DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 5 frábærum garntegundum!
Product image DROPS Snow yarn
DROPS Snow
100% Ull
frá 594.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3564.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 150-4

#littleredridingslippers

DROPS Design: Mynstur nr ee-479
Garnflokkur E
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/39 - 40/42
Lengd fótar: 22-24-26 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
300-300-300 gr litur nr 08, rauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR og PRJÓNAR NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l og 17 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
DROPS TALA DÖKK, NR 536: 6 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 594.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3564.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR

STROFF / LEGGUR:
Fitjið upp 36-38-40 l á sokkaprjóna nr 6 með Snow. Prjónið GARÐAPRJÓN í hring – lesið útskýringu að ofan þar til stykkið mælist ca 4 cm, endið eftir 1 umf brugðið.

FÓTUR:
Haldið eftir fyrstu 9-11-11 l í umf á prjóni, þær sem eftir eru 27-27-29 l eru settar á þráð. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir 9-11-11 l, JAFNFRAMT í 1. umf er fitjuð upp 1 ný l í hvorri hlið (kantlykkja) = 11-13-13 l. Þegar efra stykkið mælist 7-8,5-10 cm er 1 kantlykkja í hvorri hlið felld af = 9-11-11 l. Setjið nú l af þræði til baka á prjóninn og prjónið 12-14-16 l upp hvoru megin við efri partinn (innan við 1 kantlykkju) = 60-66-72 l á prjóni. Héðan er nú mælt. Setjið 1 prjónamerki við miðju framan á tá og 1 prjónamerki við miðju aftan á hæl. Haldið áfram hringinn í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm eru prjónaðar 2 l slétt saman hvoru megin við hvort prjónamerki í annarri hverri umf (= 4 lykkjur færri í hverri umf) haldið áfram úrtöku þar til stykkið mælist 5-5-6 cm – fellið af. Saumið sauminn undir il í ystu l svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

LAUST STROFF Á LEGG PRJÓNAÐ ÞVERSUM:
Fitjið upp 22 l á prjóna nr 6 með Snow. Prjónið 2 umf garðaprjón, í síðustu umf er aukið út um 6 l jafnt yfir = 28 l. Prjónið eftir A.1 (= 28 l) þar til stykkið mælist ca 32-33-35 cm, í síðustu umf er fækkað um 3 l yfir hvern kaðal í A.1 =22 l. Prjónið 2 umf garðaprjón og fellið af. Leggið uppfitjunarkantinn yfir affellingarkantinn, saumið 3 tölur til skrauts í gegnum stykkið. Dragið stroffið 2 cm niður á fótinn með tölurnar á ytri hlið á tátiljunni og saumið tátiljuna við uppfitjunarkantinn á stroffinu frá röngu saman við með smáu spori.

Prjónið aðra tátilju á sama hátt, passið uppá að opið á leggnum verði í gagnstæðri hlið.

Mynstur

sl frá réttu, br frá röngu = sl frá réttu, br frá röngu
br frá réttu, sl frá röngu = br frá réttu, sl frá röngu
setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
Diagram for DROPS 150-4
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (386)

country flag Meg skrifaði:

Ever since this picture hit Facebook, I was bombarded with orders for them. \r\nThey are such a fast, easy knit and very attractive. \r\nI recommend a leather bottom be added to your finished product. \r\nThe heels eventually wear through 😊

18.10.2018 - 14:13

country flag Audrey skrifaði:

Hi there! Thanks for the cool pattern. My question concerns picking up stitches. I knitted 4” for the middle section and don’t have enough fabric to pick up 16 stitches on either side of this section. Should I continue in garter until I have 16 ‘bumps’ on the edge? Thank you!

11.09.2018 - 19:22

DROPS Design svaraði:

Dear Audrey, the middle piece should measure 4", if you work more rows, piece will be longer and slippers may not match. Try to work somewhat more tight or pick up sts evenly between ridges to get the right measurements and correct number of sts. Happy knitting!

12.09.2018 - 07:30

country flag Diane skrifaði:

My \"adopted daughter\" is 6 feet tall with shoe size 13. She has the hardest time finding shoes and slippers. She found these on Pinterest and loved them. Can you tell me how many stitches I would need to add for the heel to toe rows?

10.07.2018 - 06:00

DROPS Design svaraði:

Dear Diane, this pattern is only available to size 10 (foot length 10 1/4"), we are unfortunately not able to adjust every single pattern to every individual request. You are welcome to contact your DROPS store or any knitting forum for any further individual assistance. Happy knitting!

10.07.2018 - 08:57

Amy skrifaði:

Sorry. I guess I still don\'t quite get it. Can you show/video exactly how to start?

27.05.2018 - 09:52

DROPS Design svaraði:

Dear Amy, this shows how to knit and assembly these slippers. Happy knitting!

28.05.2018 - 09:28

country flag Amber skrifaði:

I've been in love with this pattern for over a year and have never had the guts to try it. Now I'm back to see them again. I dream about these slippers!!! I purchased double pointed needles, but I also have circular needles in the same size needed for this pattern. I am inexperienced with the double point needles, but am well acquainted with the circular needles. Are the circular needles an option for this pattern? Thank you so much for your response in advance.

22.03.2018 - 00:24

DROPS Design svaraði:

Dear Amber, you can use the circular needle working in the round using the technnique of magic loop or learn to use the double pointed needles with the help of our videos, as in the video to these slippers. Happy knitting!

06.04.2018 - 09:28

Lily Reid skrifaði:

Could you please tell me approximately what ply Eskimo is?

21.03.2018 - 06:54

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Reid, please find all relevant informations about Eskimo on its shadecard. Happy knitting!

21.03.2018 - 09:29

country flag John skrifaði:

Hi I love the pattern, any chance of a video how-to, or a simplified pattern?

12.03.2018 - 18:24

DROPS Design svaraði:

Dear John, you will find here a video showing how to work these slippers. Remember to read the pattern at the same time watching the video. Happy knitting!

13.03.2018 - 10:12

country flag Donna skrifaði:

What weight is this yarn

24.02.2018 - 00:57

DROPS Design svaraði:

Dear Donna, for this pattern, we use DROPS Eskimo yarn, which has about 50 meters in a 50 gramm skein, and knits up to about 11 stitches x 15 rows for 10 cm x 10 cm. That would but it into the chunky/ bluky category. Since everone knits differently, please always make a trial piece - a swatch- and check your gauge, and adjust accordingly. Happy Crafting!

24.02.2018 - 23:44

Amy skrifaði:

One more question.... I wear a US size 11/12 womens shoe. How many stitches do I cast on for my big foot? Is there a formula I can use for various shoe sizes? Thanks.

03.01.2018 - 16:15

DROPS Design svaraði:

Hi Amy, US size 11/12 is 42-43 in Euro size so you will need to cast on two more stitches than in size 40/42 to fit your size. Happy knitting!

04.01.2018 - 08:05

Amy skrifaði:

1. I've watched the video for the Little Red Riding Hood Slippers, but it starts after you have a circle. Can you show how to start this pattern from the beginning? 2. I have 2 straight double-sided needles, but it looks like you're using 4 on the video. Do I need to get some more? 3. Can you explain what this means in the foot pattern: Continue in garter st back and forth over the 9-11-11 sts - AT THE SAME TIME? Thank you.

03.01.2018 - 16:10

DROPS Design svaraði:

Hi Amy, Yes you need four or five double sided needles to work in the round, then divide the stitches onto the 3/4 needles and use the last needle to work with. When working the foot, you work back and forth over the stitches in garter stitch and (at the same time) on the first row you increase 1 new stitch in each side for edge stitches. We use AT THE SAME TIME in our patterns when things need to be worked concurrently. Hope this helps and happy knitting!

04.01.2018 - 08:11