DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ripple Tide

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með gatamynstri, garðaprjóni og sjalkraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 157-40
DROPS Design: Mynstur nr ne-148
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/ M – L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
850-1050-1150-1250 gr litur nr 0500, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KÖNTUÐ SILFURTALA, NR 534: 6 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.10. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.
Mynsturteikning A.3 og A.6 passar ekki yfir sjálfa sig á hæðina þegar hún er endurtekin, en gataumferðir halda áfram á ská upp úr eins og áður.

MYNSTURTEIKNING A.1:
Mynsturteikning A.1 er endurtekin misjafnlega oft á hæðina. Þegar það eru 2 l á milli fyrsta uppsláttar (að A.3/A.6) og í A.1 og A.3/A.6 endar endurtekningin á A.1 á hæðina. Þ.e.a.s. séð frá réttu er A.1 endurtekin við miðju að framan og miðju að aftan alls 6 sinnum á hæðina. Miðju mynsturteikning A.1 er endurtekin alls 4 sinnum á hæðina. A.1 frá hlið er endurtekin alls 2 sinnum á hæðina. Síðan er prjónað þannig:
Þegar A.1 gengur ekki upp í lykkjufjölda þ.e.a.s. á eftir endurtekningum eins og útskýrt er að ofan, prjónið A.9 yfir A.1 á hægra framstykki og hægri hlið á bakstykki (= 3 l mynstureiningar á A.1) og A.10 yfir A.1 á vinstra framstykki og vinstri hlið á bakstykki (= 3 mynstureiningar á A.1).

MYNSTUR-1:
UMFERÐ 1: sl frá réttu.
UMFERÐ 2: br frá röngu
Endurtakið umf 1 og 2 4 sinnum til viðbótar (= 10 umf).
UMFERÐ 11: sl frá réttu.
UMFERÐ 12: sl frá röngu.
UMFERÐ 13: sl frá réttu.
UMFERÐ 14: br frá röngu.
UMFERÐ 15. br frá réttu.
UMFERÐ 16: br frá röngu.
Endurtakið umf 1 til 16.

HNAPPAGAT:
Fellið af frá réttu fyrir 6 hnappagötum i hægri kanti að framan.
1 HNAPPAGAT = prjónið 3 l frá miðju að framan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l slétt saman. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S/M: 10, 18, 30, 38, 50 og 58 cm.
STÆRÐ L/XL: 12, 20, 32, 40, 52 og 60 cm.
STÆRÐ XXL: 14, 22, 35, 43, 56 og 64 cm.
STÆRÐ XXXL: 13, 22, 35, 44, 57 og 66 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: :
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 91-103-115-127 l á hringprjóna nr 5,5 með Nepal. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan frá réttu þannig: 3 l sléttprjón, A.1 (= 14-16-18-20 l) alls 6 sinnum – LESIÐ MYNSTUR, 1 l garðaprjón, 3 l sléttprjón. Haldið áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki innan við 3 l sléttprjón. Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6. hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 97-109-121-133 l. Útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – MYNSTUR OG ÚTAUKNING ER PRJÓNAÐ SAMTÍMIS.
MYNSTUR:
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 2 fyrstu umf á A.1, síðan er prjónað frá réttu þannig: 3 l slétt, A.5, 1 l sl og A.1 síðan eins og áður þar til 7 l eru eftir, 1 l garðaprjón, 1 l sl, A.2, 3 l sléttprjón. Mynsturteikning A.2/A.5 færist til um 1 l við miðju að aftan í hverri umf frá réttu, þ.e.a.s. prjónuð er 1 l sem færist til með A.3 og A.6. Snúni uppslátturinn í A.3/A.6 er prjónaður jafnóðum inn í MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan.
ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki innan við 3 l sléttprjón þannig: Aukið út um 1 l í 4. hverri umf 6-9-13-16 sinnum, síðan 1 l í annarri hverri umf 19-13-6-0 sinnum = 147-153-159-165 l. Útauknar l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur-1.

Þegar útaukningu er lokið eru fitjaðar upp 4 nýjar l í hvorri hlið á stykki fyrir ermi í lok næstu 2 umf = 155-161-167-173 l. Stykkið mælist ca 39-40-42-43 cm. Nýjar l eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – MYNSTUR OG ÚRTAKA ER PRJÓNAÐ SAMTÍMIS.
MYNSTUR:
Þegar 1 l er eftir á milli gataumferðar A.3 og A.6 er prjónað A.8 yfir A.3, A.6 og einsöm l á milli þeirra. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 57-64-70-77 cm. Stykkið er nú prjónað áfram með mynstur-1.
ÚRTAKA:
Þegar stykkið mælist 61-63-67-69 cm prjónið nú yfir þær 4 l garðaprjón, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf, endurtakið í næstu umf = 147-153-159-165 l. Setjið nú l á þráð fyrir afllíðandi öxl þannig: Prjónið yfir 4 fyrstu l, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf. Endurtakið í hvorri hlið á stykki í hverri umf 6-5-4-4 sinnum til viðbótar, prjónið nú yfir 2 fyrstu l, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf. Endurtakið í hvorri hlið á stykki í hverri umf 7-9-12-13 sinnum til viðbótar = 48-48-50-52 l af þræði fyrir hvora öxl og 59-65-67-69 l á prjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 74-77-83-85 cm fellið af miðju 17-17-19-19 l og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l fyrir hálsmáli. Þegar öll úrtaka er lokið eru 20-23-23-24 l eftir á prjóni fyrir hvora öxl. Stykkið mælist ca 76-79-85-88 cm. Klippið frá.

ÖXL/ERMI:
Setjið til baka allar l frá þræði á prjóninn = 68-71-73-76 l.
Svo að öxlin verði ekki of stíf er aukið út frá réttu þannig: Prjónið 20-23-25-28 l sl, * sláið uppá prjóninn, 6 l sl *, endurtakið frá *-* út umf = 76-79-81-84 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt. Prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið laust af. Prjónið hina öxlina á sama hátt, nema gagnstætt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 52-58-64-70 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 5,5 með Nepal. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið nú frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 alls 3 sinnum, 1 l garðaprjón, 3 l sléttprjón. Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l í hlið á stykki í lok umf frá réttu innan við 3 l sléttprjón. Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6. hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 55-61-67-73 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – MYNSTUR OG ÚTAUKNING ER PRJÓNAÐ SAMTÍMIS.
MYNSTUR:
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 2 fyrstu umf á A.1, prjónið síðan frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 eins og áður þar til 7 l eru eftir, 1 l garðaprjón, 1 l sl, A.2, 3 l sléttprjón. Mynsturteikning A.2 færist til um 1 l við miðju að framan í hverri umf frá réttu, þ.e.a.s. prjónuð er 1 l færri af A.1 í annarri hverri umf – sjá MYNSTURTEIKNING A.1. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með tilfærslu með A.3. Snúni uppslátturinn í A.3 er prjónaður jafnóðum inn í mynstur-1. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út um 1 l frá hlið á stykki innan við 3 l sléttprjón þannig: Aukið út um 1 l í 4. hverri umf 6-9-13-16 sinnum, síðan 1 l í annarri hverri umf 19-13-6-0 sinnum = 80-83-86-89 l. Útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur-1.

Þegar útaukningu er lokið eru fitjaðar upp 4 nýjar l í hlið fyrir ermi í lok næstu umf frá réttu = 84-87-90-93 l. Stykkið mælist ca 39-40-42-43 cm. Nýjar l eru prjónaðar í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM – MYNSTUR OG ÚRTAKA ER PRJÓNAÐ SAMTÍMIS.
MYNSTUR:
Þegar stykkið mælist 61-63-67-69 cm, stillið af að næsta umf sé frá röngu og er prjónuð þannig: Prjónið yfir 4 l garðaprjón í hlið, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf = 80-83-86-89 l. Í næstu umf frá röngu eru settar nýjar l á þráð fyrir aflíðandi öxl þannig: Prjónið yfir 4 fyrstu l, setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf. Endurtakið í hverri umf frá röngu 6-5-4-4 sinnum til viðbótar, prjónið síðan yfir 2 fyrstu l, setjið þær síðan á þráð, prjónnið út umf. Endurtakið í hverri umf frá röngu 7-9-12-13 sinnum til viðbótar = 48-48-50-52 l á bandi og 36-39-40-41 l á prjóni. Klippið frá.

ÖXL/ERMI:
Setjið til baka allar l af þræði á prjóninn = 84-87-90-93 l. Svo að öxlin verði ekki of stíf aukið nú frá réttu þannig: Prjónið 36-39-42-45 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl *, endurtakið frá *-* út umf. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt = 92-95-98-101 l. Prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið síðan af 76-79-81-84 l frá hlið laust af = 16-16-17-17 l eftir fyrir sjalkraga.

SJALKRAGI:
Prjónið frá miðju að framan: * 2 umf yfir allar l, prjónið 2 umf yfir fyrstu 12-12-13-13 l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 8-8-9-9 cm mælt næst öxl. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Prjónið A.5-A.7 í stað A.2-A.4. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum. Fitjið upp 4 l í lok umf frá röngu. Öxl/ermi er prjónuð frá réttu þannig: * 6 l sl, sláið uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 36-39-42-45 l eru eftir, endið á 36-39-42-45 l sl.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma í eitt yst í lykkjubogann upp að og með 4 útauknu l í garðaprjóni. Saumið axlasauma yst í lykkjubogann frá og með 4 útauknu lykkjum í garðaprjóni upp að sjalkraga. Saumið saman sjalkraga við miðju að aftan, saumið hann við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.10.2016
Mikið leiðrétt mynstur

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt/brugðið, stillið af eftir mynstur-1
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (59)

country flag Marion wrote:

Bonjour, pour le col châle, il est écrit : "*2 rangs sur toutes les mailles, 2 rangs sur les..." est-ce en mousse ou en jersey? De plus, pour l'assemblage il me semble qu'il manque un mot après" jusqu'aux" : "Coudre les côtés dans le brin le plus à l'extérieur des mailles jusqu'aux et y compris les 4 m montées... " Je vous remercie pour votre aide. Marion

30.11.2023 - 08:51

DROPS Design answered:

Bonjour Marion, tricotez les mailles du col comme avant, en rangs raccourcis pour que l'extérieur du col soit plus haut que le côté intérieur qui sera cousu le long de l'encolure dos. Il ne manque pas de mot, vous devez coudre jusqu'aux 4 mailles montées et ces 4 mailles doivent être aussi assemblées. Bon tricot!

30.11.2023 - 10:24

country flag Lorraine Smith wrote:

I am reading the first row of A.1 as follows: K1, YO, K6, Slip 1st as if to K, K1, PSSO, K2TOG, K6, YO. When doing so, I end up with 17 sts per pattern instead of 16. What am I doing wrong?

18.02.2021 - 16:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Smith, the decrease in the middle is 3rd symbol; slip 1, K2 tog, psso, so that you work over 16 sts: K1, YO, K6, slip 1, K2 tog, psso, K6, YO = 16 sts. Happy knitting!

19.02.2021 - 07:24

country flag Johanna Rehbein wrote:

4. Wann beginnt man mit dem Zählen von Muster1? Unter der Anleitung Rückenteil steht, dass man die Umschläge von A3/A6 fortlaufend in Muster1 einarbeiten soll. Beginne ich mit der ersten Reihe von Muster1 also erst, wenn A3/A6 anfängt oder bereits ab der Einarbeitung von A2/A5?

21.01.2020 - 10:31

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rehbein, die Umschläge von A.3/A.6 werden in Muster-1 gestrickt, die Zunahmen beidseitig werden auch in Muster-1 gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

21.01.2020 - 10:40

country flag Johanna Rehbein wrote:

Korrektur zur ersten Frage: Die krause Masche würde auf der linken Seite NICHT mehr gestrickt (wenn man eine Masche von A1 weglässt), auf der rechten Seite aber schon.

21.01.2020 - 09:39

country flag Johanna Rehbein wrote:

2. A1 geht in der Maschenanzahl doch schon nicht mehr auf, sobald ich mit A2/A5 beginne. Halte ich mich nun an die Beschreibung unter Rückenteil und stricke einfach immer eine Masche weniger von A1? Oder muss ich schon hier A9/A10 einbauen? 3. Was bedeutet "(= 3 Rapporte von A1)" in dem Teil, wo A9/A10 eingearbeitet werden soll?

21.01.2020 - 09:37

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rehbein, die Maschenanzahl wird zunehmen erst wenn Sie beidseitig zunehmen - siehe ZUNAHMEN, die Zunahmen beginnen wenn A.1 1 x in der Höhe gestrickt wird. Dann wird es abgenommen, also wie in der Anleitung weiter stricken. Den Absatz DIAGRAM A.1 erklärt wie das Diagram über die ganze Arbeit gestrickt wird. Viel Spaß beim stricken!

21.01.2020 - 10:36

country flag Johanna Rehbein wrote:

Ich komme mit der Anleitung leider schon ab Einarbeiten von A2/A5 nicht so richtig klar. 1. In der Anleitung zum Rückenteil steht, dass durch das Verschieben von A2/A5 immer eine Mache weniger von A1 gestrickt wird. Das würde bedeuten, dass ich auf der rechten Seite (von vorn betrachtet) weiterhin eine krause Masche stricken würde (denn dort gehört sie nicht zum Diagramm von A1), auf der linken Seite hingegen würde die krause Masche als Bestandteil von A1 weiterhin gestrickt?

21.01.2020 - 09:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rehbein, zuerst stricken Sie A.2 und A.5 (= noch keine neue Maschen rechts und links jetzt), dann stricken Sie A.3 und A.6, und die neuen Maschen rechts und links (= die Umschläge) stricken Sie in Muster-1. Wenn dann nicht genügend Maschen in A.1 bleiben, stricken Sie A.10. Viel Spaß beim stricken!

21.01.2020 - 10:32

country flag Ruth wrote:

I LOVE this design and would love to make it. Although, I consider myself a fairly experienced knitter I have had so much difficulty following the instructions that I finally gave up. I know how to read a pattern chart and had no problems with that however I am completely stuck on the first section "READ ALL OF THE FOLLOWING SECTION BEFORE CONTINUING-WORK PATTERN AND INC AT THE SAME TIME" is totally confusing me.

09.10.2019 - 19:18

DROPS Design answered:

Dear Ruth, you will now work following the diagrams as explained, but increase at the same time as described. When the increases are done, cast on 4 sts on each side and continue in pattern as before. Then you will have to work other diagrams and decrease as explained under next section. Happy knitting!

10.10.2019 - 09:45

country flag Tirzah wrote:

When you start the displacement between A.6 and A.1, are there supposed to be 2 stitches between the last yarn over/decrease stitch of A.5 and the first yarn over of A.1, or 3 stitch. EX: A.6 (yarn over, decrease times 3), then 2 stitched into A.1, then yarnover OR A.6, then 3 stitches into A.1, then yarnover. Thanks!

19.08.2019 - 10:20

DROPS Design answered:

Dear Tirzah, you start A.5 on row 3 in A.1, you will start A.6 on row 11 in A.1 and work: A.6 (= YO, K2 tog)x 3, then work A.1 = dec 2, K1, YO, etc... Happy knitting!

19.08.2019 - 11:44

country flag Sylvie Roy wrote:

Bonjour je suis du canada avez vous un magasin drops au canada et moi jai demander la grosseur du fils svp merci

07.08.2019 - 15:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roy, vous trouverez ici la liste des magasins DROPS au Canada/expédiant au Canada. Vous trouverez toutes les informations utiles sur nos fils dans leur nuancier. Bon tricot!

08.08.2019 - 09:14

country flag Sylvie Roy wrote:

Bonjour jaimerais savoir la grosseur du fils svp et si je prend une autre sorte de laine acrylique cela va til deranger parce que je ne peu pas prendre alpaga et laine merci

06.08.2019 - 15:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roy, Nous sommes en mesure de pouvoir proposer des modèles gratuits grâce à nos fils à tricoter et à crocheter vendus dans le monde entier. Vous comprendrez ainsi que nous ne pouvons que vous recommander d’utiliser l’une de nos qualités. N’hésitez pas à contacter votre magasin DROPS en France pour toute assistance au choix d'une alternative correspondant à vos besoins. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

07.08.2019 - 11:58