Elisabet Eriksson skrifaði:
Nu har jag knäckt koden på mönstret på framstycket! Blir så fint
19.04.2026 - 12:47
Elisabet Eriksson skrifaði:
Fattar inte mönster på framstycket. Har repat och provat massor av gånger. Tycker diagramförklaringen är svårtydd. Så synd när koftan är så fin. Mvh Elisabet
18.04.2026 - 14:16
Vanessa skrifaði:
In dieser Anleitung liegt ein gravierender Fehler vor: bei A6 (XL-XXL) ist die 3 und 7 Reihe falsch! Ich musste nochmals ganz von vorne beginnen… schade
11.04.2026 - 21:09
Pretty Jane Cardigan#prettyjanecardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á framstykkjum, A.-form og hekluðum kanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-35 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið síðan 2 lykkjur garðaprjón. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 8-8-8-8-8-9-9 næstu hnappagötum með ca 4½-5-5-5½-5½-5-5 cm á milli hverra hnappagata. Síðasta hnappagatið er staðsett í kanti í hálsmáli. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1, A.2, A.4, A.6, A.7 og A.8). Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað/heklað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Mynsturteikning A.10 = heklaður kantur á framstykkjum og neðst í kringum ermar. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur fyrir miðju í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið - til að koma í veg fyrir göt. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Bakstykkið og framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig niður að handvegi, prjónað er ofan frá og niður. Síðan eru stykkin sett saman og fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli prjónaður. Í lokin er heklaður kantur niður meðfram báðum framstykkjum og neðst í kringum báðar ermar. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: HÆGRI ÖXL: Prjónið fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 25-29-32-34-34-36-39 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Flora. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 lykkju GARÐAPRJÓN í hvorri hlið - sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 2 cm - stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Fitjið nú upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið brugðið út umferðina, fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið brugðið út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmál í lok umferðar. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið brugðið út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar = 29-33-36-38-38-40-43 lykkjur. Leggið stykkið til hliðar og prjónið vinstri öxl. BAKSTYKKI: VINSTRI ÖXL: Prjónið fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 25-29-32-34-34-36-39 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Flora. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 2 cm - stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Fitjið nú upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið slétt út umferðina, fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið slétt út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmál í lok umferðar. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið slétt út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar = 29-33-36-38-38-40-43 lykkjur. Leggið stykkið til hliðar og prjónið vinstri öxl. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Setjið síðan axlirnar saman fyrir bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI (vinstri og hægri öxl saman): Prjónið fyrstu umferðina frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 29-33-36-38-38-40-43 lykkjur frá vinstri öxl, fitjið upp 38-38-38-38-44-44-44 lykkjur fyrir hálsmál í lok þessarar umferðar, prjónið eins og áður yfir 29-33-36-38-38-40-43 lykkjur frá hægri öxl = 96-104-110-114-120-124-130 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 17-18-18-17-17-16-15 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Munið að fylgja prjónfestunni. Aukið nú út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-2-3-7-8-12-15 sinnum (= 2-4-6-14-16-24-30 umferðir prjónaðar) = 98-108-116-128-136-148-160 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn. Prjónið nú framstykkið eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 25-29-32-34-34-36-39 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Flora. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur slétt, prjónið A.1. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið A.1 (mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu), 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT í lok umferðar merktrar með ör í A.1 byrjar útaukningin fyrir hálsmáli og nýjar lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, 2 lykkjur 4 sinnum og 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2-2 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstrið eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 19-19-19-19-20-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og kanti að framan = 59-63-66-68-72-74-77 lykkjur. Prjónið A.1 til loka (ystu 7 lykkjur við miðju að framan = kantur að framan). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2, prjónið A.3 (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka – munið eftir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 17-18-18-17-17-16-15 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Nú er aukið út í hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-2-3-7-8-12-15 sinnum (= 2-4-6-14-16-24-30 umferðir prjónaðar) = 60-65-69-75-80-86-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn. Nú er vinstra framstykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 25-29-32-34-34-36-39 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Flora. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið A.4, 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur slétt, 1 lykkja garðaprjón. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 lykkja garðaprjón, 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur brugðið, A.4. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT, í lok umferðar merktrar með ör í A.4, byrjar útaukningin fyrir hálsmáli og nýjar lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, 2 lykkjur 4 sinnum og 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2-2 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstrið eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Í lok næstu umferða frá röngu eru fitjaðar upp 19-19-19-19-20-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og kanti að framan = 59-63-66-68-72-74-77 lykkjur. Prjónið A.4 til loka (ystu 7 lykkjur við miðju að framan = kantur að framan). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.5 (= kantur að framan), prjónið A.6, 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 17-18-18-17-17-16-15 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Nú er aukið út í hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-2-3-7-8-12-15 sinnum (= 2-4-6-14-16-24-30 umferðir prjónaðar) = 60-65-69-75-80-86-92 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, endið með umferð frá röngu, ekki klippa þráðinn, stykkin eru núna prjónuð saman. FRAM- OG BAKSTYKKI: Í næstu umferð eru stykkin prjónuð saman – prjónið frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 60-65-69-75-80-86-92 lykkjurnar frá vinstra framstykki, fitjið upp 6-6-8-8-12-16-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 98-108-116-128-136-148-160 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), fitjið upp 6-6-8-8-12-16-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið eins og áður yfir 60-65-69-75-80-86-92 lykkjur frá hægra framstykki = 230-250-270-294-320-352-384 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 6-6-8-8-12-16-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar lykkjum er fækkað og aukið út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið síðan eins og áður með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan, A.2 og A.6 á framstykkjum og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið svona með 2-2½-2½-3-3-3½-3½ cm millibili alls 4 sinnum = 214-234-254-278-304-336-368 lykkjur. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú verður síðasti hluti mynsturs á framstykki prjónaður og aukið verður í hvorri hlið á fram og bakstykki fyrir A-laga form. Lesið báða kaflana hér að neðan áður en prjónað er áfram. MYNSTUR: Eftir að síðasta útaukningin á hliðum er lokið og A.2 og A.6 hefur verið prjónað til og með umferð 4 í mynsturteikningu, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.7, prjónið sléttprjón þar til 41-41-41-41-45-45-45 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.8 og prjónið kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.7 og A.8 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður. ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 31-33-35-37-39-41-43 cm frá uppfitjunarkanti á öxl (stykkið mælist ca 13-14-15-16-17-18-19 cm frá þar sem stykkin voru sett saman), aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina - sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 17 sinnum = 282-302-322-346-372-404-436 lykkjur. Stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61-63 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Haldið e.t.v. áfram að auka út að óskuðu máli – endið eftir umferð frá röngu. Prjónið síðan kantinn eins og útskýrt er að neðan. KANTUR: Skipið yfir í hringprjóna 2,5 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.9a þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð og aukið jafnframt út 1 lykkju þannig að lykkjufjöldinn verði með oddatölu, prjónið A.9b og prjónið kant að framan eins og áður. Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir í hringprjóna 3 áður en fellt er af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasaumana. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handvegi og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveginn = axlasaumur. Notið hringprjón 3 og prjónið upp lykkjur aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið mitt á milli nýjar lykkjur sem voru fitjaðar upp undir erminni - prjónið upp 82-88-94-102-110-116-124 lykkjur - stillið af að jafnmargar lykkjur séu prjónaðar upp hvoru megin við merkið. ERMAKÚPA: Nú er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpu, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 13-13-14-14-14-12-10 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu við – sjá LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 13-13-14-14-14-12-10 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu við. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 4-4-4-4-5-1-1 sinnum (= 8-8-8-8-10-2-2 umferðir prjónaðar). Síðan er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast, snúið stykkinu við. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 5-5-7-7-7-15-18 sinnum (= 10-10-14-14-14-30-36 umferðir prjónaðar). Snúið hefur verið við alls 20-20-24-24-26-34-40 sinnum (= 10-10-12-12-13-17-20 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem snúið var við og prjónað er frá röngu, endið umferðina með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (= miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn er notaður þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Nú er prjónað sléttprjón í hring yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-2-1-1 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 2-2-2-2-1-1-0 sinnum á 3 cm millibili = 74-80-86-94-104-112-122 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 21 cm frá merki efst fyrir miðju á öxl í öllum stærðum. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan. Skipið yfir á sokkaprjóna 3 og fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist um það bil 23 cm frá merki efst fyrir miðju á miðju öxl í öllum stærðum. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 2,5, byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp ca 137-137-137-137-155-155-155 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju – fjöldi lykkja á að vera deilanlegur með 2 + 1. Byrjið á 2. umferð í A.9 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.9b, prjónið A.9a þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. Þegar kantur í hálsmáli mælist 1cm, fellið af fyrir 1 hnappagati yfir hin hnappagötin í hægri kanti að framan (prjónið frá réttu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur snúnar slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn – í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – svo það myndist hnappagat). Þegar A.9 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir á hringprjón 3 áður en fellt er af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR-2: Saumið tölur í vinstri kant að framan. HEKLAÐUR KANTUR HÆGRA FRAMSTYKKI: Notið heklunál 3, byrjið frá réttu við öxl og heklið mynsturteikningu A.10a í fyrstu lykkju í A.1 (= í ystu lykkjuna að hlið), heklið síðan A.10b niður á við (alltaf er heklað í fyrstu lykkjuna í A.1), haldið áfram meðfram öllu A.1 og A.2 og endið eftir heila mynstureiningu. Klippið og festið þráðinn. HEKLAÐUR KANTUR VINSTRA FRAMSTYKKI: Notið heklunál 3, byrjið frá réttu neðst í A.6 og heklið mynstur A.10a í síðustu lykkjuna í A.6 (= í ystu lykkjuna að hlið), heklið síðan A.10b upp á við (alltaf er heklað í síðustu lykkjuna í A.6/A.4), endið eftir eina heila mynstureiningu efst á öxl. Klippið og festið þráðinn. HEKLAÐUR KANTUR Á ERMUM: Notið heklunál 3, byrjið frá réttu fyrir miðju undir ermi og heklið mynstur A.10a í fyrstu lykkjuna, heklið síðan A.10b í kringum ermina, endið eftir eina heila mynstureiningu fyrir miðju undir erminni. Klippið og festið þráðinn. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #prettyjanecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 55 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.