Pinard Catherine skrifaði:
Il y a une erreur dans les explications frančaises sur le diagramme A3 au niveau de la torsade centrale. Voir le commentaire de kaidy. Le resultat n est pas celui de la photo. Pouvez vous verrifier et me tenir au courant ? Cordialement Catherine pinard
26.08.2015 - 21:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pinard, c'est exact, il y a désormais un nouveau diagramme et 2 nouveaux symboles pour la torsade centrale. Bon tricot!
28.08.2015 - 15:19Kaidy skrifaði:
There is mistake in scema A.3. When using : slip 2 sts on cable needle behind piece, K 2, K 2 from cable needle Then cable will not look like in the picture of the sweater. Should maybe be 3 over one or something.
22.08.2015 - 17:37DROPS Design svaraði:
Dear Kaidy, you are correct, there will be soon a correction, thank you in advance for your patience.
28.08.2015 - 15:18
Gemma skrifaði:
Wat is bij de rondbreinaald de terug naald.
15.08.2015 - 15:59DROPS Design svaraði:
Hoi Gemma. Brei je in de rondte, dan komt elke naald op de goede kant. Kijk ook hier hoe je onze telpatronen moet lezen
18.08.2015 - 17:05
Anne Kristine skrifaði:
200 masker i str 3/4 må da være mye? En lignende genser i samme garn (mønster 22-43) har 158 masker i samme str og skal allikevel bli større i cm på vidde etter mønstermål å dømme.
26.07.2015 - 11:04DROPS Design svaraði:
Hej Anne Kristine, Det er vrangborden som er anderledes, du ser at man feller ret mange masker samtidig som man strikker A.2. God fornøjelse!
28.07.2015 - 13:23
Lucky Jack#luckyjacksweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu og köðlum úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð börn 2–10 ára
DROPS Children 26-3 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Lykkjum er fækkað hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l snúnar br saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l) og 2 l br saman (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 184-200-208-216-224 l á hringprjóna nr 3,5 með Merion Extra Fine. Prjónið 1 umf sl. Næsta umf er prjónuð þannig: STÆRÐ 2 + 3/4 + 7/8 ÁRA: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 4-5-6 sinnum, prjónið stroff eftir mynsturteikningu A.1 yfir næstu 58 l (= miðja að framan), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 8-10-12 sinnum, 2 sl, prjónið stroff eftir mynsturteikningu A.1 yfir næstu 58 l (= miðja að aftan), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 4-5-6 sinnum og endið á 1 l sl. STÆRÐ 5/6 + 9/10 ÁRA: 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6 sinnum, 2 l sl, prjónið stroff eftir mynsturteikningu A.1 yfir næstu 58 l (= miðja að framan), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 11-13 sinnum, 2 l sl, prSjónið stroff eftir mynsturteikningu A.1 yfir næstu 58 l (= miðja að aftan), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6 sinnum og endið á 2 l sl og 1 l br. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið þannig í ÖLLUM STÆRÐUM: Prjónið sl yfir fyrstu 17-21-23-25-27 l og fækkið jafnframt um 3-5-5-5-5 l jafnt yfir þessar l, prjónið og fækkið lykkjum eftir mynsturteikningu A.2 yfir næstu 58 l, prjónið sl yfir næstu 34-42-46-50-54 l og fækkið jafnframt um 6-10-10-10-10 l jafnt yfir þessar l, prjónið og fækkið lykkjum eftir mynsturteikningu A.2 yfir næstu 58 l, prjónið sl yfir síðustu 17-21-23-25-27 l og fækkið jafnframt um 3-5-5-5-5 l jafnt yfir þessar l. Eftir A.2 eru 160-168-176-184-192 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð þannig: 14-16-18-20-22 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir A.3 (= 52 l), 28-32-36-40-44 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir A.3 (= 52 l) og endið á 14-16-18-20-22 l sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22-25-28-31-34 cm prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3 l fyrir handveg, prjónið næstu 74-78-82-86-90 l eins og áður (= framstykki), fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið næstu 74-78-82-86-90 l eins og áður (= bakstykki) og fellið af 3 síðustu l fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-36-40-44-44 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6-8-8-8-7 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 2-2-2½-2½-2½ cm millibili alls 10-10-10-11-13 sinnum = 52-56-60-66-70 l. Þegar stykkið mælist 26-29-32-36-39 cm fellið af miðju 6 l mitt undir ermi = 46-50-54-60-64 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi (þetta er gert án þess að prjóna l) = 240-256-272-292-308 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og mynstri eins og áður. JAFNFRAMT í fyrstu umf er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umf alls 14-16-16-17-17 sinnum og síðan í hverri umf alls 3-3-5-7-9 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-35-39-42-46 cm setjið miðju 28-26-26-20-20 l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Prjónið síðan stykkið til loka fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og fellt er af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 1-1-1-2-2 sinnum og 1 l 1-2-2-2-2 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og hálsmál eru 70-70-70-68-68 l eftir á prjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu á hringprjóna nr 3,5 ca 104-104-104-100-100 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan). Prjónið 1 umf br. Síðan er prjónuð 1 umf slétt þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 60-68-76-80-88 l. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 3 cm, fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #luckyjacksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.