Drops Design skrifaði:
1 merketråd i starten og 1 merketråd etter 72-80-88 (98-104)m.
12.01.2009 - 08:42
Robin skrifaði:
Jeg lurer på om denne delen av oppskriften betyr at man i tilfelle av den minste størrelsen skal sette merke i begynnelsen av runden også 72m inn eller skal man strikke 36m, sette merke, strikke 72m, sette merke, strikke 36m? "Sett 1 merke i hver side (= 72-80-88 (98-104) m mellom merkene på for- og bakstk)".
10.01.2009 - 17:54
Jorunn Merete skrifaði:
Herlige! Kjeme nok til å havna på "å laga"-lista;)
26.11.2008 - 20:01
Manuela skrifaði:
Supersüß aber wann kommt die anleitung
24.11.2008 - 09:12
Sirih skrifaði:
Warte auch auf Anleitung, meine Tochter bekommt Ende 2008 es Maiteli! Grosses Kompliment an das ganze Team, Ihr habt weltweit die schönsten und vielfälltigsten Strickanleitungen. Vielen Dank
21.11.2008 - 21:24
Susanne skrifaði:
Ricktigt söt klänning. Enkel och inte en massa krusseduller på. Den kommer jag nog att sticka om det blir en flicka.
19.11.2008 - 18:06
Ingrid skrifaði:
Toppensöt!VÄNTAR på mönster, när kommer det? Ingrid
18.11.2008 - 15:23
Cecilie skrifaði:
Skal ikke denne snart legges ut? Den ser så fin ut og når venter jeg veldig her.
16.11.2008 - 17:24
Lise Lotte skrifaði:
Smadder sød kjole
11.11.2008 - 12:33
Hege skrifaði:
Nydelig kjole!!! Et must!
11.11.2008 - 09:32
Baby Harriet#babyharrietdress |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður kjóll fyrir börn með perluprjóni á berustykki og prjónaðar tátiljur úr DROPS Extra Fine.
DROPS Baby 18-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um kjól): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. HNAPPAGAT (á við um kjól): Fellið af fyrir hnappagötum í hægra framstykki með því að prjóna aðra og þriðju lykkju frá miðju slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist 29-32-37 (40-45) cm og 32-36-41 (45-50) cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kjóllinn er prjónaður í hring á hringprjón, neðan frá og upp. KJÓLL: Fitjið upp 144-160-176 (196-208) lykkjur á hringprjón 4,5 með Merino Extra Fine. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= 72-80-88 (98-104) lykkjur á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki). Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið, haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 5.-6.-7. (8.-9.) hverri umferð alls 10 sinnum = 104-120-136 (156-168) lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-28-33 (36-41) cm fækkið um 12-16-20 (28-28) lykkjur jafnt yfir (fækkið um jafn margar lykkjur á fram- og bakstykki) = 92-104-116 (128-140) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, haldið áfram í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 27-30-35 (38-43) cm fellið af 6 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Fram- og bakstykki er síðan prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 40-46-52 (58-64) lykkjur. Haldið áfram í perluprjóni – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð: 1 lykkja 3 sinnum = 34-40-46 (52-58) lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-38-44 (48-54) cm fellið af miðju 16-18-20 (20-22) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 8-10-12 (15-17) lykkjur eftir á öxl. Fellið síðan af þegar stykkið mælist 36-40-46 (50-56) cm. FRAMSTYKKI: = 40-46-52 (58-64) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki á milli 2 miðju lykkja. Haldið áfram í perluprjóni og fækkið lykkjum fyrir handvegi í hliðum eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-31-36 (39-44) cm skiptist framstykkið í tvö stykki þannig (séð frá réttu): Setjið lykkjur fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki við miðju að framan á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: = Lykkjur í vinstri hlið (séð frá réttu) + 2 lykkjur hægra megin við prjónamerki við miðju að framan. Haldið áfram í perluprjóni og fellið af fyrir handvegi. Þegar úrtöku er lokið fyrir handveg eru 19-22-25 (28-31) lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 29-32-37 (40-45) cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 33-37-42 (46-51) cm fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan þannig: 5-6-7 (7-8) lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum = 8-10-12 (15-17) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 36-40-46 (50-56) cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og takið upp 4 lykkjur á bakhlið við 4 fyrstu lykkjur við miðju að framan á hægra framstykki. Prjónið síðan hægra framstykki en ekki fella af fyrir hnappagötum. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma og saumið tölur í að framan. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið meðfram hálsmáli, í kringum handveg og neðst í kringum kjól með heklunál nr 3,5 þannig: * 1 fastalykkja, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-*, endið neðst á kjól og í kringum handveg með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni. HÆGRI TÁTILJA: Byrjið á sóla þannig: Fitjið upp 14-17-19 (23-27) lykkjur á sokkaprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan – í 3-4-4½ (5-5) cm. Takið upp lykkjur í kringum allan sólann þannig: 6-8-9 (10-11) lykkjur meðfram hvorri skammhlið 14-17-19 (23-27) lykkjur meðfram uppfitjunarkanti = 40-50-56 (66-76) lykkjur alls. Umferðin byrjar á eftir skammhlið að framan, þ.e.a.s. á einni langhlið. Prjónið GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan – í 2-2-2 (3-3) cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 10-12-13 (15-16) lykkjur, prjónið næstu 14-18-21 (26-33) lykkjur og setjið þær síðan á þráð (= hæll), fellið af næstu 10-12-13 (15-16) lykkjur og haldið eftir síðustu 6-8-9 (10-11) lykkjum á prjóni (= efra stykki). Prjónið garðaprjón fram og til baka í 4½-5-5½ (6-6½) cm og fellið síðan af. Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 14-18-21 (26-33) lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 2 cm. Í lok næstu umferðar (frá réttu) eru fitjaðar upp 14 nýjar lykkjur fyrir spæl = 28-32-35 (40-47) lykkjur. Prjónið garðaprjón yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir einu hnappagati í gagnstæðri hlið þar sem spællinn situr. Fellið af þannig: Prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Haldið síðan áfram að prjóna garðaprjón þar til spællinn mælist 2 cm. Fellið af allar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið saman efra stykkið á tátilju í hvorri hlið með smáu spori kant í kant. Það á að vera op ca ½-½-½ (1-1) cm á milli efra stykkis og bakstykkis. Saumið tölu yst á spæl. VINSTRI TÁTILJA: Prjónið á sama hátt og hægri tátilja nema fitjað er upp fyrir spæl í lok umferðar frá röngu þannig að spællinn sitji Í gagnstæðri hlið. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babyharrietdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.