Mieke Baras skrifaði:
Hallo, ik heb bijna de 2 mouwen gebreid en vroeg me af of ik de pas misschien beter met naalden 4.5 zou breien, om te voorkomen dat de jacquard niet te veel gaat trekken, waardoor de afmetingen niet meer zouden kloppen
01.09.2015 - 10:07DROPS Design svaraði:
Hoi Mieke. Ik zou hier voorzichtig mee zijn. Als je stekenverhouding voor het patroon past (21 st x 28 nld tricotst) dan zou je afmetingen voor de pas ook moeten passen. Brei je met een dikkere naald en heb je dan meer st en nld op de 10x10 cm dan kan het pas later gaan lubberen.
01.09.2015 - 16:36Julie skrifaði:
I love it. Very feminine.
18.06.2015 - 04:54
Marion skrifaði:
Einfach wunderschön und verspielt!
17.06.2015 - 13:55
Sophie DROMARD skrifaði:
J'ai un gros coup de coeur pour ce modèle en jacquart. Vivement les explications!
13.06.2015 - 07:46
Laila Wendt skrifaði:
Bor i USA, kjempeflott å finne oppskrifter på norsk!!!! Alt er utrolig fint.
31.05.2015 - 01:33
Mari-Anne Jakobsson skrifaði:
Väldigt fin och feminin
28.05.2015 - 17:53
Eliane skrifaði:
Feminin pattern!
27.05.2015 - 19:36
Bjørg Norevik skrifaði:
Feminin og flott 😊
27.05.2015 - 17:01
Chantal skrifaði:
Een speels modelletje en heel afwisselend om te breien.
27.05.2015 - 15:48
Loredana skrifaði:
Perfetto mix di lavorazioni,i punti ajour sposano in modo perfetto la lavorazione jacquard...molto bello semplice e raffinato allo stesso tempo.
27.05.2015 - 15:17
Winter Melody#wintermelodysweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 165-17 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LASKALÍNA: Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 210-224-252-266-294-336 l með litnum ljós grár á hringprjóna nr 4. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan A.1 (15-16-18-19-21-24 mynstureiningar á breiddina). Prjónið A.1 1 sinni á hæðina, í síðustu umf í A.1 er lykkjufjöldinn jafnaður út til 180-190-210-230-260-290 l. Prjónið A.2 (= 18-19-21-23-26-29 mynstureiningar á breiddina). Prjónið A.2 1 sinni á hæðina, í síðustu umf er fækkað um 12-10-6-2-8-14 l jafnt yfir = 168-180-204-228-252-276 l. Prjónið A.3 yfir allar l. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, eitt í byrjun umf og eitt eftir 84-90-102-114-126-138 l (= hliðar). Haldið áfram með A.3, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l færri), endurtakið úrtöku í öðrum hverjum cm 4 sinnum til viðbótar = 148-160-184-208-232-256 l. ATH! Vegna úrtöku þá kemur A.3 ekki til með að passa í hliðinni, en passið uppá að götin passi við mynstur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 26 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3-3-3-4-4-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3 = 168-180-204-228-252-276 l. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af fyrstu 4 l í umf, prjónið þar til 4 l eru eftir á undan seinna prjónamerki, fellið af næstu 8 l, prjónið þar til 4 l eru eftir í umf, fellið af þessar 4 l. Nú eru 76-82-94-106-118-130 l á bakstykki/framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-48-48-48-60-60 l á sokkaprjóna með litnum ljós grár. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 8 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Haldið áfram með A.3. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi, útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3. Aukið út með 4-3-2½-2-3-2½ cm millibili 9-12-14-16-12-14 sinnum til viðbótar = 68-74-78-82-86-90 l. Þegar stykkið mælist ca 49-49-48-48-47-47 cm (stillið af að endað sé á sama stað í A.3 eins og á fram- og bakstykki) fellið af miðju 8 l undir ermi fyrir handveg = 60-66-70-74-78-82 l eftir í umf. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 272-296-328-360-392-424 l. Byrjun umf er nú í skiptingu á milli hægri ermi og bakstykkis – klippið frá og byrjið þannig: Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með A.3 eins og áður, í næstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 22-22-22-23-24-25 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf 0-3-5-6-7-8 sinnum – JAFNFRAMT þegar lykkjum hefur verið fækkað fyrir laskalínu 2-2-3-3-4-4 sinnum (nú eru 256-280-304-336-360-392 l í umf) prjónið næstu umf þannig (byrjið á undan laskalínu á milli hægri ermi og bakstykkis): Fækkið lykkjum fyrir laskalínu eins og áður – lykkjur í laskalínu er alltaf prjónaðar með litnum ljós grár, A.4 yfir næstu 66-72-82-94-104-116 l (= bakstykki), fækkið lykkjum fyrir laskalínu, A.4 yfir næstu 50-56-58-62-64-68 l (= vinstri ermi), fækkið lykkjum fyrir laskalínu, A.4 yfir næstu 66-72-82-94-104-116 l (= framstykki), fækkið lykkjum fyrir laskalínu, A.4 yfir síðustu 50-56-58-62-64-68 l (= hægri ermi). ATH! Ör í mynstri sýnir miðju á A.4. Teljið út frá miðju þar sem byrjað var að prjóna mynstur á ermum og bakst/framst svo að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið á hvoru stykki. Haldið áfram með A.4 og laskalínu. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni með litnum ljós grár og laskalínu eins og áður. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu eru 88-88-104-120-136-152 l eftir í umf. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, í fyrstu umf er fækkað um 10-10-16-28-40-52 l jafnt yfir = 78-78-88-92-96-100 l. Fellið af. MYNSTUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintermelodysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.