DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Brushed Alpaca Silk yarn
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4417.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Weekend Getaway

Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk með laskalínu, klauf í hlið og röndum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

Velja stærð:
DROPS 169-7

#weekendgetawaysweater

DROPS Design: Mynstur nr as-052
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
100-100-125-125-150-150 g nr 01, natur
75-75-75-100-100-100 g nr 15, ljós sægrænn

ATH: Ef flíkin er prjónuð með einum lit þarf 175-175-200-225-225-250 g Brushed Alpaca Silk.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 631.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4417.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
Prjónaðar eru rendur á fram- og bakstykki og ermum þannig:
Prjónið 9-9-10-10-11-11 cm með litnum natur. Prjónið 9-9-10-10-11-11 cm með litnum ljós sægrænn. Prjónið síðan með litnum natur til loka.

LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
ATH: Allir uppslættir eru prjónaðir slétt í næstu umf svo það myndist gat!
Aukið út um 2 l þannig:
Á undan 1. og 3. prjónamerki: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l sl í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl.
Á eftir 2. og 4. prjónamerki: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl í næstu umf.
Aukið síðan út umf 1 l þannig:
Á undan 1. og 3. prjónamerki: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl.
Á eftir 2. og 4. prjónamerki: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn.

LASKALÍNA Á ERMI:
Aukið út um 1 l á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út umf 1 l á undan 2. og 4. prjónamerki: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat!

ÚRTAKA:
Fækkið l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 1 l sl.
Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring í sléttprjóni ofan frá og niðurklauf á fram- og bakstykki. Síðan er stykkinu skipt upp í framstykki og bakstykki og prjónað er fram og til baka til loka. ATH: Byrjun umf = miðja að aftan.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 80-80-85-85-90-90 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum ljós sægrænn. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan 4 umf með stroff (2 l sl, 3 l br). Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið 1 umf sléttprjón þar sem aukið er út um 18-20-21-25-24-30 l jafnt yfir = 98-100-106-110-114-120 l. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið fyrstu 15-16-16-16-17-18 l (= hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki, prjónið næstu 18-18-20-22-22-24 l (= ermi), setjið 2. prjónamerki, prjónið næstu 31-32-33-33-35-36 m (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, prjónið næstu 18-18-20-22-22-24 l (= ermi), setjið 4. prjónamerki, prjónið þær 16-16-17-17-18-18 l sem eftir eru (= hálft bakstykki).
Í næstu umf byrjar útaukning fyrir laskalínu. ATH: Aukið er út mismunandi á ermum og fram- og bakstykki – LESIÐ LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI og LASKALÍNA Á ERMI!
Aukið út þannig:
Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan 1. prjónamerki, prjónið 2 l sl í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 2 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl í næstu l, prjónið þar til 3 l eru eftir á undan 3. prjónamerki, prjónið 2 l sl í næstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að 2 l á undan 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl í næstu l, prjónið þær l sem eftir eru í umf.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf þannig: Á ermum 14-15-16-17-19-20 sinnum til viðbótar (= alls 15-16-17-18-20-21 sinnum), á fram- og bakstykki með 2 l 7-9-11-14-16-20 sinnum til viðbótar (= alls 8-10-12-15-17-21 sinnum) og síðan er aukið út um 1 l á fram- og bakstykki 7-6-5-3-3-0 sinnum. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 250-268-290-314-342-372 l í umf og stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm frá hálsmáli fyrir miðju að framan og niður.

Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 38-42-45-49-54-60 l (= hálft bakstykki) setjið næstu 48-50-54-58-62-66 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l undir ermi, prjónið næstu 77-84-91-99-109-120 l (= framstykki), setjið næstu 48-50-54-58-62-66 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l undir ermi, prjónið þær 39-42-46-50-55-60 l sem eftir eru á prjóni (= hálft bakstykki).
STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 170-184-198-214-234-256 l í umf. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og RENDUR – sjá útskýringu að ofan!
Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm prjónið þá þannig: Prjónið 39-43-46-50-55-61 l sléttprjón, prjónið 6 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 79-86-93-101-111-122 l sléttprjón, prjónið 6 l garðaprjón, prjónið sléttprjón yfir þær 40-43-47-51-56-61 l sem eftir eru. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir þær 6 l í hvorri hlið (= yfir klauf). Nú er stykkinu skipt í framstykki og bakstykki þannig: Prjónið fyrstu 42-46-49-53-58-64 l eins og áður (þ.e.a.s. sléttprjón með 3 l garðaprjón í hlið), snúið við og prjónið til baka yfir 85-92-99-107-117-128 l (þær 3 fyrstu og síðustu l eru prjónaðar í garðaprjóni) = bakstykki. Setjið næstu 85-92-99-107-117-128 l á þráð fyrir framstykki. Haldið áfram fram og til baka yfir l á prjónið þar til stykkið mælist 42-43-44-48-46-47 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5 og aukið er út um 13-16-19-21-21-25 l jafnt yfir (en ekki yfir 3 síðustu l) = 98-108-118-128-138-153 l. Prjónið 1 umf til baka síðan er prjónað stroff (2 l sl, 3 l br) með 3 l garðaprjóni í hvorri hlið. ATH: Byrjið og endið á 2 l sl áður innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið! Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl. Setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið eins og bakstykki.

ERMI:
Ermin er prjónuð í sléttprjóni, í hring á sokkaprjóna. Það eru 48-50-54-58-62-66 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 5 og fitjið upp 8 l undir ermi = 56-58-62-66-70-74 l. Prjónið sléttprjón og rendur eins og á fram- og bakstykki í hring, JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi (þ.e.a.s. 4 nýjar l hvoru megin við prjónamerki).
STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með ca 4-4-3-3-2½-2½ cm millibili 10-10-12-13-14-15 sinnum til viðbótar = 34-36-36-38-40-42 l. Þegar ermin mælist 45-45-45-45-44-44 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og aukið út um 6-4-9-7-5-8 l jafnt yfir í umf = 40-40-45-45-45-50 l. Prjónið stroff (2 l sl, 3 l br) í 6 cm. Þegar ermin mælist 51-51-51-51-50-50 cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 169-7

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Magali Rigaudias skrifaði:

Bonjour, Pourriez-vous me dire combien de mailles et centimetres il y a juste en dessous des manches avant de commencer l'empiècement ? Je fais ce modèle en partant du bas et sur des aiguilles non circulaires. Il semble que ce soit environ 4 cms ... Merci de votre aide

25.03.2016 - 13:30

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Rigaudias, de haut en bas, on monte 8 m sous chacune des manches lorsque l'on met les mailles des manches en attente. Bon tricot!

25.03.2016 - 14:07

country flag Magali Rigaudias skrifaði:

Bonjour, Je viens de faire l'échantillon et pour le même nombre de mailles (17) et de rang (22) l'échantillon ne fait que 8 cms x 8 cms J'ai du mal a commencer le pull car je ne suis pas sure du nombre de mailles que je dois monter pour l'empiècement (je fais une taille M). A ce propos, je ne comprends pas ce qu'est l'empiècement ... est-ce l'encolure ? Merci de votre aide. Magali

20.03.2016 - 13:02

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Rigaudias, il est très important que vous ayez le même nombre de mailles et de rangs que celui indiqué pour que le modèle correspondent aux mesures du schéma - voir ici - L'empiècement est la partie qui commence par l'encolure jusqu'aux emmanchures (tricoté ici de haut en bas). Bon tricot!

21.03.2016 - 10:02

country flag Ines skrifaði:

Bei der Modellzeichnung beträgt der Ausschnitt zwischen 16-18 cm, beim fotografierten Modell sind es aber mindestens doppelt so viele cm. Bei meiner Strickarbeit ist der Ausschnitt so eng (entspricht etwa 18 cm), dass der Ausschnitt sehr eng und unschön anliegt. Mache ich etwas falsch oder stimmen die Angaben nicht mit dem Bild überein?

10.02.2016 - 17:17

DROPS Design svaraði:

Liebe Ines, haben Sie vielelicht etwas fest angeschlagen? Ich vermute, dass sich der Ausschnitt dehnt und nicht von Anfang an so weit sein darf wie auf dem Bild, damit er nicht über die Schultern rutscht.

08.03.2016 - 14:46

country flag Olga Spies skrifaði:

Danke für die Antwort und Ihren Rat. Ich werde es versuchen.

07.02.2016 - 20:29

country flag Olga Spies skrifaði:

Ich möchte den Pullover von unten nach oben stricken, so ist mir leiber, was muss ich bei Raglan Abnahmen beachten. Danke und liebe grüße.

06.02.2016 - 11:30

DROPS Design svaraði:

Leider können wir Ihnen hier keine detaillierte Anleitung für die "umgedrehte" Strickweise geben. Beachten müssen Sie generell, dass alle Zunahmen zu Abnahmen werden und umgekehrt. Dort, wo M abgekettet werden, werden M angeschlagen und umgekehrt. Vielleicht versuchen Sie sich aber auch einfach mal daran, von oben nach unten zu stricken, das hat auch Vorteile, da Sie den Pullover zwischendurch gut anprobieren können.

06.02.2016 - 14:22

country flag Alexa skrifaði:

Hallo, wieviel cm soll das erste Stück in hell seegrün werden? Finde dazu keine Angabe

05.02.2016 - 08:04

DROPS Design svaraði:

Die Passe wird komplett in hell seegrün gestrickt. Beim Rumpfteil stricken Sie dann in Streifen wie beschrieben, d.h. hier wechseln Sie dann zu natur.

06.02.2016 - 14:27

country flag Becca skrifaði:

Hi Are you able to provide UK size equivalents? E.g medium = 12? Thanks!

02.02.2016 - 16:34

DROPS Design svaraði:

Dear Becca, you will find at the bottom of the pattern a measurement chart with measurements for each size taken flat from side to side - compare these to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size - read more about sizing here. Happy knitting!

03.02.2016 - 10:13