Northern Mosaic Sweater#northernmosaicsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-28 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til þess að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Byrjið frá réttu og prjónið slétt þar til 12-12-12-13-13-14-14 lykkjur eru eftir á undan merki við miðju að framan, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN-1 og prjónið brugðið þar til 12-12-12-13-13-14-14 lykkjur eru eftir á undan merki fyrir miðju að framan í hinni hliðinni. * Snúið stykkinu og prjónið slétt þar til 12-13-13-14-15-16-17 lykkjur eru eftir á undan þar sem snúið var við síðast, snúið stykkinu og prjónið brugðið þar til 12-13-13-14-15-16-17 lykkjur eru eftir á undan þar sem snúið var við í síðasta skipti í hinni hliðinni *, prjónið frá *-* 2 sinnum til viðbótar. Snúið stykkinu og prjónið slétt til baka að byrjun umferðar við hægri öxl að aftan. Prjónið síðan berustykkið hringinn eins og útskýrt er í uppskrift. LEIÐBEININGAR PRJÓN-1: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR PRJÓN-2: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (= 18 lykkjur) = 5,8. Í þessu dæmi er aukið út í 6. hverja lykkju – aukið út þannig: Þessi samhverfa útaukning býr til 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1 - 4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Sláið 1 sinni uppá hægri prjón með þræðinum sem prjónað er með og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndast 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppið fremri lykkjuboganum af vinstri prjóni og prjónið síðan 1 lykkju slétt í fremri hlutann á hinum lykkjuboganum. Nú hefur þú aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir berustykki. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-106-110-114-118-124-130 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum Ljós Beige í DROPS Merino Extra Fine – notið e.t.v. ítalska uppfitjun. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki í byrjun umferðar og 1 merki eftir fyrstu 35-36-37-38-39-42-43 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá merki við miðju að framan. BERUSTYKKI: Skipið yfir í hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 18-22-24-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 122-128-134-138-144-152-160 lykkjur (merkið fyrir miðju að framan situr á eftir fyrstu 41-43-45-46-48-51-53 lykkjum í umferð). Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan við hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin er tilbúin, prjónið þá berustykkið eins og útskýrt er hér að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, prjónaðu þá eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón hringinn. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm frá merki við miðju að framan, aukið út 34-36-38-40-42-44-48 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 156-164-172-178-186-196-208 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 5-5-6-6-7-8-8 cm frá merk við miðju að framan aukið út 44-44-44-46-46-52-56 lykkjur jafnt yfir = 200-208-216-224-232-248-264 lykkjur. Í næstu umferð er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN-2 og prjónið A.1 alls 25-26-27-28-29-31-33 sinnum hringinn á berustykki. Haldið svona áfram með mynstur – jafnframt sem í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út um 48-48-48-56-56-64-64 lykkjur jafnt yfir = 248-256-264-280-288-312-328 lykkjur. Ör-2: Aukið út um 24-24-32-40-40-48-48 lykkjur jafnt yfir = 272-280-296-320-328-360-376 lykkjur. Ör-3: Aukið út um 24-24-24-32-32-32-40 lykkjur jafnt yfir = 296-304-320-352-360-392-416 lykkjur – gætið þess að útaukningarnar í þessari umferð skemmi ekki sjálft blaðið í mynstrinu. Ör-4: Aukið út um 24-24-24-24-24-32-32 lykkjur jafnt yfir = 320-328-344-376-384-424-448 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 20-21-22-23-24-25-27 cm frá merki við miðju að framan, skiptið stykkinu í fram- og bakstykki og ermar. A.1 heldur áfram á fram- og bakstykki og ermum, passið upp á að umferðirnar með útaukningum hafi verið prjónaðar til loka áður en stykkinu er skipt. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 64-64-64-72-72-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-16-16-16-24-24-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 96-100-108-116-120-132-144 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 64-64-64-72-72-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-16-16-16-24-24-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 96-100-108-116-120-132-144 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-232-248-264-288-312-336 lykkjur. Setjið 1 merki í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 8-16-16-16-24-24-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Byrjið umferð við annað merkið og haldið áfram með mynstur frá berustykki, þ.e.a.s. prjónið A.1 hringinn á fram- og bakstykki. ATH: Ef stykkinu er skipt upp í miðjum mynsturbekk, er ekki víst að mynstrið gangi jafnt upp í hliðum fyrir miðju undir ermum, en haldið áfram með mynstur frá berustykki eins langt og hægt er að merki fyrir miðju undir hvorri ermi. Næsti mynsturbekkur kemur til með aðganga jafnt upp yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka áhæðina, prjónið síðan sléttprjón með litnum Ljós Beige. Prjónið þar til stykkið mælist 45-47-49-51-52-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 40-46-48-52-56-62-66 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 248-278-296-316-344-374-402 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða fellið af með ítalskri affellingu. Peysan mælist 49-51-53-55-57-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 64-64-64-72-72-80-80 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-16-16-16-24-24-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 72-80-80-88-96-104-104 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-16-16-16-24-24-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn og prjónað er í hring. Prjónið mynstur frá berustykki yfir lykkjur á ermi. JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-3-3 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm 0-2-2-4-7-9-9 sinnum – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp fyrir miðju undir ermi þegar lykkjum er fækkað = 68-72-72-76-76-80-80 lykkjur í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað í sléttprjóni með litnum Ljós Beige þar til ermin mælist 42-42-41-41-39-40-38 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 14-14-14-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 82-86-86-92-92-96-96 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – eða fellið af með ítalskri affellingu. Ermin mælist ca 46-46-45-45-44-45-43 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northernmosaicsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.