Mara skrifaði:
Buonasera, non riesco a capire per l'aumento del raglan taglia M:prima è scritto per 33 volte poi per 34 volte ed è giusto per arrivare a 420 maglie. È un errore la prima spiegazione? Grazie
08.10.2026 - 13:36DROPS Design svaraði:
Buonasera Mara, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
10.10.2026 - 19:07
Pia Jensen skrifaði:
Super flot cardigan
28.06.2026 - 09:23
조영 skrifaði:
Hi, I'm working on the size L. I've finished the sleeve-increases and am about to start the "body-only" increases (6 more times). Looking at the project photo, it seems like the raglan holes disappear or change in this section. Should I continue using the YO method as described in the raglan section? Or should I switch to a different increase method like M1L/M1R to make it look seamless like the photo? Thank you!
13.05.2026 - 10:14DROPS Design svaraði:
Dear 조영, just continue increasing as before, this means with a yarn over worked twisted as explained above under RAGLAN but the yarn overs will be now only worked at the end of left front piece + at the beg of back piece + at the end of back piece + at the beg of right front piece (=4 sts increased only). Happy knitting!
13.05.2026 - 13:51
Golden Mist Cardigan#goldenmistcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-35 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJUM (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJUM (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6-7 næstu hnappagötum með ca 7½-8-7-7-7½-8-7 cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 136-140-148-152-156-164-168 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Flora. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan með KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 2-2-2½-2½-3-3-3 cm – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Setjið 1 merki í innanverðar kantlykkjur að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3. Nú eru settir 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja slétt, þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 28-28-32-32-32-36-36 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 40-44-44-48-52-52-56 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Það eru 28-28-32-32-32-36-36 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar - lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 27-30-34-36-38-38-39 sinnum = 352-380-420-440-460-468-480 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Munið að fylgja prjónfestunni. Útaukningar fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 6-5-4-6-5-10-12 sinnum til viðbótar = 376-400-436-464-484-508-528 lykkjur í umferð (= 4 lykkjur útauknar í hverri útaukningsumferð). Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 20-21-23-25-26-28-30 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið nú berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið 54-56-63-67-69-77-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 74-80-88-92-96-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-20-24-28 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 106-114-120-132-138-148-158 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 74-80-88-92-96-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-20-24-28 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið næstu 54-56-63-67-69-77-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), endið með 7 kantlykkjur að framan. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 244-260-284-308-332-364-388 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48-50 cm frá merki við miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT því sem aukið er út um 52-56-64-72-76-80-88 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 296-316-348-380-408-444-476 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 41-43-45-47-49-51-53 cm frá merki við miðju að framan og ca 45-47-49-51-53-55-57 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 74-80-88-92-96-96-98 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-20-24-28 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 82-90-100-106-116-120-126 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-20-24-28 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 3-2½-1½-1½-1½-3-4 cm millibili, alls 5-6-7-6-6-3-2 sinnum = 72-78-86-94-104-114-122 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 15-14-12-11-11-9-7 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 16-18-18-22-24-26-26 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 88-96-104-116-128-140-148 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 18-17-15-14-14-12-10 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goldenmistcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.