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið til baka frá röngu með sl yfir sl, br yfir br og garðaprjón yfir garðaprjón, en l í A.9 eru prjónaðar eins og útskýrt er í mynstri A.9.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 12-15-17-21-25-28 l sl, 17 l br og A.10 yfir síðustu 30 l.
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stutta hringprjóna eftir þörf.
Fitjið upp 35-35-35-35-40-40 l á sokkaprjóna nr 7 með Melody. Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað stroff hringinn (= 2 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 10-10-10-12-12-12 cm prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 11-9-7-7-10-8 l jafnt yfir = 24-26-28-28-30-32 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 13 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3½-3- 2½-2½ cm millibili alls 9-10-10-12-13-13 sinnum = 42-46-48-52-56-58 l. Þegar stykkið mælist 49-48-47-47-45-44 cm fellið af miðju 6 l mitt undir ermi og ermakúpan er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram í sléttprjóni og fækkið lykkjum í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fækkið um 2 l 1-2-2-2-3-3 sinnum og 1 l 1 sinni, síðan er fækkað um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55-55-55-56-56-56 cm áður en fækkað er um 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 56-56-56-57-57-57 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlasauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju.

HETTA:
Prjónið upp frá réttu ca 90 til 100 l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 8. Prjónið 1 umf br frá röngu og aukið er jafnt út til 120-122-124-126-128-130 l – ATH: Þessar 2 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar slétt og ekki er aukið út yfir þessar l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eftir A.7 (= 30 l – haldið áfram með mynstureiningu þar sem endað var eftir affellingu í hálsmáli), prjónið sléttprjón þar til 30 l eru eftir og endið með mynstri eftir A.10 (= 30 l – haldið áfram með mynstureiningu þar sem endað var eftir affellingu). Haldið áfram fram og til baka þar til hettan mælist ca 34-35-36-37-38-39 cm. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar l í köðlum saman tvær og tvær (= 12 l færri á hvorri hlið = 96-98-100-102-104-106 l eftir á prjóni). Í næstu umf eru allar l felldar af (passið að affellingarkanturinn verði ekki of stífur). Leggið hettuna saman tvöfalda og saumið saman með lykkjuspori efst uppi.

SNÚRA:
Klippið 1 þráð Melody ca 1 metra, tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið einn hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna í gegnum kaðalinn yst á hægra framstykki ca 34-36-38-40-42-44 cm frá öxl og niður (eða að óskaðri hæð). Gerið alveg eins með snúruna sem er fest á sama hátt á vinstra framstykki. Peysan er lokuð með því að hnýta saman þessar tvær snúrur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 2 lykkjur í sömu lykkju (= 1 lykkjka fleiri)
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag LELIEVRE Brigitte wrote:

Merci, je n'avais pas vu

22.03.2023 - 11:30

country flag LELIEVRE Brigitte wrote:

Bonjour, Serait-il possible d\'avoir les explications en français ?

21.03.2023 - 17:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lelievre, bien volontiers, cliquez sur le menu déroulant sous la photo et sélectionnez "français" pour basculer les explications en français. Bon tricot!

22.03.2023 - 08:38

country flag Annicka Andréasson wrote:

Om jag väljer 2 trådigt i grupp B ska jag alltså ha 2 nystan? och stickor nr 8?

08.12.2021 - 15:07

DROPS Design answered:

Hej Annicka, Ja du skall ha 2 nystan från garngrupp B och du skall få 12 maskor på 10 cm, testa med sticka 7 eller 8 :)

09.12.2021 - 09:22

country flag Annicka Andréasson wrote:

Hej, vilket annat garn kan jag använda istället för Melody, jag vill inte ha något mohair i garnet.

08.12.2021 - 12:16

DROPS Design answered:

Hej Annicka. Du kan antingen sticka den i 3 trådar av ett garn som tillhör garngrupp A eller 2 trådar av ett garn som tillhör garngrupp B. Se bara till att få den stickfasthet som uppges i mönstret. Mvh DROPS Design

08.12.2021 - 14:18

country flag Grace Williams wrote:

Can i use ordinary needles instead of circular

12.04.2021 - 16:04

DROPS Design answered:

Dear Grace, while it is possible to knit the body of this sweater on straight needles, the number of stitches might make it somewhat uncomfortable. If you are willing to deal with a lot of stitches on a relatively short needle then go ahead. Happy Knitting!

12.04.2021 - 16:14

country flag Thea wrote:

Is het niet handiger om eerst de capuchon te maken en dan pas de mouwen erin te naaien? Scheelt nogal wat gewicht met breien

23.01.2021 - 11:52

country flag Maillet wrote:

Bonjour je n arrive pas a comprendre le dessin de la capuche du numéro 172

22.01.2021 - 01:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Maillet, pour la capuche, vous allez relever les mailles tout autour de l'encolure et tricoter (= continuer) les torsades A.7 et A.10 de chaque côté, avec 2 mailles point mousse de chaque côté et les mailles restantes en jersey. À la hauteur requise, vous diminuerez les mailles des torsades (pour conserver la bonne largeur) et rabattrez toutes les mailles. Cette vidéo montre l'assemblage de la capuche. Bon tricot!

22.01.2021 - 08:19

country flag Rosanna wrote:

Vorrei realizzare questo cardigan con il filato drops fabel potete darmi la quantità x una taglia M e per una taglia XL Grazie così poi posso ordinare

18.01.2021 - 11:02

DROPS Design answered:

Buonasera Rosanna, per una taglia M servono circa 1260m di filato Melody, che corrispondono a 18 gomitoli di Fabel lavorato a 3 capi. Per una taglia XL serviranno circa 23 gomitoli. Buon lavoro!

18.01.2021 - 19:10

country flag Hope wrote:

In working the back piece, I find the directions about binding off for the armholes a little unclear. Do we bind off the three stitches on one row, two stitches on the next and one stitch on the next? Or do we bind off the three two and one stitches all on the same row? Is there a specific technique used for binding off more than one stitch at once? Or are these bound off in groups per row and not one group after the other? Help please? I can't wait to wear my new sweater! :)

14.12.2020 - 21:42

DROPS Design answered:

Hi hope, Yes, the bound off stitches are at the beginning of all rows (which means every other row on each side),. So 3 stitches at the beginning of 2 rows (for both armholes, then 2 stitches at the beginning of 2 rows etc. You are binding off not decreasing, so bind off in the same way as binding off at the end of the piece (one stitch after the other). Happy knitting!

15.12.2020 - 07:01

country flag Kathy wrote:

I do not like the tie front closure. Is it possible to knit 4-stitch (?) garter stitch front borders for add buttons and button holes? If not, what do you suggest?

02.05.2020 - 19:59

DROPS Design answered:

Dear Kathy, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, please contact your DROPS store - even per mail or telephone - for any individual assistance. Thanks for your comprehension. Happy knitting!

04.05.2020 - 12:18