Justine skrifaði:
Veste dos taille 6/9 mois. À 17 cm de hauteur totale donc 70 mailles vous dites diminuer pour emmanchure soit 1fois 3 mailles puis 2 fois 2 mailles et 3 fois 1 maille. Donc de chaque côté emmanchure ça fait 10 mailles soit au total 20 mailles et non 16 mailles comme vous dites. Au total après diminutions j'ai 50 mailles et non 56 mailles. C'est bien diminuer et non rabattre. Je ne comprends pas. Merci de votre réponse.
09.01.2025 - 22:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Justine, il y avait une erreur, on doit rabattre dans la 2ème et 3 mailles maille 1 fois 2 mailles (et non 2 fois), la correction a été faite, merci - on va bien rabattre ces mailles là, j'ai également modifié cette partie pour que les mailles soit rabattues et non diminuées. Bon tricot!
10.01.2025 - 08:57
Ckaudia skrifaði:
Hallo, danke für die tolle Anleitung. Nur den letzten Satz \"Die äussersten 12 M. gegen aussen falten und an der Jacke annähen.\" verstehe ich nicht. Ich weiss nicht wo annähen und auf den Fotos kann ich es nicht erkennen. Danke für eine Antwort.
29.11.2024 - 00:33DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, diese 12 Maschen falten Sie bei der Vorderseite um so eine doppelte Kante zu haben, die Seiten von diesen 12 Maschen/von dieser Kante nähen Sie längs Anfang/Ende von der passenden Breite am Anfang der Kapuze. Viel Spaß beim Fertigstellen!
29.11.2024 - 08:39
Justine skrifaði:
Combinaison Reprendre les m des 2 jambes sur la même aiguille circulaire et tricoter en rond = 144-160-176 (192-208) m ; mettre un marqueur au milieu devant et au milieu dos. Puis, diminuer de chaque côté du marqueur du milieu devant 6 fois tous les 2 rangs = 132-148-164 (180-196) m. je ne comprends pas. Faut-il pas diminuer de chaque cote du marqueur devant et dos. D'après vos explications si je la tricote en aller retour j'aurais un dos plus large que le devant.
20.11.2024 - 12:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Justine, cette partie se tricote en rond, et effectivement, on diminue les mailles au milieu du devant puis on divise les mailles en 2 parties pour terminer le devant et le dos séparément = le devant et le dos auront autant de mailles: 60 à 92 mailles chacun selon la taille. Bon tricot!
20.11.2024 - 16:36
Angels skrifaði:
Buenas tardes, monté los puntos necesarios para hacer el mameluco en talla dos años, pero me quedaban muy anchas las piernas a pesar de ser hilo y agujas de 2,5cm ( medían 18cm de ancho). Monté los puntos para talla 18 meses y creo que me queda bien. Lo estoy haciendo con agujas rectas, se puede tejer tal cual el patrt? Y otra duda, me podríais explicar cómo se hace para tejer un punto a cada lado del marcapuntos para los aumentos? . Una tejedora novata, muchas gracias. Àngels
27.10.2024 - 18:46DROPS Design svaraði:
Hola Angels, no, para trabajar con agujas rectas necesitas añadir puntos para la costura desde el principio; puedes ver más información en la siguiente lección: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=23. Para aumentar trabajas hasta el punto antes del hilo marcador, hacer 1 hebra, trabajar los puntos antes y después del hilo marcador, hacer 1 hebra.
27.10.2024 - 23:08
Roswitha Frenzel skrifaði:
Hallo, Irgendetwas stimmt mit der Erklärung zum Diagramm nicht. Man soll bei den leeren Kästchens rechts über rechts und links über links stricken. Das ist doch Quatsch. Bei den Kästchen mit dem Kreuz soll dann aber links über rechts und rechts über links gestrickt werden. Das wäre ok, passt aber nicht mit der Erklärung für die freien Kästchen zusammen. Wäre es nicht sinnvoll die Rückreihen so zu stricken wie sie erscheinen?
10.09.2024 - 16:07DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Frenzel, hier wird es so gemein: 1 leeres Kästchen = 1 Masche glatt rechts; 1 kreuz = 1 Masche glatt links, so stricken Sie immer 4 Maschen glatt rechts, 4 Maschen glatt links über 4 Reihen dann 4 Maschen glatt links, 4 Maschen glatt rechts. So bei den Hinreihen stricken Sie die leeren Kästchen rechts und die Kreuze links, und bei den Rückreihen stricken Sie die leeren Kästchen links und die Kreuze rechts. Viel Spaß beim Stricken!
11.09.2024 - 07:56
Liina Kaev skrifaði:
Kas kapuutsile tuleb lisaks olemasolevale 90 s luua 133 s või peab kokku olema 133?
02.03.2022 - 22:51
Nora skrifaði:
Hola no entiendo cundo voy rematar la sisa remato 6 puntos en cada extremo y los demas puntos de la espalda y frente los dejo en espera? Pra hacer el frente y la espalda
19.11.2021 - 05:38DROPS Design svaraði:
Hola Nora, se cierran 6 pts a cada lado (3 en la parte del delantero y 3 en la parte de la espalda). Luego, cada parte se trabjaa por separado. Por ejemplo se dejan los puntos del delantero en espera y se trabaja la espalda y luego se recogen los puntos del delantero y se trabajan estos.
21.11.2021 - 19:33
Nora skrifaði:
En la pierna cuando se empieza a tejer de ida y vuelta cuantos cm se tejen más talla 2 años
07.11.2021 - 20:34
Robin Cook skrifaði:
Is the jacket body worked in 1 pc? If so, why do you cast off at the BEGINNING of the rows for the armhole openings?
09.08.2021 - 18:46DROPS Design svaraði:
Dear Robin, no, the jacket is knitted in pieces, the pattern tells you to knit the back, and the two sides separately. Happy Knitting!
10.08.2021 - 03:59
Nathalie skrifaði:
Petite information, concernant les devant. Ils sont trop larges, monter 33 mailles au lieu de 38 mailles. Le nombre de mailles des morceaux sont bons.
25.03.2021 - 22:39
Green Leaf Cardigan#greenleafcardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með hettu, buxur og snúnings sokkar úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-3 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. lykkju frá kanti og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 6, 11 og 16 cm STÆRÐ 6/9 mán: 6, 10, 15 og 19 cm STÆRÐ 12/18 mán: 6, 11, 16 og 21 cm STÆRÐ 2 ára: 7, 13, 18 og 23 cm STÆRÐ 3/4 ára: 7, 13, 19 og 25 cm Fellið líka af fyrir einu hnappagati í kanti í hálsmáli. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um buxur): Fækkað er um allar lykkjur frá réttu. Fækkið lykkjum á eftir 4 lykkjur garðaprjón þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 4 lykkjur garðaprjón þannig. 2 lykkjur slétt saman. STROFF: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjóanð fram og til baka, neðan frá og upp. BAKSTYKKI: Fitið upp 62-70-78 (86-94) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fækkið lykkjum í hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1 (1-3) sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 46-54-62 (70-70) lykkjur. Haldið áfram með M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 25-27-30 (32-35) cm fellið af miðju 22-24-26 (30-30) lykkjurnar af fyrir hálsmáli. Í næstu umferð er felld af að auki 1 lykkja við hálsmál = 11-14-17 (19-19) lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm – stillið af eftir 1 heilli rúðu á hæðina. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp upp 38-38-46 (46-54) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 lykkjur garðaprjón við miðju að framan) á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, M.1 yfir næstu 32-32-40 (40-48) lykkjur og endið með 1 kantlykkju. Haldið svona áfram með mynstur, munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 30-30-38 (38-42) lykkjur. Haldið áfram með M.1 með 1 kantlykkju við handveg. Þegar stykkið mælist 21-23-26 (28-30) cm fellið af ystu 11-8-13 (11-15) lykkjurnar við miðju að framan fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka lykkjum við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 4 sinnum = 11-14-17 (19-19) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm – stillið af eftir bakstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema fellið af fyrir handvegi og hálsmáli í gagnstæðri hlið (fellið ekki af fyrir hnappagötum). Passið uppá að mynstrið speglist þannig að það passi við hliðarsaumana. ERMI: Fitjið upp 42-42-42 (50-50) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Alpaca og prjónið 3 cm í garðaprjóni. Prjónið síðan M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 6-6-6 (8-8) cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með 3-2-1½ (2-2) cm millibili alls 4-6-8 (8-10) sinnum = 50-54-58 (66-70) lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í M.1 jafn óðum. Þegar stykkið mælist 18-18-20 (25-29) cm fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2 (2-3) sinnum og 1 lykkja 4-3-2 (2-2) sinnum, fækkið síðan lykkjum um 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 21-22-24 (29-33) cm, að lokum er fækkað um 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 22-23-25 (30-34) cm. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 70-90 lykkjur í kringum hálsmál (einnig eru prjónaðar upp lykkjur ofan á köntum að framan) á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 umferðir JAFNFRAMT eftir 1 umferð er fellt af fyrir hnappagati ofan við hin í kanti að framan. ATH: Ef ekki er óskað eftir að hafa hettu á peysunni þá er núna fellt af með sléttum lykkjum frá röngu. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í. HETTA: Haldið áfram þannig: Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem fitjaðar eru upp 12 nýjar lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan og aukið út jafnt yfir þannig að það verða alls 112-117-123 (128-133) lykkjur á prjóni. Haldið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Fellið af þegar hettan mælist ca 21-23-25 (27-28) cm. Saumið hettuna saman efst með fallegu spori – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Brjótið uppá 12 ystu lykkjurnar í garðaprjóni að réttu og saumið niður í kantinn við framstykki. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru skálmarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan er stykkið sett saman og buxnastykkið prjónað. VINSTRI SKÁLM: Fitjið upp 36-42-48 (52-58) lykkjur jafnt yfir á sokkaprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 cm GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir í umferð = 46-52-58 (62-68) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki innan á skálm þegar stykkið mælist 1 cm frá kanti með garðaprjóni. Aukið nú út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í 2.-2.-3. (3.-4.) hverri umferð alls 14-15-16 (18-19) sinnum = 74-82-90 (98-106) lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-17-20 (25-30) cm skiptið nú stykkinu innan á skálm (= op – til að einfaldara sé að setja skálmarnar á sama hringprjón í lokin) og prjónað er til loka fram- og til baka. Fitjið upp 1 lykkju í hvorri hlið fyrir saum = 76-84-92 (100-108) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-21-24 (29-34) cm fellið af 2 lykkjur í hvorri hlið = 72-80-88 (96-104) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hægri skálm á sama hátt. HÆGRI SKÁLM: Prjónið á sama hátt og vinstri skálm. BUXUR: Setjið skálmarnar inn á sama hringprjón = 144-160-176 (192-208) lykkjur og setjið 1 prjónamerki mitt framan og 1 prjónamerki mitt að aftan. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt framan í annarri hverri umferð 6 sinnum = 132-148-164 (180-196) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 33-37-41 (45-49) lykkjur á milli allra 4 prjónamerkja. Þegar stykkið mælist 41-49-56 (66-74) cm prjónið 1 umferð brugðið, 2 umferðir í garðaprjón, 1 umferð brugðið og 2 umferðir í sléttprjóni. Fellið síðan af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (= 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hliðum) og hvort stykki er prjónað áfram fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 60-68-76 (84-92) lykkjur. Prjónið M.1 en 4 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð 8 sinnum – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan = 44-52-60 (68-76) lykkjur. Haldið áfram með M.1 innan við 4 lykkjur garðaprjón. Þegar stykkið mælist 48-57-65 (75-84) cm fellið af miðju 8-12-12 (16-16) lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með úrtöku við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 11-13-17 (19-23) lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 53-62-70 (81-90) cm. BAKSTYKKI: = 60-68-76 (84-92) lykkjur. Prjónið M.1 og fækkið lykkjum fyrir handveg á sama hátt og á framstykki = 44-52-60 (68-76) lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-60-68 (79-88) cm fellið af miðju 16-20-20 (24-24) lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka lykkjum í hvorri hlið við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1 sinni = 11-13-17 (19-23) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 53-62-70 (81-90) cm. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 45-65 lykkjur meðfram hálsmáli að framan á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir slétt fram og til baka og fellið af með sléttu frá röngu. Prjónið upp frá réttu ca 30-40 lykkjur meðfram hálsmáli að aftan á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir slétt fram og til baka og fellið af með sléttu frá röngu. KANTUR FYRIR TÖLUR: Prjónið upp 14-16-20 (22-25) lykkjur frá réttu meðfram hægri öxl að framan og prjónið 3 umferðir slétt. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur, fellið af 2 lykkjur, prjónið 6-8-12 (14-18) lykkjur, fellið af 2 lykkjur og prjónið 2 lykkjur. Fitjið upp 2 lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. Fellið af með sléttu frá röngu þegar kantur með garðaprjóni mælist 2 cm. Endurtakið á vinstri öxl. Prjónið upp 14-16-20 (22-25) lykkjur meðfram hægri öxl á bakstykki og prjónið 2 cm í garðaprjóni. Fellið af með sléttu frá röngu. Endurtakið á vinstri öxl. FRÁGANGUR: Saumið saman op innan við hvora skálm upp þar sem lykkjur voru felldar af og saumið síðan saman opið á milli skálma frá miðju að framan að miðju að aftan á buxum. Saumið tölur í báðar axlir að aftan. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi / legg og að tá. SOKKAR: Fitjið upp 44-48-52 (56-60) lykkjur skipt niður á sokkaprjóna 2,5 með Alpaca. Prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – í 2 cm. Prjónið síðan 1 umferð þar sem stroffið færist til um 1 lykkju til vinstri þannig: Ofan við 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið er prjónað 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið. * Prjónið 3 umferðir með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið, færið stroffið til um 1 lykkju til vinstri *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 18-19-20 (22-23) cm. Prjónið nú allar brugðnu lykkjurnar saman 2 og 2, prjónið 2 umferðir með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið, prjónið síðan allar lykkjur slétt saman 2 og 2, prjónið 2 umferðir slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið og prjónið síðan saman allar lykkjur slétt 2 og 2 = 11-12-13 (14-15) lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, festið vel. Sokkurinn mælist ca 20-21-22 (24-26) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. ------------------------------------------------------- Froskur: DROPS Baby 13-25 Bangsi: DROPS Baby 13-28 Teppi: DROPS Baby 14-19 ------------------------------------------------------- |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greenleafcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.