Bianca Raehse skrifaði:
Einen schönen guten Tag! Ist es richtig, dass die Blende an der Weste immer links gestrickt wird, so dass quasi kraus links dabei rauskommt? Bzw. Letztlich ja kraus rechts, nur um eine Reihe versetzt. Oder muss ich sie in der Rückrunde rechts stricken, so dass die Blende glatt links wird? Freundliche Grüße! Bianca Raehse
26.06.2017 - 18:09DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Raehse, die Blendemaschen sind kraus links gestrickt, dh in jeder R links gestrickt. Die andere Maschen sind kraus rechts gestrickt (= in jeder R rechts gestrickt), so gibt es einen kleinen Unterschied zwischen die Krausrippe der Jacke und die der Blende. Viel Spaß beim stricken!
27.06.2017 - 08:47
Lina Lysvoll skrifaði:
Hei. Jeg trenger hjelp for å få total garn magde og hvor jeg kan bestille garnet på nettet.
11.10.2016 - 22:56
JL skrifaði:
Donc c est du point mousse!Merciiiiii bcp et bne soirée et bnap!!:-*!
17.05.2016 - 19:46
JL skrifaði:
Excusez moi encore jai fais une faute de frappe c est 5 côtes mousse et pas 45 lol!:-*!!!!à bientot!!!
16.05.2016 - 11:11
JL skrifaði:
Bonjour je suis entrain de tricoter le noeud papillon et je me demander se que sa vouler dire exacrement fare 14 m et tricoter 45 côtés mousses est se du pt mousse et faire 4 rgs??c bien sa???excusez moi pour cette question qui peut vous paraître bete!!à bientot et merciii pr votre aide et bn lundi!!:-*! JL!!!
16.05.2016 - 11:07DROPS Design svaraði:
Bonjour JL, 1 côte mousse = 2 rangs endroit, pour le noeud papillon (bande centrale), on tricote 4 côtes mousse, soit 8 rangs endroit. Bon tricot!
17.05.2016 - 11:53
Stine skrifaði:
Hej, Vil jeg kunne lave det her sæt i drops cotton viscose, og kunne det så egne sig til sommerbrug?
29.04.2016 - 13:53DROPS Design svaraði:
Hej Stine Ja du kan strikke det i DROPS Safran ren bomuld eller DROPS Cotton Viscose som jo er blank, men begge tilhører garngruppe A som Baby Merino. God fornøjelse!
02.05.2016 - 09:21
Susanna K Burger skrifaði:
Hello. Do you know the total yardage needed to make both the pants and vest out of the Baby Merino, and the total yardage needed to make both the socks and hat out of the Fabel? Thank you, Susanna
01.03.2016 - 14:10DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Burger, we have only total amount for each piece, you can add both pieces you may probably need a bit less - you will find yardage to each quality under each own shadcard - see Baby Merino and Fabel. Happy knitting!
02.03.2016 - 08:42
Petra skrifaði:
Thanks, that's great and very helpful. Have a nice day
19.01.2016 - 20:11Petra skrifaði:
I'm a beginner, bought baby merino wool and want to make this cap. Could you please tell me what's the best way how to dec sts evenly: "THE SAME TIME dec 8 sts evenly = 88-96-96"? Knit every 11th and 12th together when I have 88 sts? Thanks.
19.01.2016 - 10:04DROPS Design svaraði:
Dear Petra, please click here to learn how to dec sts evenly. Happy knitting!
19.01.2016 - 16:41
Petra skrifaði:
Dobry den, jsem zacatecnik a budu plest cepicku z vasi baby merino - chci se zeptat, co presne znamena: SOUČASNĚ ujmeme rovnoměrně 8 ok = 112 ok. Mam vzdy nejaka oka splest hladce, nebo se k tomuto ujimani pouziva nejaky specialni typ ujimani? Dekuji za odpoved. Petra
01.01.2016 - 09:28DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Petro, máte pravdu, že lze ujímat různými způsoby - u této čepičky stačí splétat 2 oka hladce. Jakmile tedy změníte přízi na červenou a pletete touto barvou 1. kruhovou řadu, ujmete v této kruhové řadě požadovaných 8 ok = podle počátečního počtu ok např. u nejmenší velikosti splétáte každé 11. a 12. oko (96:8=12). Podrobný návod na výpočet najdete také v sekci Tipy a rady - Lekce, viz: Jak rovnoměrně přidávat/ujímat Hodně zdaru! Hana
19.01.2016 - 16:47
Goofy Gavin#goofygavinset |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónað vesti og stuttar buxur fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Prjónuð húfa og sokkar með norrænu mynstri og prjónuð slaufa í garðaprjóni úr DROPS Fabel. Stærð 1 mánaða - 6 ára.
DROPS Children 26-15 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- VESTI: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þar til 4 l eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið uppá prjóninn, prjónið 2 l br saman og prjónið 2 síðustu l br. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 2, 7, 12 og 17 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 2, 7, 12 og 18 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 8, 13 og 19 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 8, 14 og 20 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 9, 16 og 22 cm. STÆRÐ 5/6 ÁRA: 2, 9, 16 og 24 cm. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um handveg og v-hálsmál): Fækkið um 1 l fyrir handveg og v-hálsmáli að innanverður við 4 kantlykkjur með garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 l á undan 4 kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman. LEIÐBEININGAR: Vegna garðaprjóns og þyngdar á garninu þá getur teygst aðeins á stykkinu þegar það er notað. Til þess að handvegurinn verði ekki of langur þá er hægt að hekla kant í kringum handveg í lokin. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í 3 hlutum, neðan frá og upp að klauf, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka frá miðju að framan áður en stykkinu er skipt upp við handveg og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 30-33-35 (38-40-42) l (meðtaldar 4 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Baby Merino. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, en 4 síðustu l við miðju að framan eru prjónaðar br í hverri umf (= kantur að framan). Þegar stykkið mælist 4-4-4 (6-6-6) cm – stillið af að síðasta umf sé frá röngu, geymið stykkið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Að aukið er fellt af fyrir HNAPPAGAT í vinstri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar vinstra framstykki er jafn langt og hægra framstykki – stillið af að síðasta umf sé frá röngu, geymið stykkið. BAKSTYKKI: Fitjið upp 52-58-62 (68-72-76) l á hringprjóna nr 3 með Baby Merino. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til bakstykkið er jafn langt og bæði framstykkin – stillið af að síðasta umf sé frá röngu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið frá réttu og prjónið l frá hægra framstykki (munið eftir kantlykkjum að framan með br í hverri umf til loka), prjónið l af bakstykki og síðan l frá vinstra framstykki (munið eftir að kantlykkjur að framan eru prjónaðar br í hverri umf til loka) = 112-124-132 (144-152-160) l á prjóni. Haldið áfram með garðaprjón fram og til baka og br kantlykkjur að framan í hverri umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í vinstri kant að framan. Þegar stykkið mælist 17-18-19 (20-22-24) cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 27-30-32 (35-37-39) l eins og áður (= hægra framstykki), fellið af 6 l fyrir handvegi, prjónið 46-52-56 (62-66-70) l eins og áður (= bakstykki), fellið af 6 l fyrir handvegi og prjónið 27-30-32 (35-37-39) l sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki). Hvor hluti er nú prjónaður fyrir sig. BAKSTYKKI: = 46-52-56 (62-66-70) l. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka. JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið fyrir handvegi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 4 sinnum = 38-44-48 (54-58-62) l. Haldið áfram í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 23-25-27 (29-32-35) cm fellið af miðju 16-16-18 (20-20-20) l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Prjónið 1 umf til baka frá röngu og endurtakið úrtöku í næstu umf frá hálsmáli = 9-12-13 (15-17-19) l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 25-27-29 (31-34-37) cm. Endurtakið á hinni öxlinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 27-30-32 (35-37-39) l. Haldið áfram fram og til baka eins og áður JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-19-20 (21-23-25) cm fækkið um 1 l fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 14 sinnum í öllum stærðum og síðan í 4. hverri umf alls 0-0-1 (2-2-2) sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 9-12-13 (15-17-19) l eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 25-27-29 (31-34-37) cm og fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 27-30-32 (35-37-39) l. Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd – ATH: Úrtaka við v-hálsmál byrjar ca 1 cm eftir síðasta hnappagat í kanti að framan. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið tölur í (tölur á mynd eru saumaðar með bakhliðina út). VASI: Fitjið upp 14-14-20 (20-24-24) l á prjóna nr 3 með Baby Merino. Prjónið garðaprjón þar til vasinn mælist 7-7-9 (9-12-12) cm, fellið laust af. Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt. Brjótið saman efstu 1-2 cm á hvorum vasanum að réttu og saumið kantinn niður í hvorri hlið á vasanum. Saumið einn vasa á hvort framstykki með lykkjuspori (vasarnir eru staðsettir ca 4-6 cm frá miðju að framan og ca 3-6 cm frá neðri brún). ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- STUTTAR BUXUR: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf: LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- STUTTAR BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring frá miðju og niður. STUTTAR BUXUR: Fitjið upp 104-112-128 (136-144-152) l á hringprjóna nr 2,5 með Baby Merino – byrjun umf = miðja að aftan. Prjónið stroff þannig: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir og endið á 2 l br og 1 l sl. Þegar stroffið mælist 2 cm er prjónuð gataumferð þannig: 1 l sl, * 2 l br saman, sláið uppá prjóninn, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, endið á 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl. Prjónið síðan áfram þar til stroffið mælist 3-3-3 (4-4-4) cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf sl JAFNFRAMT er aukið út um 20-22-16 (18-20-20) l jafnt yfir = 124-134-144 (154-164-172) l. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Nú er prjónað hærra að aftan á buxunum. Prjónið sléttprjón fram og til baka þannig: Byrjið fyrir miðju að aftan og prjónið 6-6-7 (7-8-8) l sl, snúið við (til þess að koma í veg fyrir göt takið 1 l óprjónaða þegar prjónað er til baka og herðið aðeins á þræði). Prjónið 12-12-14 (14-16-16) l br, snúið við. Prjónið 18-18-21 (21-24-24) l sl, snúið við. Prjónið 24-24-28 (28-32-32) l br, snúið við. Haldið svona áfram með því að prjóna 6-6-7 (7-8-8) l fleiri í hvert skipti þegar snúið er við 6 sinnum til viðbótar (= alls 10 stuttar umf). Haldið síðan áfram með sléttprjóni hrininn yfir allar l. ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 10-13-14 (15-16-18) cm frá mitti (mælt frá miðju að framan) setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 62-67-72 (77-82-86) l (merkin fram og aftur á buxum). Aukið síðan út um 1 l hvoru megin við þessi prjónamerki í 3. hverri umf alls 5 sinnum = 144-154-164 (174-184-192) l. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 14-17-18 (19-20-22) cm frá mitti (mælt við miðju að framan). SKÁLM: Byrjið við miðju að aftan, prjónið fyrstu 72-77-82 (87-92-96) l og setjið þær l sem eftir eru á þráð. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið sléttprjón hringinn. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = innan á skálm. Þegar prjónað hefur verið 1 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku í 5.-6.-8. (9.-11.-13.) hverri umf alls 7 sinnum í öllum stærðum = 58-63-68 (73-78-82) l. Þegar skálmin mælist 12-14-17 (20-25-30) cm (úrtöku á að vera lokið), prjónið 1 umf sl og fellið af 8-9-8 (9-8-8) l jafnt yfir = 50-54-60 (64-70-74) l. Klippið frá. KANTUR í GARÐAPRJÓNI: Byrjið frá réttu í hlið á hægri skálm (þ.e.a.s. 25-27-30 (32-35-37) l eftir innan verðri skálm). Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5, prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan og fitjið upp 6 nýjar l í lok fyrstu umf frá röngu = 56-60-66 (70-76-80) l á prjóni. Þegar kantur með garðaprjóni mælist 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati í byrjun umf (séð frá réttu, þ.e.a.s. þar sem fitjaðar voru upp nýjar l) þannig: Prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Þegar kantur með garðaprjóni mælist 2 cm er fellt laust af. Prjónið hina skálmina á sama hátt, nema spegilmynd. Buxurnar mælast ca 28-33-37 (42-48-55) cm frá mitti og niður (mælt fyrir miðju að framan). Saumið 1 tölu í kant í garðaprjóni neðst niðri á hvorri sklálm – talan er staðsett eftir óskaðri vídd á skálm. SNÚRA: Klippið 3 þræði af Baby Merino ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Byrjið fyrir miðju að framan og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð í stroffi í mitti á buxunum. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SOKKAR: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (6-6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (6-6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (5-5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (5-5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10 (12-12-12) l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 40-48-48 (56-56-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum rauður og prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 2-2-2 (3-3-3) cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan). Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-4 (5-6-8) cm fækkið um 2 l fyrir miðju að aftan – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3-2-2 (1½-1½-1½) cm millibili alls 2-4-4 (5-5-5) sinnum = 36-40-40 (46-46-46) l – ATH: Þegar lykkjum er fækkað að aftan þá kemur mynstrið ekki til með að passa við miðju að aftan, en passið uppá að mynstrið passi annars hringinn á sokknum. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 9-10-12 (13-16-19) cm – stillið af eftir heilan mynsturbekk í mynstri. Haldið nú eftir 18-20-20 (22-22-22) l mitt undir á fæti og miðju 18-20-20 (24-24-24) l ofan á fæti eru settar á þráð. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l með litnum rauður í 3-3½-4 (4½-5-5) cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan upp 8-9-10 (12-13-13) l í hvorri hlið við hæl-l og l af þræði ofan á fæti eru settar aftur til baka á prjóninn = 42-48-50 (60-62-62) l á prjóni. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.1 eins og áður – ATH: A.1 er endurtekið á hæðina fram að úrtöku fyrir tá. Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í mynstureiningu mitt undir fæti og á hliðum þar sem lykkjum er fækkað eins og útskýrt er að neðan, en passið uppá að mynstrið passi annars hringinn á sokknum. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 18-20-20 (24-24-24) l ofan á fæti þannig: 2 síðustu l á undan 18-20-20 (24-24-24) l eru prjónaðar slétt saman og 2 fyrstu l á eftir sömu l eru prjónaðar snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 3-5-5 (10-10-10) sinnum = 36-38-40 (40-42-42) l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 8-9-9½ (10½-11-13) cm frá prjónamerki á hæl (nú er eftir ca 2-2-2½ (2½-4-4) cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 18-19-20 (20-21-21) l bæði ofan á fæti og undir fæti. Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið í annarri hverri umf 0-0-0 (0-5-5) sinnum og síðan í hverri umf alls 7-7-8 (8-3-3) sinnum = 8-10-8 (8-10-10) l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (13-15-17) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. HÚFA: Fitjið laust upp 96-104-104 (112-120-120) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 3-4-4(5-5-5) cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið 1 umf sl með litnum rauður, JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 88-96-96 (104-112-112) l. Prjónið síðan eftir mynstri A.2. Í hverri umf með stjörnu er fækkað um 12 l jafnt yfir (fækkið lykkjum alls 5 sinnum). Prjónið þar til A.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina – sjá ör fyrir þína stærð = 28-36-36 (44-52-52) l. Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 = 14-18-18 (22-26-26) l. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. Húfan mælist ca 16-17-18 (19-20-20) cm. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 3 cm að þvermáli með litnum natur. Saumið dúskinn niður efst á toppinn á húfunni. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SLAUFA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf: ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SLAUFA: Fitjið upp 10-12 (14-16) l á prjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka þar til stykkið mælist 7-8 (9-10) cm, fellið af. MIÐJUBAND: Fitjið upp 12-12 (14-14) l á prjóna nr 2,5 og prjónið 8-8 (10-10) umf í garðaprjóni. Fellið af. Saumið saman skammhliðar svo að það myndist hringur. Dragið sjálfa slaufuna í gegnum hringinn og saumið niður bæði stykkin í hvort annað með nokkrum smáum sporum. Festið silkiband eða teygju í gegnum hringinn á bakhlið á slaufu. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goofygavinset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 46 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.