Hulot skrifaði:
Bonjour je voudrai un model st les esplication de ce model pour mon ptit chien
18.02.2013 - 20:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Madame Hulot, les explications de ce modèle commencent en petite taille pour les chihuahuas par ex, vous retrouverez les mesures de l'ouvrage terminé à droite de la photo. Bon tricot !
19.02.2013 - 10:24
Hannah Dalsgaard skrifaði:
Jeg skal prøve at strikke denne trøje til vores lille hund. Jeg følger opskriften, men er strandet, hvor arb. skal deles til forben. Jeg forstår ikke hvordan jeg gør og kommer videre. Det er ikke rigtigt det jeg gør. Kan jeg få en bedre forklaring på hvad der menes med at sætte de næste 18 på en tråd midt under maven luk 2 masker af og strik de resterende 58 ? er det et huld til et forben? og hvad med det andet forben? vil meget gerne have en grundigere forklaring, da modellen ser sød ud.
20.01.2013 - 17:20DROPS Design svaraði:
Du laver to huller til forben: Du starter med at lukke 2 ret af (forben 1, derefter saetter du 18 m på 1 tråd (disse er til maven), lukt 2 ret af (forben 2) og strik nu frem og tilbage over de resterende 58 m (det er ryggen). Efter 8 cm sættes disse m på 1 tråd og du strikker 8 cm over de 18 m fra maven. Derefter skal alle m tilbage paa pinden og du saetter 2 nye m op over de aflukkede. Du har da lavet to aflange huller til forbenene.
22.01.2013 - 13:16
Pierrette skrifaði:
Bonjour je veux faire ce tricot comment faire pour travailler qu'avec deux aiguilles ??est ce p ossible?? d'autre part comment trouver 52 mailles pour le s pattes alors que l'on ne laisse moins en attente je débute et il me faut absolument un modèle avec capuche et pattes pour ma petite fille trés malade quia vu ce modèle pour son tout merci
18.01.2013 - 20:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Pierrette, pour tricoter ce manteau en allers et retours, il suffit de diviser le nombre de mailles en fonction du nombre de pièces que vous souhaitez et d'ajouter 1 m lis de chaque côté. Nous vous recommandons toutefois de tricoter en rond, nos vidéos pourront vous montrer comment faire. Les 52 m sont relevées autour des ouvertures des pattes, le long des 2 parties devant/dos tricotées en allers et retours. Bon tricot !
19.01.2013 - 14:47
Annette Nielsen skrifaði:
Sorry fandt den...var lidt for hurtig...undskyld
07.02.2009 - 21:40
Annette Nielsen skrifaði:
Øhhhh hvor er opskriften på hætten henne?????
07.02.2009 - 21:38
Tweedle Dee |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Fabel og DROPS Alpaca með köntum úr DROPS Pudel eða DROPS Melody. Stykkið er prjónað frá hálsi og að skotti í stroffprjóni með hettu og hekluðum kanti. Stærð XS – M.
DROPS 102-41 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá hálsi og að skotti. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring. Berustykkið skiptist fyrir op fyrir framfætur, bakstykki og magastykki er prjónað fram og til baka. Síðan er stykkið sett saman og fram- og bakstykki er prjónað í hring þar til lykkjur eru felldar af undir magastykki, afgangur af fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka. Prjónað er í kringum op fyrir framfætur í hring og hettan er prjónuð fram og til baka. Í lokið er heklaður kantur í kringum op fyrir framfætur, fram- og bakstykki og hettu. HÁLSMÁL: Fitjið upp 48-64-80 lykkjur á sokkaprjóna / hringprjóna 4 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Alpaca. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-6-8 cm. Prjónið 1 umferð brugðið (í þessa brugðnu umferð á að taka upp lykkjur fyrir hettu síðar). Prjónið 1 umferð stroffprjón eins og áður, í næstu umferð er aukið út í annarri hverri einingu með 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 54-72-90 lykkjur. BERUSTYKKI: Prjónið stroffprjón þar til stykkið mælist 6-10-14 cm, nú er aukið út í þeim einingum sem eftir eru frá 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 60-80-100 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni (2 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 8-12-16 cm skiptist stykkið fyrir op fyrir framfætur þannig: Fellið af 2 lykkjur slétt, setjið næstu 13-18-23 lykkjur á þráð (= mitt undir magastykki), fellið af 2 lykkjur slétt, prjónið þær 43-58-73 lykkjur sem eftir eru eins og áður. BAKSTYKKI: = 43-58-73 lykkjur. Haldið áfram að prjóna stroffprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 5-8-10 cm frá skiptingu, setjið lykkjurnar síðan á þráð. MAGASTYKKI: Setjið 13-18-23 lykkjur frá magastykki til baka á prjóninn og prjónið stroffprjón í 5-8-10 cm. FRAM- OG BAKSTYKKI: Síðan eru allar lykkjur settar til baka á prjóninn. Haldið áfram í stroffprjóni hringinn eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í hvorri hlið á milli magastykkis og bakstykkis = 60-80-100 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 20-28-35 cm fellið af 9-10-13 lykkjur mitt undir magastykki. Stykkið er prjónað til loka fram og til baka – JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í hvorri hlið í byrjun umferðar þannig: 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 2-5-7 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 3 lykkjur 1 sinni. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru 29-42-55 lykkjur. Stykkið mælist ca 25-35-45 cm. FRAMFÓTUR: Prjónið upp 36-52-64 lykkjur með 1 þræði Fabel með sokkaprjón 3 í kringum annað opið fyrir framfót. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-5-7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. HETTA: Brettið kragann / hálsmálið inn í peysuna við brugðnu umferðina. Haldið peysunni þannig að brugðna umferðin snúi frá þér. Takið upp lykkjur í þessari umferð með 1 þræði DROPS Fabel á stuttan hringprjón 3 – ekki taka upp lykkjur í 6-10-14 lykkjur mitt undir magastykki, en í þær lykkjur sem eftir eru hringinn = 42-54-66 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka -JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 70-90-110 lykkjur þannig: * Prjónið 1 lykkju, prjónið 2 lykkjur í næstu 2 lykkjur *, endurtakið út umferðina. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan – í hvorri hlið þar til hettan mælist 12-16-20 cm. Til að hettan verði sem fallegust er best að lykkja hettuna saman efst án þess að fella af, ef þetta er of flókið þá er hægt að fella af og sauma hettuna saman með lykkjuspori. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með DROPS Puddel eða DROPS Melody og heklunál 6 hringinn á hettunni, neðst í kringum op fyrir framfætur og neðst í kringum kant á fram- og bakstykki – passið uppá að kanturinn verði ekki of stífur. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið þannig: 1 loftlykkja sem kemur í stað fyrstu fastalykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 cm og heklið 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 102-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.