Julia skrifaði:
Hi, ich bin gerade beim Passe mit der 32 Runde fertig geworden und soll jetzt 18 mal nur am Vorderteil und Rückenteil zunehmen und nicht mehr an den Ärmeln. Wie führe ich das Muster an den Ärmeln fort ohne zuzunehmen? Weil die Diagramme nehmen ja in der Höhe zu aber die Ärmeln nehmen nicht mehr zu.
01.11.2026 - 18:10DROPS Design svaraði:
Liebe Julia, schreiben Sie in A.2 welche ist die erste/letzte Masche beim Ärmel, das Diagram A.3 beginnen Sie dann ab diese Masche. Viel Spaß beim Stricken!
02.11.2026 - 09:39
Monika skrifaði:
Kan man sticka den här tröjan nerifrån och upp i stället för uppifrån och ner
31.10.2026 - 11:17DROPS Design svaraði:
Hei Monika. Ja, det vil jeg mene. Men les godt igjennom oppskriften og se hvor du må gjøre forandringene ( f.eks økninger/fellinger, diagrammene, målene). mvh DROPS Design
02.11.2026 - 11:50
Marilyn skrifaði:
Thank you.
23.09.2026 - 13:48
Marilyn skrifaði:
I have established the pattern for Rows 1 and 2 for the raglan increases. It says to repeat these two rounds 16 times (32 rounds total). Am I to follow just rounds 1 and 2 of the patterns as stated OR do I follow the patterns and A 2 and A4 increase? If so, there are only 24 rows shown.
22.09.2026 - 23:23DROPS Design svaraði:
Hi Marilyn, You repeat rounds 1 and 2 as stated in the text, following the diagrams upwards. After finishing A.2 and A.4 you continue the patterns (repeat the last 8 rows in the diagram, then the first 4 rows of these 8 rows). Regards, Drops Team.
23.09.2026 - 06:50
Lori skrifaði:
Does the pattern have short rows in the back?
19.09.2026 - 16:45DROPS Design svaraði:
Hi Lori, No, this pattern does not have short rows at the back. But you can work short rows if you wish. Here is a link to our video if you need help: https://www.garnstudio.com/video.php?id=1796&lang=en which will need to be adjusted to the number of stitches you have on the round. Regards, Drops Team.
20.09.2026 - 07:38
Michaela Salt skrifaði:
Ein super schöner Pullover mit tollem Muster. Die Farben gefallen mir sehr gut.
19.09.2026 - 13:29
Rosanna skrifaði:
Potrei lavorare la maglia con ferri tradizionali e non ferro circolare? Come dovrei dividere il numero delle maglie ? Ho taglia XS Grazie
19.09.2026 - 12:45DROPS Design svaraði:
Buongiorno Rosanna, in questa sede non possiamo riadattare i modelli alle singole richieste: questo modello è stato progettato per essere lavorato in tondo. Può rivolgersi però al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
20.09.2026 - 09:07
Blueberry Biscuit Sweater#blueberrybiscuitsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og norrænu mynstri / íslensku mynstri. Stærð XS – XXXL.
DROPS 273-6 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR-1 (á við um kant í hálsmáli): Rendurnar eru prjónaðar í stroffprjóni í þessari litaröð: 3-3-3-4-4-4-4 umferðir með litnum Þveginn Gallabuxnablár 2 umferðir með litnum Natur 2-2-2-3-3-3-3 litur með Þveginn Gallabuxnablár 2 umferðir með litnum Natur 3-3-3-4-4-4-4 umferðir með litnum Þveginn Gallabuxnablár RENDUR-2 (á við um fram- og bakstykki og ermar): Rendurnar eru prjónaðar í stroffprjóni í þessari litaröð: 3-3-3-3-4-4-4 umferðir með litnum Þveginn Gallabuxnablár 2-2-2-2-3-3-3 umferðir með litnum Natur 2-2-2-2-3-3-3 umferðir með litnum Þveginn Gallabuxnablár 2-2-2-2-3-3-3 umferðir með litnum Natur 4-4-4-4-5-5-5 umferðir með litnum Þveginn Gallabuxnablár MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn með litnum Þveginn Gallabuxnablár. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – í skiptinguna yfir í stroff: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir út í skiptinguna yfir í stroff er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar verða síðar prjónaðar brugðið, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð með litnum Þveginn Gallabuxnablár þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-112-116-128-128-136-136 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum Þveginn Gallabuxnablár DROPS Fiesta, notið e.t.v. ítalska uppfitjun. Prjónið stroff í hring: (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt) og RENDUR-1 – lesið leiðbeiningar að ofan. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka, mælist stroffið ca 4 cm í öllum stærðum. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 43-43-44-47-47-49-49 lykkjur í umferð (= mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4 og litinn Þveginn Gallabuxnablár. Prjónið 1 umferð sléttprjón jafnframt því sem sett eru 4 merki í stykkið, merkin eru sett í lykkju. Þessi lykkja + 1 lykkja hvoru megin við þessa lykkjur (= 3 lykkjur) eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við þessar 3 laskalykkjur. Laskalykkjurnar eru síðar prjónaðar í mynstri eftir mynsturteikningu A.1. Setjið 1. merki í 2. lykkju í umferð (= slétt lykkja), prjónið 27 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 30 lykkjur fyrir ermi, setjið 2. merki í næstu lykkju (= slétt lykkja), prjónið 27-27-29-35-35-39-39 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 3-3-1-7-7-3-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 30-30-30-42-42-42-42 lykkjur fyrir framstykki, setjið 3. merki í næstu lykkju (= slétt lykkja), prjónið 27 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 30 lykkjur fyrir ermi, setjið 4. merki í næstu lykkju (= slétt lykkja), prjónið 26-26-28-34-34-38-38 lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 3-3-1-7-7-3-3 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 30-30-30-42-42-42-42 lykkjur fyrir bakstykki. Nú hefur verið aukið út um 12-12-8-20-20-12-12 lykkjur jafnt yfir og það eru 124-124-124-148-148-148-148 lykkjur í umferð. Byrjun umferðarinnar er beint fyrir framan laskalínuna í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi og fylgir laskalínunni alla leið niður að skiptingu í fram- og bakstykki og ermar. Prjónið síðan MYNSTUR hringinn JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út og prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1: Prjónið A.1 yfir 3 fyrstu laskalykkjurnar, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.2, prjónið A.3 alls 2 sinnum, prjónið A.4 (= ermi), prjónið A.1 yfir laskalykkjurnar og aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, prjónið A.2, prjónið A.3 alls 2-2-2-3-3-3-3 sinnum, prjónið A.4 (= framstykki), prjónið A.1 yfir laskalykkjurnar og aukið út 1 lykkju fyrir laskallínu hvoru megin við laskalykkjurnar, prjónið A.2, prjónið A.3 alls 2 sinnum, prjónið A.4 (= ermi), prjónið A.1 yfir laskalykkjurnar og aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, prjónið A.2, prjónið A.3 alls 2-2-2-3-3-3-3 sinnum, prjónið A.4 (= bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu. Mynstrið hefur nú verið sett niður og er byrjað og aukið hefur verið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu. UMFERÐ 2: Prjónið nú mynstur sem þegar er byrjað án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 14-14-16-24-22-20-20 sinnum (= 28-28-32-48-44-40-40 umferðir prjónaðar). Útaukningu fyrir ermar er nú lokið og það eru 236-236-252-340-324-308-308 lykkjur í umferð. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.2 til A.4. Þegar 1 mynstureining með A.2 til A.4 hefur verið prjónuð til loka á hæðina, er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri með A.3 á breiddina. Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 14-16-18-10-14-18-22 sinnum til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Nú hefur verið aukið út 14-14-16-24-22-20-20 sinnum á ermum og 28-30-34-34-36-38-42 sinnum á framstykki/bakstykki = 292-300-324-380-380-380-396 lykkjur í umferð. Á eftir síðustu umferð með útaukningu mælist stykkið ca 20-21-24-24-26-27-30 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju í hverri laskalínu, þ.e.a.s. prjónið síðustu 2 lykkjur í hverri mynstureiningu A.1 slétt saman með litnum Þveginn Gallabuxnablár (= 4 lykkjur færri) = 288-296-320-376-376-376-392 lykkjur. A.1 er nú lokið. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar - byrjun umferðar er nú á undan 2 laskalykkjum í skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu lykkju í litnum Þveginn Gallabuxnablár (= þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 58-58-62-78-74-70-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-18-22-10-18-26-30 nýjar lykkjur í umferð með litnum Þveginn Gallabuxnablár (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið næstu 86-90-98-110-114-118-126 lykkjur í mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 58-58-62-78-74-70-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-18-22-10-18-26-30 nýjar lykkjur í umferð með litnum Þveginn Gallabuxnablár (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 85-89-97-109-113-117-125 lykkjur í mynstri eins og áður (= bakstykki). Klippið þráðinn. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-216-240-240-264-288-312 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 10-18-22-10-18-26-30 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Byrjið umferð við merkið og prjónið A.3 hringinn yfir allar lykkjur – ATH: Passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki og teljið lykkjur út að hlið til að finna út hvar í mynsturteikningu mynstrið á að byrja fyrir miðju undir ermi. Prjónið þar til stykkið mælist 42-44-46-48-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Prjónið 3 umferðir sléttprjón með litnum Þveginn Gallabuxnablár. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) og RENDUR-2 – lesið leiðbeiningar að ofan, JAFNFRAMT sem aukið er út um 50-54-60-60-68-76-78 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 242-270-300-300-332-364-390 lykkjur. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka, mælist stroffið ca 4-4-4-4-5-5-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist 47-49-51-53-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 58-58-62-78-74-70-70 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-18-22-10-18-26-30 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-76-84-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-18-22-10-18-26-30 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið A.3 hringinn – passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki, mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi í öllum stærðum, en prjónið eins langt og hægt er og prjónið 2 miðju lykkjurnar undir ermi alltaf í litnum Þveginn Gallabuxnablár. JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækki lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-3-3-3-3 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 2-2-3-3-3½-3½-3 cm 2-6-10-5-7-9-11 sinnum = 60-60-60-72-72-72-72 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 43-43-41-40-38-37-35 cm frá skiptingunni. Prjónið 3 umferðir sléttprjón með litnum Þveginn Gallabuxnablár. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) og RENDUR-2 – lesið leiðbeiningar að ofan, JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-12-12-8-8-12-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 72-72-72-80-80-84-84 lykkjur. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar til loka, mælist stroffið ca 4-4-4-4-5-5-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, notið e.t.v. ítalska affellingu. Ermin mælist ca 48-48-46-45-44-43-41 cm frá skiptingunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueberrybiscuitsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.