SILVIA skrifaði:
Muy lindo modelo, lo estoy tejiendo.
30.01.2016 - 19:45
Schwetta skrifaði:
J'aime beaucoup ce modèle !
02.01.2016 - 23:23
Weimer Sandra skrifaði:
Très beau model simple et pure, pour les femmes rondes cache bien les rondeurs :)) , vivement les explications !!
20.12.2015 - 12:47
Dune Cardigan#dunecardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með öldumynstri og hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 169-17 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. MYNSTUR: Þegar A.1a til A.1c, A.2a til A.2d og A.3a til A.3f er prjónað á hæðina eru prjónað A.1a til A.1f yfir mynstri A.1, A.2a til A.2f yfir mynstri A.2 og A.3a til A.3f yfir mynstur A.3. Þ.e.a.s. í stærð S og XL er einungis notið mynstur A.1a til A.1f. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. ÚTAUKNING-2: Öll útaukning er gerð frá réttu. Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), prjónið þar til 2 l eru eftir á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= alls 4 l fleiri í umf). Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt. ÚRTAKA: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 34, 43 og 52 cm STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 35, 44 og 53 cm STÆRÐ XL: 2, 9, 16, 24, 32, 40, 48 og 56 cm STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 34, 43, 52 og 61 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 136-140-148-148-158-166 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN- sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 0-6-16-24-24-34 l jafnt yfir í síðustu umf frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 136-146-164-172-182-200 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2 (= 5 l) yfir næstu 0-5-5-0-5-5 l (= alls 0-1-1-0-1-1 sinnum), endurtakið A.1 (= 9 l) yfir næstu 126-126-144-162-162-180 l (= 14-14-16-18-18-20 sinnum á breiddina), A.3 (= 4 l) yfir næstu 0-4-4-0-4-4 l (= alls 0-1-1-0-1-1 sinnum), prjónið 0-1-1-0-1-1 l eins og fyrsta l í mynstri A.2, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 332-356-402-424-448-494 l í umf. Prjónið síðan mynstur á hæðina – LESIÐ MYNSTUR þannig: Endurtakið A.1b til A.3b alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, síðan er endurtekið A.1c til A.3c alls 1 sinni, A.1d til A.3d er endurtekið alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, A.1e til A.3e er endurtekið alls 1 sinni, A.1f til A.3f er endurtekið alls 0-0-1-1-1-2 sinnum = 388-416-470-496-524-578 l í umf. Stykkið mælist ca 18-18-20-21-23-24 cm á hæðina. Prjónið síðan næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 51-57-67-71-76-86 l JAFNFRAMT er fækkað um 7-7-10-10-9-12 l jafnt yfir (= vinstra framstykki), setjið næstu 87-89-96-101-104-111 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja, sléttprjón yfir næstu 102-113-133-142-153-173 l JAFNFRAMT er fækkað um 14-13-19-20-19-25 l jafnt yfir (= bakstykki), setjið næstu 87-89-96-101-104-111 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja, sléttprjón yfir næstu 51-58-68-71-77-87 l JAFNFRAMT er fækkað um 7-8-11-10-10-13 l jafnt yfir, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðarpjóni (= hægra framstykki) = 206-230-258-274-298-326 l (= 98-110-124-132-144-158 l á milli prjónamerkja á bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umf í sléttprjóni er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf þar til stykkið mælist 37-39-39-40-40-41 cm frá prjónamerki = ca 322-355-383-402-427-459 l alls (= ca 156-172-186-196-208-224 l á bakstykki), passið að næsta umf sé frá réttu. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, endurtakið A.4 þar til 5 l eru eftir, endið á 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Fellið af. Stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm alls. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 87-89-96-101-104-111 l af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 3 og fitjið að auki upp 10 nýjar l mitt undir ermi = 97-99-106-111-114-121 l í umf. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja. Prjónið sléttprjón og í fyrstu umf er fækkað um 15-13-14-15-14-15 l jafnt yfir = 82-86-92-96-100-106 l. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 1½ cm millibili 10-11-13-12-12-12 sinnum til viðbótar = 60-62-64-70-74-80 l. Þegar stykkið mælist 26-26-25-25-24-23 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið A.2 yfir allar l. Fellið af. Stykkið mælist alls 29-29-28-28-27-26 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dunecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.