Anika skrifaði:
Danke für die Korrektur. Das ein I-Cord gestrickt wird, stand leider in der Beschreibung nicht drinnen. Dann habe ich dazu noch eine Frage. Bei der rechten Blende (Reihe 3 & 4) wird kein I-Cord gestrickt (nur rechts). Dadurch entsteht ein Fehler im Rand und der I-Cord wird immer unterbrochen. VG
04.11.2026 - 09:49DROPS Design svaraði:
Liebe Anika, die 2 I-Cord Maschen sind am Anfang der 1. Rückreihe bei der rechten Blende erklärt (auch nicht als =I-Cord Maschen beschrieben), die Reihe 2 und 3 sind verkürzten Reihen = hier werden keine I-Cord, da die verkürzten Reihen an der anderen Seite vom I-Cord gestrickt sind) und bei der 4. Reihe (= Hinreihe) sind die 2 I-Cord Maschen am Ende gestrickt. Bei der linken Blenden stricken Sie die I-Cord am Ende der 1. Reihe (Rückreihe) und am Anfang der 4. Reihe (Hinreihe) - die 2. + 3. Reihe sind nur ohne I-Cord gestrickt da sie auf der anderen Seite gestrickt werden. Viel Spaß beim Stricken!
05.11.2026 - 13:12
Anika skrifaði:
Hallo, in der Auflistung fehlt oben die Rundnadel Nr. 4,5 (welche für das Rückenteil benötigt wird?!). Und bei der Blende steht Rd. 1 „1 Masche rechts, 17 Maschen rechts“. Warum steht dann da nicht gleich 18 Maschen rechts. Ich habe die Blende fertig gestrickt. Aber leider sieht der Rand nicht so schön aus. Und wenn man rechts und links gestrickt hat, schaut die der Rand auf jeder Seite anders aus.
02.11.2026 - 13:56DROPS Design svaraði:
Liebe Anika, das Rückenteil wird auch mit Nadeln Nr 5 gestrickt, eine Korrektur kommt - danke für den Hinweis; die 2 äussersten Maschen der Blende sind I-Cord Maschen - wie in diesem Video gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
03.11.2026 - 10:09
Anika skrifaði:
Hallo, in der Auflistung fehlt oben die Rundnadel Nr. 4,5 (welche für das Rückenteil benötigt wird?!). Und bei der Blende steht Rd. 1 „1 Masche rechts, 17 Maschen rechts“. Warum steht dann da nicht gleich 18 Maschen rechts. Ich habe die Blende fertig gestrickt. Aber leider sieht der Rand nicht so schön aus. Und wenn man rechts und links gestrickt hat, schaut die der Rand auf jeder Seite anders aus.
02.11.2026 - 13:55
Blush Pearl Jacket#blushpearljacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl, perluprjóni og belti. Stærð XS – XXXL.
DROPS 272-15 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 í næstu umferð. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 í næstu umferð. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1 í næstu umferð. LEIÐBEININGAR PRJÓN (á við um kantlista og ermar): Þegar stuttar umferðir eru prjónaðar, þá kemur oft lítið gat þegar stykkinu er snúið – það er hægt að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Setjið þráðinn yfir á hægri prjón og herðið á þræðinum vel að aftan (með þessu þá myndast tvær lykkjur á prjóni). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi með því að prjóna 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri) – stillið af að úrtakan passi við mynstur og að hún fylgi merkiþræði ca fyrir miðju undir ermi. ATH: Þegar perluprjón er prjónað í hring, eru eðlilegt að mynstrið snúist örlítið þegar prjónað er. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Fyrst eru prjónaðir 2 kantlistar = aftan í hnakka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp aftan í hnakka meðfram þessum kantlistum. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin prjónuð. Framstykkið er prjónað með því að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki og lykkjur frá kantlista eru settar inn í umferð. Prjónið niður á við að handvegi JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir v-hálsmáli. Endurtakið á hinni öxlinni. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpuna og síðan er ermin prjónuð niður á við í hring. Í lokin er prjónað belti. HÆGRI KANTLISTI: Fitjið upp 21-21-21-22-22-23-23 lykkjur á hringprjón 5 með 2 þráðum DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 17-17-17-18-18-19-19 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt. Snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 9-9-9-9-9-10-10 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 9-9-9-9-9-10-10 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 19-19-19-20-20-21-21 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Snúið stykkinu. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 þar til kantlistinn mælist 6-7-7-7½-7½-8-8 cm – mælt frá þar sem stykkið er minnst /styst, endið með umferð frá röngu, JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjum fækkað með því að prjóna síðustu 2 lykkjur í umferð slétt saman = 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur fyrir kantlista – setjið lykkjurnar á þráð. VINSTRI KANTLISTI: Notið hringprjón 5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 21-21-21-22-22-23-23 lykkjum frá uppfitjunarkanti í hægri kantlista – passið uppá að lykkjurnar séu prjónaðar upp þannig að lykkjurnar færast ekki til miðað við lykkjur á hægri kantlista. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 19-19-19-20-20-21-21 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Snúið stykkinu og munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 17-17-17-18-18-19-19 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 9-9-9-9-9-10-10 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 9-9-9-9-9-10-10 lykkjur slétt, snúið stykkinu. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 þar til kantlistinn mælist 6-7-7-7½-7½-8-8 cm – mælt frá þar sem stykkið er minnst /styst, endið með umferð frá röngu, JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjum fækkað með því að prjóna fyrstu 2 lykkjurnar í umferð snúnar brugðið saman = 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur fyrir kantlista – setjið lykkjurnar á þráð. Kantlistinn mælist alls 12-14-14-15-15-16-16 cm. Nú á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri hliðinni á kantlista og bakstykkið er prjónað eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Notið hringprjón 5 og 2 þræði DROPS Alpaca og 1 þráð DROPS Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið upp 23-25-25-27-27-29-29 lykkjur meðfram annarri hliðinni á kantlista sem hefur lykkjur í garðaprjóni meðfram kanti (prjónið upp frá réttu innan við 1 lykkju í garðaprjóni) – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við miðju á kantlista (það á ekki að prjóna yfir 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur sem eru á þræði í hvorri hlið). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjóni A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri og prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri og prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið umferð 2 og 3 alls 11-11-12-13-14-14-15 sinnum (= 22-22-24-26-28-28-30 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru 67-69-73-79-83-85-89 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan 3 kantlykkjur í sléttprjóni og mynstur A.1 eins og áður - Munið að fylgja prjónfestunni – þar til stykkið mælist 8-9-9-9-8-5-3 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið eftir umferð frá röngu. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Skrifið niður í hvaða umferð í A.1 útaukningin byrjar í, þetta er notað þegar auka á út á framstykkjum. UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-6-6-8-12-14 sinnum (= 8-8-12-12-16-24-28 umferðir prjónaðar) = 75-77-85-91-99-109-117 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 12-13-14-14-15-16-16 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið leiðbeiningar að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt á borð með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út við handveg þannig: Prjónið fyrst 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur frá kantlista þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 17-17-17-18-18-19-19 lykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja í sléttprjóni. Prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 22-22-24-26-28-28-30 lykkjur frá bakstykki) og endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst við hornið = 43-43-45-48-50-51-53 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur eru eftir, prjónið kantlista þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 17-17-17-18-18-19-19 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið A.1 út umferðina. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið A.1 þar til 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur eru eftir, prjónið kantlista eins og áður. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 þar til stykkið mælist 10-11-12-12-13-13-15 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið fyrir handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukningu fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því báða næstu kafla að neðan áður en prjónað er áfram til að fá yfirsýn yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlista eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið A.1 út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 þar til 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur eru eftir og prjónið kantlista eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-4-5-5 sinnum (= 8-8-8-8-8-10-10 umferðir prjónaðar). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kanlista eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 þar til 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur eru eftir og prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kantlista eins og áður og prjónið A.1 út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.1 þar til 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur eru eftir og prjónið kantlista eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-7-7-8-8-8-8 sinnum (= 28-28-28-32-32-32-32 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 11-11-11-12-12-13-13 sinnum fyrir v-hálsmáli. Haldið síðan áfram með A.1 og 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur í kantlista eins og áður. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 22-23-23-25-24-21-21 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, stillið af að næsta umferð sé sama umferð sem skrifuð var niður frá bakstykki. Nú er aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið A.1 þar til 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur eru eftir og prjónið kantlista eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-6-6-8-12-14 sinnum (= 8-8-12-12-16-24-28 umferðir prjónaðar). Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð til loka, eru 58-58-62-66-70-76-80 lykkjur í umferð. Prjónið síðan kantlista að framan og A.1 þar til stykkið mælist 26-27-28-30-31-32-34 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá röngu og stillið af eftir sömu umferð í mynstri og á bakstykki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið leiðbeiningar að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli: Prjónið upp 1 lykkju alveg yst í horni, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 22-22-24-26-28-28-30 lykkjur frá bakstykki), prjónið síðan 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur frá kantlista þannig: Prjónið 1 lykkju í sléttprjóni, 17-17-17-18-18-19-19 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt = 43-43-45-48-50-51-53 lykkjur í umferð. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga). Prjónið 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur í kantlista þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 17-17-17-18-18-19-19 lykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón og prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið A.1 þar til 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur eru eftir og prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið kantlista eins og áður og prjónið A.1 út umferðina. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 þar til stykkið mælist 10-11-12-12-13-13-15 cm. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið fyrir handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukningu fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því báða næstu kafla að neðan áður en prjónað er áfram til að fá yfirsýn yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.1 þar til 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur í kantlista og prjónið A.1 út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-4-5-5 sinnum (= 8-8-8-8-8-10-10 umferðir prjónaðar). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlista eins og áður og prjónið A.1 út umferðina. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið A.1 þar til 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur eru eftir og prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kantlista eins og áður og prjónið A.1 út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-7-7-8-8-8-8 sinnum (= 28-28-28-32-32-32-32 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 11-11-11-12-12-13-13 sinnum fyrir V-hálsmáli. Haldið síðan áfram með A.1 og kantlista eins og áður. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 22-23-23-25-24-21-21 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, stillið af að næsta umferð sé sama umferð og skrifuð var niður frá bakstykki. Nú er aukið út fyrir handveg: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið A.1 þar til 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur eru eftir og prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlista eins og áður og prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-6-6-8-12-14 sinnum (= 8-8-12-12-16-24-28 umferðir prjónaðar). Nú hefur öll útaukning fyrir v-hálsmáli og handveg verið gerðar til loka, það eru 58-58-62-66-70-76-80 lykkjur í umferð. Prjónið síðan með kantlista og A.1 þar til stykkið mælist 26-27-28-30-31-32-34 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu – stillið af eftir sömu umferð í mynstri og á bakstykki og hinu framstykkinu. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Héðan er stykkið mælt frá! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu – byrjið með lykkjur frá hægra framstykki og prjónið umferðina þannig: Prjónið 58-58-62-66-70-76-80 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður (20-20-20-21-21-22-22 lykkjur í kantlista + A.1 eins og áður), fitjið upp 6-6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 75-77-85-91-99-107-117 lykkjur frá bakstykki eins og áður, fitjið upp 6-6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 58-58-62-66-70-76-80 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður (= A.1 + 20-20-20-21-21-22-22 lykkjur frá kantlista eins og áður) = 203-205-221-239-255-281-297 lykkjur í umferð. Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur með A.1 og kantlista í hvorri hlið eins og áður. ATH! Nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar inn í A.1, ef þær passa ekki með lykkjum sem koma frá framstykki og bakstykki, þá er hægt að jafna þær út með því að fækka um 1 lykkju þegar mynstrið er prjónað, þannig að mynstrið verði rétt. Þær 3 lykkjur sem prjónaðar voru í sléttprjóni í hvorri hlið á bakstykki eiga einnig að vera prjónaðar í perluprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir miðju að aftan – stillið af að endað sé fyrir miðju í A.1 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá miðju að aftan og 56-58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl – ATH: Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur nokkra cm niður á framstykki. Notið e.t.v. fínni prjón til að prjóna lykkjurnar upp með og notið e.t.v. fínni prjón þegar ermakúpan er prjónuð fram og til baka ef stuttu umferðirnar verða of laust prjónaðar í byrjun Notið hringprjón 7 og prjónið upp lykkjur fasta (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 68-72-74-80-84-88-92 lykkjur í kringum ermi – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur á undan og á eftir merki. ERMAKÚPA: Til að flíkin passi betur og fái betra form eru prjónaðar stuttar umferðir fram og til baka yfir ermakúpuna, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.1 þar til prjónaðar hafa verið 8-8-9-9-10-10-11 lykkjur fram hjá merki upp að öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 yfir 16-16-18-18-20-20-22 lykkjur, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið A.1 þar til prjónuð hefur verið 1 lykkja frá því þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.1 þar til prjónuð hefur verið 1 lykkja fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 22-26-26-28-32-38-42 sinnum (= 11-13-13-14-16-19-21 sinnum í hvorri hlið. Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, prjónið yfir 36-40-42-44-50-56-62 lykkjur frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Prjónið síðan áfram með A.1 frá réttu að byrjun umferðar (= miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Nú er prjónað í hring í A.1 yfir allar lykkjur, yfir fyrstu og síðustu 16-16-16-18-17-16-15 lykkjur í umferð hefur einungis verið prjónuð 1 umferð perluprjón, á meðan mynstrið er komið vel af stað á ermakúpunni (þ.e.a.s. mynstrið í fyrstu og síðustu 16-16-16-18-17-16-15 lykkjum í umferð passa ekki endilega við aðrar lykkjur í umferðinni). Teljið til baka og byrjið perluprjónið þannig að það passi yfir mynstur sem þegar er byrjað á ermakúpunni – JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 6-6-6-7-7-7-8 sinnum í öðrum hverjum cm = 52-56-58-60-64-68-70 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 55 cm í öllum stærðum – mælt frá miðju ofan á öxl, stillið af að endað sé fyrir miðju í A.1 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. BELTI: Notið prjón 5 og fitjið upp 13 lykkjur með 2 þráðum DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1 yfir 9 lykkjur, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Beltið á að mælast ca 6 cm á breidd. Prjónið svona þar til beltið mælist ca 160-165-170-175-180-185-190 cm – eða prjónið að óskaðri lengd. Klippið og festið þráðinn. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blushpearljacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.