Eva-Maria skrifaði:
Wenn es Symphonie nicht mehr gibt, sollte es eine neue Beschreibung mit Melody geben. Lauflänge der Wolle und Verbrauch scheinen sich von der Originalbeschreibung zu unterscheiden.
27.12.2023 - 22:34
Caty skrifaði:
Ho sostituito il filato sinphony fuori produzione con quello suggerito in sostituzione, il melody. La quantità di filato indicata è il doppio del necessario.
16.11.2018 - 21:39
Yamina skrifaði:
Bjr, Je voudrais faire ce modèle pour ma fille. Comme la qualité Symphonie est remplacée par Melody, pourriez-vous me dire s'il faut 1 ou 2 pelotes de Melody pour faire l'échape et le béret? Merci pour les informations. Yamina
01.10.2016 - 16:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Yamina, vous trouverez ici comment calculer la quantité nécessaire en Melody, en alternative à Symphony. Bon tricot!
03.10.2016 - 09:10
Mach, Eva skrifaði:
Wo erhält man Drops Symphony Garn?
15.10.2015 - 16:35DROPS Design svaraði:
Symphony ist nicht mehr erhältlich. Statt dessen können Sie als sehr gutes Ersatzgarn DROPS Melody verwenden. Beachten Sie, dass Sie die benötigte Garnmenge anhand der Lauflänge neu berechnen müssen und dass Sie auf jeden Fall die Maschenprobe einhalten.
16.10.2015 - 11:54
Carmen skrifaði:
Davvero bellissimo mi piacerebbe riuscire a farlo
03.09.2014 - 18:22
Raquel Triguero skrifaði:
Bueno días. Para hacer la boina, que cantidad de Drops Symphony se necesita? Solo vienen especificadas las lanas de la flor y el resorte. Gracias
04.12.2013 - 11:30DROPS Design svaraði:
Hola Raquel! Debido a un fallo en la traducción no figura la cantidad de Symphony. Ya está solucionado.
04.12.2013 - 16:02
Chris skrifaði:
Wann kommt bei dieser Mütze das Nadelspiel Stärke 6 zum Tragen? In der Beschreibung ist lediglich von Rundnadeln die Rede. Oberhalb der Beschreibung wird allerdings aufgeführt, dass auch ein Nadelspiel benötigt wird. Über eine Antwort würde ich mich sehr freuen. Vielen Dank.
17.02.2013 - 22:38DROPS Design svaraði:
Liebe Chris, wir machen keine genauen Vorgaben, wann zu dem Nadelspiel gewechselt werden soll. Sie machen das einfach selbst, wenn es unbequem wird, mit der Rundnadel zu stricken.
18.02.2013 - 10:07
Maite skrifaði:
Me encanta la lana shymphony. Es muy suave. La bufanda perfecta. Voy a hacer la boina.
26.01.2013 - 23:47
DROPS Design skrifaði:
Aitáh Heli, parandatud!
29.08.2012 - 02:59
Heli skrifaði:
Mütsi kudumise õpetus algb, et barett heegeldatakse ringselt - peaks vist olema, et kootakse?
20.08.2012 - 21:53
Michelle#michelleset |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð basker / alpahúfa fyrir börn með hekluðu blómi úr DROPS Symphony og BabyMerino og hálsklútur í garðaprjóni úr DROPS Symphony. Stærð 3 – 12 ára.
DROPS Children 23-12 |
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- ALPAHÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp. ALPAHÚFA: Fitjið upp 120-132-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum fjólublár BabyMerino. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3 og Symphony. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 80-88-96 lykkjur. Setjið 8 prjónamerki í stykkið með 10-11-12 lykkja millibili. * Prjónið 1 umferð sléttprjón, síðan er prjónuð 1 umferð sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 1 lykkju eftir öll prjónamerkin (aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í 1 lykkju) *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar = 112-120-128 lykkjur (látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu). Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist alls 10-11-12 cm. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir öllum prjónamerkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 4-5-6 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umferð 6-6-6 sinnum = 24 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar 2 og 2 slétt saman = 12 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið enda. Húfan mælist ca 18-20-22 cm á hæðina. HEKLAÐ BLÓM: Blómið er heklað með heklunál 3 með BabyMerino + Glitter. Heklið 4 loftlykkjur með litnum ljós bleikfjólublár + litur silfur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, 8 fastalykkjur um hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 2: Heklið 6 loftlykkjur (= 1 stuðull + 3 loftlykkjur), * 1 stuðull í næstu fastalykkju, 3 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 8 loftlykkjubogar. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið síðan um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 fastalykkja, 1 hálfur stuðull, 3 stuðlar, 1 hálfur stuðull og 1 fastalykkja, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 8 blöð, klippið frá þráðinn með BabyMerino. UMFERÐ 4 (Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár + litinn silfur): Heklið 7 loftlykkjur, * 1 fastalykkja á milli 2 næstu blaða, 6 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum, endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 8 loftlykkjubogar. UMFERÐ 5: 1 loftlykkja, heklið síðan um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 fastalykkja, 1 hálfur stuðull, 5 stuðlar, 1 hálfur stuðull og 1 fastalykkja, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 8 blöð, klippið frá þráðinn með BabyMerino. UMFERÐ 6 (skiptið yfir í litinn fjólublár + litinn silfur): Heklið 10 loftlykkjur, * 1 fastalykkja á milli 2 næstu blaða, 9 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum, endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 8 loftlykkjubogar. UMFERÐ 7: 1 loftlykkja, heklið síðan um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 fastalykkja, 1 hálfur stuðull, 1 stuðull, 5 tvíbrugðnir stuðlar, 1 stuðull, 1 hálfur stuðull og 1 fastalykkja, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 8 blöð. Klippið frá og festið enda. Saumið blómið á húfuna. ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. HÁLSKLÚTUR: Fitjið upp 18-20-22 lykkjur á prjón 6 með Symphony. Lykkjurnar eru prjónaðar slétt fram og til baka í öllum umferðum (= garðaprjón). Þegar stykkið mælist 12-15-18 cm skiptist stykkið í tvo hluta þannig: Prjónið slétt fram og til baka yfir fyrstu 9-10-11 lykkjur þar til stykkið mælist 18-21-24 cm. Setjið lykkjur á þráð. Prjónið síðan slétt fram og til baka yfir þær 9-10-11 lykkjur sem eftir eru þar til báðir hlutarnir hafa sama mál (gatið á að mælast ca 6 cm). Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og haldið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 70-80-90 cm. Fellið af. ---------------------------------------------------------- Fingravettlingar – sjá DROPS Children 23-13 ---------------------------------------------------------- |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #michelleset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 23-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.