Ewa skrifaði:
När framstyckets ökningar är klara står det att det mäter 12 cm från markören, sen ska man sticka A3 i 12 varv och upprepa de sista 4 varven och då ska det bli 13 cm? Måste vara nåt jag missar eller så står det fel....
26.03.2026 - 23:07DROPS Design svaraði:
Hej Ewa, har du ikke allerede strikket næsten hele A.3? Det er kun de sidste 4 varv du skal gentage, til arbejdet måler 13 cm (4 pinde i højden = ca 3,5 pind) :)
09.04.2026 - 10:36
HOURDEBAIGT skrifaði:
Bonjour. Je suis en train de tricoter le devant et j’ai fait toutes les augmentations. Puis vous dites de tricoter le devant jusqu’à ce qu’il mesure 12cm à partir du marqueur. M’aide quel marqueur parles vous? Parce que après avoir tricoté 7cm1/2 après la 1ere boutonnière je suis à 21cm du marqueur de l’encolure. Je ne comprends pas. Pourriez vous m’éclairer ? Merci.
25.03.2026 - 16:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Hourdebaigt, les mesures des devants sont prises à partir du marqueur placé encolure = à partir des mailles relevées, autrement dit 1 à 2 cm (selon la taille) après la fin des augmentations de l'encolure. Bon tricot!
26.03.2026 - 08:56
Marta skrifaði:
Dzień dobry, mam pytanie: kiedy należy odciąć nitkę po przerobieniu pierwszej części prawego przodu? Chodzi mi konkretnie o tę część opisu: "Dodawanie oczek na dekolt jest zakończone. Długość robótki od markera wynosi 11 cm (M) (...) Przerabiać aż długość przodu od markera wynosi 12cm." Czy to znaczy, że po dodaniu 26 oczek i zakończeniu dekoltu trzeba przerobić 1cm i już odciąć nitkę, nie kończąc schematu A5? Z góry dziękuję za odpowiedź :)
13.03.2026 - 23:07DROPS Design svaraði:
Witaj Marto, przerabiasz aż długość przodu od markera wynosi 12 cm, zatrzymać się za rzędem na lewej stronie robótki. Teraz odcinasz nitkę i zdejmujesz oczka na nitkę lub drut pomocniczy. Schemat A.5 może nie być zakończony. Pozdrawiamy!
16.03.2026 - 17:08
Carol McMillan skrifaði:
Shouldn't there be a A.3 chart for sizes XL-XXL-XXL?
10.03.2026 - 19:13DROPS Design svaraði:
Dear Mrs McMillan, thanks for noticing, A.3 for larger size is now visible. Happy knitting!
11.03.2026 - 07:35
Blooming Lace Cardigan#bloominglacecardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki, gatamynstri og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-23 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (= á við um A.1, A.3 og A.5). Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptinguna yfir í stroff er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar verða síðar prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að hálsmálið hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 7½-7½-8-8-8-7½-7½ cm á milli hverra hnappagata. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1- BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2- FRAMSTYKKI: Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. 3- BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið lykkjur frá öðru framstykkinu, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu og prjónið síðustu lykkjur frá framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan. 4- ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar. 5- FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 44-44-44-44-50-50-50 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Nord. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: Prjónið A.1a, prjónið A.1b alls 2 sinnum, prjónið A.1c, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið A.1c, prjóni A.1b alls 2 sinnum, prjónið A.1a, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 12-13-14-15-15-16-17 sinnum (= 24-26-28-30-30-32-34 umferðir prjónaðar) – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur, þ.e.a.s. til skiptis 10-10-10-10-12-12-12 lykkjur sléttprjón og 2 lykkjur gatamynstur – passið uppá að ystu 3 lykkjurnar í hvorri hlið séu alltaf prjónaðar í sléttprjóni. Á eftir síðustu útaukningu eru 92-96-100-104-110-114-118 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRA FRAMSTYKKI: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 24-26-28-30-30-32-34 lykkjur) = 25-27-29-31-31-33-35 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er mynstrið prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur slétt, prjónið A.2. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.2 slétt, prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 5-6-7-8-6-8-9 cm frá merki – endið eftir heila mynstureiningu með A.2 á hæðina, þannig að mynstrið passi. Nú eru lykkjur auknar út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur slétt, prjónið A.3 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt (= síðustu 3 lykkjurnar í A.3). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.3 (útauknar lykkjur eru teiknaðar inn í mynsturteikningu), prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur slétt, prjónið A.3. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.3, prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum (= 4-4-4-4-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 26-28-30-32-33-35-37 lykkjur. Aukið síðan út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur slétt, prjónið A.3 þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt (= síðustu 3 lykkjurnar í A.3). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.3, prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5 sinnum (= 10 umferðir prjónaðar) = 31-33-35-37-38-40-42 lykkjur í umferð. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 26-26-26-26-28-28-28 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli = 57-59-61-63-66-68-70 lykkjur. Útaukningu fyrir hálsmál er nú lokið. Stykkið mælist ca 9-10-11-12-12-14-15 cm frá merki. 2-2-2-2-2-3-3 cm af dýpt á hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið. Prjónið síðan þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-CORD – sjá útskýringu að ofan, haldið áfram með A.3, prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur og endurtakið síðustu 4 umferðirnar í A.3 á hæðina – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til hægra framstykki mælist 11-12-12-13-13-15-16 cm frá merki – endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða kaðlaprjón, prjónið nú vinstra framstykkið meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 24-26-28-30-30-32-34 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja) = 25-27-29-31-31-33-35 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er mynstrið prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.4, prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur brugðið, prjónið A.4. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 5-6-7-8-6-8-9 cm frá merki – endið eftir heila mynstureiningu með A.4 á hæðina, þannig að mynstrið passi. Nú eru lykkjur auknar út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 fyrstu lykkjur í A.5, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið A.5 til loka, prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur brugðið, prjónið A.5. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið A.5, prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur brugðið, prjónið A.5. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum (= 4-4-4-4-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 26-28-30-32-33-35-37 lykkjur. Aukið síðan út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.5, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið afgang af A.5, prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur brugðið, prjónið A.5. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5 sinnum (= 10 umferðir prjónaðar) = 31-33-35-37-38-40-42 lykkjur í umferð. Í lok næstu umferðar frá röngu eru fitjaðar upp 26-26-26-26-28-28-28 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli = 57-59-61-63-66-68-70 lykkjur. Útaukningu fyrir hálsmál er nú lokið. Stykkið mælist ca 9-10-11-12-12-14-15 cm frá merki. 2-2-2-2-2-3-3 cm af dýpt á hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið. Prjónið síðan þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-CORD – sjá útskýringu að ofan, haldið áfram með A.5, prjónið 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur og endurtakið síðustu 4 umferðirnar í A.5 á hæðina. Prjónið þar til vinstra framstykkið mælist 11-12-12-13-13-15-16 cm frá merki – endið með umferð frá röngu. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman og prjónaðar eru upp lykkjur fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.5 eins og áður og prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 28-32-32-34-34-40-42 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar frá bakstykkinu slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið A.1 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykkinu, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 28-32-32-34-34-40-42 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið 1 merki, setjið lykkjurnar af hægra framstykki aftur á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 37-37-37-37-40-40-40 lykkjur eru eftir, prjónið A.3 og prjónið kant að framan eins og áður = 258-274-282-294-306-326-338 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan, mynstur og sléttprjón eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki er prjónað, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið A.1 eins og áður fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið sléttprjón, mynstur og kant að framan eins og áður = 262-278-286-298-310-330-342 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina = 266-282-290-302-314-334-346 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina = 270-286-294-306-318-338-350 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttar lykkjur fram að næsta merki, aukið út um 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út um 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina = 274-290-298-310-322-342-354 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið eins og áður, án þess að auka út. Á EFTIR UMFERÐ 6: Prjónið UMFERÐ 5 og 6 alls 7-5-4-5-7-3-1 sinnum (= 14-10-8-10-14-6-2 umferðir prjónaðar). Alls hefur verið aukið út 10-8-7-8-10-6-4 sinnum fyrir ermar = 48-48-46-50-54-52-50 lykkjur á hvorri ermi, 56-58-60-62-65-67-69 lykkjur á hvoru framstykki og 90-94-98-102-108-112-116 lykkjur á bakstykki = 298-306-310-326-346-350-354 lykkjur. Síðan er aukið út bæði á ermum og á fram- og bakstykki. Aukið út á fram- og bakstykki um 2 lykkjur innan við merkið þannig að það verða 2 lykkjur á milli útaukninga á fram- og bakstykki og útaukninga á ermi – prjónið næstu umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður út umferðina (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. 1 lykkja hefur verið aukin út hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermi). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður, án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-14-16-18-21-26-31 sinnum (= 24-28-32-36-42-52-62 umferðir prjónaðar) – ATH: Munið að útauknar lykkjur á bakstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, en passið að 3 ystu lykkjurnar í hvorri hlið á bakstykki séu alltaf prjónaðar í sléttprjóni. Á eftir síðustu útaukningu hefur verið aukið út alls 22-22-23-26-31-32-35 sinnum á ermum og 12-14-16-18-21-26-31 sinnum á fram- og bakstykki = 72-76-78-86-96-104-112 lykkjur á hvorri ermi, 68-72-76-80-86-93-100 lykkjur á hvoru framstykki og 114-122-130-138-150-164-178 lykkjur á bakstykki = 394-418-438-470-514-558-602 lykkjur. Ermin mælist ca 12-12-13-14-17-18-20 cm - þegar peysan er brotin tvöföld við öxl, mælist stykkið ca 18-18-19-21-24-26-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 18-19-20-21-24-26-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 68-72-76-80-86-93-100 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 72-76-78-86-96-104-112 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 114-122-130-138-150-164-178 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 72-76-78-86-96-104-112 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 68-72-76-80-86-93-100 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 262-282-302-322-350-382-414 lykkjur. Setjið eitt merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – fyrir miðju í 6-8-10-12-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Prjónið síðan mynstur sem þegar er byrjað, þ.e.a.s. haldið áfram með A.5 og A.3 á framstykkjum og prjónið A.1 eins langt og hægt er á bakstykki fram að merkiþræði í hvorri hlið (það eru 3-8-1-6-2-10-4 lykkjur eftir í sléttprjóni á undan merkiþræði í hvorri hlið) – prjónið hinar lykkjurnar í sléttprjóni og kantur að framan er prjónaður eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 46-48-50-52-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 36-40-44-48-50-54-58 lykkjur jafnt yfir á prjóninum (ekki auka út yfir kanta að framan), prjónið þannig: Skipið yfir á hringprjón 2,5, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) – munið eftir útaukningunni – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3, þar til 9 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður = 298-322-346-370-400-436-472 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 48-50-52-54-55-57-59 cm frá miðju að aftan og 50-52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 72-76-78-86-96-104-112 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 78-84-88-98-110-120-130 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, prjónið 2 cm og fækkið síðan um 2 lykkjur 1 sinni 72-78-82-92-104-114-124 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 15-15-14-14-9-9-7 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-12-14-16-16-18-20 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 84-90-96-108-120-132-144 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 29-29-29-30-29-30-30 cm frá öxl. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 2,5, byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp ca 130-133-136-139-148-154-157 lykkjur í kringum hálsmál (passið að prjóna upp 1 lykkju í hverja kantlykkju að framan). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu jafnframt sem lykkjum er e.t.v. fækkað/aukið út jafnt yfir að tilgreindum lykkjufjölda (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 + kantlykkja að framan). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Prjónið svona þar til kantur í hálsmáli mælist 2-2-2½-2½-3-3-3 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bloominglacecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 51 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.