White Dreams Cardigan#whitedreamscardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, sléttprjóni og öldumynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-12 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 8-8-8-8-9-9-9 næstu hnappagötum með ca 4½-4½-5-5-4½-5-5 cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið á að vera staðsett ca í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 107-109-115-117-123-125-131 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Paris. Prjónið þannig: Frá röngu: Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið 2 umferðir til viðbótar í sléttprjóni og kantlykkjur að framan í hvorri hlið, næsta umferð er prjónuð frá réttu: Frá réttu: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið kant að framan eins og áður. Frá röngu: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið kant að framan eins og áður. Prjónið þessar 2 umferðir 1 sinni til viðbótar = 4 umferðir stroff. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú eru settir 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-27-29-31-33-35-37 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 19 (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 20-20-22-22-24-24-26 lykkjur eftir á prjóni (= hægra framstykki). Setjið 1 merki innan í kant að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. Prjónið mynstur og sléttprjón fram og til baka með kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan um hvernig á að auka út. Munið að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Útaukning fyrir mynstur og laskalínu byrjar á sama tíma, svo lesið næstu 2 kafla áður en prjónað er. MYNSTUR: Vinstra framstykki: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1, 0-0-2-2-4-4-6 lykkjur sléttprjón, 1 laskalykkja í sléttprjóni. Ermi: sléttprjón. Bakstykki: sléttprjón. Ermi: sléttprjón. Hægra framstykki: 1 laskalykkja í sléttprjóni, 0-0-2-2-4-4-6 lykkjur sléttprjón, A.2, 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með A.3 yfir A.1 og A.4 yfir A.2. LASKALÍNA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur, sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur, sléttprjón og kant að framan eins og áður (munið að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-1-6-7-6-5-5 sinnum (= 6-2-12-14-12-10-10 umferðir prjónaðar) = 135-121-167-177-175-169-175 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið mynstur, sléttprjón og kant að framan eins og áður, og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið mynstur, sléttprjón og kant að framan eins og áður (munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið mynstur, sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og eftir 2. og 4. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið mynstur, sléttprjón og kant að framan eins og áður (munið að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 10-12-10-11-13-15-16 sinnum (= 40-48-40-44-52-60-64 umferðir prjónaðar = 10-12-10-11-13-15-16 sinnum aukið á ermum og 20-24-20-22-26-30-32 sinnum aukið á framstykkjum/bakstykki) = 255-265-287-309-331-349-367 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 23-25-26-29-32-35-37 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 13-13-16-18-19-20-21 sinnum á ermum. Prjónið síðan mynstur, sléttprjón og kant að framan eins og áður, án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 21-23-24-27-29-32-34 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið nú berstykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 46-48-51-54-59-62-66 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 45-45-51-55-57-59-61 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 73-79-83-91-99-107-113 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 45-45-51-55-57-59-61 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið 46-48-51-54-59-62-66 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 185-199-213-231-253-271-285 lykkjur. Prjónið mynstur, sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 36-38-40-42-43-45-47 cm frá merki við miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-20-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 203-219-233-253-277-297-313 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir og prjónið kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 40-42-44-46-48-50-52 cm frá merki við miðju að framan og ca 46-48-50-52-54-56-58 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 45-45-51-55-57-59-61 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 55-57-65-71-75-79-81 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 2-2-5-7-8-9-9 sinnum með 4-4-4-3½-3-2½-2½ cm millibili = 47-49-51-53-55-57-59 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-37-37-34-32-29-27 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT og aukið er út um 9-9-9-11-11-11-11 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 56-58-60-64-66-68-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-43-43-40-39-36-34 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitedreamscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 50 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.