DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 14-3
DROPS design: Mynstur nr z-017-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Peysa, buxur og sokkar:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
PEYSA:
200-200-250 (250-300) gr litur nr 7300, lime
BUXUR:
150-150-200 (200-250) gr litur nr 7300, lime
SOKKAR:
50-50-50 (100-100) gr litur nr 7300, lime

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA NR 513: 8-9-9 (9-9) st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PEYSA:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. lykkju frá kanti og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 6, 11 og 16 cm
STÆRÐ 6/9 mán: 6, 10, 15 og 19 cm
STÆRÐ 12/18 mán: 6, 11, 16 og 21 cm
STÆRÐ 2 ára: 7, 13, 18 og 23 cm
STÆRÐ 3/4 ára: 7, 13, 19 og 25 cm
Fellið líka af fyrir einu hnappagati í kanti í hálsmáli.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjóanð fram og til baka, neðan frá og upp.

BAKSTYKKI:
Fitið upp 62-70-78 (86-94) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Alpaca.
Prjónið 6 umferðir í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fækkið lykkjum í hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1 (1-3) sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 46-54-62 (70-70) lykkjur. Haldið áfram með M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 25-27-30 (32-35) cm fellið af miðju 22-24-26 (30-30) lykkjurnar af fyrir hálsmáli. Í næstu umferð er felld af að auki 1 lykkja við hálsmál = 11-14-17 (19-19) lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm – stillið af eftir 1 heilli rúðu á hæðina.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp upp 38-38-46 (46-54) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 lykkjur garðaprjón við miðju að framan) á prjón 2,5 með Alpaca.
Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, M.1 yfir næstu 32-32-40 (40-48) lykkjur og endið með 1 kantlykkju. Haldið svona áfram með mynstur, munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 30-30-38 (38-42) lykkjur. Haldið áfram með M.1 með 1 kantlykkju við handveg. Þegar stykkið mælist 21-23-26 (28-30) cm fellið af ystu 11-8-13 (11-15) lykkjurnar við miðju að framan fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka lykkjum við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 4 sinnum = 11-14-17 (19-19) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm – stillið af eftir bakstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema fellið af fyrir handvegi og hálsmáli í gagnstæðri hlið (fellið ekki af fyrir hnappagötum). Passið uppá að mynstrið speglist þannig að það passi við hliðarsaumana.

ERMI:
Fitjið upp 42-42-42 (50-50) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Alpaca og prjónið 3 cm í garðaprjóni. Prjónið síðan M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 6-6-6 (8-8) cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með 3-2-1½ (2-2) cm millibili alls 4-6-8 (8-10) sinnum = 50-54-58 (66-70) lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í M.1 jafn óðum.
Þegar stykkið mælist 18-18-20 (25-29) cm fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2 (2-3) sinnum og 1 lykkja 4-3-2 (2-2) sinnum, fækkið síðan lykkjum um 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 21-22-24 (29-33) cm, að lokum er fækkað um 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 22-23-25 (30-34) cm.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 70-90 lykkjur í kringum hálsmál (einnig eru prjónaðar upp lykkjur ofan á köntum að framan) á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 umferðir JAFNFRAMT eftir 1 umferð er fellt af fyrir hnappagati ofan við hin í kanti að framan. ATH: Ef ekki er óskað eftir að hafa hettu á peysunni þá er núna fellt af með sléttum lykkjum frá röngu.
Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

HETTA:
Haldið áfram þannig: Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem fitjaðar eru upp 12 nýjar lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan og aukið út jafnt yfir þannig að það verða alls 112-117-123 (128-133) lykkjur á prjóni. Haldið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Fellið af þegar hettan mælist ca 21-23-25 (27-28) cm. Saumið hettuna saman efst með fallegu spori – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Brjótið uppá 12 ystu lykkjurnar í garðaprjóni að réttu og saumið niður í kantinn við framstykki.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

BUXUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkað er um allar lykkjur frá réttu.
Fækkið lykkjum á eftir 4 lykkjur garðaprjón þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 4 lykkjur garðaprjón þannig. 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru skálmarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan er stykkið sett saman og buxnastykkið prjónað.

VINSTRI SKÁLM:
Fitjið upp 36-42-48 (52-58) lykkjur jafnt yfir á sokkaprjón 2,5 með Alpaca.
Prjónið 4 cm GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 10 lykkjur jafnt yfir í umferð = 46-52-58 (62-68) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki innan á skálm þegar stykkið mælist 1 cm frá kanti með garðaprjóni. Aukið nú út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í 2.-2.-3. (3.-4.) hverri umferð alls 14-15-16 (18-19) sinnum = 74-82-90 (98-106) lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-17-20 (25-30) cm skiptið nú stykkinu innan á skálm (= op – til að einfaldara sé að setja skálmarnar á sama hringprjón í lokin) og prjónað er til loka fram- og til baka. Fitjið upp 1 lykkju í hvorri hlið fyrir saum = 76-84-92 (100-108) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-21-24 (29-34) cm fellið af 2 lykkjur í hvorri hlið = 72-80-88 (96-104) lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið hægri skálm á sama hátt.

HÆGRI SKÁLM:
Prjónið á sama hátt og vinstri skálm.

BUXUR:
Setjið skálmarnar inn á sama hringprjón = 144-160-176 (192-208) lykkjur og setjið 1 prjónamerki mitt framan og 1 prjónamerki mitt að aftan. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki mitt framan í annarri hverri umferð 6 sinnum = 132-148-164 (180-196) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 33-37-41 (45-49) lykkjur á milli allra 4 prjónamerkja. Þegar stykkið mælist 41-49-56 (66-74) cm prjónið 1 umferð brugðið, 2 umferðir í garðaprjón, 1 umferð brugðið og 2 umferðir í sléttprjóni. Fellið síðan af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (= 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hliðum) og hvort stykki er prjónað áfram fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 60-68-76 (84-92) lykkjur. Prjónið M.1 en 4 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg í annarri hverri umferð 8 sinnum – sjá ÚRTAKA að ofan = 44-52-60 (68-76) lykkjur. Haldið áfram með M.1 innan við 4 lykkjur garðaprjón. Þegar stykkið mælist 48-57-65 (75-84) cm fellið af miðju 8-12-12 (16-16) lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með úrtöku við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 11-13-17 (19-23) lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 53-62-70 (81-90) cm.

BAKSTYKKI:
= 60-68-76 (84-92) lykkjur. Prjónið M.1 og fækkið lykkjum fyrir handveg á sama hátt og á framstykki = 44-52-60 (68-76) lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-60-68 (79-88) cm fellið af miðju 16-20-20 (24-24) lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka lykkjum í hvorri hlið við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1 sinni = 11-13-17 (19-23) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 53-62-70 (81-90) cm.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 45-65 lykkjur meðfram hálsmáli að framan á hringprjón 2,5 með Alpaca.
Prjónið 6 umferðir slétt fram og til baka og fellið af með sléttu frá röngu.
Prjónið upp frá réttu ca 30-40 lykkjur meðfram hálsmáli að aftan á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umferðir slétt fram og til baka og fellið af með sléttu frá röngu.

KANTUR FYRIR TÖLUR:
Prjónið upp 14-16-20 (22-25) lykkjur frá réttu meðfram hægri öxl að framan og prjónið 3 umferðir slétt. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur, fellið af 2 lykkjur, prjónið 6-8-12 (14-18) lykkjur, fellið af 2 lykkjur og prjónið 2 lykkjur. Fitjið upp 2 lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. Fellið af með sléttu frá röngu þegar kantur með garðaprjóni mælist 2 cm. Endurtakið á vinstri öxl. Prjónið upp 14-16-20 (22-25) lykkjur meðfram hægri öxl á bakstykki og prjónið 2 cm í garðaprjóni. Fellið af með sléttu frá röngu. Endurtakið á vinstri öxl.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op innan við hvora skálm upp þar sem lykkjur voru felldar af og saumið síðan saman opið á milli skálma frá miðju að framan að miðju að aftan á buxum. Saumið tölur í báðar axlir að aftan.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR:

Lengd fótar: ca 10-11-12 (14-15) cm

STROFF:
* 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi/legg og að tá.

SOKKAR:
Fitjið upp 44-48-52 (56-60) lykkjur skipt niður á sokkaprjóna 2,5 með Alpaca.
Prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – í 2 cm. Prjónið síðan 1 umferð þar sem stroffið færist til um 1 lykkju til vinstri þannig: Ofan við 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið er prjónað 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið. * Prjónið 3 umferðir með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið, færið stroffið til um 1 lykkju til vinstri *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 18-19-20 (22-23) cm. Prjónið nú allar brugðnu lykkjurnar saman 2 og 2, prjónið 2 umferðir með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið, prjónið síðan allar lykkjur slétt saman 2 og 2, prjónið 2 umferðir slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið og prjónið síðan saman allar lykkjur slétt 2 og 2 = 11-12-13 (14-15) lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, festið vel. Sokkurinn mælist ca 20-21-22 (24-26) cm.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Froskur: DROPS Baby 13-25
Bangsi: DROPS Baby 13-28
Teppi: DROPS Baby 14-19

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Christina wrote:

Hallo liebes Drops-Team, eine Frage zum abk. der Ärmel auf dem Rückenteil der Jacke. Dort steht "bei jeder 2. Reihe für die Ärmel abk." Ich müsste ja aber jeweils in der Hin- und Rückreihe abk (würde ich in der gleichen Reihe abk., würde ich jedes Mal eine Masche am Ende der Reihe übrig behalten). Was ist also mit jeder 2. Reihe gemeint? Vielen Dank schonmal!

11.05.2014 - 22:36

DROPS Design answered:

Liebe Christina, Sie ketten einfach immer am Anfang jeder R (also am Anfang der Hin- und am Anfang der Rück-R) ab, nie am Ende. So wird dann an beiden Seiten jeweils in der 2. R abgekettet. Weiterhin gutes Gelingen!

12.05.2014 - 15:02

country flag Lenie Kolijn wrote:

Leuk patroon,maar de uitleg klop niet helemaal,tel.tekenig M1zit er niet bij.

25.03.2014 - 15:13

DROPS Design answered:

Hoi Lenie. Het telpatroon M.1 staat onderaan het patroon - bij de maattekening.

25.03.2014 - 16:56

Marie-Claude wrote:

Pour la mesure "stature" quelle est la métode de mesure? De oûo à où doit-on mesurer l'enfant? Merci Je veux réaliser la veste

15.05.2013 - 02:39

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Claude, la stature est la taille du bébé/de l'enfant, par ex, la taille 1/3 mois correspond à 50/56 cm de "hauteur totale" de l'enfant. Bon tricot !

15.05.2013 - 07:40

country flag DROPS Design wrote:

Etter forklaringen til knapphull starte oppskriften med bakstykke.

27.10.2011 - 13:00

country flag Idipsa wrote:

Hei jeg fårstår ikke hvor mangen masker man skal legge opp til jakken? det står bare strikk fram og tilbake (rille) og skal man strikke bakstykke,høyre forstykke,ventsere forstykke og hals for seg selv?

27.10.2011 - 11:29

country flag DROPS Design wrote:

Hej Anna, Du har rätt, vi har ändrat diagramtexten nu - tack för hjälpen!

09.12.2010 - 08:57

country flag Anna wrote:

Jag undrar om det möjligtvis kommit in ett fel i den svenska förklaringen till diagram M.1? Nu står det = rm på rätsidan, am på avigsidan = am på avigsidan, rm på rätsidan vilket är samma sak för båda symbolerna. Borde inte det senare vara = rm på avigsidan, am på rätsidan om man vill uppnå ett mönster med "fyrkanter"?

08.12.2010 - 23:27

country flag DROPS Design wrote:

Du skal ha 74-82-90 (98-106) masker før du deler til skrittet.

26.10.2009 - 15:07

country flag Christine wrote:

Heisan. Jeg har nettopp startet å strikke sparkebuksen, og lurer på om modellen er veldig vid i beina? Nå har jeg lagt ut til 62 masker og det ser mer ut som et erme til en voksen person enn et bein til en sparkebukse. Er dette riktig eller er det jeg som har gjort noe feil?

26.10.2009 - 10:11

country flag Camilla wrote:

När halskanten ska stickas står det att man ska sticka upp 70-90 maskor, är det meningen att man på något sätt ska lägga upp maskorna i halsen, så de sitter fast i bak- och framstycke? Hur gör man isf då?

08.07.2009 - 15:02