Corinne skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas que vous fassiez un surjet simple qui diminue 2 mailles sur 3 et que le rang suivant, il vous en reste 2 à tricoter ? Y a t il une erreur dans votre diagramme ? Merci
31.10.2026 - 17:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Corinne, pensez-vous au dernier symbole de la légende? Ce n'est pas un surjet, on va ici diminuer 1 seule maille et pas 2: on tricote les 3 mailles endroit ainsi: on glisse la 1ère maille sans la tricoter, on tricote les 2 mailles suivantes ensemble à l'endroit et on passe la maille glissée par-dessus les mailles tricotées = il reste bien 2 mailles - au rang suivant sur l'endroit, on fait 1 jeté entre ces 2 mailles = on a de nouveau 3 mailles. Bon tricot!
02.11.2026 - 08:21
Nelly skrifaði:
Bonjour, pouvez vous me dire si sur les diagrammes de ce gilet on voit aussi les rangs envers ou si entre chaque dessin il y a un rang envers à faire ? Merci pour votre réponse
24.09.2026 - 16:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Nelly, tous les rangs figurent dans les diagrammes, ceux sur l'endroit mais aussi ceux sur l'envers, suivez bien la légende des symboles pour savoir comment tricoter les mailles sur l'endroit ou sur l'envers. Sur l'envers, lisez les diagrammes de gauche à droite. Bon tricot!
25.09.2026 - 16:22
Anna S skrifaði:
-Chart A2 row 21 has an extra yarn over between 2 purls that shouldn't be there -Chart A3 has increases in row 38 while charts A1 and A2 have those same increases in row 39 instead - the charts seems to have been repurposed from a sweater pattern knit in the round so instructions for the final symbol in the key (slip 1, knit 2, pass slipped stitch over) doesn't work for this pattern since it's actually on the wrong side so it needs to be reworked for purls
13.09.2026 - 15:34
Anna S skrifaði:
Hi, is there a mistake in the charts? There is an M in two places but no L, which one is size L?
12.09.2026 - 15:09DROPS Design svaraði:
Dear Anna, there seems to be a problem with the charts. We will contact the design department to check it and correct it as soon as possible. Happy knitting!
13.09.2026 - 23:32
Gull-Britt skrifaði:
Var finns diagrammet till 272-23?
10.09.2026 - 21:22DROPS Design svaraði:
Hei Gull-Britt, Diagrammene finnes på bunnen av oppskriften. Hilsen Drops Team.
11.09.2026 - 06:27
Pink Dove Cardigan#pinkdovecardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-23 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN - lesið leiðbeiningar að ofan. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-7½-8-8-8-8½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir hringlaga berustykki. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 99-109-109-109-117-117-117 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff þannig: 7 kantlykkjur með I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið stroff svona í 3-3-3-3-4-4-4 cm, í síðustu umferð frá röngu er fækkað um 0-1-1-1-0-0-0 lykkjur (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 99-108-108-108-117-117-117 lykkjur. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hliðinni á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Munið að fylgja prjónfestunni! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig – lesið HNAPPAGAT og MYNSTUR í útskýringu að ofan: Prjónið kant að framan eins og áður, A.1 (= 6 lykkjur), prjónið A.2 alls 8-9-9-9-10-10-10 sinnum, A.3 (= 7 lykkjur), endið með kant að framan eins og áður. Munið að fylgja prjónfestunni! Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 271-299-299-317-327-347-347 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður jafnframt því að jafna lykkjufjöldann í 262-290-310-322-330-354-374 lykkjur í 1. umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og kanta að framan þar til stykkið mælist 20-21-23-24-24-26-28 cm, mælt frá merki fyrir miðju að framan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 45-48-51-53-55-60-64 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-56-60-62-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 76-82-88-92-96-106-114 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-56-60-62-62-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 45-48-51-53-55-60-64 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-190-206-218-230-254-274 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 41-43-45-47-47-49-51 cm frá merki við miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 17-19-21-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 195-209-227-239-253-279-301 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 45-47-49-51-52-54-56 cm frá merki við miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 48-56-60-62-62-64-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-62-68-72-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 3½-3½-3½-3½-3-3-3 cm millibili alls 3-6-8-9-9-10-11 sinnum = 48-50-52-54-56-58-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-43-41-41-41-40-39 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 52-56-58-60-62-64-66 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 47-47-45-45-46-45-44 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pinkdovecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.