Caterina skrifaði:
Decisamente bello!
13.06.2014 - 10:37
Birthe Dellgren skrifaði:
Det er en skøn trøje.
13.06.2014 - 00:47Elin skrifaði:
Den här skulle faktiskt vara värt att köpa garn till. Menar inte att ni inte har några fantastika plagg, men denna är så användningsbar utan att vara dödstråkigt.
12.06.2014 - 13:48
Alessandra skrifaði:
Comodo cardigan.
04.06.2014 - 16:24
Sylvia Karlsson skrifaði:
Jättesnygg. Måste komma med i nästa kollektion
03.06.2014 - 17:13Lenna skrifaði:
I like the front, definitely make it.
03.06.2014 - 15:10
Annette Rasmussen skrifaði:
Det er en fantastisk lækker trøje - den MÅ jeg lave!
03.06.2014 - 10:16
Enchanted#enchantedcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með fölsku klukkuprjóni og stuttum umferðum. Stærð S-XXXL
DROPS 157-25 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l br með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni: Takið 1 kantlykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. STUTTAR UMFERÐIR: Prjónið stuttar umferðir til að fá bogalaga form á stykkið. Snúið einnig við á milli mynstra A.2/A.3! Stuttar umferðir eru prjónaðar með 1. umf frá réttu þannig: UMFERÐ 1 og 2: Prjónið 8 l í öllum stærðum, snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 3 og 4: Prjónið 12 l í öllum stærðum, snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 5 og 6: Prjónið 16 l í öllum stærðum, snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 7 og 8: Prjónið 19-19-20-20-19-20 l, snúið við og prjónið til baka. UMFERÐ 9 og 10: Prjónið 21-21-23-23-21-23 l, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram að prjóna 3 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónað hefur verið yfir allar l. Endurtakið frá umf 1 alls 5 sinnum. (Boginn mælist nú ca 28-31-34-37-41-46 cm yst og 3 cm innst). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá prjónamerki á hlið): STÆRÐ S: 1-8-15-22-29 cm STÆRÐ M: 1-8-15-22-30 cm STÆRÐ L: 1-8-15-22-30 cm STÆRÐ XL: 1-8-16-23-31 cm STÆRÐ XXL: 1-8-16-23-31 cm STÆRÐ XXXL: 1-9-17-25-32 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 63-71-75-83-91-103 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 4 l) þar til 2 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.1, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið síðan áfram með mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist göt og síðan eru prjónaðar nýjar l br (séð frá réttu)! Endurtakið útaukningu með 4-4-4-3-3-3 cm millibili 2-2-2-3-3-3 sinnum til viðbótar = 69-77-81-91-99-111 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20 cm í öllum stærðum, fækkið síðan lykkjum fyrir handveg þannig: Fækkið um 3-4-5-6-7-8 l 1 sinni og 1 l 1-3-3-6-7-11 sinnum = 61-63-65-67-71-73 l. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið yfir fyrstu 21-22-22-23-24-25 l, fellið af næstu 19-19-21-21-23-23 l, prjónið yfir 21-22-22-23-24-25 l sem eftir eru á prjóni. Prjónið nú hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið áfram til baka yfir vinstri öxl og fellið af 1 l við hálsmáli í næstu umf frá réttu = 20-21-21-22-23-24 l fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, prjónið 2 umf garðaprjón og fellið síðan laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA KANTSTYKKI / FRAMSTYKKI: Fitjið upp 35-38-42-45-50-57 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni) á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið nú frá réttu þannig: Mynstur A.3 (= 18 l), 16-19-23-26-31-38 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 18-21-23-24-26-30 cm prjónið STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í síðustu umf í 1. mynstureiningu með stuttum umferðum er aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli A.3 og l í garðaprjóni = 36-39-43-46-51-58 l. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf svo ekki myndist gat. Endurtakið útaukningu í síðustu umf í þeim mynstureiningum sem eftir eru með stuttum umferðum 3-4-1-2-0-0 sinnum til viðbótar = 39-43-44-48-51-58 l á prjóni. Þegar allar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar, setjið 1 prjónamerki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í garðaprjóni og mynstri eins og áður. Munið eftir HNAPPAGAT- sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út frá hlið eins og á bakstykki (þ.e.a.s. hliðin sem er styttri). Eftir útaukningu eru 42-46-47-52-55-62 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 20 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki (þ.e.a.s. í sömu hlið á stykki þar sem l voru auknar út) = 38-39-39-40-41-43 l. Þegar stykkið mælist 30-31-31-32-32-33 cm, setjið fyrstu 9 l á prjóninn frá réttu á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af l í hverri umf frá hálsmáli þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum = 20-21-21-22-23-25 l eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm prjónið 2 umf garðaprjón og fellið af. VINSTRA KANTSTYKKI / FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra kantstykki / framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið 1 umf slétt frá röngu áður en mynstur er prjónað þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 16-19-23-26-31-38 l garðaprjón, A.2 yfir þær 18 sem eftir eru. Fellið ekki af fyrir hnappagötum. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í sléttprjóni með rönguna út. Fitjið upp 42-42-44-44-46-48 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 10 cm í garðaprjóni. Haldið áfram í sléttprjóni með rönguna út! Í næstu umf er aukið út um 1 l í hvorri hlið á ermi – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 4-3-3-2½-2-2 cm millibili 8-10-10-12-13-14 sinnum til viðbótar = 60-64-66-70-74-78 l. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið nú af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið: 3 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 1-2-3-4-5-6 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið á ermi þar til ermin mælist 57 cm, að lokum eru felldar af 3 l 1 sinni í hvorri hlið, fellið af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist nú ca 58 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman uppfitjunarkant á kantstykki við miðju að aftan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið síðan kantstykki við neðri kant á bakstykki. Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma og ermasauma innan við 1 kantlykkju – og saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. HÁLSMÁL: Takið upp ca 72 l (meðtaldar l af þræði) í hringum hálsmál. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið síðan af frá röngu. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #enchantedcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.