Green Leaf |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með hettu, buxur og snúnings sokkar úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-3 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PEYSA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. lykkju frá kanti og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 6, 11 og 16 cm STÆRÐ 6/9 mán: 6, 10, 15 og 19 cm STÆRÐ 12/18 mán: 6, 11, 16 og 21 cm STÆRÐ 2 ára: 7, 13, 18 og 23 cm STÆRÐ 3/4 ára: 7, 13, 19 og 25 cm Fellið líka af fyrir einu hnappagati í kanti í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjóanð fram og til baka, neðan frá og upp. BAKSTYKKI: Fitið upp 62-70-78 (86-94) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fækkið lykkjum í hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1 (1-3) sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 46-54-62 (70-70) lykkjur. Haldið áfram með M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 25-27-30 (32-35) cm fellið af miðju 22-24-26 (30-30) lykkjurnar af fyrir hálsmáli. Í næstu umferð er felld af að auki 1 lykkja við hálsmál = 11-14-17 (19-19) lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm – stillið af eftir 1 heilli rúðu á hæðina. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp upp 38-38-46 (46-54) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 lykkjur garðaprjón við miðju að framan) á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, M.1 yfir næstu 32-32-40 (40-48) lykkjur og endið með 1 kantlykkju. Haldið svona áfram með mynstur, munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 30-30-38 (38-42) lykkjur. Haldið áfram með M.1 með 1 kantlykkju við handveg. Þegar stykkið mælist 21-23-26 (28-30) cm fellið af ystu 11-8-13 (11-15) lykkjurnar við miðju að framan fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka lykkjum við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 4 sinnum = 11-14-17 (19-19) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm – stillið af eftir bakstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema fellið af fyrir handvegi og hálsmáli í gagnstæðri hlið (fellið ekki af fyrir hnappagötum). Passið uppá að mynstrið speglist þannig að það passi við hliðarsaumana. ERMI: Fitjið upp 42-42-42 (50-50) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Alpaca og prjónið 3 cm í garðaprjóni. Prjónið síðan M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 6-6-6 (8-8) cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með 3-2-1½ (2-2) cm millibili alls 4-6-8 (8-10) sinnum = 50-54-58 (66-70) lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í M.1 jafn óðum. Þegar stykkið mælist 18-18-20 (25-29) cm fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2 (2-3) sinnum og 1 lykkja 4-3-2 (2-2) sinnum, fækkið síðan lykkjum um 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 21-22-24 (29-33) cm, að lokum er fækkað um 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 22-23-25 (30-34) cm. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 70-90 lykkjur í kringum hálsmál (einnig eru prjónaðar upp lykkjur ofan á köntum að framan) á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 umferðir JAFNFRAMT eftir 1 umferð er fellt af fyrir hnappagati ofan við hin í kanti að framan. ATH: Ef ekki er óskað eftir að hafa hettu á peysunni þá er núna fellt af með sléttum lykkjum frá röngu. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í. HETTA: Haldið áfram þannig: Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem fitjaðar eru upp 12 nýjar lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan og aukið út jafnt yfir þannig að það verða alls 112-117-123 (128-133) lykkjur á prjóni. Haldið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Fellið af þegar hettan mælist ca 21-23-25 (27-28) cm. Saumið hettuna saman efst með fallegu spori – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Brjótið uppá 12 ystu lykkjurnar í garðaprjóni að réttu og saumið niður í kantinn við framstykki. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BUXUR: GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkað er um allar lykkjur frá réttu. Fækkið lykkjum á eftir 4 lykkjur garðaprjón þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 4 lykkjur garðaprjón þannig. 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru skálmarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan er stykkið sett saman og buxnastykkið prjónað. VINSTRI SKÁLM: Fitjið upp 36-42-48 (52-58) lykkjur jafnt yfir á sokkaprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 cm GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir í umferð = 46-52-58 (62-68) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki innan á skálm þegar stykkið mælist 1 cm frá kanti með garðaprjóni. Aukið nú út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í 2.-2.-3. (3.-4.) hverri umferð alls 14-15-16 (18-19) sinnum = 74-82-90 (98-106) lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-17-20 (25-30) cm skiptið nú stykkinu innan á skálm (= op – til að einfaldara sé að setja skálmarnar á sama hringprjón í lokin) og prjónað er til loka fram- og til baka. Fitjið upp 1 lykkju í hvorri hlið fyrir saum = 76-84-92 (100-108) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-21-24 (29-34) cm fellið af 2 lykkjur í hvorri hlið = 72-80-88 (96-104) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hægri skálm á sama hátt. HÆGRI SKÁLM: Prjónið á sama hátt og vinstri skálm. BUXUR: Setjið skálmarnar inn á sama hringprjón = 144-160-176 (192-208) lykkjur og setjið 1 prjónamerki mitt framan og 1 prjónamerki mitt að aftan. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt framan í annarri hverri umferð 6 sinnum = 132-148-164 (180-196) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 33-37-41 (45-49) lykkjur á milli allra 4 prjónamerkja. Þegar stykkið mælist 41-49-56 (66-74) cm prjónið 1 umferð brugðið, 2 umferðir í garðaprjón, 1 umferð brugðið og 2 umferðir í sléttprjóni. Fellið síðan af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (= 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hliðum) og hvort stykki er prjónað áfram fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 60-68-76 (84-92) lykkjur. Prjónið M.1 en 4 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð 8 sinnum – sjá ÚRTAKA að ofan = 44-52-60 (68-76) lykkjur. Haldið áfram með M.1 innan við 4 lykkjur garðaprjón. Þegar stykkið mælist 48-57-65 (75-84) cm fellið af miðju 8-12-12 (16-16) lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með úrtöku við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 11-13-17 (19-23) lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 53-62-70 (81-90) cm. BAKSTYKKI: = 60-68-76 (84-92) lykkjur. Prjónið M.1 og fækkið lykkjum fyrir handveg á sama hátt og á framstykki = 44-52-60 (68-76) lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-60-68 (79-88) cm fellið af miðju 16-20-20 (24-24) lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka lykkjum í hvorri hlið við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1 sinni = 11-13-17 (19-23) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 53-62-70 (81-90) cm. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu ca 45-65 lykkjur meðfram hálsmáli að framan á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir slétt fram og til baka og fellið af með sléttu frá röngu. Prjónið upp frá réttu ca 30-40 lykkjur meðfram hálsmáli að aftan á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir slétt fram og til baka og fellið af með sléttu frá röngu. KANTUR FYRIR TÖLUR: Prjónið upp 14-16-20 (22-25) lykkjur frá réttu meðfram hægri öxl að framan og prjónið 3 umferðir slétt. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur, fellið af 2 lykkjur, prjónið 6-8-12 (14-18) lykkjur, fellið af 2 lykkjur og prjónið 2 lykkjur. Fitjið upp 2 lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. Fellið af með sléttu frá röngu þegar kantur með garðaprjóni mælist 2 cm. Endurtakið á vinstri öxl. Prjónið upp 14-16-20 (22-25) lykkjur meðfram hægri öxl á bakstykki og prjónið 2 cm í garðaprjóni. Fellið af með sléttu frá röngu. Endurtakið á vinstri öxl. FRÁGANGUR: Saumið saman op innan við hvora skálm upp þar sem lykkjur voru felldar af og saumið síðan saman opið á milli skálma frá miðju að framan að miðju að aftan á buxum. Saumið tölur í báðar axlir að aftan. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SOKKAR: Lengd fótar: ca 10-11-12 (14-15) cm STROFF: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi/legg og að tá. SOKKAR: Fitjið upp 44-48-52 (56-60) lykkjur skipt niður á sokkaprjóna 2,5 með Alpaca. Prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – í 2 cm. Prjónið síðan 1 umferð þar sem stroffið færist til um 1 lykkju til vinstri þannig: Ofan við 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið er prjónað 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið. * Prjónið 3 umferðir með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið, færið stroffið til um 1 lykkju til vinstri *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 18-19-20 (22-23) cm. Prjónið nú allar brugðnu lykkjurnar saman 2 og 2, prjónið 2 umferðir með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið, prjónið síðan allar lykkjur slétt saman 2 og 2, prjónið 2 umferðir slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið og prjónið síðan saman allar lykkjur slétt 2 og 2 = 11-12-13 (14-15) lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, festið vel. Sokkurinn mælist ca 20-21-22 (24-26) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. Froskur: DROPS Baby 13-25 Bangsi: DROPS Baby 13-28 Teppi: DROPS Baby 14-19 |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (43)
Cantau wrote:
Veste capuche
08.02.2009 - 20:37Gun wrote:
Aluksi hupun päätösreuna ommellaan yhteen ja tämän jälkeen nyt hupun yläreunassa oleva reunus (= 12 s ainaoikeinneuletta) taitetaan ylös ja sitten reunus kiinnitetään takin kumpaankin sivuun, jotta se pysyisi paikoillaan.
12.03.2008 - 11:36Sandra wrote:
Apua! en ymmärrä laisinkaan tuota hupun ohjetta. olen nyt neulonut 23 senttiä huppua, mutta en ymmärrä mitä noilla 12 silmukalla tarkoitetaan ja miten ompelen huppuni kasaan?? kiitos paljon avusta jo etukäteen...
11.03.2008 - 20:40Alexandra Fors wrote:
Jag förstår inte riktigt ur beskrivningen hur många maskor jag ska lägga upp för framstycket. Är tanken att jag ska göra precis som bakstycket fast dela i två?
12.02.2008 - 15:25karen wrote:
the 12 new sts each side are to be folded towards the RS afterwards. This may not be too clear on the pusblished picture - the jacket was knitted following the pattern. Karen
08.12.2006 - 00:05Sandra wrote:
about those twelve stitches on the hood towards the front?The picture does not look like my sweater and it seems awfully bulky did you do something different on the one in the picture???
07.12.2006 - 15:57Drops Design wrote:
I oppskriften er det nøye beskrevet hvordan man feller til knapphull, det er bare å følge instruksjonene. Lykke til!
25.10.2006 - 08:18Heidi wrote:
Hei! Jeg forstår ikk hvordan jeg lager knapphull til jakke. Er det kun en maske som skal felles av? skal man legge opp en maske i raden over?
24.10.2006 - 17:00birgitta ritzman wrote:
mycket fin Alpacka ett toppengarn
22.03.2006 - 17:41camilla wrote:
meget sødt sæt
21.03.2006 - 16:42