Dianne skrifaði:
I can not make sense about where to place the raglan markers. You say to only put the markers in a knit stitch, but the count does not add up. Where do I start counting from? The beginning of round? Do I put a marker there? then after that 19 stitches puts a marker in a purl stitch. Then it says to put a marker in the next stitch which would be a knit stitch. I am confused, Could you please explain it more simply? Thank you
18.04.2026 - 22:52DROPS Design svaraði:
Dear Dianne, rib pattern started with K1, so you insert the 1st marker in this 1st stitch, then count 19 sts = (P1, K1) x 9 = 18 sts rib + P1 = 19 sts for sleeve, insert marker in next stitch which is a K stitch from the rib. Hope it can help. Happy knitting!
20.04.2026 - 09:58
Monique De Jong skrifaði:
De mouwen zijn te lang voor mijn lichaam. Hoe kan de mouwen 6 cm korter maken?
08.04.2026 - 20:29DROPS Design svaraði:
Dag Monique,
Om de mouw korter te maken moet je het stuk tussen de oksel en de boord korter maken. Dus je breit dan niet tot de mouw 39-37-37-34-32-29-27 meet, maar 6 cm korter. Ook moet je de minderingen verdelen over deze kortere lengte.
08.04.2026 - 21:19
Grace skrifaði:
I am placing markers for the sleeve and body on a size large. I cast on 104 stiches and just finished the ribbing. I am confused because 19 stiches for both sleeves, and 31 for front and back only equal 100 stiches. Where do my last four stiches go?
03.04.2026 - 22:34DROPS Design svaraði:
Hi Grace, 4 markers are placed in these stitches. The markers are here in stitches, not between them. Happy knitting!
03.04.2026 - 22:43
Summer Living Sweater#summerlivingsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og sléttprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-25 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-112-116 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 4 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið). Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 33-34-35-36-37-38-39 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru 4 merki sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru kallaðar laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merkið í fyrstu lykkjuna, teljið 19 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merkið í næstu lykkju, teljið 25-27-29-31-33-35-37 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merkið í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merkið í næstu lykkju, það eru 25-27-29-31-33-35-37 lykkjur eftir síðasta merkið (= bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið leiðbeiningar að ofan – þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón, munið að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-1-6-7-6-5-5 sinnum (= 6-2-12-14-12-10-10 umferðir prjónaðar) = 116-104-148-160-156-152-156 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Haldið áfram með sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 10-12-10-11-13-15-16 sinnum (= 40-48-40-44-52-60-64 umferðir prjónaðar = 10-12-10-11-13-15-16 sinnum útaukning á ermum og 20-24-20-22-26-30-32 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 236-248-268-292-312-332-348 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 23-25-26-29-32-35-37 sinnum á framstykki/bakstykki og 13-13-16-18-19-20-21 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 21-23-24-27-29-32-34 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið nú berustykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Haldið eftir fyrstu lykkju á prjóni (þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 45-45-51-55-57-59-61 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 73-79-83-91-99-107-113 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 45-45-51-55-57-59-61 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 72-78-82-90-98-106-112 lykkjur í sléttprjóni (= alls 73-79-83-91-99-107-113 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 166-182-194-214-234-254-266 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 36-38-40-42-43-45-47 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 16-18-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 182-200-214-236-258-280-294 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 40-42-44-46-48-50-52 cm frá merki við miðju að framan og ca 46-48-50-52-54-56-58 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 45-45-51-55-57-59-61 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 55-57-65-71-75-79-81 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 2-2-5-7-8-9-9 sinnum með 4-4-4-3½-3-2½-2½ cm millibili = 47-49-51-53-55-57-59 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-37-37-34-32-29-27 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT og aukið er út um 9-9-9-11-11-11-11 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 56-58-60-64-66-68-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-43-43-40-39-36-34 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerlivingsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.