Belinda skrifaði:
De mouwen van deze trui heb ik langer gemaakt. Ik heb patroon M gebreid en er staat 39 cm voor de mouwen. Met 43 cm is het goed, het had zelfs nog langer gekund. Ik ben zelf 1.70 lang. Verder kan je ook met een bol delight minder. Aan de achterkant komt ene soort streep door het wisselen van de kleuren. Zelf vind ik dit niet zo mooi, maar verder is het een fijne en mooie trui. Mooier dan op de foto vind ik zelf. De kleuren zijn warmer. Het is een herfsttrui, niet zo heel dik.
12.01.2018 - 11:32
Eva skrifaði:
Om man ska minska (insnitt) vid alla 4 markörer, så blir väl minskningen inte bara i sidan utan även mitt fram/bak. Eller har jag missförstått?
04.01.2018 - 15:12DROPS Design svaraði:
Ja, det stämmer att det ska minskas även mitt fram och bak.
05.01.2018 - 14:11
Mara Ferraris skrifaði:
Buonasera, sto terminando lo sprone. Non vedo sulle spiegaziini a che punto ritornare al solo filo grigio per lo scollo del collo. È con il diagramma A1? Grazie
19.09.2017 - 22:38DROPS Design svaraði:
Buonasera Mara. Abbiamo inserito l'indicazione mancante. Lavora con il grigio a partire dal diagramma A.5. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
19.09.2017 - 22:54
Agnete Holmen Bechmann skrifaði:
Hei! Skal kastene i A3 mønsteret mellom bol og ermer strikkes rett slik at det blir hull i overgangene?
11.09.2017 - 09:55DROPS Design svaraði:
Hei Agnete, Nei, de skal strikkes vridd så det ikke blir hull. God fornøyelse
11.09.2017 - 10:26
Jeanne Pedersen skrifaði:
Hej Drops. Er nybegynder og vil gerne starte med den her bluse. Kan jeg godt springe hulmønsteret over og bare lave den i ret og vrang? Ændrer det antal masker, mål osv?
30.01.2017 - 12:10DROPS Design svaraði:
Hej Jeanne. Ja, du kan aendre det, men jeg tror at en rib med 1 r/1 vr vil traekke mere sammen end hulmönstret. Du kan eventuelt strikke en pröve med begge mönstre og se om det passer nogenlunde i bredde og höjde.
30.01.2017 - 15:17
Maucorps Ghislaine skrifaði:
Je desire faire le modèle 165-44 avec des aiguilles du 3 et 3.5en doublant le fil suggéré pouvez m'établir une transformation des directives pour le réaliser?
15.12.2016 - 12:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Maucorps, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chaque modèle à chaque demande individuelle, toutefois, vous trouverez ici tous les modèles de pull avec empiècement arrondi et une tension de 17 m pour 10 cm (équivalent à 2 fils du groupe A) pour vous inspirer. Bon tricot!
15.12.2016 - 13:07
Solveig Holvik skrifaði:
Hei. Jeg sliter litt med å forstå mønsteret til Frosty Morning genser. Jeg er ferdig med å strikke A1 på bolen. Hvor kommer A2 inn? Er det bare på ermene jeg skal strikke A2? Hvordan veksler jeg mellom Alpaca og Delight? Hvilke farge skal strikkes vrangt? På forhånd takk mvh Solveig Holvik
15.03.2016 - 11:05DROPS Design svaraði:
Hej Solveig, Det er lettere at forstå når du strikker det. A2 strikkes på ærmerne. Du strikker ifølge "STRIPER" 2 omg med Alpaca og 2 omg med Delight og det gør du uanset hvilken pind du er på ifølge diagrammet. God fornøjelse!
15.03.2016 - 16:06
Karin skrifaði:
Hallo, ich habe eine Frage zur Passe. Soll A3 bis zum Ende der Passe gestrickt werden, oder nur so lang, bis die Raglanabnahmen beendet sind? Vielen Dank und weiter so.
09.02.2016 - 19:29DROPS Design svaraði:
A.3 wird nur bis zum Ende der Raglanabnahmen gestrickt, dann folgt A.4 über alle M.
15.02.2016 - 10:50
Chantal Garnier skrifaði:
Je ne comprends pas comment faire A3 tous les 2 rangs et les diminutions raglan tous les 4 rangs, c'est à dire, comment les faire ensemble sur un même rang? merci
31.01.2016 - 14:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Garnier, A.3 se tricote à chaque transition entre le dos/le devant et les manches. Tricotez ces mailles tous les tours (1 tour ajouré, 1 tour jersey), en même temps, diminuez 1 m avant et 1 m après A.3 6-9 fois tous les 4 tours (voir "Raglan"). Bon tricot!
01.02.2016 - 10:37
Åsa B skrifaði:
Hej. Stickas denna tröja uppifrån och ner eller nerifrån och upp? Jag har kollat lite snabbt i mönstret men blir inte riktigt klok, det är ganska länge sen jag stickade :) MVH Åsa.
07.01.2016 - 11:38DROPS Design svaraði:
Hej. Den stickas nerifrån och upp. Lycka till!
08.01.2016 - 08:17
Frosty Morning#frostymorningsweater |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð aðsniðin peysa með röndum úr DROPS Delight og DROPS Alpaca með gatamynstri, laskalínu og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 165-44 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. RENDUR: * Prjónið 2 umf með Alpaca, prjónið 2 umf með Delight *, endurtakið frá *-* uppúr. AÐSNIÐ: Fækkið lykkjum við 4 prjónamerkin. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum þegar 2 l eru eftir á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. ÚTAUKNING-1: Aukið út við 4 prjónamerkin (= aðsnið). Aukið út þannig: Sláið uppá prjóninn á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Aukið út mitt undir ermum þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) svo að ekki myndist gat. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 2 l á undan A.3 þannig: 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Byrjun umf = miðja að aftan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 213-231-252-276-300-327 l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið stroff (1 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 3 cm eru prjónaðar 2 umf sléttprjón. Prjónið síðan A.1, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 13-11-12-12-12-11 l jafnt yfir = 200-220-240-264-288-316 l. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3 og prjónað í sléttprjóni og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-10 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir 26-27-29-30-30-31 l. 2. prjónamerki er sett eftir 48-56-62-72-84-96 l, 3. prjónamerki er sett eftir 52-54-58-60-60-62 l, 4. prjónamerki er sett eftir 48-56-62-72-84-96 l, (nú eru 26-27-29-30-30-31 l eftir í umf á eftir síðasta prjónamerki). Í næstu umf er lykkjum fækkað fyrir AÐSNIÐ – sjá útskýringu að ofan (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf, 6-6-6-6-5-5 sinnum til viðbótar = 172-192-212-236-264-292 l. Þegar stykkið mælist 22 cm í öllum stærðum er aukið út á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6.-8.-8. hverri umf, 6-6-6-6-5-5 sinnum til viðbótar = 200-220-240-264-288-316 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-39-39-40-41-43 cm. Stillið nú af að næsta umf sé 2. umf með Delight! Prjónið nú þannig: Prjónið 45-50-55-60-66-73 l (= hálft bakstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg, prjónið 90-100-110-120-132-146 l sléttprjón (= framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg og prjónið síðustu 45-50-55-60-66-73 l (= hálft bakstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 57-57-60-60-63-66 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið stroff þannig: * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til stroffið mælist 3 cm. Prjónið nú áfram 2 umf sléttprjón, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 1-1-2-0-1-2 l jafnt yfir = 56-56-58-60-62-64 l. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= mitt undir ermi). Haldið síðan áfram í sléttprjóni og rendur, JAFNFRAMT í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu í 9.-7.-7.-6.-6.-5. hverri umf alls 12-14-14-16-16-17 sinnum = 80-84-86-92-94-98 l. Þegar stykkið mælist 41-39-39-38-38-38 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – stillið af að næsta umf sé síðasta umf með Delight. Í næstu umf eru felldar af miðju 10-10-10-12-12-12 l undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 70-74-76-80-82-86 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þannig: Haldið áfram með rendur og prjónið l frá fyrri ermi JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi, prjónið l frá framstykki, prjónið l af hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi og prjónið l frá bakstykki = 320-348-372-400-428-464 l og 4 prjónamerki í stykki. Prjónið nú A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri á að passa við l með prjónamerki í) og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 5-6-7-7-8-8 sinnum til viðbótar = 272-292-308-336-356-392 l. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf þar sem fækkað er um 20-26-28-32-36-40 l jafnt yfir = 252-266-280-304-320-352 l. Nú er prjónað og lykkjum fækkað eftir A.4 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Í næst síðustu umf í mynstri er fækkað um 4-6-8-28-30-44 l jafnt yfir = 176-184-192-200-210-220 l. Haldið nú áfram með Alpaca til loka. Prjónið nú A.5 yfir allar l (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið nú A.1 yfir A.5, JAFNFRAMT í 1. umf í mynstri er fækkað um 32-32-32-30-40-40 l jafnt yfir = 144-152-160-170-170-180 l. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónuð upphækkun í hnakka í garðaprjóni þannig: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að framan. Byrjið fyrir miðju að aftan og prjónið sl þar til eftir eru 14-14-16-16-18-20 l á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 14-14-16-16-18-20 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 30-30-34-34-38-42 l á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 30-30-34-34-38-42 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl til baka að byrjun umf. Haldið áfram með 2 umf sléttprjón yfir allar l, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 144-153-159-168-168-177 l. Prjónið nú stroff (1 l sl, 2 l br) í 2 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Peysan mælist ca 56-59-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostymorningsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-44
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.