DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5280.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Light's Embrace

Heklað poncho úr DROPS Paris með gatamynstri, heklað ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 169-4
DROPS Design: Mynstur nr w-614
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
750-850-900 g nr 16, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st x 9 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5280.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning A.1a og A.1b sýnir hvernig umf byrjar og endar.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umf með st byrjar á 3 ll (þessar ll koma ekki í stað fyrsta st). Í lok umf er hekluð 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
ATH: Þegar A.5 er heklað byrjar umf með 3 ll. Í lok umf er heklaður 1 st í fyrstu l sem hekluð var í umf (þ.e.a.s. l með 3 ll í), síðan 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

HEKLIÐ 2 TBST SAMAN:
Heklið 1 tbst um ll-bogann að neðan, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), hoppið yfir 1 fl og heklið 1 tbst um næsta ll-boga, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni.

HEKLIÐ 3 TBST SAMAN:
Heklið 1 tbst, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið 1 tbst til viðbótar, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 l á heklunálinni), heklið 1 tbst til viðbótar, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni.

NETAMYNSTUR:
UMFERÐ 1: * Byrjið á umf 1 í A.5 og heklið 4 st í fyrsta/næsta st með prjónamerki í, heklið (1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st) þar til 1 st er eftir innan næsta merkis, 1 ll, hoppið yfir næsta st *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar. Nú eru 4 mynstureiningar á A.5 í hverri umf.
UMFERÐ 2: * Heklið A.5 umf fyrsta/næsta ll-boga með prjónamerki í, heklið síðan 1 st í næsta st, 1 ll, 1 st um fyrsta ll-boga, (1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st um næsta ll-boga) þar til eftir er 1 ll-bogi innan næstu mynstureiningu A.5, heklið 1 ll, 1 st um síðasta ll-boga innan A.5, 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar.
UMFERÐ 3: * Heklið A.5 um fyrsta/næsta ll-boga með prjónamerki í, heklið síðan (1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st um næsta ll-boga) fram að næstu mynstureiningu A.5, 1 ll *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. Fyrst er aukið út fyrir miðju að framan, fyrir miðju að aftan og á hvorri öxl, síðan er einungis aukið út fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan.

PONCHO:
Heklið 153-163-163 ll með heklunál nr 4,5 með Paris og tengið saman í hring með 1 kl.
Heklið 3 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan 1 st í hverja og eina af næstu 3-1-1 l, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja og eina af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* 24-26-26 sinnum til viðbótar í umf = 128-136-136 st + 3 ll í umf. Setjið nú 4 prjónamerki frá byrjun umf án þess að hekla þannig: Setjið 1 prjónamerki í 1. st í umf (= miðja að aftan), hoppið yfir 31-33-33 st, setjið 1 prjónamerki í næsta st (= öxl), hoppið yfir 31-33-33 st, setjið 1 prjónamerki í næsta st (= miðja að framan), hoppið yfir 31-33-33 st, setjið 1 prjónamerki í næsta st (= öxl), nú eru 31-33-33 st á milli síðasta prjónamerkis og byrjun umf.
Heklið nú NETAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar umf 1-3 hefur verið heklað til loka er umf 2 og 3 endurteknar þar til heklaðar hafa verið alls 6-7-8 umf með netamynstri – sjá mynsturteikningu A.4a og A.4b til að sjá hvernig öll útaukningi hvoru megin við A.5 er hekluð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Stykkið mælist ca 8-9-10 cm.

Heklið næstu umf þannig JAFNFRAMT er fækkað um 0-8-8 st jafnt yfir (= 0-4-4 st færri í hvorri hlið við miðju að aftan og fyrir miðju að framan): * Heklið (2 st, 3 ll, 2 st) um ll-bogann (= miðja að aftan 1. endurtekning og fyrir miðju að framan 2. endurtekning), eftir það er heklaður 1 st í hvern st og 1 st um hverja ll til næsta útauknings-stuðlahóp, heklið 3 st um ll-bogann (= öxl), heklið 1 st í hvern st og 1 st um hverja ll að útaukna-stuðlahópnum (= miðja að framan 1. endurtekning og miðja að aftan 2. endurtekning) *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar.

Nú eru 117-125-133 st á milli ll-boga fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan (= 234-250-266 st alls í umf + 2 ll-bogar). Klippið frá. ATH: Ekki er aukið út á hvorri öxl, heldur einungis fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan á poncho!

Heklið 1 kl í 10. st frá ll-boga frá miðju að aftan og heklið mynstur þannig: Heklið A.1a (sýnir hvernig umf byrjar og endar, kemur ekki í stað fyrstu l), A.2a (= 8 st) 13-14-15 sinnum á breiddina, A.3a (= útaukning fyrir miðju að framan), haldið síðan áfram með A.2a 14-15-16 sinnum á breiddina, A.3a (= útaukning fyrir miðju að aftan) og A.2a 1 sinni í öllum stærður. Í umf 4 í A.3a eru 133-141-149 st á milli ll-boga fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður (nú er pláss fyrir 16-17-18 mynstureiningar A.2a hvoru megin við A.3a). Í umf 10 er aukið út um 8 st jafnt yfir hvoru megin við A.3a (= 16 st alls í umf) = 163-171-179 st hvoru megin við ll-boga fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður, en nú er heklað A.1b yfir A.1a, A.2b yfir A.2a og A.3b yfir A.3a (nú er pláss fyrir 19-20-21 mynstureiningar A.2 hvoru megin við A.3).
Í umf 4 er aukið út um 3 st jafnt yfir á milli hverra mynstureininga A.3 (þ.e.a.s. 6 st alls í umf) = 169-177-185 st á milli hverra ll-boga fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan. Haldið áfram með mynstur (nú er pláss fyrir 21-22-23 mynstureiningar A.2 hvoru megin við A.3). Þegar allt mynstrið hefur verið heklað á hæðina mælist stykkið 36-37-38 cm. Klippið frá.

Nú er netamynstrið heklað eins og í byrjun stykkis. Byrjið í ll-boga fyrir miðju að aftan og heklið netmynstur frá umf 3 í netmynstri. Endurtakið umf 2 og 3 þar til heklaðar hafa verið alls 6-8-10 umf (meðtalin síðast umf í A.2 og A.3).
Heklið næst síðustu umf þannig: * Heklið (2 st, 3 ll, 2 st) um ll-bogann (= miðja að aftan), síðan er heklaður 1 st í hvern st og 1 st um hverja ll fram að næstu mynstureiningu A.5 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 193-209-225 st á milli ll-boga fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan. Klippið frá.

Heklið nú mynstur A.1a, A.2a og A.3a þannig:
Heklið 1 kl í 12. St frá ll-boga fyrir miðju að aftan og heklið mynstur þannig: Heklið A.1a (sýnir hvernig umf byrjar og endar, kemur ekki í stað fyrstu l), A.2a þar til 2 st eru eftir á undan ll-boga fyrir miðju að framan, A.3a (= útaukning fyrir miðju að framan), haldið síðan áfram með A.2a þar til 2 st eru eftir á undan ll-boga frá miðju að aftan, A.3a (= útaukning fyrir miðju að aftan) og A.2a 1 sinni í öllum stærðum. Þegar umf 4 hefur verið hekluð til loka á hæðina mælist stykkið 49-52-54 cm. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.03.2016
Mynstur A.2a, breyting í 8. umf. Það eiga að vera fl í l, ekki fl um l
Yfirfarið á vefsvæði: 28.10.2016
Leiðrétting: Nýtt mynstur A.4a, A.4b og A.5. Uppskriftin hefur líka verið leiðrétt í samræmi við þetta.

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 fl um l
symbols = 1 fl í l
symbols = 1 fl um ll-boga, 3 ll
symbols = 1 st í l
symbols = 1 st um ll/ll-boga
symbols = 1 tbst um l
symbols = Heklið 2 þbst saman í 1: Heklið 1 þbst, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni). Heklið 1 þbst til viðbótar í sömu l, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er bandið dregið í gegnum allar 3 l á heklunálinni
symbols = HEKLIÐ 3 TBST SAMAN - sjá skýringu í uppskrift
symbols = HEKLIÐ 2 TBST SAMAN - sjá skýringu í uppskrift
symbols = Heklið picot þannig: Heklið 2 ll, 1 hst í síðasta st sem heklaður var
symbols = heklið í þessa l
symbols = umf byrjar á 4 ll og endar á 1 kl í 4. ll í byrjun umf
symbols = umf byrjar á 2 ll og endar á 1 kl í 2. ll í byrjun umf
symbols = umf byrjar á 6 ll og endar á 1 kl í 6. ll í byrjun umf
symbols = þessi umf er útskýrð í uppskrift
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (224)

country flag Jami R Dion wrote:

Im an experienced crocheter. I really want to make this pattern. The A5(?) Do i do 4dc in 1 stitch?? Pattern is showing chains in between but not written that way. What does first/next mean? Can't get past 2nd row!!!

22.02.2024 - 16:42

DROPS Design answered:

Dear Mrs Dion, correct, on first row you will crochet in the same stitch on previous round: 2 dc, 3 chains, 2 dc; in the written pattern when it's written: first/next, this means the first time you work from *-* you work in the first stitch but then to the end of the round you will work in the next stitch. Happy crocheting!

23.02.2024 - 08:01

country flag Gaspart Karine wrote:

Bonjour je suis en train de réaliser ce modèle et je ne comprends pas comment faire une augmentation . comment faire l'augmentation A3a le petit rond entre les deux brides. la légende du petit rond est un picot. pouvez vous m'aider à comprendre comment faire. je dois surement me trompée. J'ai plus l'habitude de faire une bride supplémentaire pour faire une augmentation et non un picot. pouvez vous m'aider s'il vous plait cordialement. karine

24.01.2024 - 10:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gaspart, lorsque vous devez augmenter à intervalles réguliers, crochetez simplement 2 brides dans la même maille pour 1 augmentation. Le picot de A.2/A.3 se crochète ainsi entre 2 brides: 1 bride dans la maille indiquée, puis 2 ml, 1 demi-bride dans la bride, et terminez par 1 bride dans la même maille que la bride précédente. Ce picot n'est pas une augmentation, au tour suivant, vous crochetez des mailles en l'air au-dessus des 3 brides avec le picot ainsi: 1 ms dans la maille en l'air avant ce groupe de 3 brides avec picot, les mailles en l'air et 1 ms dans la maille en l'air après ce groupe. Bon crochet!

25.01.2024 - 08:04

country flag Bettina wrote:

Hallo und wie muss ich in der 2 Runde A2a mit den picco häckeln . Bei mir sind 4 stb vor der luftmaschenbogen nich zwei

30.03.2023 - 12:10

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, bei der 1. Reihe in A.2a (die mit dem Sternchen zählt nicht als 1.) häkeln Sie so: *1 Stäbchen überspringen, in das nächste Stb häkeln Sie: 2 Stb, 1 Pikot, 1 Stb, dann 1 Luftmasche, 3 Stb übersrpingen, in das nächste Stb häkeln Sie: 2 Stb, 1 Pikot, 1 Stb, dann 1 Luftmasche, 2 Stb überspringen*, und von *bis* wiederholen. Viel Spaß beim häkeln!

11.04.2023 - 09:43

country flag Bettina wrote:

Ich muss aber erst faden wegschneiden nach der Reihe mit dem Stäbchen und luftmaschenreihe

28.03.2023 - 09:55

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, nein, hier brauchen Sie das nicht, Sie häkeln einfach mit A.1b, A.2b und A.3b weiter - genauso wie bei den Diagrammen A.1a, A.2a und A.3a. Viel Spaß beim häkeln!

28.03.2023 - 10:25

country flag Bettina wrote:

Habe auf beiden Seiten 179Stb aber wenn ich A.2b die 10. Runde mache dann wieviel Stb müsste ich haben? Meine Arbeit rollt sich auch wenn ich diese Runde fertig habe also habe ich zu wenig

27.03.2023 - 16:19

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, mit 179 Stäbchen auf beiden Seiten sind es Platz für 21 Rapporter A.2 zwischen beiden A.3. Beachten Sie daß Ihre Luftmaschen genauso breit wie die Stäbchen sind, so verliert man die Breite nicht. Viel Spaß beim häkeln!

28.03.2023 - 09:46

country flag Bettina wrote:

Die erste in A.2b

24.03.2023 - 13:52

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, die Reihe in A.2b mit dem schwarzen Sternchen ist die letzte Reihe von A.2a, dh beginnen Sie mit der nächsten Reihe. Viel Spaß beim häkeln!

24.03.2023 - 14:08

country flag Bettina wrote:

Okay danke aber bei A.2b gehts mit ein Stb um die Luftmasche und das nächste in das Stb. Los ich habe keine luftmasche

24.03.2023 - 13:43

DROPS Design answered:

Bei welcher Reihe meinen Sie das?

24.03.2023 - 13:47

country flag Bettina wrote:

Also ich nehme nur das Diagramm B zum häckeln her?

24.03.2023 - 13:25

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, ja genau, die Diagramme -a sind fertig (es sind 163 M zwischen beiden Luftmaschenbogen) und jetzt werden die Diagramme -b gehäkelt. Viel Spaß beim häkeln!

24.03.2023 - 13:35

country flag Bettina wrote:

Danke für die nette und schnelle Hilfe hab es jetzt. Aber wieder ein Problemchen was bedeutet das den Weiter im Muster wie zuvor häkeln, jedoch nun A.1b über A.1a, A.2b über A.2a und A.3b über A.3a (nun ist Platz für je 19-20-21 Rapporte von A.2 an beiden Seiten von A.3). In der 4. Rd 3 Stb gleichmäßig verteilt an beiden Seiten von A.3 zunehmen (d.h. 6 Stb insgesamt in der Rd) = je 169-177-185 Stb zwischen dem Lm-Bogen an der vorderen Mitte und der hinteren Mitte.

24.03.2023 - 11:36

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, jetzt häkeln Sie wie zuvor mit den Diagrammen -a aber dieses Mal mit den Diagrammen -b: A.1b am Anfang, A.3b in jeder Ecke und A.2b dazwischen. Bei der 4. Reihe nehmen Sie 3 Stb zwischen jedem A.3b zu = 169 Stb zwischen jedem Lm-Bogen. Viel Spaß beim häkeln!

24.03.2023 - 13:21

country flag Bettina wrote:

Und ich bekomme auch keine 163stb zusammen nur 130stb

24.03.2023 - 05:24

DROPS Design answered:

Bei der 4. Reihe hatten Sie 133 Stb und 16 Rapporte von A.2a, 16 x 8 Stb = 128 Stb + 13 Stb am Anfang A.3 + 14 Stb am Ende A.3a = 155 Stb + 8 Stb reglelmäßig verteilt bei der 10. Reihe A2a/A.3a = 163 Stb. Beachten Sie, daß Sie die richtige Maschenanzahl bzw Blumenanzahl in A.2a haben. Viel Spaß beim häkeln!

24.03.2023 - 08:33