DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6886.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Goofy Gavin

Prjónað vesti og stuttar buxur fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Prjónuð húfa og sokkar með norrænu mynstri og prjónuð slaufa í garðaprjóni úr DROPS Fabel. Stærð 1 mánaða - 6 ára.

DROPS Children 26-15
DROPS Design: Mynstur nr bm-004-bn
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

VESTI:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 - 5/6 ára)
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 - 92 - 98/104 - 110/116

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
100-100-150 (150-150-150) gr litur nr 19, grár

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 4 stk í allar stærðir.

STUTTAR BUXUR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 - 5/6 ára)
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 - 92 - 98/104 - 110/116

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
100-150-150-(150-200-200) gr litur nr 19, grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 2,5 – fyrir kant.
DROPS TALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 2 stk í allar stærðir.

SOKKAR:
Stærð: 15/17 - 18/19 - 20/21 (22/23 - 24/25 - 26/28)
Lengd fótar: 10-11-12 (13-15-17) cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50-50-50 (50-50-50) gr litur nr 100, natur
50-50-50 (50-50-50) gr litur nr 106, rauður
50-50-50 (50-50-50) gr litur nr 310, sólsetur
50-50-50 (50-50-50) gr litur nr 602, silfurrefur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með mynsturprjóni verði 10 x 10 cm.

HÚFA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 - 5/6) ára
Höfuðmál:
ca 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52 – 52/53) cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50-50-50 (50-50-50) gr litur nr 100, natur
50-50-50 (50-50-50) gr litur nr 106, rauður
50-50-50 (50-50-50) gr litur nr 310, sólsetur
50-50-50 (50-50-50) gr litur nr 602, silfur refur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff

SLAUFA:
Stærð: 6/12 mán - 12/24 mán (2/4 ára - 6/8 ára).

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50-50 (50-50) gr litur nr 106, rauður (slaufan er ca 2-4 gr).

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 51 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
FYLGIHLUTIR: Silkiband eða teygja til að festa slaufuna með.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6886.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

VESTI:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þar til 4 l eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið uppá prjóninn, prjónið 2 l br saman og prjónið 2 síðustu l br.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 MÁN: 2, 7, 12 og 17 cm.
STÆRÐ 6/9 MÁN: 2, 7, 12 og 18 cm.
STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 8, 13 og 19 cm.
STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 8, 14 og 20 cm.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 9, 16 og 22 cm.
STÆRÐ 5/6 ÁRA: 2, 9, 16 og 24 cm.

ÚRTAKA (á við um handveg og v-hálsmál):
Fækkið um 1 l fyrir handveg og v-hálsmáli að innanverður við 4 kantlykkjur með garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 l á undan 4 kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman.

LEIÐBEININGAR:
Vegna garðaprjóns og þyngdar á garninu þá getur teygst aðeins á stykkinu þegar það er notað. Til þess að handvegurinn verði ekki of langur þá er hægt að hekla kant í kringum handveg í lokin.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í 3 hlutum, neðan frá og upp að klauf, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka frá miðju að framan áður en stykkinu er skipt upp við handveg og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 30-33-35 (38-40-42) l (meðtaldar 4 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Baby Merino. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, en 4 síðustu l við miðju að framan eru prjónaðar br í hverri umf (= kantur að framan). Þegar stykkið mælist 4-4-4 (6-6-6) cm – stillið af að síðasta umf sé frá röngu, geymið stykkið.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd. Að aukið er fellt af fyrir HNAPPAGAT í vinstri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar vinstra framstykki er jafn langt og hægra framstykki – stillið af að síðasta umf sé frá röngu, geymið stykkið.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 52-58-62 (68-72-76) l á hringprjóna nr 3 með Baby Merino. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til bakstykkið er jafn langt og bæði framstykkin – stillið af að síðasta umf sé frá röngu.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Byrjið frá réttu og prjónið l frá hægra framstykki (munið eftir kantlykkjum að framan með br í hverri umf til loka), prjónið l af bakstykki og síðan l frá vinstra framstykki (munið eftir að kantlykkjur að framan eru prjónaðar br í hverri umf til loka) = 112-124-132 (144-152-160) l á prjóni. Haldið áfram með garðaprjón fram og til baka og br kantlykkjur að framan í hverri umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í vinstri kant að framan. Þegar stykkið mælist 17-18-19 (20-22-24) cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 27-30-32 (35-37-39) l eins og áður (= hægra framstykki), fellið af 6 l fyrir handvegi, prjónið 46-52-56 (62-66-70) l eins og áður (= bakstykki), fellið af 6 l fyrir handvegi og prjónið 27-30-32 (35-37-39) l sem eftir eru eins og áður (= vinstra framstykki). Hvor hluti er nú prjónaður fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 46-52-56 (62-66-70) l. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka. JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið fyrir handvegi – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 4 sinnum = 38-44-48 (54-58-62) l. Haldið áfram í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 23-25-27 (29-32-35) cm fellið af miðju 16-16-18 (20-20-20) l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA. Prjónið 1 umf til baka frá röngu og endurtakið úrtöku í næstu umf frá hálsmáli = 9-12-13 (15-17-19) l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 25-27-29 (31-34-37) cm. Endurtakið á hinni öxlinni.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 27-30-32 (35-37-39) l. Haldið áfram fram og til baka eins og áður JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-19-20 (21-23-25) cm fækkið um 1 l fyrir v-hálsmáli við miðju að framan – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 14 sinnum í öllum stærðum og síðan í 4. hverri umf alls 0-0-1 (2-2-2) sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og v-hálsmáli eru 9-12-13 (15-17-19) l eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 25-27-29 (31-34-37) cm og fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 27-30-32 (35-37-39) l. Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd – ATH: Úrtaka við v-hálsmál byrjar ca 1 cm eftir síðasta hnappagat í kanti að framan.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið tölur í (tölur á mynd eru saumaðar með bakhliðina út).

VASI:
Fitjið upp 14-14-20 (20-24-24) l á prjóna nr 3 með Baby Merino. Prjónið garðaprjón þar til vasinn mælist 7-7-9 (9-12-12) cm, fellið laust af.
Prjónið annan vasa til viðbótar á sama hátt. Brjótið saman efstu 1-2 cm á hvorum vasanum að réttu og saumið kantinn niður í hvorri hlið á vasanum. Saumið einn vasa á hvort framstykki með lykkjuspori (vasarnir eru staðsettir ca 4-6 cm frá miðju að framan og ca 3-6 cm frá neðri brún).

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

STUTTAR BUXUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf:

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

STUTTAR BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá miðju og niður.

STUTTAR BUXUR:
Fitjið upp 104-112-128 (136-144-152) l á hringprjóna nr 2,5 með Baby Merino – byrjun umf = miðja að aftan. Prjónið stroff þannig: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir og endið á 2 l br og 1 l sl. Þegar stroffið mælist 2 cm er prjónuð gataumferð þannig: 1 l sl, * 2 l br saman, sláið uppá prjóninn, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, endið á 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl. Prjónið síðan áfram þar til stroffið mælist 3-3-3 (4-4-4) cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf sl JAFNFRAMT er aukið út um 20-22-16 (18-20-20) l jafnt yfir = 124-134-144 (154-164-172) l.
UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Nú er prjónað hærra að aftan á buxunum. Prjónið sléttprjón fram og til baka þannig: Byrjið fyrir miðju að aftan og prjónið 6-6-7 (7-8-8) l sl, snúið við (til þess að koma í veg fyrir göt takið 1 l óprjónaða þegar prjónað er til baka og herðið aðeins á þræði). Prjónið 12-12-14 (14-16-16) l br, snúið við. Prjónið 18-18-21 (21-24-24) l sl, snúið við. Prjónið 24-24-28 (28-32-32) l br, snúið við. Haldið svona áfram með því að prjóna 6-6-7 (7-8-8) l fleiri í hvert skipti þegar snúið er við 6 sinnum til viðbótar (= alls 10 stuttar umf). Haldið síðan áfram með sléttprjóni hrininn yfir allar l.
ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 10-13-14 (15-16-18) cm frá mitti (mælt frá miðju að framan) setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 62-67-72 (77-82-86) l (merkin fram og aftur á buxum). Aukið síðan út um 1 l hvoru megin við þessi prjónamerki í 3. hverri umf alls 5 sinnum = 144-154-164 (174-184-192) l. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 14-17-18 (19-20-22) cm frá mitti (mælt við miðju að framan).

SKÁLM:
Byrjið við miðju að aftan, prjónið fyrstu 72-77-82 (87-92-96) l og setjið þær l sem eftir eru á þráð. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið sléttprjón hringinn. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = innan á skálm. Þegar prjónað hefur verið 1 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku í 5.-6.-8. (9.-11.-13.) hverri umf alls 7 sinnum í öllum stærðum = 58-63-68 (73-78-82) l.
Þegar skálmin mælist 12-14-17 (20-25-30) cm (úrtöku á að vera lokið), prjónið 1 umf sl og fellið af 8-9-8 (9-8-8) l jafnt yfir = 50-54-60 (64-70-74) l. Klippið frá.

KANTUR í GARÐAPRJÓNI:
Byrjið frá réttu í hlið á hægri skálm (þ.e.a.s. 25-27-30 (32-35-37) l eftir innan verðri skálm). Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5, prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan og fitjið upp 6 nýjar l í lok fyrstu umf frá röngu = 56-60-66 (70-76-80) l á prjóni. Þegar kantur með garðaprjóni mælist 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati í byrjun umf (séð frá réttu, þ.e.a.s. þar sem fitjaðar voru upp nýjar l) þannig: Prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Þegar kantur með garðaprjóni mælist 2 cm er fellt laust af.

Prjónið hina skálmina á sama hátt, nema spegilmynd.
Buxurnar mælast ca 28-33-37 (42-48-55) cm frá mitti og niður (mælt fyrir miðju að framan).
Saumið 1 tölu í kant í garðaprjóni neðst niðri á hvorri sklálm – talan er staðsett eftir óskaðri vídd á skálm.

SNÚRA:
Klippið 3 þræði af Baby Merino ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Byrjið fyrir miðju að framan og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð í stroffi í mitti á buxunum.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (6-6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (6-6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (5-5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (5-5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10 (12-12-12) l eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 40-48-48 (56-56-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum rauður og prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 2-2-2 (3-3-3) cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan). Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-3-4 (5-6-8) cm fækkið um 2 l fyrir miðju að aftan – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3-2-2 (1½-1½-1½) cm millibili alls 2-4-4 (5-5-5) sinnum = 36-40-40 (46-46-46) l – ATH: Þegar lykkjum er fækkað að aftan þá kemur mynstrið ekki til með að passa við miðju að aftan, en passið uppá að mynstrið passi annars hringinn á sokknum. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 9-10-12 (13-16-19) cm – stillið af eftir heilan mynsturbekk í mynstri. Haldið nú eftir 18-20-20 (22-22-22) l mitt undir á fæti og miðju 18-20-20 (24-24-24) l ofan á fæti eru settar á þráð. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l með litnum rauður í 3-3½-4 (4½-5-5) cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan upp 8-9-10 (12-13-13) l í hvorri hlið við hæl-l og l af þræði ofan á fæti eru settar aftur til baka á prjóninn = 42-48-50 (60-62-62) l á prjóni. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.1 eins og áður – ATH: A.1 er endurtekið á hæðina fram að úrtöku fyrir tá. Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í mynstureiningu mitt undir fæti og á hliðum þar sem lykkjum er fækkað eins og útskýrt er að neðan, en passið uppá að mynstrið passi annars hringinn á sokknum.
JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 18-20-20 (24-24-24) l ofan á fæti þannig: 2 síðustu l á undan 18-20-20 (24-24-24) l eru prjónaðar slétt saman og 2 fyrstu l á eftir sömu l eru prjónaðar snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 3-5-5 (10-10-10) sinnum = 36-38-40 (40-42-42) l.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 8-9-9½ (10½-11-13) cm frá prjónamerki á hæl (nú er eftir ca 2-2-2½ (2½-4-4) cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 18-19-20 (20-21-21) l bæði ofan á fæti og undir fæti. Skiptið yfir í litinn rauður og prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið í annarri hverri umf 0-0-0 (0-5-5) sinnum og síðan í hverri umf alls 7-7-8 (8-3-3) sinnum = 8-10-8 (8-10-10) l eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (13-15-17) cm.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÚFA:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp.

HÚFA:
Fitjið laust upp 96-104-104 (112-120-120) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 3-4-4(5-5-5) cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið 1 umf sl með litnum rauður, JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 88-96-96 (104-112-112) l. Prjónið síðan eftir mynstri A.2. Í hverri umf með stjörnu er fækkað um 12 l jafnt yfir (fækkið lykkjum alls 5 sinnum). Prjónið þar til A.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina – sjá ör fyrir þína stærð = 28-36-36 (44-52-52) l. Prjónið allar l slétt saman 2 og 2 = 14-18-18 (22-26-26) l. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. Húfan mælist ca 16-17-18 (19-20-20) cm.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk ca 3 cm að þvermáli með litnum natur. Saumið dúskinn niður efst á toppinn á húfunni.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

SLAUFA:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf:

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SLAUFA:
Fitjið upp 10-12 (14-16) l á prjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka þar til stykkið mælist 7-8 (9-10) cm, fellið af.

MIÐJUBAND:
Fitjið upp 12-12 (14-14) l á prjóna nr 2,5 og prjónið 8-8 (10-10) umf í garðaprjóni. Fellið af. Saumið saman skammhliðar svo að það myndist hringur.

Dragið sjálfa slaufuna í gegnum hringinn og saumið niður bæði stykkin í hvort annað með nokkrum smáum sporum. Festið silkiband eða teygju í gegnum hringinn á bakhlið á slaufu.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.08.2018
Leiðrétting: Mál á buxum hefur verið breitt frá hnébuxum í stuttar buxur

Mynstur

symbols = rauður
symbols = silfur fox
symbols = sólsetur
symbols = natur
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Birgit wrote:

Eine superschöne Anleitung. Ich habe die Weste, Hose, Schleife und Mütze gestrickt. Einfach wunderschöne Teile, für ein Fest genau das Richtige. Die Anleitung ist perfekt. Man sollte aber schon ein bisschen Erfahrung mitbringen.

04.01.2023 - 21:34

country flag Linn wrote:

Hej! Jag är total nybörjare på stickning. Vad innebär det att låta en del vila när man stickar västen? Jag stickar fram och tillbaka på rundsticka. Kan delarna vila på samma tråd medan jag stickar näta?

27.09.2021 - 09:09

DROPS Design answered:

Hej Linn. Maskorna på de delar du inte stickar sätter du på en tråd eller på en annan sticka under tiden du stickar den aktuella delen. Du kan sätta de andra delarna på samma tråd om du vill det. Mvh DROPS Design

27.09.2021 - 09:29

country flag Gitta wrote:

Hallo, bin Anfängerin und komme mit der Anleitung für die Hose nicht zurecht. Die verkürzten Reihen hinten werden doch vom Beginn der Reihe gestrickt - z.B. Hinreihe 7 M re/Rückreihe 14 li. Wenn ich in Reihen stricke, woher kommen die 7 Maschen zusätzlich? 7 hin und 14 zurück, da fehlen ja 7. Wo ist mein Denkfehler? Vielen Dank!

17.10.2020 - 23:24

DROPS Design answered:

Liebe Gitta, bei der 1. verkürzten Reihe stricken Sie 7 M nach der hinteren Mitte, wenden und diese 7 M + 7 M nach der Markierung = 14 M stricken, wenden und diese 14 M + die 7 nächsten Maschen stricken, wenden und diese 21 M + die 7 nächsten Maschen stricken usw, dh immer 7 Maschen mehr bei jeder verkürzten Reihe stricken bis 10 Reihen gestrickt waren - Siehe auch dieses Video. Viel Spaß beim stricken!

19.10.2020 - 08:35

country flag Elin Nedrebø Hope wrote:

Hei. Eg strikker Goofy Gavin kortbukse, men får ikkje mønsteret til å stemme. Skal eg felle av kilene i skrittet før eg starter på beina? Får ikkje maske antallet til å stemme. Mvh Elin

14.11.2019 - 09:00

DROPS Design answered:

Hej Elin, Hvor er du i opskriften, hvad er det du ikke får til at stemme?

03.12.2019 - 14:40

country flag Mette Norheim wrote:

Hei igjen og takk for svar 😀 Lommene på vesten skal monteres med maskesting, men hvordan gjør jeg det på rillestrikk?

10.05.2019 - 09:22

DROPS Design answered:

Hei Mette. Monter slik du ville gjort når du syr riller sammen vanligvis: Sy 1 sting gjennom hver "knute"/vrangmaske og så 1 sting i hvert mellomrom/rettmaske. Pass på at de rette og vrange omgangene treffer hverandre. Du kan se på denne videoen: . Her er det riller øverst på lommen, og glattstrikk på resten, men du vil få en ide av fremgangsmåte. Hvis du søker på "sy sammen rille" i søkefeltet for video vil du finne en video av hvordan å sy rillekant mot rillekant. God fornøyelse

13.05.2019 - 07:59

country flag Mette Norheim wrote:

Hei! Hvorfor strikke kantmaskene vrang på hver pinne? Hvorfor ikke bare strikke riller, som egentlig blir resultatet når du strikke vrang på hver pinne samtidig som du strikker fram og tilbake.....

09.05.2019 - 15:07

DROPS Design answered:

Hei Mette. Det er for at rillene skal bli motsatt fra resten av plagget, slik at stolpene skiller seg ut. Om alt strikkes rett på alle pinner vil ikke stolpene syntes. God fornøyelse

10.05.2019 - 07:43

country flag M Birgitta wrote:

Tack! :-)

07.12.2018 - 17:11

DROPS Design answered:

Tack själv :)

10.12.2018 - 09:58

country flag M Birgitta wrote:

Hej igen! Vore bra med svar på svenska. Norska går ganska bra att förstå, men olika termer är inte lika enkla som vardagsspråk.

07.12.2018 - 10:10

DROPS Design answered:

Hej Birgitta, sticka tills det återstår 6 maskor, lyft nästa m, 1 rm, drag den lyfta m över, vänd, gör samma i andra sidan. Nästa gång skall det återstå 5 maskor innan du lyfter nästa m osv, även i andra sidan. Nästa gång skall det återstå 4 maskor innan du lyfter..... Sedan 3 maskor, så 2 och sist 1. När du har gjort det, har du 8-10-10-12-12-12 m kvar på stickan. Lycka till :)

07.12.2018 - 11:20

country flag M Birgitta wrote:

Hej! Sockorna till Goofy Gavin: Kan ni skriva en vettig förklaring till följande mening i hälminskningen: "Fortsätt minskn på samma sätt, genom att sticka tills det återstår 1 m mindre innan 1 m lyfts tills det återstår 8–10–10 (12–12–12) m på st." Den är näst intill obergriplig!

06.12.2018 - 15:07

DROPS Design answered:

Hei M Birgitta. 1 pinne fra retten: strikk til det gjenstår 6 m, tas 1 m løst av, strikk 1 m og trekk den løse m over (1 m felt) og snu. Strikk vrangpinnen på samme måte. 2 pinne fra retten strikkes likt som første pinne, men nå strikker du til det gjenstår 5 m (altså 1 mindre enn forrige gang) før du feller og snur. Så strikker du vrangpinnen på samme måte. 3 pinne fra retten strikkes likt, men det strikkes til det gjenstår 4 m (altså 1 m mindre enn forrige gang) før du feller og snur. Slik fortsetter du til du har felt alle 6 m i hver side, og det kun er de midterste 8-10-10 (12-12-12) m igjen på pinnen. God fornøyelse

07.12.2018 - 10:02

country flag Judith Kaski wrote:

Can I successfully use Fabel for the vest?

19.11.2018 - 03:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kaski, DROPS Fabel belons to yarn group A just as Baby Merino used here - so that you can use Fabel as an alternative - read more about alternatives here and use our yarn converter. Happy knitting!

19.11.2018 - 09:21