Liesl skrifaði:
OK. Da skjønner jeg. :) Men det står at man skal bare minske 6 ganger i den minste str. Takk for hjelpen. :)
14.12.2016 - 17:34DROPS Design svaraði:
Hej Liesl. Der staar 6 ganger til
15.12.2016 - 11:59
Liesl skrifaði:
Holder på å strikke denne og kom til fellingene. Antall masker mellom merkene og antall minskinger stemmer ikke overens med antall masker i runden. Jeg strikker minste størrelsen og måtte bruke antallene til mellomste størrelsen for å få det til å gå opp. 82 masker går ikke opp i 12-13-13-13-13-12 og etterlater ikke 40 masker når man er ferdig med å strikke 2 og 2 sammen.
13.12.2016 - 23:29DROPS Design svaraði:
Hei Liesl. Jeg tror du maa have gjort noget feil. Man har: M (maerke i 1 m) +12+M+13+M+13+M+13+M+13+M+12 = 1+12+1+13+1+13+1+13+1+13+1+12 = 82 m. Du mindsker 1 m efter hvert m (6 per gang) i alt 7 ganger = 42 m i alt = 40 m tilbage
14.12.2016 - 14:12
Liesl skrifaði:
Lurer på hvorfor det står ingenting om dusken i oppskriften? Den vises så godt på bildet, men står ingenting om den i oppskriften.
13.12.2016 - 06:20DROPS Design svaraði:
Hej Liesl. Det har du da ret i - den maa vaere glemt. Jeg skal give det videre og vi skal lave en tilföjelse hurtigst muligt. Tak.
13.12.2016 - 12:00
Vanina skrifaði:
Très chouette et vite fait! petite info: pour tricoter tout l'ensemble (bonnet, moufles et tour de cou), 50 g de beige/cerise/gris violet suffisent (j'ai fait la taille intermédiaire pour le bonnet et les moufles) :-)
16.01.2016 - 15:29
Corinne skrifaði:
Très joli assortiment de couleurs! Très gai pour l'hiver. J'adore.
29.10.2015 - 11:21
Chilly Sunset |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu, hálsskjóli og vettlingum úr DROPS Nepal með grafisku mynstri og stroffprjóni.
DROPS Extra 0-1165 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. RENDUR: Prjónið rendur í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1-2: grár/fjólublár UMFERÐ 3-4: kirsuber UMFERÐ 5-6: beige UMFERÐ 7-8: dökk fjólublár Endurtakið umf 1-8. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) til þess að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið upp 87-90-96 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum dökk fjólublár DROPS Nepal. Prjónið stroff (1 l sl, 2 l br) i 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 5-4-6 l jafnt yfir = 82-86-90 l. Prjónið nú mynstur A.1 yfir allar l í umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið A.1 alls 3 sinnum á hæðina, en í síðasta skipti þegar A.1 er prjónað er endað eftir næst síðustu umf í mynstri. Haldið nú áfram með RENDUR – sjá útskýringu að ofan, til loka, JAFNFRAMT eru sett 6 prjónamerki í stykkið í næstu umf: Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í umf, prjónið næstu 12-14-14 l, * setjið eitt prjónamerki í næstu l, prjónið næstu 13-13-14 l *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, setjið eitt prjónamerki í næstu l. Nú eru 12-14-14 l eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 6-7-8 sinnum til viðbótar = 40-38-36 l. Í næstu umf eru 2 og 2 l prjónaðar slétt saman = 20-19-18 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum allar l í umf, herðið að og festið vel. FRÁGANGUR: Gerið einn dúsk sem er ca 6 cm að þvermáli með Nepal nr 4399 dökk fjólublár og festið efst uppi á húfunni. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 135 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum dökk fjólublár DROPS Nepal. Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 9 l jafnt yfir = 126 l. Nú er haldið áfram í sléttprjóni og prjónað mynstur A.2 yfir allar l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónuð 1 umferð með litnum dökk fjólublár. Þegar stykkið mælist 21 cm er aukið út um 10 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 136 l. Þegar stykkið mælist 22 cm er prjónað A.3 1 sinni á hæðina. Í næstu umf er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 8 l jafnt yfir = 144 l. Prjónið nú stroff (= 1 l sl, 2 l br) í 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist ca 30 cm. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 36-36-39 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum dökk fjólublár DROPS Nepal. Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5, prjónið 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 0-2-1 l jafnt yfir = 36-38-40 l. Prjónið nú mynstur A.1 yfir allar l. Þegar vettlingurinn mælist 8 cm byrjar útaukning fyrir þumal með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við síðustu l í umf – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) til þess að koma í veg fyrir göt – endurtakið útaukningu í annarri hverri umf með 2 l fleiri á milli uppslátta fyrir hvert skipti alls 4-5-6 sinnum (allar útaukningar fyrir þumallykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur). Eftir alla útaukningu eru 9-11-13 þumallykkjur og alls 44-48-52 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist alls 12-13-14 cm eru 9-11-13 þumallykkjur settar á 1 þráð og fitjað er uppá 1 nýrri l yfir lykkjum á þræði = 36-38-40 l. Þegar stykkið mælist 22-23-24 cm – stillið af að síðasta umf er 2., 5., 8. eða 11. umf í A.1, prjónið 1 umf með sama lit og prjónað var með í síðustu umferð, JAFNFRAMT er fækkað um 0-2-4 l jafnt yfir = 36 l í öllum stærðum. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið með 6 l á milli hverra prjónamerkja. Í næstu umf er fækkað um 1 l við hvert prjónamerki með því að prjóna 2 l slétt saman eftir öll prjónamerkin. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4 sinnum = 12 l. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 25-26-27 cm. ÞUMALL: Þumallinn er prjónaður með litnum dökk fjólublár. Setjið 9-11-13 l yfir op fyrir þumal á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið að auki upp 3 l í kant á bakhlið á þumallykkjum = 12-14-16 l. Prjónið sléttprjón hringinn í 6 cm, prjónið síðan allar l slétt saman 2 og 2 = 6-7-8 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og vinstri vettlingur, en aukið út fyrir þumal hvoru megin við fyrstu l í umf. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1165
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.