DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Vanilla Sprite

Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með laskalínu og köðlum á ermum ásamt buxum úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS Baby 18-4
DROPS design: Mynstur nr ME-013-by
Garnflokkur B
------------------------------------------------------------
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-96/104)
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
PEYSA:
150-200-200 (250-300) g nr 01, natur
BUXUR:
150-150-200 (200-250) g nr 01, natur
----------------------------------------------------------
PEYSA:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4,5 - eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3,5
DROPS TRÉTALA NR 513: 5-5-6 (6-6) st.

BUXUR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4,5 - eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan með því að prjóna aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og síðan er slegið einu sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 2, 8, 13 og 18 cm.
STÆRÐ 6/9 mán: 2, 8, 14 og 20 cm.
STÆRÐ 12/18 mán: 2, 8, 13, 18 og 23 cm.
STÆRÐ 2 ára: 2, 8, 14, 20 og 26 cm.
STÆRÐ 3/4 ára: 2, 9, 16, 23 og 29 cm.
Fellið einnig af fyrir einu hnappagati í hálsmáli.
------------------------------------------------------------

PEYSA

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan.
Fitjið upp 139-157-169 (187-199) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið að framan) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig (frá réttu): 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan. Haldið svona áfram JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fellt af fyrir hnappagati meðfram hægri kant að framan – sjá HNAPPAGAT að ofan. Þegar stykkið mælist ca 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 29-35-35 (41-41) lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum í kanti að framan) = 110-122-134 (146-158) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 3 umferðir slétt, haldið síðan áfram í sléttprjói og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm prjónið næstu umferð þannig (frá réttu): 26-29-32 (35-38) lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 42-48-54 (60-66) lykkjur (= bakstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 26-29-32 (35-38) lykkjur (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 36-42-42 (48-48) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist ca 3 cm er prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-10-8 (12-10) lykkjur jafnt yfir = 30-32-34 (36-38) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan þannig: 11-12-13 (14-15) lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, M.1 (= 4 lykkjur), 2 lykkjur brugðið og 11-12-13 (14-15) lykkjur slétt. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 5.-5.-6. (6.-6.) hverri umferð alls 6-6-7 (8-9) sinnum = 42-44-48 (52-56) lykkjur. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-28) cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi = 34-36-40 (44-48) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi. ATH! Á hinni erminni er M.2 prjónað í stað M.1.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 162-178-198 (218-238) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingarnar á milli framstykkis, bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Prjónið áfram fram og til baka – JAFNFRAMT í umferð 3 er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerkin fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 10-11-12 (13-15) sinnum.
HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-28 (32-35) cm er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 10-11-13 (14-15) lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkja 2 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu og affellingu fyrir hálsmáli eru 58-64-72 (82-84) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 27-29-33 (37-40) cm upp að öxl.

KANTUR Í HÁLSI:
Setjið lykkjur í kringum háls á hringprjón 3,5 og takið að auki upp 12 til 18 lykkjur í hvorri hlið framan í hálsi = ca 82 til 120 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – JAFNFRAMT eru prjónaðar 4 lykkjur yfir M.1 og M.2 á ermum saman tvær og tvær. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 73-73-79 (79-85) lykkjur (ekki fækka lykkjum yfir kanta að framan). Prjónið síðan stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið með 5 lykkjur garðaprjón og 3 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá röngu). JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir einu hnappagati yfir hin hnappagötin í kanti að framan. Þegar kantur í hálsi mælist 2 cm er fellt af.

VASI:
Fitjið upp 12-16-16 (20-20) lykkjur á sokkaprjón 3,5. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 4-5-5 (6-7) cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir = 16-20-20 (24-24) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til vasinn mælist 6-7-7 (8-9) cm og fellið síðan af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum, saumið tölur í og saumið vasann á peysuna – hann á að sitja 6-6-7 (7-8) cm frá neðri kanti og mitt á milli hliðarsauma og kanti að framan.
------------------------------------------------------------

BUXUR:

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
------------------------------------------------------------

BUXUR:
Buxurnar eru prjónaðar í hring á hringprjón ofan frá og niður.
Fitjið upp 120-126-132 (138-144) lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið í 8-9-9 (10-10) cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 24-26-28 (26-28) lykkjur jafnt yfir = 96-100-104 (112-116) lykkjur. Setjið prjónamerki við miðju að framan og 1 prjónamerki við miðju að aftan (= 48-52-52 (56-58) lykkjur á milli prjónamerkja. Prjónið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-14-15 (16-17) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 lykkjur við miðju að framan - aukið út með því að taka upp lykkju frá fyrri umferð og prjónið hana slétt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 9-9-9 (10-10) sinnum = 114-118-122 (132-136) lykkjur. Eftir allar útaukningar mælist stykkið ca 18-20-21 (23-24) cm. Í næstu umferð eru felldar af 4 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan (þ.e.a.s. 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. Setjið lykkjur af annarri skálminni á þráð og lykkjur fyrir hina skálmina á sokkaprjón 4,5.

SKÁLM:
= 53-55-57 (62-64) lykkjur. Prjónið sléttprjón og setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = innanverðu á skálm. Þegar skálmin mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2-3-4 (5-6) cm millibili alls 4 sinnum = 45-47-49 (54-56). Þegar skálmin mælist 10-13-16 (19-25) cm er skipt yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón – JAFNFRAMT er aukið út um 9-7-11 (6-10) lykkjur jafnt yfir = 54-54-60 (60-66) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, 2 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið þar til skálmin mælist 18-22-25 (29-35) cm. Fellið síðan laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Prjónið hina skálmina alveg eins og sú fyrri. Allar buxurnar mælast 36-42-46 (52-59) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið sama op á milli skálma.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Carmen wrote:

Buongiorno, non capisco cosa si intende quando c’è scritto che si deve intrecciare per modellare la scollatura a ogni lato all’inizio di ogni f dal centro davanti: 10-11-13 (14-15) m 1 volta e 1 m 2 volte.

22.01.2024 - 01:20

DROPS Design answered:

Buonasera Carmen, è il punto in cui si modella la scollatura: si devono chiudere ad esempio 10 maglie per lato per la taglia 1-3 mesi, poi 1 maglia per lato e poi ancora 1 maglia per lato. Buon lavoro!

24.01.2024 - 16:48

country flag Wivi-Anne Rooth wrote:

Hej jag har problem när jag ska sy ihop ärmarna, utgår från mitten av avmaskningen(4 maskor på var sida) blir inte som på skissen. Med vänlig hälsning /Wivi

25.05.2023 - 22:37

DROPS Design answered:

Hei Wivi-Anne Husk at målskissen kun er en skisse. Følg beskrivelsen i oppskriften og det skal bli rikitg. mvh DROPS Design

30.05.2023 - 08:46

country flag Daniela wrote:

Bonjour, est-que il y aurait pas par hasard une petite erreur au niveau des diminutions pour les emmanchures. Pour le modèle 1-3 je suis à 110 mailles avant diminutions si je tricote tout comme c'est indiqué " ( 29-29-32 (35-38) m = devant droit, rabattre 8 m pour l'emmanchure, 42-48-54 (60-66) m = dos, rabattre 8 m pour l'emmanchure, 29-29-32 (35-38) m = devant gauche. " Je devrait avoir 116 mailles et pas 110

24.07.2021 - 09:09

DROPS Design answered:

Bonjour Daniela, il fallait effectivement lire "26" mailles pour chaque devant, la correction a été faite, merci pour votre retour et bonne continuation!

26.07.2021 - 08:23

country flag Caroline wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas les explications du col "Continuer en côtes 3/3 avec 3 m end (vu sur l'end) et 5 m au point mousse de chaque côté". Cela signifie-t-il que nous devons commencer chaque rang par 3 m end, puis 5 m mousse? Mais que faire sur l'envers? Merci de votre réponse.

18.07.2021 - 09:35

DROPS Design answered:

Bonjour Caroline, pour commencer les cotes, sur l’envers vous tricotez: 5 mailles au point mousse (a l'endroit sur l'endroit et a l'endroit sur l'envers), ensuite repetez *3 mailles endroit, 3 mailles envers* et finissez par 3 mailles endroit et 5 mailles au point mousse. Bon tricot!

18.07.2021 - 21:24

country flag Nathalie wrote:

Bonjour, N’y aurait-il pas une erreur dans les diminutions de l'empiècemement car si l'on fait 1 diminution de chaque côté d'un marqueur soit 8 par rang,il nous reste beaucoup plus de mailles à la fin que spécifié dans les explications . Merci de m'éclairer.

03.05.2021 - 20:20

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, vous diminuez 8 m pour le raglan mais rabattez également les mailles de l'encolure de chaque côté, autrement dit: 162-178-198 (218-238) - 80-88-96 (104-120) pour le raglan - 24-26-30 (32-34) pour l'encolure = 58-64-72 (82-84) m. Bon tricot!

04.05.2021 - 07:44

country flag Mimmu wrote:

Teen jakkua 12-18kk ja ohjeessa sanotaan kavenna tasavälein 35 silmukkaa, mutta minä en saa kyllä mitenkään tasavälein vaadittua silmukkamäärää. onko olemassa jotain laskukaavaa millä voin laskea miten kavennukset tehdään?

14.07.2019 - 13:44

DROPS Design answered:

Hei, sinun tulee jakaa puikolla oleva silmukkamäärä kavennusten määrän kanssa, eli esim. 157/35 = n. 4,5. Tässä esimerkissä kavennus tehdään vuorotellen joka toisen ja joka kolmannen silmukan jälkeen.

22.01.2020 - 18:13

country flag Anne-Lie wrote:

Stämmer det att bröstmåttet på strl 98-104 blir 79 cm,(158 maskor/20)

19.04.2019 - 09:19

DROPS Design answered:

Hej. Ja det stämmer. Mvh DROPS Design

23.04.2019 - 14:12

country flag Agnès wrote:

Bonjour je voudrais savoir s'il n'y a pas une erreur dans les explications du gilet car une fois toutes les diminutions il me reste beaucoup de mailles, je suis loin des73 mailles. Merci d'avance

31.03.2019 - 17:44

DROPS Design answered:

Bonjour Agnès, pour le col, vous reprenez les mailles en attente et relevez 12 à 18 mailles sur chaque devant = vous avez environ 82 à 120 m, vous diminuez ensuite les mailles de M.1 et de M.2 et répartissez ensuite des diminutions pour qu'il vous reste 73 m (ajustez le nombre de mailles à diminuer sur le nombre de mailles que vous avez sur l'aiguille). Bon tricot!

01.04.2019 - 13:53

country flag Veronika wrote:

Dobrý večer, jsem začátečník.Skončila jsem u pletení sedla, dokončila jsem ujímání a jsem v části 25 cm. Nevím si rady s průkrčníkem a začátkem lemu průkrčníku. Prosím o vysvětlení. Děkuji

15.05.2018 - 19:57

country flag Anja wrote:

Gehe ich recht in der Annahme, daß die beim Halsausschnitt abgeketteten Maschen ("Gleichzeitig nach 23-25-28 (32-35) cm auf beiden Seiten vorne gegen den Hals abk.: 1 x 10-11-13 (14-15) M und danach 2 x 1 M") bei der Halskante ("auf beiden Seiten je 12 bis 18 M. aufnehmen = ca. 82 bis 120 M.") wieder aufgenommen werden?

03.05.2017 - 17:07

DROPS Design answered:

Liebe Anja, bei der Halskante werden 12 bis 18 M (je nach der Größe) in den 1x 10-15M + 2 x 1 M auf beiden Seiten aufgenommen, es waren 58- 84 M übrig nach Rundpasse = 82-120 M insgesamt für die Halskante. Viel Spaß beim stricken!

04.05.2017 - 10:59