Linda skrifaði:
Hi. The images are not showing for all the patterns. How can I fix this please?
11.11.2026 - 07:26
Batteau skrifaði:
En couleur blanc ou noir
08.11.2026 - 17:54
Rachael skrifaði:
Also, the instruction, ‘AFTER 7th ROW’ prior to YOKE, doesn’t mention if or when you should join in the round. However, the first instruction for ‘YOKE’ says ‘work in stocking stitch in the round’. Does this mean I should just knit across the gap to join the peice, or am I suppose to join in the round prior to moving the stitches from left needle to right needle by?
21.10.2026 - 22:56DROPS Design svaraði:
Hi Rachel, You cut the strand, then move the stitches from the left to the right needle so the first round begins at the correct place (right back shoulder), so this is done before beginning to work in the round. Regards, Drops Team.
22.10.2026 - 05:38
Rachael skrifaði:
Hi, please can you help me with the instruction ‘AFTER 7th ROW’ prior to starting YOKE. I currently have last 10 CO STS (size M) at the top of my left needle with 4th marker, indicating right side of front neck, below. Do I need to turn the work, so these STS and marker are sitting on the right needle instead of the left? Then I can move the sts before and after 1st marker, indicating left sleeve, over from the left needle to the right?
21.10.2026 - 21:09DROPS Design svaraði:
Dear Rachael, after you have cast on the 10 sts for neck, cut the yarn and slip the stitches on left needle onto right needle: end of front piece (left shoulder), left sleeve, back piece until 3rd marker = between back piece and right sleeve, now join the yarn and start in the round from here. Happy knitting!
22.10.2026 - 09:27
Moon Reflection Sweater#moonreflectionsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk eða DROPS Puna og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-17 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. FRÁ RÖNGU: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. FRÁ RÉTTU: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli og prjónað er fram og til baka á hringprjóna með útaukningu fyrir laskalínu – jafnframt eru lykkjur fitjaðar upp í hvorri hlið á prjóni að tilgreindum lykkjufjölda og hálsmálið formað til loka. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Kantur í hálsmáli er síðan brotinn niður tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÁLSMÁL: Fitjið upp 56-58-60-62-66-66-68 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Daisy / DROPS Puna saman með 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 1 lykkju (= vinstri hlið við hálsmál að framan), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 14-14-14-14-16-16-16 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 22-24-26-28-28-28-30 lykkjur (= bakstykki), Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 14-14-14-14-16-16-16 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki í næstu lykkju, það er eftir 1 lykkja á eftir síðasta merki (= hægri hlið við hálsmál að framan). UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Prjónið sléttprjón fram og til baka – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli og JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið leiðbeiningar að ofan með upplýsingum hvernig auka á út fyrir laskalínu og prjónið eins og útskýrt er að neðan. PRJÓNIÐ OG AUKIÐ ÚT ÞANNIG: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 66-68-70-72-76-76-78 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í LASKALÍNA, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 68-70-72-74-78-78-80 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 78-80-82-84-88-88-90 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 80-82-84-86-90-90-92 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 91-93-95-97-101-101-103 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar fyrir hálsmáli = 94-96-98-100-104-104-106 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 6-8-10-12-12-12-14 nýjar lykkjur í lok umferðar = 108-112-116-120-124-124-128 lykkjur. Á EFTIR UMFERÐ 7: Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út alls 4 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur. Klippið þráðinn. Síðan á að prjóna stykkið frá hægri öxl að aftan, færið því lykkjurnar frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón fram að 3. merki sem var sett (= merki á milli bakstykkis og hægri ermi – ATH: Lykkjurnar eru ekki prjónaðar, heldur færðar til). BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjur 0-1-0-4-12-14-14 sinnum til viðbótar (= alls 4-5-4-8-16-18-18 sinnum útaukning fyrir laskalínu ásamt 4 útaukningum sem gerðar voru í hálsmáli) = 108-120-116-152-220-236-240 lykkjur. ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. Munið að fylgja prjónfestunni. Síðan heldur útaukningin áfram þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki, en á ermum er einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur auknar út), endurtakið þessa útaukningu alls 20-20-22-20-12-12-14 sinnum á framstykki og bakstykki og 10-10-11-10-6-6-7 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 228-240-248-272-292-308-324 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 24-25-26-28-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki í stærð XL, XXL og XXXL (í stærð S-XS, S, M og L skiptist stykkið við laskalínurnar), þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 1-1-1-1-4-5-6 lykkjur slétt (= þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 42-44-44-50-54-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 72-76-80-86-92-98-106 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 42-44-44-50-54-56-56 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 71-75-79-85-88-93-100 lykkjur slétt (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-172-184-200-216-232-252 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 8-10-12-14-16-18-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota merkiþræðina þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið fram að fyrsta merkiþræðinum, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 43-45-47-49-49-51-53 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið stykkinu við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki og prjónið lykkjur frá framstykki fram og til baka eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: = 80-86-92-100-108-116-126 lykkjur. Í næstu umferð (= ranga) byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 25-27-29-31-35-37-39 lykkjur jafnt yfir í umferð = 105-113-121-131-143-153-165 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt – munið eftir útaukningunni), þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 7-7-7-7-8-8-8 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist 50-52-54-56-57-59-61 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Setjið 42-44-44-50-54-56-56 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 50-54-56-64-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-3-3 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm 1-2-2-5-6-8-8 sinnum = 44-46-48-50-52-52-54 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-37-37-35-35-34-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir í sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-10-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-54-58-60-62-62-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, notið e.t.v. ítalska affellingu. Ermin mælist ca 42-41-41-39-40-39-38 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við hægri öxl að aftan og prjónið upp ca 76-80-84-88-92-92-96 lykkjur í kringum hálsmál. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 92-96-100-104-112-112-116 lykkjur, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 og stillið af að það verði oddatala í fjölda lykkja á milli hverra laskalína frá berustykki. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) og stillið af að laskalykkjurnar haldi áfram sem slétt lykkja í stroffi. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist ca 9-9-9-10-10-11-11 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 4-4-4-4½-4½-5-5 cm. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moonreflectionsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.