Cinnamon Dream Cardigan#cinnamondreamcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, trompetermum og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-21 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. ÍTÖLSK UPPFITJUN (einföld aðferð): Með þessari uppfitjun er helmingur af lykkjunum fitjaður upp sem gefinn er upp í mynstri, síðan eykst lykkjufjöldinn í fyrstu umferð á eftir uppfitjuninni. Fitjið upp lykkjur utan um 2 prjóna sem haldið er saman (notið grófustu prjónastærðina úr uppskriftinni = prjónastærð 4,5), fitjið upp 59-62-62-63-67-70-71 lykkjur. Dragið út annan prjóninn og prjónið með hringprjóna 3,5 þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, * aukið út 1 lykkju frá þræðinum sem prjónað er með þannig: Leggið hægri prjóninn fyrir framan, undir og aftan við stykkið, upp fyrir framan þráðinn og dragið prjóninn með þræðinum aftur framan við stykkið (= 1 ný lykkja á hægri prjóni), prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, takið upp 1 lykkju á hægri prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, takið upp 1 lykkju frá þræðinum sem prjónað er með, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord = 105-111-111-113-121-127-129 lykkjur (= lykkjufjöldinn er nú tvöfaldaður plús 1 lykkja og mínus 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, * prjónið 1 lykkju brugðið (= þráðurinn sem tekinn var upp), 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Prjónið síðan umferð 3. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 2 lykkjur á milli 2 lykkja með því að taka upp þráðinn á milli þessa 2 lykkja – sami þráður er tekinn upp 2 sinnum. Notið vinstri prjóninn til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. Notið vinstri prjón til að taka upp sama þráð einu sinni til viðbótar, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7½-7-7-7-7-7½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 105-111-111-113-121-127-129 lykkjur með hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorum lit með DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk – fitjið e.t.v. upp með ÍTÖLSK UPPFITJUN – lesið útskýringu að ofan. Ef fitjað er upp með hefðbundinni aðferð er fyrsta umferðin prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið áfram með stroff (1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) og 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm – endið eftir umferð frá röngu. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hliðinni á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4,5 og prjónið 2 umferðir sléttprjón (kantur að framan er prjónað eins og áður). Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja og auka á út við laskalínu við hvert merki – aukið er út á milli 2 lykkja eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Teljið 22-24-24-24-24-26-26 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 15-15-15-15-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 31-33-33-35-35-37-39 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 15-15-15-15-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, Það eru eftir 22-24-24-24-24-26-26 lykkjur á prjóni (= hægra framstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka (með kanta að framan eins og áður) og aukið út 2 lykkjur fyrir laskalínu við hvert merki – lesið LASKALÍNA í útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, alls 18-20-22-24-25-27-29 sinnum = 249-271-287-305-321-343-361 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan í sléttprjóni (með kanta að framan eins og áður) án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-21-22-22-24-26 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 42-45-47-50-53-58-61 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 47-53-57-59-61-63-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 71-75-79-87-93-101-109 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 47-53-57-59-61-63-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 42-45-47-50-53-58-61 lykkjur (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 175-189-201-219-235-257-275 lykkjur. Prjónið sléttprjón (með kanta að framan eins og áður) þar til stykkið mælist 43-45-47-49-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-20-20-22-24-28-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 193-209-221-241-259-285-305 lykkjur, prjónað er þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 46-48-50-52-53-55-57 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 47-53-57-59-61-63-65 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 57-65-71-75-79-83-87 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-3-3-3-3 sinnum = 53-61-67-69-73-77-81 lykkjur í umferð. Fækkið síðan um 2 lykkjur í með ca 7-3-2-7-7-7-6 cm millibili alls 3-5-6-3-2-2-2 sinnum = 47-51-55-63-69-73-77. Prjónið síðan þar til ermin mælist 18-18-17-17-16-16-15 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð er aukið út 5-5-5-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir. Aukið svona út í ca 6. hverjum cm alls 4-4-4-4-3-3-3 sinnum = 67-71-75-79-81-85-89 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 43-42-42-42-42-40-38 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7-7-7-9-9-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 74-78-82-88-90-94-98 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 46-45-45-45-46-44-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cinnamondreamcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.